Morgunblaðið - 25.01.1931, Page 7

Morgunblaðið - 25.01.1931, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ 1 litttivað tii að gala af! Eggjadnlt - Gerdnft og Xijcid. dmissaudi í allan bakstnr. £imskipafjelagl3 og Austfirðingar. Norðfirði, FB. 21. jan. Alstaðar hjer eystra er m'jög snegn óanægja nt af fseklcun a viðkomum Eimskipafjelagsskip- sinna til Austfjarða, og hafa bæði Austfjarðablöðin flutt á- <deilu#reinar á fjelagsstjórnina. 1 g-ærkvöldi samþykti bæjar- ^tjórnin hjer með öllum atkv. «ftirfarandi áskorun til Eim- skipafjelagsins: „Bæjarstjórn Neskaupstaðar lýsir yíir megnri óánægju með .•samgöngur Eimskipafjelagsskip anna við Austurland yfirleitt og Norðfjörð sjerstaklega. Það, sem bæjarstjórnin eink- nam átelur^ er að viðkomum •skipa fjelagsins er fækkað stór- 3ega á allar Austfjarðahafnim- ar frá því^ sem var síðasta ár, að tilhögun sú, sem ráðgerð var 1929 af Jóni Þorlákssyni að tek- in yrði upp með samgöngur milli Reykjavíkur og Austfjarða eftir að Dettifoss tæki til starfa, 3aefir ekki verið framkvæmd, að Eimskipafj e 1 agsskipin eru þrá- íaldlega látin fara fram hjá Norðfirði, er þau fara um Aust- firði, og að Norðfjörður er ekki tekinn á áætlun, þótd s’lpin eigi leið hjer fram hjá, en reynsl- an hefir sýnt, að undantekning- arlítið verða þau að koma hing- rað vegna farþega eða flutnings, þau fara um Austfirði. Þár sem þess hefir alment verið vænst, að Eimskipafjel. myndi révna að bæta samgöngurnar Við Austfirði eins og aðra lands- Eluta, er nú komið í ljós, að litlar líkur eru til þess, að svo verði, er samgöngurnar versna f>egar skipum fjelagsins fjölg- ar, þá skorar bæjarstjórnin á stjórn Eimskipafjelagsins að I)irta opinberlega ástæður sínar íyrir framangreindum atriðum til þes3 að Austfirðingar get með tilstyrk ríkisins, erlendra *kipafjelaga, eða öðrum hætti, gert ráðstafanir til bættra sam- gangna við Austurland, þegar sýnilegt er, að Eimskipafjelag íslands er neytt til að afskifta /■ usturland sig^n^um skipa jinna, að láta skiP nu * hvm'ri ferð, sem þau koma til Aust- fjarða á þessu ári, ha:fu við- komu á Norðfirði, og auglýsa þetta opinberlega nú þegar“. Út af þessu sneri FB. sjer til framkv.stj. Eimskipafjelags ís- lands og fjekk hjá honum eft- irfarandi frásögn: Út af samþykt bæjarstjórnar Neskaupstaðar 20. þ. m. vill stjórn Eimskipafjelags íslands taka þetta fram: Hinar tíðu ferðir skipa fjelags- ins síðast Jiðið ár milli Reykja- AÚkur og Austfjarða sunnanlands og hinar mjög auknu siglingar, rnilli Austfjarða og útlanda voru gjörðar sem tilraun. Reynslan sýndi, að vöru- og fólksflutningar til Austfjarða og þaðan voru ekki “nálægt, því svo miklir að þeir gætu borið uppi svo mikJar fer sem Austfjörðum voru þá ætlaðar, svo fjeJagið stórtapaði á þeim beint og óbeint, meðal annars vegna þess að vöru- og fólksflutn- ingar milli Reyk'javíkur og út landa hurfu mjög mikið frá skip- um fjelagsins vegna viðkomu skip- anna á Austfjörðum. Fjárhagur fjelagsins þolir hinsvegar ekki að það orsaki sjer fyrirsjáanlegt stór- tjón í þesSu efni. Nú er einnig þess að gæta að áður en áætlun Eim- skipafjelagsskipanna fyrir yfir- standandi ár var samin, átti út- gerðarstjóri fjelagsins tal við lieira Pálma, Loftsson, útgerðar- stjóra ríkisskipanna, sem upp- lýsti að ferðum ríkisskipanna fram og aftur milli Reykjavíkur og Austfjarða yrði mikið fjölgað á þessu ári, og af þeim ástæðum virt- ist minni nauðsyn á, að Eimskipa- fjelagið hjeldi uppi tíðum ferðum milli Reykjavíkur og Austfjarða. f þessu sambandi má benda á að árið 1930 fóru ríkisskipin 20 ferð- ir um Austfirði (frá Reykjavík eða til Reykjavíkur) en yfirstand- andi ár verða 32 ferðir. A hinn bóginn hefir útgerðar- stjóri Eimskipafjelagsins þegar með brjefi dags. 17. þ. m. tilkynt afgreiðslu fjelagsins á Norðfirði, að skip f jelagsins kæmi við í Norð- firði í þeim ferðum, sem komið verður við á Seyðisfirði. Verður ráðstöfun þessi auglýst í blöðun- um „Jafnaðarmanninum“ á Norð- firði, .,Austfirðing“ á Seyðisfirði og í Reykjavíkurblöðunum. Eim- skipafjelagið óskar að upplýsa, að vörur til Austfjarða frá Hamborg og Hull, sem sendar eru á gegn- umgangandi farmskírteinum með sltipum fjelagsins, sem ækki hafa viðkomu á Austfjörðum, verða framvegis sem hingað til sendar til ákvörðunarstaðar á Austur- landi án auJiafargjalds og án um- hleðslukostnaðar. — Hjer stendur í blaðinu, að Ameríkumaður nokkur hafi fund- ið upp tölulausar buxur. — Finst þjer það mikið — jeg hefi gengið í tölulausum buxum síðan jeg giftist. Pó Jmálaaeludin Framhaldsálit nefndarinnar. Svo sem kunnugt er, skipaði at- vinnumála^ráðlierra haustið 1928, fimm manna nefnd til þess m. a. að gera tillögur um breyttar póst- göngur. Sliyldi nefndin ganga út' frá að póstur yrði aðallega fluttur sjóleiðina, með straudferðaskipi á helstu liafnir, og þaðan út um sveitirnar. Nefnd þessi skilaði á- Jiti í marsmánuði 1929, en þá sat Álþingi að störfum. Þegar þing- menn sáu tillögur nefndarinnar, báru þeir fram í Nd. svohljóðandi tillögu til þingsáJyktunar, sem samþykt var í einu hljóði: „Neðri deild Alþingis ályktar að skoi'a á i-íkisstjórnina, að gera ekki gagngerða bi'eytingu á land- póstaferðum áður en tillögur hafa verið lagðar fyrir samgöngumála- nefndir Alþingis, enda áður vei'ið leitað álits viðkomandi sýslu- nefnda' ‘. Það olli einkuxn óánægju þing- manna, að póstmálanefndin hafði lagt til, að hætt yrði að hafa reglubundnar póstferðir landleið- ina milli hjeraða. Atvinnumálaráðuneytið sendi nú sýsJuneftldum tillögur póstmála- nefndar, en nefndin kom saman í októbermánuði síðastliðnum til að athuga umsagnir sýslunefnda. — Hafði þá svar komið frá öllum sýslunefndum, nema í fsafjarðar- sýslum. Póstmálanefndin hefir nú sent. frá sjer framhaldsálit. Segir þar m. a.: „----flestallar sýslunefnd- ii landsins töldu póstgangnakerfi nefndarinnar til mikilla bóta í lieild sinni. En samt lögðu ýmsar þeirra til smábreytinga innan sinnar sýslu, sem nefndin hefir að miklu leyti tekið til greina — —. Aðeins sýslunefndirnar í Skaga- fjarðar og Húnavatnssýslum (samt eltki nema meiri hluti sýslunefnd- ar Vestur-Húnavatnssýslu) töldu breytingarnar til skemda frá nú- verandi póstgöngum og báru fyrir hafíshættu, óheppilegt sundurslit póstferða yfir fjallvegi og of mik- inn kostnað fyrir ríkissjóð“. AðfinsJnm sýslunefnda Skaga- fjarðar og Húnavatnssýslna svar- ar nefndirt m. a. á þessh leið í áliti sínu: „Nokkur óánægja hefii' orðið yf- ir því, að nefndin leggur til að hætt verði að í'lyfja póst á liestum yfir Holtavörðuheiði og Bröttu- brekku. Ferðir þessar eru mjög dýrar og í flestum tilfellum, að adlun nefndarinnar óþarfar. Virð- ist. sjálfsagt að láta strandferða- skipin annast flutning á þunga- pósti frá Reykjavík til hjeraðan*a við Breiðafjörð og Húnaflóa, eins og annara hjeraða norðanlands og vestan. En jafnframt sjeu bif- reiðir látnar fara áætlunarferðir og taka póst allan þann tíma, sem fært er vfir þær, eins og tekið er fram í fyrra áliti nefndarinnar. Eru nokkrar líkur til þe'Ss, að snjó bifreiðar geti haldið uppi áætlun- arferðum yfir Holtavörðuheiði á vetrum, svo bifreiðir gangi þar um vetur og sumar. En fari svo, að hafís teppi siglingar og bifreiða- ferðir stöðvist einnig, verður póst- ' tjórriin að sjálfsögðu að taka upp b estapóstfepðir á meðan svn er. Vók nefndin fvrra endur álitsins virðist hafa hlaupið yfir ]>að atriði. Samanber brjef, sem nefndinni hafa borist. — ViJl nefndin ennfremur benda á það, að þau ár eru mjög fá, sem ís hefir hindrað skipagöngur á þessari öld, jafnvel til hafna á Húnaflóa. Er það eflaust meðfram að þakka betri skipakosti en áður var, svo og að skipstjórar eru flestir ís- lenskir og yfirleitt duglegir sjó- menn. — Hinsvegar mun tíðarfar ekki vera betra en oft áður, þótt allra seinustu ár sje það með mild- ara móti að líkindum. — Getur póstmálanefndin því ekki verið sammála sýslunefndum Húnavatns og Skagafjarðarsýslna um það, að miða beri skipulag póstferða við undantekningaástand eins og haf- íshindranir, heldur hitt, sem er langalgengasta, 'að skipagöngur sjeu óhindraðar af ísum“. — Samkvæmt þessari rökfærslu, lieldur nefndin fast við sínar fyrri tillögur, að póstflutningar fari að jafnaði sjóleiðina til þess- ara hjeraða, og miðar póstgöngur innan hjeraðs við það. Þar sem nefndin talar um póst- flutninga landleiðina norður, með áætlunarbílum, þegar fært er, þá er það augljóst, að almenningi koma slíkar ferðir að sára litlum notum, þar sem póstgöngur um sveitirnar miðast eingöngu við ferðir strandferðaskips. Enn furðulegri er fastheldni nefndar- innar við póstflutninga með strand ferðáskipum, þar sem hún virðist þó hafa komið aUga á snjóbílana. En það eru einmitt þessi farartæki, sem oiga að halda uppi stöðugum ferðum ýfir fjallvegi að vetrum. Snjóbíll hefir í fyrravetur og aft- ur nú haldið uppi ferðum yfir Héllisheiði. Annar snjóbíll hefir nú í vetur farið nokkurar ferðir yfir Holtavörðuheiði, og gengið vel. Hefir póststjómin alveg nýlega gert samning um stöðugar póstferðir vikulega norður yfir Holtavörðulieiði. En póstmálanefndin kveðst engu að síður halda fast við sínar fyrri gerðir. Strandferðaskipið Esja á að fara 24 ferðir árlega kring um landið og flytja póst á helstu hafn- ir. EJiki er ósennilegt., að AJþingi láti mál þetta til sín taka aftur. -------------------- Danskur vtsinðamafinr látinn. Dr. C. H. Ostenfeld prófessor. Þ. 16. jan. síðastliðinn andaðist. í Khöfn dr. C. H. Ostenfeld há- skólaprófessor, 57 ára að aldri. Hann var meðal nafntoguðustu og afkastamestu vísindamanna í Dan- mörku. Um aldamót varð hann umsjónarmaður við Grasasafnið í Höfn, en síðar háskólakennari. — Hann var í stjórn Carlsbergssjóðs- ins Jengi og í ótal nefndum og stjórnum fjelaga og sjóða sem ann ast um vísindalegar rannsóknir. Skömmu eftir aldamótin kom hann hingað t.il íslands. — Hann fekkst og við grasafræðirannsókn- ir í öðrum norðlægum löndum. Eftir að hann kyntist voru lítt rannsakáða landi, íslandi, var hann jafnan mjög hliðhollur öll- uiu isJenskum nát.t.úrufræðingum og vildi styðja það og styrkja á hátt, að íslenskar náttúru- Mlðlluirbú Flðamanna Týsgötu 1 og Vesturgötu 17. Sími 1287. Sími 864 Daglega nýjar mjólkurafurðir. - Sent heim. STRAUJÁRN og RAFM AGN SB AKSTRAR eru ómissandi á hverju heimili Raf tæk j averslunin Norðnrljósið Laugaveg 41. fræðirannsóknirkæmust sem beBt áleiðis. Munu allir íslendingar sém lionum kyntust, ljúka upp einum munni um það að íslenskir nátt- íirufræðingar og íslensk nátúru- vísindi áttu einlægan vin þar seni C. H. Ostenfeld var. Dagbók. I. 0. O.F. 3^ 1121268^8‘/2IÍ. Q Edda 5931127 Frestað funcji. Veðrið (laugardag kl. 17}. Lægðarmiðjan er nú komin austur á hafið milli íslauds og Noregs og fer minkandi. Austanlands og- sumst. á N-landi er enn allhvast ’ á norðan en N-kaldi á V-landi. Á SA-landi er þurt veður, en dálítil- snjókoma á öðrum landshlutuna. Hefir snjóinn leitt suður með landinu að vestan, svo að um SV hliita landsins hefir einnig snýóaíS dálítið í dag. — Á morgun lítur út fyrir fremur hæga N-átt tnn alt land og úrkomulítið,' veður sunnanlands verður sennilega b.jartviðri. VeðurútMt í Rvík (sunnud): Hæg N-átt. Urkomulaust. Ungmennasamkoma verður 1 dag í Aðventkirkjunni kl. 8. —1 Allir velkomnir. Kristileg samkoma á Njálsgðtn 1 í kvöld kl. 8. Allir velkomnir. ! Sjómannastofan. Samkoma i dag kl. 6. Ræðuefni: Bænin. — Allir velkomnir. Færeysk samkoma verður í Sjð- mannastofunni í dag kl. 9. Síra Friðrik Friðriksson talar. „Gullfoss“ kom hingað í fyrrl nótt; tarþegar voru þessir: Jóu Guðmundsson. Knud Steffens, í»- leifur Briem, Mr. N. F. Dovey, frk. Jóhanna Thorsteinsson, frk. Lilly Friednsr, frk. Christensen, hr. Winkler. í. R. heldur aðalfund sinn í dag kl. 4 í fimleikahúsi sínu við Tún- götn. þett.a skýrt fram í áliti sínu, þótt sumir les-'allan

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.