Morgunblaðið - 24.01.1930, Side 6

Morgunblaðið - 24.01.1930, Side 6
MOK t; ('NBLAt)l « 6 31. des. 1921 er hagur bæjarins í lok ársins 1928 sem næst 70% betri og get jeg ekki skil- ið annað, en að það verði að telja ágæta fjármálastjórn, sem ber slíkan árangur. Ef litið er á eignir og skuldir bæjarsjóðs eingöngu, og ekki talin með vatnsveita, gasstöð, rafmagnsveita og höfn, þá verð- ur útkoman sú, að eignir voru 1928 kr. 8,201,278,23, en 1921 kr. 6,086,671,98. Eignaaukning kr. 2,114,606,25. Skuldir voru aftur á móti 1928 kr. 1,626,165,79 og 1921 kr. 1,867,262,69. Skuldalækk- un kr. 241,096,90. Hagur bæjarsjóðs hefir batn- að um kr. 2,355,703,15. Skuld- irnar voru 1921 um 30% af eignunum, en 1928 um 20%. 1 árslok 1921 voru skuldir bæjar- sjóðsins þannig 50% hærri en í árslok 1928, þegar miðað er við bókfærðar eignir, og virðist mjer vel mega við það una. Jeg fer ekki að sinni fleiri orðum um bæjarreikninginn. — Það, sem jeg hefi sagt, og þær tölur, sem jeg hefi nefnt, mun nægja til þess, að sýna, að ó- hætt er að trúa þeim flokki fyr- ir stjórn bæjarmálefnanna, sem haft hefir forustuna undanfarin ár, og skynsamir kjósendur láta rangar tölur og afbakanir þeirra B-lista-manna verða sjer aukna hvöt til þess að setja kross við C L I S T A N N . Skattborgari. Tálbeitan. • Sósíalistar og Hrifluliðið reynir nú að lokka kjósendur til fylgis við sig, með loforðum um að færa skattbyrði bæjarbúa yfir á atvimiu rekendur. En menn verða vel að gæta þess, að útgerðinni er nú þegar svo óhóflega íþyngt með sköttum til bæjar og ríkis, að lengra verður ekki gengið, svo að eigi verði til þeirrar stórhættu stofnað að gjaldþolið bresti. Allir vita að Reykvíkingar lifa á útgerðinni. Leggist hún í rústir heldur sulturinn innreið sína. — Ekkert er þvi Reykvíkingum jafn hættulegt sem að fá þeim mönnum völdin í bænum, sem eru blindir hatursmenn útge'rðarinnar, eins og sósíalistabroddarnir og Hriflu- Jónas. Felið varfærnum og velviljuðum anönnum völdin. Kjósið C-listaxm! Samskólinn. Þetta stórmerka :skólamál Jóns Ófeigssonar yfir- kennara hefir nú enn á ný verið lagt fyrir Alþingi. Flutningsmenir ■eru þeir Magnús Jónsson og Jón Ólafsson. Tímaklikan, undir for- ;ystu Jónasar frá Hriflu, hefir drepið þetta mál á undanförnum þingum. Vafalaust drepur klíkan málið einnig á þessu þingi. Þessi maður er nú að biðla til reyk- vikskra kjósenda — biður þá að kjósa einn af sendimönnum sín- um, Hermann lögreglustjóra í bæj- arstjórn. Reykvíkingar! Munum nú meðfe'rðina á Samskólanum. Kjósið lista Sjálfstæðismánna, sem er C-listi. Er beppilegt að ieyreglnstjíri sje bæjariulltrni ? Þessari spurningu eiga borg- arar bæjarins að svara — á morgun. Þessari spurningu svaraði lög- reglustjóri bæjarins sjálfur fyr- ir tveimur árum. Hann var þá spurður, hvort hann vildi taka sæti á lista til bæjarstjórnar- kosninga. Hann svaraði því á þá leið, að hann væri í þann veginn að taka við ábyrgðar- miklu starfi og vildi þess vegna ekki gefa sig í deilur um bæjar- mál. Flestir munu fallast á, að þessi skilningur lögreglustjór- ans á mikilvægi starfs síns sje hárrjettur. Og þess vegna eiga menn erfitt með að skýra, hvers vegna lögreglustjórinn hefir svo skjótt sem raun er á orðin, horf- ið frá þessum lofsamlega ásetn- ingi sinum. Nú er það auðvitað svo, að hægt er að hugsa sjer þann af- burðamann í sæti lögreglustjóra að hann væri fær um að gegna embætti sínu ásamt bæjarfull- trúastarfinu, svo að sæmilega væri. Hermann Jónasson hafði það mat á hæfileikum sí'num í hitt eð fyrra, að hann væri ekki slíkur afburðamaður. Enn hefir ekkert komið fram, sem hrundið geti þessu tveggja ára gamla sjálfsmati lögreglustjóra. Til þess að lögreglustjóri geti annað báðum störfunum svo vel fari, þarf hann fyrst og fremst að vera sá skapstillingarmaður, að gagnrýni sú, sem óhjá- kvæmilega fylgir hinni póli- tísku baráttu, verði ekki til þess að raska því jafnvægi, sem um- fram alt verður að vera ein- kenni þess manns, sem hefir á hendi yfirstjórn lögreglumál- anna. Lögreglustjóri verður að vera sá skapfestumaður, að hann verði ekki flumósa, þótt á hann sje minst á einhvern annan hátt en hann hefði helst kosið. Og geti hann ekki tekið hógværum aðfinslum, er hann blátt áfram ekki fær um að vera lögreglustjóri. Hvernig tekur Hermann Jón- asson slíkum aðfinslum? í gær var hjer í blaðinu fund- ið að því, að lögreglustjóri hefði mánuðum saman legið undir á- sökunum, sem bornar voru fram í opinberu blaði, og vörðuðu em bættisheiður hans. Hann hefði legið undir svívirðilegum að- dróttunum, án þess að fara þá sjálfsögðu leið, að hnekkja þeim með málssókn. Hann hefði beð- ið þess, að sá, sem að svívirð- ingunum stóð, sækti í sig veðrið til nýrra árása. Hjer var alls ekkert undir þessar ásakanir tekið. En þess var krafist vegna virðingar þeirrar lögreglu, sem hefir Hermann Jonasson að odd vita og fyrirsvarsmanni, að hann hnekti þessum aðdrottunum, svo sem lög standa til. Þess var krafist í nafni lög- hlýðinna borgara bæjarins, að „vörður laga og siðgæðis" inn- an lögsagnarumdæmis Reykja- víkur, lægi ekki undir vansæm- andi aðdróttunum án þess að hafast að. Þess var loks krafist í nafni lögreglustjórans sjálfs og dóms- málaráðherrans, sem báðir hafa fjargviðrast yfir því', að ein- hverjir menn hefðu „hrækt á lögregluna", að lögreglustjóri höfuðstaðarins sýndi af sjer þá rögg, að þurka af einkennisbún- ingnum sletturnar á|5ur en „hrækt“ væri á hann að nýju. Hvernig er þessum rjettmætu og kurteislegu aðfinslum yfir aðgerðaleysi lögreglustjóra tek- ið? Er það gætinn skapfestumað- ur, sem stendur að baki grein- um þeim, sem birtust í kosninga blaði Hermanns lögreglustjóra, og út kom í gærkvöld? Svarið er á þá leið, að öllum mönnum, sem ekki eru ger- sneyddir rólegri yfirvegun, mun blöskra. í stað þess að gera grein fyr- ir því, hvers vegna mönnum líðist bótalaust að „hrækja á lögregluna", er farið svívirð- ingarorðum um þá„ sem leyfa sjer að finna að hinu óskiljan- lega sinnuleysi lögreglustjórans. Morgunblaðið er svívirt fyrir að bera út róg um lögreglu- stjórann. En Morgunblaðið hef- ir ekki borið út neinn róg um þennan velmetna dánumann. — Morgunblaðið hefir þvert á móti lýst yfir undrun sinni yfir og vanþóknun á, að nokkrum manni skuli haldast uppi að bera út róg um lögreglustjór- ann. Morgunblaðið hefir meira að segja forðast að geta um ásak- anir þær, sem bornar eru á lögreglustjóra. Blað lögreglustjórans ber róg inn út. Þeir, sem það blað lesa, geta sjeð, að ásakanirnar á hendur honum eru mjög alvar- legs eðlis. Eftir þann lestur hljóta menn að undrast enn meir en áður, að lögreglustjór- inn skuli láta bjóða sjer svo fá- aæma nærgöngula ósvífni, án þess að hreyfa legg eða lið. Af ' greinum málgagns lög- reglustjórans, verður það helst ráðið, að hann álíti, að hann geti leyft sjer að láta „hrækja á sig“, ef sá sem „hrækir“ eigi að einhverju leyti flekkaðan skjöld. t því sambandi má benda á það, að ekki e'r viðkunnanlegt, að ráðast á mann, sem á í saka- máli, meðan málið er ekki út- kljáð. Síst ætti slíkt að sjást í blaði, sem er sameiginlegt mál- gagn ákæruvalds og refsivalds. Hefði Hermann átt að minnast þeirrar útreiðar, sem hann fjekk á fundinum í tþróttahúsinu og láta sig ekki henda annað frum- hlaup, meðan á kosningahríð- inni stendur. En þetta „skálkaskjól“ mál- gagnsins fer algerlega í bág við yfirlýsingar Hermanns sjálfs. Á umræddum kosningafundi gerði Hermann sig töluvert breiðan og sagði, að ef það kæmi fyrir, að lögregluþjónn, sem væri í þjónustu sinni, ljeti nokkrum manni haldast uppi bótalaust, að sýna sjer óvirð- ingu, þá yrði hann „ekki í þjón- ustu lögreglunnar á morgun“. Eftir röksemdafærslu kosn- ingamálgagnsins, getur hvaða lögregluþjónn sem er afsakað sig með því, ef á hann verður „hrækt“, að sá, sem „hrækti“, væri „erkibulla og dóni“! Og ef hann færi trúlega að dæmi yfirboðara síns, mundi hann vaða með óbótaskömmum á hvern þann, sem fyndi að því, að lögregluþjónarnir væru not- aðir sem umferðahrákadallar handa bullum bæjarins. Er heppilegt, að lögreglu- stjóri sje bæjarfulltrúi? Þessari spurningu svaraði Hermann Jónasson neitandi fyr- ir tveimur árum. En er hðppilegt, að Hermarm Jónasson lögreglustjóri sje bæj- arfulltrúi? Þeirri spurningu eiga kjós- endur að svara á morgun. Framkoma Hermanns Jónas- sonar í því máli, sem hjer hef- ir verið gert að umtalsefni, mun nokkru ráða um það, hvort svar kjósendanna verður játandi eða neitandi. Kartðflnræktin í Brantarholti. Mikið er nú rætt um tilraunina til kartöfluræktar árið 1918. — Guðm. .Jóhannssyni og mjer er gefin sök á, hve hörmulega sii til- raun tókst, og Alþýðublaðið og Ingólfur feitletra illmæli út af þessu í okkar garð. Tilraun þessi til kartöfluræktar var gerð af hræðslu við, að sigl- ingar mundu alveg teppast og heft ast innflutningur á nauðsynjavör- um til landsins. Rikisstjórnin Ijet gera aðra tilraun á Garðsskaga og mun árangurinn hafa orðið enn verri en í Brautarholti. Ekki voru það mín ráð að gera Cþessa tilraun og ekki valdi jeg framkvæmdarstjórann. — Olafur Friðriksson benti á Guðmund Jó- hannsson og taldi honum flest til gildis. Jeg hafði engin kynni haft af Guðmundi, .en fyrir tilstilli ÓI- afs var hann ráðinn, og jeg býst kki við, að Guðmundi verði kent um, hvernig fór. Mörg atvik lágu þar að. Jarðræktarverkfæri, sem voru pöntuð að ráði Guðmundar, komu of seint vegna siglingatepp- unnar og kaupa varð önnur ó- hentug verkfæri, sem fengust hjer á staðnum og sumpart voru smíð- uð. Útsæðið reyndist mjög slæmt, þótt bestu tegundir væru keyptar. Guðmundur orðaði jafnvel, að láta það alls eltki í jörðina, en það var þó gert, af því að landið var plægt og' áburður í það borinn, og auk- inn kostnaður því lítill. Það var vitanlega altaf búist við því, að mikill kostnaður yrði fyrsta árið við ræktunina, þar sem tekið var alveg óbrotið land, en hugsunin var að halda þarna áfram kartöflurækt í fleiri ár, og ná þannig upp stofnkostnaðinum. Frá því var horfið af því að heims- styrjöldinni lauk í nóvember 1918. Beinn kostnaður bæjarsjóðs varð ekki öll sú fúlga, sem reikningur- inn 1918 sýnir, því að hestar þeir, Vse'm keyptir höfðu verið voru not- aðir við annan atvinnurekstur bæj- arins og nokkru seinna voru jarð- ræktaráhöldin seld og andvirðið rann í bæjarsjóð. Um Guðmund Jóhannsson er það að segja, að hann vann með líf og sál að verkinu, og jeg varð ekki var við nein mistök í stjórn hans. — Reikningskil hans voru glögg og nákvæm og sjálfur bar hann lítið úr býtum, aðeins einar 1200 krónur. A styrjakla rárunum var oft úr vöndu að ráða og margir erfiðleik- ar voru á framkvtemdum, sem nauðsynlegar þóttu og urðu þær dýrar. Menn muna eí'tn Tjörnes- kolunum, grjótvinnu ríkissjóðs í Öskjuhlíðinni o. fl. o. fl. — Þessi fyrirtæki báru vissulega ekki öll arð, en kostuðu stórfje. Sanngjarnir menn munu ekki dæma starfshæfileika Guðmundar Jóhannssonar eftir útkðmunni á kartöfluræktuninni, en fremur lita á hve' mikla rækt hann lagði við þetta starf sitt og annað, sein hann hefir haft með höndum. K. Zimsen. Loforð — Svik. Aldrei hefir fagurgalinn látið hærra, aldrei var fleiru lofað, en Framsókn gerði fyrir síðustu Al- þingiskosningar. Aldrei liafa fleiri loforð verið svikin en þau, e'r Framsókn hefir svikið síðan kosningarnar fóru fram. Nú reynir Framsókn nn sama þjófalykilinn að hyllii kjósend- anna. . í landsmálum hafa þeir lofað og svikið. Reykvíkingar! Látið nægja lof- orð Framsóknar í bæjarmálunum. Það er í ýkkar valdi að frelsa Framsókn frá svikunum með því að fella allan lista þeirra. Kjósið því C-listann! Tvær konur, Katrín Thoroddsen, læknir og Helga Nielsdóttir, ljós- móðir, hafa verið fengnar til þess að ljá nöfn sín á umburðarbrjef, er sósíalistabroddarnir hafa dreift út um bæinn. 1 brjefi þessu er talað um kjör fátæklinga og barna þeirra og farið um þau nokkrum hjartnæmum orðum. Enginn þarf að efast um, að þessar tvær konur beri hag fátæklinga fyrir brjósti, og að þær vilji bæta kjör þe'irra sem bágt eiga. En það ber sannast að segja vott um ákaflega lítinn skilning á stefnu og starfi sósíalistanna, ef þær halda í fullri alvöru að kjör verkamanna og fátæklinga batni lijer í bænum, éf sósíalistum tekst að ná hjer völdum. Eyðing atvinnuvega, atvinnu- leysi, sundrung, deilur og illindi, fátækt og sultur er það, se*m só- síalistar stefna að. — Þetta eru bæjarbúar velflestir farnir að skilja, þó þessar tvær konur kunni að standa í þeirri trú enn, að skipulag eftir úreltum sósíalista- kepningum bæti hag alþýðunnar. Athafnafrelsi og blómlegt at- vinnulíf er sá grundvöllur, sem þjóðin á að byggja á, til þess að liægt sje að bæta kjör þeirra sem bágast eiga. MuniS, að listi Sjálfstæðis- manna er C-listi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.