Morgunblaðið - 27.07.1930, Blaðsíða 5
Sunnudaginn 27. júlí 1930.
5
Fjalla-Ey vindiir.
KTeðinsýning.
1 átjánda sinn koma reykvísk
ir leikhúsgestir í kvöld niður í
Iðnó til að sjá Fjalla-Eyvind
leikinn. Seytján sinnum hefir
hann verið leikinn við óvenju-
lega aðsókn og jafnvel sólskins-
kvöldin, sem gengið hafa yfir
bæinn undanfarið hafa ekki
dregið hugi manna frá leikn-
um. Þessi mikla aðsókn er næsta
athyglisverð. Hún vitnar enn á
ný um ást þá, sem íslenskir leik
húsgestir hafa tekið við Fjalla-
Eyvind, og hún sýnir það, sem
enn meira virði er, að meðal
reykvískra borgara er fjölmenn
ur hópur, sem lætur sjer ant um
ulla alvarlega viðleitni til fág-
iðrar listar.
Það er ekki hvað síst með til-
liti til þessa, að full ástæða er
til að þakka þeim, sem staðið
Halla (Anna Borg)
í 1. þætti. .
hafa að þessum sýningum og
sem gert hafa sjer alt far um
«ð þær mættu hækka matið á
íslenskri list. Þeir hafa, án alls
styrks .og ytri atbeina lagt í mik
inn kostnað við útbúnað leiksins
og á leiksviði, en líka borið
gæfu til að finna leikkrafta sem
hverju leiksviði væri fengur að.
Verður því ekki neítað að þess-
ar leiksýningar skila nú í hend-
ur íslenskri leiklist leikendum,
»em ekki verður komist hjá að
taka tillit til eftirleiðis, meðan
ekki er kostur fleiri leikment-
aðra manna en raun er á. Svo
er t. d. um Þorstein ö. Stephen-
sen, sem hefir tekist að sýna, að
hann hefir á valdi sínu að skapa
Kijög heilsteypta íslenska per-
sónu (í Birni hreppstjóra), og
Gest Pálsson, sem í miðjum leik
sýningunum tók við hinu erfiða
hlutverki Fjalla-Eyvindar, af
jafn vinsælum og ágætum leik-
^ra sem Ágúst Kvaran er og
efir leyst það svo af hendi að
aIIir hafa lokið lofsorði á. En
það er þó ekki leikur þessara
ungu leikenda sem fyrst og
fremst gefur leiknum vængi, og
heldur ekki leikur þeirra Har-
aldar Björnssonar, hversu vel
sem honum annars tekst upp,
sjerstaklega í 3. þætti, nje leik-
«r Friðfinns Guðjónssonar, sem
enn sem fyr flytur með sjer
Kári (Ágúst Kvaran)
í 4. þætti.
mesta glaðværð inn á sviðið. Það
er ótvírætt í meðferðinni á hlut-
verki Höllu, sem leikinn ber
hæst.
Nú er það svo, að það mun
tæplega nokkru sinm rjett, að
kveða svo að orði að leikur eins
leikanda beri uppi heila Ieik-
sýningu fremur en ein vel gerð
lína getur lyft heilu kvæði. Ef
til vill væri sjerstaklega óverð-
ugt að taka svo til orða í sam-
bandi við þessar leiksýningar
Fjalla-Eyvindar, þar sem yfir-
lcitt má segja, að allir leikend-
ur hafi farið mjög sómasamlega
með hlutverk sín og að engin á
berandi mistök eða vankunnátta
hafi hrópað upp úr eða hlutað
sundur heildaráhrifin. Hinsveg-
ar dylst engum, að það er leik-
Björn hreppstjóri (Þ. Ö.Steph.)
í 1. þætti.
Jón bóndi (Friðf. Guðjónsson)
í 2. þætti.
Kári (Gestur Pálsson)
í 2. þætti.
ur ungfrú Önnu Borg, sem lang-
samlega mestur Ijómi stafar af.
öll framkoma hennar á leiksvið
inu ber þess vitni að hún hefir
tekið að erfðum dýrmæta, list-
ræna menningu, sem glæsilegar
Arnes (Haraldur Björnsson)
í 3. þætti.
gáfur og yndisþokki standa í
verðugu samræmi við. — List
hennar er bæði í senn, tær og
máttug. Hún gerði þessar sýn-
ingar Fjalla-Eyvindar að eftir-
minnilegum viðburði og ekki fer
hjá því að við hennar leik verði
miðað næst, þegar fegurst verð-
ur gert á íslensku leiksviði.
En sýningin í kvöld er kveðju
sýníng. Ungfrú Anna Borg er á
förum. — Enn sem komið er á
íslensk list enga aðstöðu, er
svari til kunnáttu hennar og
glæsilegra gáfna. Enn er leik-
húsmálum okkar litlu lengra
komið en svo, að einn staður
hefir fundist þar sem mönnum
skilst að þjóðleikhúsið megi
ekki standa! En mörgum mun
finnast, sem'leikur ungfrú Borg
hafi gefið íslenskri leiklist svo
glæsilegt fyrirheit, að hjer eftir
veiði þó til einhvers að vinna.
Tómas Guðmundsson.
——-<m>—•—
Nýlátinn er Albert Ág. Ey-
vindsson bóndi í Teigi í Fljóts-
hlíð. Hann var dugnaðarmaður
mesti og vel látinn.
Sýning óháðra listamanna í
Landakoti (Iþróttahúsi I. R.)
verður opin á morgun í síðasta
I sinn.
ElUheimilið nýja.
Vegna margra fyrirspurna
leyfi jeg mjer að biðja blaðið
að birta þessar upplýsingar.
Húsið er nú að mestu fullgert
og verður væntanlega unt að
veita þar um 150 gamalmenn-
um húsaskjól í september n. k.
Meðgjöfin verður frá 80 kr. til
115 kr. á mánuði eftir því hvort
menn kjósa að vera í fjölbýlis,
tvíbýlis eða einbýlisstofum og
hvar herbergin eru í húsinu.
Þeir, sem óska, geta fyrst um
sinn fengið 2 stofur, en greiða
þá þeim mun meira, eða fulla
húsaleigu fyrir þær báðar.
Vistmönnum er að sjálfsögðu
heimil öll sú innivinna sem eng-
inn óþrifnaður fylgir, og eru
ætlaðar ýmsar vinnustofur í
kjallara og á þakhæð.
Þeir, sem ætla sjer að koma
gamalmennum fyrir á heimilinu
í haust, ættu að senda umsóknir,
ábyrgð á meðlagi og heilsufars-
vottorð sem fyrst eða fyrir 1.
september.
Þurfamenn Rvíkur ganga fyr-
ir öðrum, ef aðsókn verður mik-
il, og annars þeir, hvaðan sem
eru, sem erfiðast eiga um sæmi-
legan bústað.
Verði hins vegar húsið ekki
fullskipað gamalmennum í októ
ber n. k., verða afgangsherbergi
leigð öðru einhleypu fólki. —
Efni engin til að hafa herbergi
auð og vaxtalaus. — Er því
meiri ástæða til að fólk dragi
ekki of lengi að senda um-
sóknir.
Til orða hefir komið að veita
sjúklingum, þótt ekki sjeu gam-
almenni, viðtökur í sjerstaka
deild, ef læknar óska og önnur
aðsókn leyfir, en alt er það ó-
víst enn. Annars eru 2 stórar
stofur í húsinu ætlaðar karlæg-
um gamalmennum og hægt að
bæta fleirum við, ef þörf krefur,
og sjer lærð hjúkrunarkona
um hjúkrun þeirra. #
Jafnframt verður ekki komist
hjá að segja mönnum frá að
Elliheimilið er í meir en lítilli
fjárþröng, eins og engum mun
koma á óvart. Fyrir efni og
vinnu er þegar greitt um hálf
miljón króna en talsvert enn
eftir ógreitt. Verktakendur hafa
sýnt stofnuninni traust og alúð
í svo ríkum mæli að þeir ættu
ekki að gjalda þess. — En þá
þurfa allir vinir stofnunarinnar
að verða samtaka um að koma
með gjafir sínar í sumar. —
Ráðgert er að gamalmenna-
skemtun verði haldin í nýja hús
inu og umhverfis það sunnudag-
inn 10. ágúst, ef veður leyfir;
get jfeg þess nú þegar, að söng-
menn og ræðumenn, sem vildu
skemta gamla fólkinu, ráðstafi
ekki þeim sunnudegi annars-
staðar, og sama er að segja um
bifreiðaeigendur. Sum undanfar
in sumur hefir verið bæði erfitt
og kostnaðarsamt að fá bifreið-
ar handa fóthrumu fólki „gam-
almennadaginn”. Ef einkabif-
reiðaeigendur íhuguðu það
mundu þeir fljótt sjá að það
verður þeim sjálfum enn betri
ánægja að flytja vinasnauð gam-
almenni til vinafunda en að fara
í skemtiför brott úr bænum.
I Lesendumir allir eru vinsam-
Odírar vdrur:
Matskeiðar, alpakka 0.75
Gafflar, alpakka 0.75
Teskeiðar, alpakka 0.35
Hnífapör, parið 0.75
Matardiskar dj og gr. 0.50
Bollapör, postulíns 0.65
Barnadiskar með mynd. 0.65
Vatnsglös frá 0.75
Blómavasar frá 0.75
Öskubakkar frá 0.35
Pottar, alum., m. litir 1.00
Pönnur, alum. 1.00
Skaftpottar, alum. 1.00
Katlar 3 1., alum. 3.75
HJInarsson 8 Biörnsson
Bankastræti 11.
Nýkomið:
Sveskjnr,
Rnsínnr,
Knrennnr,
Þnrk. Epli,
Þnrk. Pernr.
Hii m. S. IIHÍ u.
Vonarstræti 4b. Sími 2358.
lega beðnir að segja gamlafólk-
inu frá hvenær skemtunin á að>
verða. — Það eru ekki svo marg
ar skemtanir sem því eru ætlað-
ar. Og það jafnvel komið þótt
það eigi heima utanbæjar, t. d.
í Hafnarfirði, ef bifreiðaeigend-
ur þar vilja flytja það fram og
aftur.
Verum samtaka að styðja og
gleðja þreyttu raunabörnin, sem
bráðum eru á förum frá oss.
Sigurbjörn Á. Gíslason.
Kappsund verður háð í dag
kl. 51/4 við sundskálann í ör-
firisey. Verður þar þreytt 50
stiku sund fyrir drengi og stúlk
ur. 200 stiku bringusund fyrir
drengi, 400 st. sund, frjáls að-
ferð fyrir fullorðna og stakka-
sundið svokallaða. Keppendur
synda þá í öllum sjóklæðum, og
þykir það mjög skemtilegt að
hoi-fa á þá sundraun. Sigurlaun-
in eru silfurbikar sá er Sjó-
mannafjelag Reykjavíkur gaf 1.
S. 1. fyrir nokkrum árum. Ein-
ar S. Magnússon er handhafi
bikarsins og er nú meðal kepp-
enda. Allir bestu sundmenn vor-
ir taka þátt í þessu kappsunds-
móti, svo það verður ánægjulegt
að horfa á þá þreyta sundið.
Og má gera ráð fyrir að fjöl-
ment verði í örfirisey að horfa.
á sundið, ef veður verður gott.