Morgunblaðið - 27.01.1931, Side 2
MORGTJNBLAÐIÐ
-A&"'
.wi—.
■;a ' m- t
>etta
r aBStidnft
er það '
besta.
fæst alls staiar.
«»«<
Timburveralun
P.W.Jacobsen & Sðn.
Stofnud (824
Sm «>nli Granfuru — Carl Lunasjade, Ittt enitavn C.
Selor timbnr í stærri og smærri sendingum frá Kaupmhöfn.
J* • :-:mI
• • Eík til skipasmiöa. — Einnig heila skipsfanna frá Svíþjóð.
#5
•| Hefi verslað við ísland í 80 ár.
5:
•«
• •
• •
•.
* •
• •
• •
• •
*»
• •
* •
• •
::
••
••
••
••
! *•
1 *«
• •
•*
• «
• «
• «
::
• •
+
Húsfrú
Sigurlaua Iðusdúttir.
„Þá eik í stormi hrynnr háa
hamrabeltin því skýra frá.
En þegar fjólan fellur bláa,
Eallið það enginn heyra má.
En ilmur horfinn innir fyrst,
Urtabygðin hvers héfir mist“.
Þessara fögru orða eins íslenska
*káldsins mega kunnugir menn
minnast, þegar borin er til mold-
ar í dag sú hin mæta kona, sem
neínd er hjer að ofan. Að raun
þeirra, sem hana gerþektu, var
hún ein í hóp þeirra kvenna, sem
skáldið kallar „fjólurnar bláu“;
þegar þær á sínu banadægri falla
tii moldar, þá hverfur ilmurinn
ng unaðurinn úr jarðneskri urta-
bygð mannlífsins. — Og þegar
þeasar góðu konur eru úr húsum
bornar, þá verður mörgum eftir-
lifandi að hugsa og mæla líkt og
hrygga skáldið, sem sagði:
„Hjer inni finst mjer autt og dimt,
En úti nístingskalt“.
Sigurlaug sál. Jónsdóttir var
fædd hjer í Reykjávík 19. maí
1867, en andaðist 19. þ. m. á heim-
itt sínu, Lindargötu 10, hjer í
bænum.
Maður hennar var Jón Jónsson,
Bþrnharðssonar, gull- og silfur-
smiðs í Laxnesi í Mosfellsdal. —
Þau hjón, Jón og Sigurlaug, gift-
nst 3. október 1896 og voru þau
jtrúkona, og birtist hennar trúaða
! hugarfar í dygðugu líferni og
jvandaðri liegðan, í stillingu og
ij)olgæði á erfiðum tímum, og
hóglátri gleði, þegar alt l.jek
lyndi.
; Jíinar margbreyttu skyldur sín-
ár sem húsmóðir, eiginkona og
móðir, rækti hún með sívakandi
elju og ástundun; hafa hinir nán-
ustu ástvinir, eiginmaður og börn,
beðið jjað tjón við fráfall Sigur-
„Morkðr"
Sigurlaug Jónsdóttir.
laugar sál. sem ekki mun bætast
hjerna megin við hina miklu móðu
dauðans.
Þessi kona vissi á hvern hún
trúði, og það vita eftirlifandi ást-
vinir hennar líka; því syrgja þeir
heldur ekki sem þeir, er enga von
hafa.
Blessuð sje minning þessarar
saman í hjúskap í frek 34 ár... í konu; og blessuð sje minning
hjúskapnum eignuðast þau 8 börn,
«g eru 5 af þeim á lífi og öll upp-
fcomin, þrír synir og tvær dætur,
hverrar góðrar íslenskrar konu,
sem í trú og guðsótta sáir frækorn
um sannrar blessunar í urtabygð
og er önnur þeirra búsett í Kaup-1 mannlífsins, öldum og óbornum
mannahöfn. — ; til sannarlegs þroska og fullkomn-
Sigurlaug sál. var hin mætasta Unar. —
kona, fríð álitum og prúð í allri Jarðarförin fer fram í ,dag kl.
framgÖngu; álíur svipur hennar j e. þ. . ,,
og' útlit bar vott um góða og göf-1
mga sál, enda var hún sann-nefnd j
mannkosta kona. Hún var einlæg!
Undanfarin ár hefir oftast ver-
ið hljótt um Merkur og ekki bor-
ið mikið á störfnm þess. Þó hefir
fjelagið altaf verið á verði um öll
má! .yerslunarmanna og reynt að
starfa fyrir þá.
Nú í vetur hóf fjelagið starf-
semi sína seinna en' venjulega, en
hefir starfað þeim mun.betur það
sem af er vetrar.
Fyrsta desember hjelt fjelagið
kynningarkvöld fyrir verslunar-
menn, sem var afar vel sótt og
fór í alla staði ágætlega fram.
Bættust fjelaginu 120 nýir með-
limir, en áður höfðu eki verið
nema 122 meðlimir í því, svo
tala þeirra tvöfaldaðist á þessu
eina kvöldi. Síðan hafa nýir og
gamlir fjelagar Merkurs starfað
vel og drengilega að öllum fjelags-
máluin og allir lagst á eitt að
hefja fjelagið á ný, og gera }>að
að öflugu fjeiagi.
Um miðjan desémber var stofu-
uð sjerstök kvennadeild innan fje-
lagsins og var sjerstök stjórn fyr-
ir þá deild kosin: Elínborg Þórðar-
dóttir, form., Sigríður Sigurðar
dóttir, Sigr. Kristinsdóttir, Lauf-
ey Valdimarsdóttir og Friðrikka
Sigfússon. Voru stofnendur deild
arinnar yfir 50, en síðan hafa
margar bættst við.
Á fundi fjelagsins í desember
var tekið fyrir aðalmál verslunar-
manna — launamálið -— og var
kosin sjerstök nefnd til þess að
athuga og undirbúa það. I nefnd
ina voru kosnir þeir Elías Guð-
mundsson, Guðbjarni Guðmunds-
son, Valgarður Stefánsson og Gísli
Sigurbjörnsson form. fjelagsins.
Mun kvennadeild fjelagsins einn
ig skipa nefnd í þetta mál og
munu nefndirnar svo vinna sam-
eiginlega að þessu mesta hags-
muna og velferðarmáli verslunar-
manna.
2. janúar hjelt fjelagið ásamt
Bamavinafjelaginu Sumargjöf ný-
ársfagnað og bauð þangað um 70
fjölskyldum. Fór sú skemtun hið
besta fram og varð við stöddum til
ánægju. í byrjun þessa mánaðar
hófst námskeið Merkúrs fyrir versl
unarmenn og var aðsókn svo mikil
áð nokkuru seinna var annað nám
skeið sett á stofn. Á námskeiðum
þessum, sem»yfir 30 manns sækja,
er kend bókfærsla, vjelritun, reikn
ingur og verslunarrjettur. Hafa
námskeið Merkúra ávalt verið vel
sótt og orðið mörgum verslunar-
manninum að miklu gagni. Mun
fjelagið vonandi láta skóla og
mentunarmál verslunarmanha
meira til sín taka hjer eftir, þar
eð þau mál öll eru í hinni mestu
óreiðu. Á kynningarkvöldinu stofn
uðu þeir Sigurður Gunnars og
Valgarður Stefánsson sjóð, sem
verja skal til sumarskála fyrir
verslunarmenn. Hefir það mál þeg
ar fengið hinar bestu undirtektir
og hafa margir lofað peningum og
efni til þessa skála. Mun þegar
vor hafið að reisa skálann éf til
tækilegt þykir.,
Á fundum fjelagsins, sem ætíð
hþfa v(erið vel sóttir, hafa borist
ótal inntökubeiðnir og á síðasta
fundi gengu 35. manns í fjelagið
Hafa margir meðiimir Merkúrs
gengið vel fram í því að fá menn
í fjelagið. T. d. hefir Alfreð Andr-
jessón fengið yfir. 100 nýja með-
limi í fjelagið, og hefir aldrei áð-
nr einn maður fengið svo marga
fjelaga í Merkúr.
Yfir höfuð má segja að starf-
semi Merkúrs hafi sjaldan verið
nreiri eða fjölbreyttari en í vetur
og er óskandi að liún beri þann
árangur að sameina alla verslunar-
menn í Reykjavík í eitt fjelag.
Ennfremur heíir stjóm Merkúrs
lagt drög að stofnun verslunar-
mannafjelaga víðsvegar um landið
og mun eitt þeirra verða stofnað í
Hafnarfirði mjög bráðlega. Síðar
er ákveðið að stofnað verði sam-
band með öllum þessum fjelögum,
sem verslunarmenn einir skipa.
Er óhætt að segja að hin nýja
stjórn Merkúrs hafi starfað vel í
)á fjörutíu daga, sem hún hefir
ráðið málum þess og er óskandi
að liún starfi þannig áfram í fram
tíðinni.
Rvík, 10. jamiar 1931.
Pjer stækkið
sjóndeildar hring
yðar, þegar þjer
notið kúpt gler
í gleraugun.
Hin bestu gler,
sem til eru, eru
Zeíss - fiierin
Punkíal
sem búin er til af
Carl Zoi s og seld i
Laugavegs Hpúteki.
V erslunarmaður.
Dpp til fjalla.
Eftir Ólaf ísleifsson
Þjórsártúni. Utgefandi:
Ásg. Guðmundsson 1930.
Þessi litla bók kom út rjett fyr-
ir jólin. Mun tæpast hafa verið
tekið eftir útkomu hennar í öllu
því auglýsingafargani, sem þá
dundi yfir.
Höfundur h/ennar er Ólafur
ísleifsson læknir í Þjórsártúni.
Er hann þektur nokkuð af rit-
gjörðum sínum, er birtst hafa á
víð og dreif, einkum í „Lög-
rjettu“. Hafa greinir þær vakið
athygli fyrir fallegar náttúrulýs-
ingar og nýstálegar umsagnir
um lífið og tilveruna. Benda þær
greinir á, að þar sje hugsandi
maður á ferð.
„Upp til fjalla“ er ferðasaga
liöf. upp um fjöll og öræfi árið
1929. Er þar 'kki rakin þur og
lit.laus ferðadagbók, heldur brugð-
ið upp ýmsum litauðugum mynd-
um af íslenskri náttúru, sem sýna
stórfenglega tign eða blæmjúkan
yndisleika. Við lestur ferðasög-
unnar verður þess brátt vart, að
höf. dáir ísl. náttúru framar öllu.
Hann sjer, heyrir og finnur til
næmar en flestir menn aðrir. 1—
Inni á öræfum sjer hann stór-
fenglega kirkju með traustum
veggjum og bláhvelfingum himins
yfir. Hann sjer altari. Þar krýpur
hann og hlustar undra hrifinn á
dýrðlegan lofsöng í þessari hátign-
arlegu kirkju. Frjálsir og viltir
fuglar kyrja lofsönginn, en veggir
kirkjunnar enduróma.
Á þessum og þvílíkum stöðum
og stundum þyrlast dægurhugsan-
ir út í veður og vind. Höf. stækk-
ar í hugsnn, h'ann stendur í
riægtabúri náttíirunnar, bendir
mönnum að koma, sjá og heyra.
Ef til vill þykja samlíkingar hans
stundum nokuð hæpnar, er hann
ber saman náttúruna ög mann-
lífið, en margt er þarna nýstálegt,
er vekur lesanda til nýrra hugs-
ana. Bókin á það skilið að vera
lesin.
G. M. M.
Morgunbláðið er 8 síður í dag.
Voidmgborg húsmæóraskóli
Góð verkleg og bókleg kensla i
allskonar hússtjóm, meðferð baraa
og sjúkra, ennfremur kjóíasaum.
Nýtt námskeið byrjar 4. mai —
yenjulegt og rafm.-eldhús, sjóBöð.
Sími 275. Valborg Olaen.
^RSiMÍJ
Það er þjóðarhagnaður að nota
Hreins vörur. Kaupið Hreins Sáp-
ur, Þvottaefni, Skóáburð, Gólfá-
burð, Vagnáburð, Fægilög, Kerti
og Baðlyf.
Barinn
lúðuriklingur
nýkominn.
Versl. Foss.
Laugaveg 12,
Sími 2031.
Ætið
nýtt grænmeti í
Verslunin y
Það er hansýni
að lfítryggja álg í
Andvttku, sími 1250.