Morgunblaðið - 29.03.1931, Qupperneq 3
MORGUNBL
gitinmffiiiinHiiiiiiniiiimiiiiiiHiimiinmiifliiimiiiiiiiiii'i
| ^ElorgtmWa^ |
|| Útgef.: H.f. Árvakur, Reykjavík ||
Ritstjórar: Jón Kjartansson.
Valtýr Stefánsson.
S Ritstjórn og afgreiðsla:
AustUrstræti, 8. — Slmi 500. 3
-& Auglýsingastjóri: E. Hafberg. 5
g Auglýsingaskrifstofa:
Austurstræti 17. — Sími 700. ^
‘S Heimaslmar:
Jón Kjartansson nr. 742. =
Valtýr Stefánsson nr. 1220. 3
E. Hafberg nr. 770.
H Áskriftagjald:
Innanlands kr. 2.00 á mánuði. =
S Utanlands kr. 2.50 á mánuði. 3
|| f lausasölu 10 aura eintakiíS. =
M 20 aura méö Lesbók =
Buiinmiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiinif
JEgír í smalaferð
um Austfjörðu.
(Einkaskeyti til Morgunbl.).
Norðfirði, 28. mars.
í nótt vaknaði hvert manns-
barn í bænum við skipsblástur
ógurlegan. Var auðheyrt að
skipi þessu lá mikið á, að fá
samband við land, því að fjór-
um sinnum orgaði það.
í morgun frjettist það, að
þetta hefði verið varðskipið
„Ægir“, og að það sje að smala
saman E'ramsóknarmönnum á
Austfjörðum og eigi að flytja
jþá.til Reykjavíkur til náms fyr-
ir mæstu kosningar.
Ha lakðr Reykiavfkur
efndi til samsöngs í dómkirkjunni
í fyrrakvökl með aðstoð Öfi kvenna
og^nokkurra strokhljóðfæra — og
piíanóleikara. Var það myndarleg-
ur hópur, er alt kom saman. —
Vepkefnin voru tekin: úr liátíðar-
Ijóðum Jóhannesar úr Kötlum og
D.avíðs Stefánssonar, er þeir Sig-
valdi Kaldalóns, Björgvin Guð-
mundsson og Sigurður Þórðarson
söngsfjóri kórsins höfðu gert lög
A’ið. Var sitt lagið eftir hvorn
liinna fyrnefndu („Ó, guð! Þú sem
ríkir í himnunum háu“ og „Við
böfn þín Island“), en þrjú eftir
Sigúrð („Sjá dagar koma“, „Þjer
landnemar“, og ,,l>ú mikli, eilífi
andi“). Er það vel farið, að al-
menningi gefst kostur á að heyra
þessa söngva, og er ekki ósennilegt
að ýmsir hefðu þegið meira af líku
tæi, t. d. einn eða tvo úr kantötu
Emils Thoroddsen. Auk hinna fyr-
nefndu viðfangsefna voru nokluir
A Varðarfundi
Erindi Jóhanns Möller.
Fundur
Sjálfstæðismanna í Borgarnesi.
Ýmsair ályktanir og tillögur.
Sjálfstæðismenn í Borgarnesi
'kjeldu fund á þriðjudagskvoldið
var. Voru um 70 á fundi.
Þar voru eftirfarandi ályktanir
•úg tillögur samþyktar:
1. Fundurinn vítir meðferð rík-
ísstjórnarinnar á fjármálum ríkis-
ins og skorar á Alþingi að sjá
um, að farið sje eftir fyrirmælum
stjórnarskrármnar um það, að
•Okki megi greiða annað úr ríkis-
Sjóði en það, sem fjárlög eða önn-
air lög heimila.
2. Fundrrrinn vítir núverandi
stjórn fyrir málshöfðanir á hend-
áir einstökum mönnum og stofn-
rununi í rjettvísinnar nafni, er
reynst hafa órjettmætar, lands-
stjórninni til minkúnnar og þjóð-
Jfjelaginu til skaða.
.3.. Fundurinn telur að kosninga-
Tjfett til Alþingis eigi að rýmka
um 4 ár, breyta aldurstakmark-
inu úr 25 árum í 21 ár.
4. Fundurinn álítur ranglátt,, að
monn sjeu sviftir kosningarjetti,
jþótt þeir sakir ómegðar, vanheilsu
>eð;i annara óviðráðanlegra orsaka,
Jiafi þurft að þiggja sveitarstyrk.
5. Fundurinn skorar á Alþingi
áð breyta kjördæmaskipuninni,
sem ntí er svo úrelt og ranglát, að
lengur er alls ekki viðunandi.
6. Fimdurínn skorar alvarlega á
Alþingi að gera ráðstafanir til
Iress, að dr. Helgi Tómasson verði
tafarlaust skipaður yfirlæknir á
Nýja Kleppi.
7. Fundurinn lýsir óánægju sinni
yfir því, að ríkisstjórnin skuli
víkja mönnum úr opinberum em
bættum með svo liæpnum rjetti,
að hlutaðeigendum erú dærndar
skaðabætur fyrir.
Ofangreindar ályktanir og til-
lögur voru samþyktar með 64 eða
<65 atkvæðum.
útlend lög. Hefir það áreiðanlega
verið mikið og tafsamt verk, að
æfa það alt, enda mun inflúensu-
faraldurinn ekki hafa fiýtt fyrir
eða bætt um. — Hreimblær karla-
kórsins var bestur að vanda, er
kórinn söng veikt, en liinu er ekki
að leyna, að út af hljómgæðunum
viil bregða, þegar hann tekur á.
eins og t. d. í „Lofsöng“ Beet-
hovens. Ólieppilegt var að fá kórn-
um í hendur „Litanei“ eftir Sehu-
hert. Slíkar „transkriptionir“ á
einsöngsiögum eru oftast mjög við-
sjárverðar, og þessi var floklmum
ofviða (enda erfið ekki síst. fyrir
1. tenóra). Líkt mætti reyndar
segja um „Kom, dauðans blær“
eftir Bach, er krefst m. a. meiri
raddfegurðar og stýlvitundar en
kórinn hefir til að bera. Stórum
betur tókst Pílagrímssöngurinn úr
„Tannhauser“, að flestu leyti', jafn
vel þótt haim; sje og, vandsunginn
á kafía, en að vísu af öðrum á-
stæðum (vegna. allhættulegra tón-
tegundaskifta). — Mjög ógjarnan
vildi jeg segja nokkuð misjafnt
um hinn geðþekka og tilgerðar-
lausa söng Erlings Ólafssonar, en
er það ekki misráðið að velja
lög eins og „Ave Maria“ eftir
Kaíin, sem allir þekkja út og inn
meðferð heimssöngvara, þótt af
grammófónum sje reyndar? Daníel
Þorkelsson er orðinn mönnum að
góðu kunnur. Þnrfti hann nú á
öllum sínum iiáu tónum að halda í
lagi eftir söngstjórann („Sjá, dag
ar koma“). —
Að söng blandaða, kórsins kvað
allmikið, enda var kórinn fjöl
mennur (nál. 70 rnanns) og hljóm-
urinn því mikill í ekki stærra húsi
Um jafnvægi raddanna á köflum
o. fl. mætti segja sitt hvað, þó að
hjer verði því slept, enda hefir
samæfing jafnfjölmenns flokks ver
ið tiltölulega stutt og sjálfsagt
ýmsum vandkvæðum bundin.
í>að er mikið mein, að söngkon
ur vorar skuli aðeins vera kallaðar
til „aðstoðar“, þegar mikið iiggur
við. Þær liafa sýnt það hæði hjer
og á erlendum vettvangi, að þær
standa karlmönnum vorum í engu
að baki nje heidur stallsystrum
sínum í náiægum löndum. Þær eru
kjörnar til þess að vera „betr
helmingur" í sístarfandi söng
flokki hjer í bæ.
Sigf. E.
Á fimtudagskvöldið flutti Jó-
hann Möíler stud. juris erind
;um skiftingu auðæfanna og við-
horf jafnaðarstefnunnar til þéss
vandamáls. Svo sem kunnugi
r, beina jafnaðarmenn aðalá-
rásum sínum á núverandi þjóð-
skipulag, vegna þess, að það
haldi við ranglátri skiftingu
arðsins og auðæfanna. •— Hins
vegar þykjast þeir hafa glæsi-
legar lausnir fram að bera. —
Rakti Jóhann nú í erindi sínu
ráð jafnaðarmanna, sem eru
mjög svo sundurleit, og sýndi
fram á fánýti þeirra allra með
skýrum rökum. Er það dag-
sanna, að fjöldi manna fylkii
sjer undir fána jafnaðarmanna
í þeirri trú, að stefna þeirra sje
„mannúðar“-(stefna, og flytji
ettlæti á jörðu. -En Jóhann
sýndi fram á, að þær lausnir,
sem jafnaðarmenn halda fram,
eru hið rammasta ranglæti sið-
erðilega, eða leiða til fjárhags
'egrar tortímingar. Hvatti hann
menn til að kynna sjer sem best
stefnuna, því að þá kæmi í ljós,
hve óhæf hún væri, til að ráða
bót á nokkrum vandamálum
pjóðfjelagsins.
Var erindi Jóhanns tekið for-
Kunnar vel af fundarmönnum,
nda var það prýðilega flutt og
rökvíst með afbrigðum, enda er
Jóhann flestum mönnum víð
lesnari og gjörhugulli á þess
mál. —
Dagli ik.
i.
□ Edda 59313317
tyrirl. Atkvgr.
I.O.O.F. 3 = 1123308 =
Morgunblaðið er 8 síður í dag
og Lesbók.
Veðrið (laugardagskvöld kl. 5)
Við SV-land er vindur allhvass á
S eða SA og lítilsháttar úrkoma
í öðrum landshlutum er kyrt veð
ur og víðast ljettskýjað. Hitinn er
-3 st„ nema á A-landi er 1—4 st,
frost. Vindur er hægur á V og SV
um norðve.stur liluta landsins, og
er viðbúið, að V-áttin aukist held-
ur norðanlands, vegna lægðar, sem
er norður af íslandi og virðist
hreyfast A eða SA eftir. Gæti hún
jafnvel valdið snjókomu á morgun
útsveitum á N-landi.
Veðurútlit í Rvík í dag: SA
kaldi. TJrkomulaust.
Heimdallur heldur fund í dag
kl. 2 í Varðarhúsinu. Verður þetta
■■’afalaust fjörugur fundur, því að
mikið fundarefni liggur fyrir
stjórnarskrárbreytingar og fjelags
mál.
Hjór.aband. í dag verða gefin
saman í hjónaband ungfrú Ragn
heiður Hulda Þórðardóttir, til
heimilis á Nönnugötu 1B og Stef-
án Jónsson, bókhaldari, Njálsgötu
75. Heimili hrúðhjónanna verður
á Hverfisgötu 16 í Hafnarfirði.
Knattspyrnufjelagið ,Víkingur‘
h.jeit aðalfund sinn fimtudaginn
26. þ. m. 1 stjórn fjelagsins voru
kosnir: Axel Andrjesson verslm.
formaður, Tómas Pjetursson versl-
unarm. varaform., Óii P. Hjalte-
sted stud. med. gjaldkeri, Alfreð
Gíslason stud. jur. ritari og Þórir
Kjartansson stud. jur. brjefritari.
Heiðursfjelagi var kjörinn á þess-
Tekið udd í oær:
Kvenkjólar, fyrsta sendingin.
Leðurkápur, Gúmmíkápur í ýmsum litum.
Alpahúfur, Rúskinnsbelti, allir litir.
Enskar húfur, nýjustu gerðir.
Blússur með rennilás, verð frá 8.50.
Seinni partinn á mánudaginn verður fyrsta send-
ingin af sumarkápunum tekin upp.
hefir á boðstólum ýmsar góðar og ódýrar vörur til
hátíðarinnar, svo sem:
Hveiti, „Swan“ o. fl.,
Hrísgrjón, 3 tegundir,
Hrísmjöl,
Jarðeplamjöl,
Sagógrjón,
Grænar baunir,
Kaffi og sykur.
Ávexti (ferska, noðursoðna og
þurkaða). *'
Brauð, ýmsar tegundir,
Ávaxtamauk,
Súkkulaði og kakóduft,
Mungæti, ýmiskonar,
Vindlar, margar teg. o. m. fl.
Vindlavikan
í Tóbaksversluninni „10110011“
Eins og síðastl. ár höfum við ákveðið að gefa viðskifta-
vinum okkar kost á ódýrum tóbaksvörum í nokkra daga. Vik-
una til páska — en ekki lengur — seljum við ágœta vindlfr
afar ódýrt, jafnvel undir hálfvirði. Er því hjer um sjerstakt
tækifæri að ræða, sem að reykingamenn ættu að notfæra sjer.
Sígarettu- og reyktóbaks-vika verður auglýst síðar.
Tóaksverslnnin „LONDON'*.
Sjðmenn.
Vantar nokkra menn vana línuveiðum. Upplýsingar
um borð hjá skipstjóranum á kútter „Grímur“ frá kl. 1—B
í dag. Skipið liggur við litlu trjebryggjuna.