Morgunblaðið - 14.07.1929, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 14.07.1929, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ 7 « Mánaðarrit til skemtunar og fróðleiks. Ritstjórar: Björn Jónsson, Jón Ólafsson og Steingr. Thorsteinsson. 7 bindi alls. Kostar 30 kr. í kápu. Aðeins örfá eintök til í heilu lagi. Ennfremur nokkur eintök af sumum bindlunum. ísaíolPÐPíiiiilja n.í. Leitin að „Köbenhavn“. Austurasíufjelagið danska hefir tilkynt, að samkvæmt skeytum frá oistjóra leitarinnar að skólaskip- “u ,Köbenhavn‘, muni mótorskip- K .jMexico" hafa fylgt venjuleg- um straúmi frá Tristan da Cunha að Góðrarvonarhöfða. Síðan það leitað um vesturströnd Suður-Afríku, um St, Helenuflóa, Thorbay, Points River, Óraníufljót og Van Reenans Bay, alla leið til Easter Cliff (sem er 25° s. br.), «n árangurslaust. — Mótorskipið „Lars Lissdahl' ‘ tók þátt í þessari leit, en ofviðri skemdi það svo, að það varð að leita inn á Liideritz- flóa til viðgerða. „Mexico“ mun balda áfram leitinni norður að 16° br. Parsóttir og manndauði í Reykjavík. Vikan 30. júní til 6. júlí. svigum tölur næstu viku í undan). Háisbóiga 54 (77), kvefsótt 4t ), infiúensa ] (2), kveflungna °.fa 3 G), taksótt 2 (0), barna ;S: o ((°o)’gigtsótt 2 (i)’ h t 0 1 1 (0), iðra tref 3Í'I^’ umferí5argula 1,(2) hlaupabola 2 (4); heimakoma ( (0), skarlatssótt 0 (0), umferðar lungnahimnubólga (pieur. epidem.; 3 (0), mænusótt i (q). Mannslát 7 (4). Einn af hinun ■dánu var sjúldingur á Lauganes ®pítala. G. B. Richarð Beck hefir verið kennari við Thiel Col- Kge, Greenville, Pa., U. S. A., síð- 811 í juní í fyrra. Eru tæpir þrjú hundruð nemendur að jafnaði í háskóla þessum, eu kennarar um þrjátíu. Er Beck forseti ensku- úeildar háskólans, en við hana eru tveir kennarar aðrir undir Beck. 1 hjáverltum sínum hefir Beck nnnið mikið að ritstörfum og gerf Inar8't til þess að auka þekkingu Ulanna vestra á íslandi og íslend- Jlgum. Síðan hann kom til Green- AdK hefir hann lialdið níu fyrir- °stia um ísland og íslenskar bók- lnentir, í skólanum og Greenville- org. Þann 21. nóv. s.l. flutti hann fyrirlestur, sem hann kallaði „The baga-land of the North“ (Sögu- Lndið í norðri) fyrir öllum kenn- urum og nemendum skólans. Þ. 18. jan. þ. á. flutti hann fyrirlestur um flugferðir á íslandi í fjelagi verslunar og iðnaðarmanna í Greenville, en áður hafði hann flutt þar yfirlits erindi nm ísland, lánd og þjóð. Þ. 6. maí þ. á. var hann aðalræðumaður í ársveíslu kennara Greenvilleborgar og tal- aði þar um ný-íslenskar bókment- ir. Og þ. 13. maí þ. á. flutti hann erindi um ísland og íslendinga í gagnfræðaskóla Greenville, fyrir yfir átta hundruð manns, nemend- um og kennurum. Eru menn vestra yfirleitt harla ófróðir um ísland, að því er Beck segir, og ætla, að hjer búi Skrælingjar, veldur nafn landsins nokkru um. Hinsvegar virðast menn fíknir í að fá sannar fregnir af íslandi og íslendingum. í febrúarhefti „Scandinavian Stud- ies and Notes“ þ. á. er ritgerð eft- ir Beck um þúsund ára afmæli Al- þingis. Er tímarit þetta gefið út af „Society of the Advancement of Scandinavian Study“, er vinnur að auknum áhuga á norrænum fræðum. 1 apríl-hefti „The Journal of English and Germanic Philo- logy“ var birt löng ritgerð eftir hann, um Gísla Brynjólfsson og Byron. Eru þar leidd rök að því, að „Faraldr“ Gísla. sje að nokkru, hvað anda og lífshorf snertir, stæl- ing á ,Childe Harolds -Pilgrimage‘ eftir Byron. Bráðlega kemur út grein eftir Beck um Stephan G. Stephansson í Ameriean Scandinavian Review. Erindi eftir Beck um þýðingu síra Jóns Þorlákssonar á „Til- raun um Manninn“ (Essay on Man) eftir Pope, var lesið á árs- fundi „Society for the Advance- ment of Scandinavian Study“ þ. 3. maí. Verður erindi þetta bráðlega prentað. Eftir Beck hafa birst kvæði á ensku, meðal annars í „The Lut- heran“, málgagni hinnar samein- uðu lútersku kirkju í Vesturheimi og fleiri blöðum. (FB). ---^ Dagbók I. O. O. F. 3. = 1117158 Iðunn, apríl-júní heftið, er ný- komin út. Þar er kvæði eftir Jakob Thorarensen „Svörtuloft* ‘, grem um flugleiðir eftir Skúla Skúlason, grein um Tagore eftir Halldór Kiljan Laxness. Ársæll Árnason skrifar um sauðnaut og Þorbregur Þórðarson birtir fyrirlesturinn „Lifandi kristindómur og jeg.“ Ennfremur er þar ritgerð „List“ eftir Grjetar .Fells, saga eftir Jón Jöklara, kvæði eftir Þórir Bergs- son, grein um heimskautafærslu eftir Hákon Helgason, stökur, smá- greinir o. fl. Nýja Bíó sýnir á morgun í fyrsta skifti þýsku stórmyndina „Njósn- arar.“ Myndin er í 12 þáttum og tekin af Ufa-fjelaginu nafnkunna í Berlín. Aðalhlutverkin leika hinn g'óðkunni leiliari AVilly Fritsch, R.udolf Klein-Rogge „karakter-1 ‘ leikarinn frægi og Gerda Maurus. Myndin er tilþrifamikil, tekin og' leikin af mestu snild. — Myndin er bygð á frægurn atburði, sem fyrir nokkru vakti athygli um all- an heím — Arcosmálinu. Ekki þarf að talta það fram, að liún er með afbrigðum „spennandi.“ Læknaprófi luku í gærkvöldi við Háskólann Bragi Ólafsson II. eink. betri, Jón Nikulásson I. eink., Karl Jónasson II. eink. betri.. Ólafur Einarsson I. eink., Sigurður Sig- urðsson I .eink. og Þórður Þórðar- son I. eink. Einkunn Sigurðar Sig'- urðar Sigurðsson var 197% stig, og' er það fjórða liæsta einkunn í læknisfræði, sem tekin hefir verið lijer við háskólann. Súlan fór í gær til ísafjarðar og kom við á Sandi, Patreksfirði og Þingeyri. Til Patreksfjarðar flutti hún áríðandi hluti í hreyfil, en til Þingeyrar flutti hún Hugo Proppé. Til ísafjarðai' fór Halldór Halldórsson. Vestmannaeyjaferðin fórst fyrir í gær, en farið veröur í dag eða á morgun ef veður leyfir. Veiðibja-llan er væntanleg hing- að með Selfossi á morgun, — Hún imm ef til vill fara fyrstu norð- urför sína á þriðjudag. Gamla Bíó sýnir Paramount- mynd „Fræknasti hnefaleikarinn.“ Richard Dix leikur þar aðalhlut- verkið — ungan og duglegan hnefaleikara, en Mary Brian leik- ur ástmöy hans. Myndin er fjörug log skemtileg. Hjáipræðisherinn. — Samkomur sunnudaginn 14. júlí. Klukkan 11 f- hád. lielgunarsamkoma. Kl. 2 síðd. sunnudagaskóli. Kl. 4 síðd. ntisamkoma á Lækjartorgi og kl. 7 við steinbryggjuna. Kl. 8% hjálp 'æðissamkoma í samkomusalnum í nkjustræti 2. Axel Olsen, kapt. wcctnu viu ívie ann er auglýst iaust tii ur Kristileg samkoma á N 1 í kvöld kl. 8. Allir velk. Esja kom í gær að austan. Komu þeir með henni af landsmálafund- unum Jón Þorláksson og Árni Jónsson frá Múla. „Gangleri," tímarit Guðspekifje- lagsins, 1. liefti þriðja árs, er ný- komið út. Þar er minst frú Astrid sál. Kaaber. Greinir um Krishna- murti, um frjálskaþólsku kirkjuna, hiemsfræðara o. fl. Frágangur rit- ins er hinn vandaðasti og það mjög ódýrt. Síra Bjarni Jónsson heldur sam- komu í kvöld kl. 8%, talar um Olfert Ricard. Allir velkoúmir. Alþýðubókasafnið. Menn eru á- mintir um að skila þegar í stað bókum, Qi' þeir hafa að láni, ella verða þær tafarlaust sóttar á þeirra kostnað. Mjólkurfjelag Reykjavíkur hef- ir samið við Júlíus Björnsson um raflögn í liið nýja stórhýsi fje- lagsins við Hafnarstræti og Tryggvagötu. Sundlaugarnar verða lokaðar til þriðjudags, vegna viðgerða. Mishermi var það í Morgtmbl. í gær, er Jón Eyþórsson var kallað- ur Veðurstofustjóri. Undir-Jónas hefir látið af rit- stjórn Tímans um stundarsakir, og er mælt að hann eigi að hverfa frá þeim starfa fyrir fult og alt áður en langt um líður. Úr stjómarráðinu hefir frjest, ao Jónas dómsmálaráðherra hafi fyrir skömmu flutt sig í herbergi forsætisráðherra. Eggert Briem hæstarjettardóm- ari liefir verið kjörinn dómstjóri Hæstarjettar frá 1. sept. þ. á. til 1. sept. 1930. Einkennileg játning birtist frá Jónasi frá Hriflvi í Tímanum í gær. Kvartar hann yfir því, að Morg- unblaðið hafi sagt frá samfundum þeirra Sig’urbergs Elíssonar og lians inn við Elliðaár. Nefnir hann frásögnina hjer í blaðinu „langa skammagrein“. Eftir því að dæma lítur dómsmálaráðherrann núver- andi svo á, að þegar eitthvað er sagt frá daglegu framferði hans, þá sjeu það skammir, hljóti svo að vera. Þetta finnur þá maðurinn sjálfur. Sumarauki. Það er ekki ónýtur rnaður hann Helgi P. Briem, hjerna skattstjórinn okkar, eftir því sem Tíminn segir. Hann hefir sem sje aukið tekjur ríkissjóðs uin 500 þús. kr. Ekki er það tilr greint í blaðinu við hvað er miðað, en eftir orðanna liljóðan mun eiga að skilja það svo, að skattar hefðu hjer verið % miljón kr. lægri, ef hans hefði ekki notið við. — Ritstjórar Tímans munu þó eigi geta neitað því, að árferðið liafi nokkur áhrif á tekjur ríkissjóðs af sköttum, og hækkunin frá rýra- árinu 1927 í veltiái'ið 1928, sje að einhverju leyti góðærinu að þakka. En eftir kokkabók Tímans á að þaklta Helga P. Briem fyrir alt saman. Jafnframt er sagt, að hann hafi getað unnið þetta þrekvirki veg’na þess að hann fjekk eitt sinn 1400 króna ríkisstyrk. Það borgar sig að „arta upp á“ svona meun, og er J. J. vís til að láta Helga fá nokkrar kringlóttar til þess að hann geti sje um að góðærið hald- ist næstu missiri(!) Dómur er nýfallinn í máli því, er rjettvísin höfðaði gegn Enok bifreiðarstjóra Helgasyni, fyrir bif- reiðarslysið á Hellisheiði. Ástæður þær, er Enok færði sjer til máls- bóta eru þær, og Sprungið hafi á hægra framhjóli og það hafi því runnið út af. Ofmiklum hraða, eða ólöglegri stjórn á bifreiðinni hafi því ekki verið um að kenna. — Dómurinn er bygður á því, að far- þegar heyrðu alls engan hvell áð- ur en bifreiðin steyptist og urðu þess ekki varir, að sprungið hafði á hjólinu meðan bifreiðin var á ferð. Þykir eðlilegt að álíta, að slangan hafi sprungið, þegar bif- reiðin kollsteyptist log allur þungi hennar hvíldi á hjólinu. Það er og auðsjeð á hjólinu, sem er beiglað, að það hefir orðið fyrir miklu höggi, þar sem framhjólin snerust þvert fyrir utan í vegarkantinum, en bifreiðin lientist áfram og stakst síðan á horn. Einn af far- þegunum kvaðst hafa skilið ákærð- an svo, rjett eftir að slysið vildi til, að slangað hefði sprungið eftir að hjólið fór út af, eða þegar hann reyndi að koma bifreiðinni upp á veginn aftur. Rjetturinn taldi enga4' líkur til þess, að ástæðan til þess áð bifreiðin fór út af sje sú, að sprungið hafi á hjólinu. Telur liann að skýringin liggi í því, að hraði bifreiðarinnar hafi verið svo mikill í beygjunni, að miðflótta- aflið hafi knúð liana til vinstri að aftan, enda h'afa vitnin borið, að þau hafi orðið þess vör. Yið þetta hafi bifreiðin snúist meir til hægfi að framan og kærðum elcki tekist að rjetta liana við aftur í tæka tíð, áður en hún rann útaf. Af vitna- framburði sjest, að hraðinn hefir verið mildll, enda sýnir bifreiðin það. Rjetturinn álítur því, að bif- reiðarstjórinn hafi gert sig sekan í tvennu, sem bílstjórar eiga að gæta, án umhugsunar, að aka ekki af meiri liraða í beygju en svo, að. bifreiðin láti vel að stjórn og að stöðva bifreiðina, þegar hún fer út af . í stað þess að aka 8 metra utan við veginn og beita síðan bif- reiðinni af miklnm hraða upp í lausgerðan vegkantinn. Bifreiðar- stjórinn var dæmdur í eins mán- aðar fangelsi við venjulegt fanga- viðurværi. Ennfremur missir hann ökuleyfi æfilangt. Lilln- limonaðipúlver gefur hinn besta drykk, isem slekkur þorsta, bætir drykkjarvatn i og svalar í hitum. Þarfnist þjer drykk, þá veljið Lillu-limonaðipúlver, því það er gott og gefur ó- dýrastan svaladrykk. Hentugt í ferðalög. Nærandi og góður barnadrykkur. Framleiðist best úr köldu vatni. Notkun fylgir. Fæst varvetna á 15 aura. H.f. Efnagerð Reykjavfkur, Bílferðir norður. B. S. B. Sími 16. B. S. B. Þeir sem hafa ákveðið að ferðast norður í land, ættu að tryggja sjer bílfar hjá okkur, því við sendum ávalt fyrsta flokks bifreiðar norð- ur eftir komu e.s. Suðurlands í Borgarnes. Alt fyrsta fL fólksflutningabílar. Hvergi ódýrari fargjöld. Farseðlar seldir á Vörubílastöð Mey- vants, 1006 símar 2006, eða símið til Bifreiðastöð Borgarness. Magnús Jónasson. smábátamótorar ávalt fyrirliggjanði hér á staðnum. C. Proppé. Nýkomið: Prjónakjólar, prjónatreyj- ur, taukjólar og Sumarkjóla- tau. Verslnnin Vík. Laugaveg 52. Simi 1485. Obels munntóbak er best. Verslið við Vikar. — Vörur við vægu verði. —

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.