Morgunblaðið - 13.10.1929, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 13.10.1929, Blaðsíða 11
MORGITNBLAÐIÐ 11 Feikna úrval a! Verð frá 9.50-25 kr. RKkið úrval a! ensknm bnfnm, verð írá 2.25. Enskar búfnr handa dreng)am, verð !rá 1.75. Loðbúfnr og skinnbnfnr handa karlmönnum. Skinnbnf nr handa drengjum. Nýkomið í Anstnrstr. 1. Asg.G.Gunnlaugsson S Go. M.s. Orcnning Alexendrine íer J>riðjudagijm 15. þ. m. kl. 6 síðdegis til ísafjarðar, Siglufjarðar og Aknreyrar. Þaðan sömu leið til bxka. >• Farþegar sæki faimiða á morg- un. — Fylgibrjef yfir vörur komi á Uiorguu. C. Zimsen. Kvenkápnr Kvenkjólar Karlm. Föt Vetrarfrakka Rykfrakka Regnirakka er best að kanpa í Vöruhúsinu Lauknr sjerlega góður á 80 aura kílóið hjá Nýlenduwllrucieild ES ZIMSEN. Slys á Dalvík. Fyrir skömmu slasaðist maður á Dalvík. Sat hann á vörubíl, en bíllinn valt fram af háum bakka og lenti á húsi, er stóð undir bakkanum. Maðurinn varð á milli bílsins og hússins og slasaðist mikið, kjálkabrotnaði,. hausluipan laskaðist eitthvað og skinnið flettist af frá enni aftur á hnakka. Maðurinn heitir Björgvin Vigfússon, ungur og kvæntur, bú- settur á Dalvík. Hann var fluttnr til Akureyrar og lagður í sjúkra- hús þar, og er mjög tvísýnt um líf hans. .. Þungur róður. Sósíalistar á Ak- ureyri hafa undanfarið látið bera um bæinn skjal, til þess að safna á mótmælum gegn frávikningu Steinþórs Guðmundssonar fyrver- andi skólastjóra og kröfu um, að hann verði settur' í embættið aft- ur. Á fimtudaginn var hafði skjal- ið verið í umferð 14 daga, og 14 skrifað á það — einn á dag! Sfldin. Um síðustu he'lgi voru nál. 20 þús. tunnur á Siglufirði, en talsvert af þeirri síld var flutt út nú í vikulokiu. Verð á síld er mjög hátt erlendis, og nær Einka- salan vonandi í það með eitthvað af sinni ’ síld. Kvikmyndahúsin. Auglýsingar þeirra eru á 4 síðu í dag. Á sýningu Guðmundar Einars- sonar í Listvinahúsinu hafá selst 4 málverk og nokkrar „raderingar' ‘. Framvegis verður sýningin opin frá kl. 10—6 og liafa böm innan 14 ára ókeypis aðgang, ef þau eru í f'ylgd með fullorðnu fólki. Gissnr Bergsteinsson fulltrúi í dómsmálaráðuneytinu er að fræða lesendur Tímans á því, að það hafi verið algengt í tíð Jóns sál. Mag- nússonar, að fulltrúinn skrifaði undir skjol frá ráðuneytinu ,J>\ h. r.“ (þ. e. fyrir hönd ráðheirra) og „e. u.“ (þ. e. eftit umboði). — Óþarft var fyrir Gissur að fræða menn um þeítta, því það vissu all- ir. Hitt kom aldrei fyrir í tíð Jóns Magnússonar — og hefir aldrei skeð fyr en nú — að ráðherra, sem dvelur erlendis og þar af leið- ándi getur ekki gengt ráðherra- störfum, ljeti fulltrúa skrifa undir skjöl „F. h. r.“ og „e. u.“, eins og átti sjer stað við rektorssetn- inguna. Forsætisráðherra gegndi störfum dómsmálaráðherra í fjar- veru Jónasar frá Hriflu. Tr. Þ. hefir lýst því yfir við ritstj. Mbl., að setningarbrjefið til rektors, sem Gissur skrifaði undir „F. h. r.“ og „e. u.“ sje ekki undirritað í umhoði sínu, heldur ráðherrans, sem erlendis dvaldi og ekkert ráð- heTravald hafði á Islandi! Slík und irskrift hlýtur að vera hrein lög- leysa og markleysa. Sýmng Helga Zandéns verður opin alla daga frá kl. 11—7 til fimtudags n. k. Kennaraskólanemandi úr sveit tekur að sjer að kenna börnum; upplýsingar i sima 1759 (shr. aug- lýsing í blaðinu í dag). Sjómannastofan. Guðsþjónnsta í Varðarhúsinu í dag kl. 6. Jóhannes Sigurðsson talar. Allir ve'Ikomnir. Ljóðmæli Jónasar Hallgrímsson- ar eru uppseld. 1. hefti af ritum hans, ljóðmælin og smásögur, er nú nýkomið í bókaverslanir. Góð bók og þó ódýr. Um Olfert Ricard flytur síra Bjarni Jónsson fyrirlestur í K. F. U. M. í Hafnarfirði í kvöld kl. 9. Allir velkomnir. Guðmundur Bjömson landlækn- ir átti 65 ára afmæli í gær. Hann er síungur í anda, glaður og reifur eins og skyldi guma hver. „Baltic“, aukaskip Eimskipafje- lagsins, sem braut skrúfuna í brim inu á Siglufirði á dögunum, hefir nú verið dregið til Akureyrar og á >ar að setja nýja skrúfu á skipið. Búist er við að skipið verði á Ak- ureyri fram eftir þessari viku. Flugfjelag íslasads hefir sótt til bæjarstjórnar Akureyrar um 5000 kf. árlegan styrk til flugferða. •— Málaleitun þessari var visað til nefndar. Akureyrarbær kaupir málverk. Bæjarstjóm Akureyrar samþykti nýlega á fundi að kaupa málverk eitt stórt og fallegt af Akureyri og umhverfi. Kaupverðið var 1000 kr., en Freymóður málaði. OÚuverslun íslands hefir nú sótt um til bæjarstjórnar Akureyrar að fá að byggja olíugeyma á Tangan- ,um. „Straumar“, 7. og 8. tbl., eru nýkomin út. Efnið er: „Hamar og sigð“, eftir síra Sigurð Einarsson (frh.) og frásögn um prestastefn- una síðustu, Lúterska alþjóðaþing- ið í Khöfn, Vorboði kaþólsku kirkj unnar á íslandi o. fl. Ástalíf hjóna heitir bók, sem er nýkomin á markaðinn. Er hún eftir dr. Marie C. Stopes, höfund bókarinnar „Hjónaástir“, sem kom út í fyrra. Höf segir svo í formála: „í þessari hók mnnu menn finna nýja lausn á vandamálinu: ástalíf roskins fólks, og þar sem því hefir, mjer vitanlega, aldre'i áður verið lireyft, vona jeg, að sá þáttur bók- arinnar sje einna mikilverðastur“. Sigurður Eggerz bankastjóri dvelur erlendis um þessar mundir. Auðvitað uotar Tíminn tækifærið t-il þess að kasta hnútum að Sig- urði. Drengskapurinn er altaf sá sami í herbúðunum þeim. Brúarfoss fór frá Reyðarfirði í gær áleiðis til London, fullfeírmdur vörum, hafði meðal annars innbyrð is 32 þúsund kindarskrokka, 17 þúsund knippi af gærum og 1000 kassa af saltfiski. Tólf farþegar voru með skipinu. íslandskvikmynd Leo Hansen var sýnd í Nýja Bíó í gærkvöldi í fyrsta sinn. Myndin er löng, sýn- ing tekur um tv:er stundir. Vantar þó nokkuð inn í myndina ennþá, t. d. togaraveiðar, fjársmölun og rjettir. Ennfremur vantar skýr- ingar, en myndtökumaðurinn skýrði alt fyrir áliorfendnm. Mynd in er yfirleitt vel teíkin, og sum atriði hennar ágæt, eins óg t. d. myndirnar frá Gullfossi, Hvítár- vatni og Langjökli, Krísuvík, Mý- vatnssveit, Dettifossi, Goðafossi, Tröllafossi. Yfirleitt her mikið á náttúrumyndum í filmunni og yf- irgnæfa þær alt annað. Verður það skiljanlegt af frásögn myndtöku- mannsins, er birtist hjer í blaðinu fyrir skÖmmu. Hann segir, að ís- lensk náttúra hafi heillað sig svo, að henni haf! hann fórnað meira en lýsingu á at.vinnulífi þjóðar- innar og sýningu á því, hvernig hún sjer sjer íarborða. Þó eru þarna ýmsar myndir er sýna at- vinnulífið, landbúnað, sjávarútveg og iðnað. Yfirleitt verður ekki annað um þessa mynd sagt sem íslandsmynd en að hún sje góð, þegar tillit er tekið til þess, að það er útlending- ur, sdm hana, hefjr tekið. En hetri er þó mynd Lofts, þegar öllu er á botninn hvolft, enda er íslending- um ætlandi að velja betur og ná- kvæmar fyrirmyndimar heldur en útlendingar geta gert, þótt allir sje af vilja gerðir. Myndm verður aftur sýnd í dag í Nýja Bíó kl. 5, kl. 7 og kl. 9, og verður því engin barnasýning í kvöld. Útskýringar á öllnm sýn- ingum í dag annast Skúli Skúlason ritstjóri. Á þriðjudaginn verðnr þessi mynd sýnd bömnm kl. 7 í Nýja Bíó. Síra Helgi Hjáhnarsson á Grenj- aðarstað kom hingað til bæjarins ásamt fjölskyldu sinni með Novu seinast. Er hann hingað komhm til að leita sjer lækninga og verður að dvelja hjer fram dftir vetri. Hefir hann sótt nm lausn frá prestsskap frá næstu fardögum, en í vetur þjóna fyrir hann prestamir síra Þormóður Sigurðsson og síra Knútur Arngrímsson. Höfuðbólið Gienjaðarstaðir verður mannlaust í vetur. Rit Jónasar Hallgrímssoínar fást hjá bóksölum. Kristileg samkoma verður a Njálsgötu 1 í kvöld kl. 8. Allir ve'lkomnir. Lúðrasveit Reykjavíkur spilar á Austurvelli í dag kl. 3, ef veður leyfir. Dansskóli ungfrú Rigmor Han- son er á hverjum þriðjudegi í Iðnó, en ekki á mánudagskvöld- um, eins og misprentaðist í Morg- unblaðinu um daginn. — Onnur dansæfing verðnr á þriðjudags- kvöldið kemur. Alþingishátíðartj öldin. í gær- morgun voru reist á Austurvelli tvö tjöld. Eru þau sýnishom af tjöldum þeim, sem Alþingishátíð- arnefndin útvegar mönnum til að búa í á Þingvöllum að sumri. Er annað tjaldið fyrir 10 menn, en hitt fyrir fimm. Þan efru alveg vatnsheld og fylgir þeim gólfdúk- ur. Tjöld af þessum stærðum og stærri fást keypt eða leigð; (sbr. tilkynningu í blaðinu í igær), og eiga þeir, sém leigja vilja, að snúa sjer til skrifstofu heilbrigðisfull- trúa á Vegamótastíg (milli Hegn- ingarhússins og Laugavegs Apó- teks), sími 753. Það skal enn tek- ið fram, eftir ósk framkvæmda- sttjóra hátíðarnefndar, að menn eiga ekki neitt í hættu, þótt þeir panti tjöldin, því að þeir mega af- sala sjer þeim aftnr fyrir miðjan maí, ef þeir geta ekki sótt hátíðina á Þingvöllum einhverra orsaka vegna. En nví er hver seinastur að panta tjöldin — pöntunarfrestur er ut runninn á þriðjudagskvöld, og þeir sem hafa ,ekki trygt sjer tjöld fyrir þann tíma, mega búast við að verða skjóllausir á Þing- jvöllum þessa þrjá daga, sem há- tíðin • stendur. Til þess að fyrir- hyggja misskilning skal þess og getið, að þeir sem kaupa tjöld, þurfa ekki að greiða neitt fyrir tjaldstæði á Þingvölluni — þurfa ,ekki einu siuni að hugsa um að reisa tjöldin, því að hátíðarnefnd- in afheudir þau réist á Þingvöll- um. Málverkasýning Eggerts Lax- dals verður opin í dag og næstu daga kl. 11—5. Á sýningunni eru milli 70 og 80 myndir, olíumál- verk, vatnslitaniyndir og teikning- ar. Myndirnar eru hjeðan af landi og frá Cagnes á Frakklandi, þar sem listamaðurinn hefir dvalið 1 lengi. , i Uliirllilaln I • • • l* • frá 4,85 pr. mtr., 1» J í nýjustu litum nýkomið. i • Tricotinekjólar, • 5 » ;• SiUdkjólar, Ullartauskjólar. * Best og ódýrast úrvai S • : læknir Laugaveg 40 (Liekningastofa .Téns Hj. Sigurðssonar) sími 179. HeiHia- sími 325. Viðtalstími 11—12 og 5-6. Nú eru hinar marg eftir- spurOu 7 Hk: vjelar loks komnar. C. PROPPÉ. Uðsmyndastofa Vignirs við Lækjartorg (Fordhúsið) er opin í dag kl. 1—4. Notið hvíldardaginn til mynda- töku því þá er skapið ljettast og annir og áhyggjur hversdagslífs- ins gleymdar. í dag er liðið eitt ár síðan Sof- fívibúð vár ópnuð i Austurstraíti í stórhýsinu, sem þá var verið að euda við að byggja beint á mófi Landsbankanum. Verslun þeasi hefir getið sjer ágætis orðstír, seta fljótt iná sjá á því, hvað mikill fjöldi f'ólks á þar daglega leið iub. Snotra vörnsýningu má sjá þar í dag, ekki einungis á búðarglugg- unum, heldur líka ef litið er mn um hurðarrúðurnar. Ins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.