Morgunblaðið - 19.07.1931, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 19.07.1931, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ Dr. med. Johs. Fraadsen: lln spitaia os Derklavarnir. Yfirmaður heilbrigðismála í Dan- mörku, dr. med. Johs. Frandsen var hjer á ferð, sem kunnugt er um daginn, og sat aðalfund Lækna fjelagsins, Hjelt hann þar fyrir- lestra tvo, annan um heilbrigðis- stjórn Dana, en hinn um berkla- vamir þar í landi. Að afloknum læknafundinum fór hann ásamt konu sinni, sem einnig er læknir (augnl.) og L. S. Frtdericia prófessor, mjög þekt- um vísindamanni, með bíl til Ak- ureyrar, síðan kom hann sjóveg að norðan, á heimleið, og hafði Morgbl. tal af honum áður en hann fór. Medicinaldir. Johs. Frandsen, er hvatlegur maður á ljettasta skeiði. Hann ljet óblandna ánægju sína í ljós yfir hingaðkomu sinni, og móttökum þeim, sem hann hafði fengið hjá læknum hjer. Hann hafði bersýnilega notað tímann vel, til þess að kynnast sem best íslenskum heilbrigðismál- um og heilbrigðisstjórn allri, — Spítala og heilsuhæli hafðí hann skoðað. — Jeg hafði heyrt, sagði hann um Landsspítalann ykkar hve vandaður og fullkominn hann væri og kom mjer það því ekki á óvart, að sjá hjer spítala, sem í fylsta máta samsvarar kröfum nútímans. En jeg hafði álitið, að honum frá- töldum væru spítalamál ykkar ekki eins vel á veg komin, eins og þau eru. Berklahælin skoðaði jeg, á Víf- ilsstöðum og Kristnesi. Þó á þeim sje nokkur munur, sýnilegt að Kristneshælið er nýrra, verður ekki annað sagt, en bæði sjeu góð. Augljós eru þægindin að lauga- hituninni í Kristnesi, að geta-, án fyrirhafnar, eða tilkostnaðar hag- að hitanum eftir vild, hversu mikil loftræsting sem er við höfð. Mjer þótti gaman að sjá tilraun þá, sem gerð er með byggingu hressingarhælsins að Reykjum í Ölfusi. Ef jeg hefði mátt ráða, liefði jeg að vísu haft fyrirkomu- lagið allmjög öðruvísi en þar er. En eftir því sem mjer var skýrt frá, er hælið að Reykjum svo ó- dýrt, að vert er að gefa því gaum á sparnaðartímum. Þar sá jeg líka hið ágæta barna- hæli Egilsstaði, sem Gunnlaugur Einarsson læknir hefir umsjón með. / Og dr. Frandsen telur upp fleiri staði sem hann hefir komið á, spít alann á Akureyri, t. d. sem hann skoðaði, búskapinn á Blikástöðum og Korpúlfsstöðum. Mjög ljet hann vel yfir mjólkurmeðferðinni á Korpúlfsstaðabúinu. Hafði dr. E’randsen frá mörgu að segja af komu sinni hingað, sem of langt yrði upp að telja. Berklavamimar. Síðan barst talig að berklavörn- um. Eins og gefur að skilja, segir dr. Frandsen, hefi jeg enga ástæðu til þess að koma bjer fram með neinar ákveðnar ráðleggingar um það ,hvernig haga skuli berkla- vörnum hjer á Islandi. Jeg segi aðeins frá því hvemig tilhögunin er hjá okkur. Berklavarnafjelögin hafa verið starfandi síðan um aldamót, og hafa þau fengið allmikið fje til umráða. Aðalstarf fjelaganna hefir verið lejðbeiningastarfsemin, vamirnar gegn því að berklaveikin útbreidd- ist. Lögð er megináherslan á, að finna hvar sýkingarhættan er, finna hvaðan veikin aðallega berst — hverjir það eru, sem smita frá sjer. A seinni árum, þegar menn fóru að sjá árangurinn af þessu starfi, og skilja það, að mest ríður á því, að hefta útbreiðslu veikinnar, og koma sjúklingunum á byrjunar- stigi veikinnar undir eftirlit sjer- fræðinga, þá fór hið opinbera að gefa málinu meiri gaum en áður, og fær þessi hjálparstarfsemi nú mikinn styrk úr amts- og sveita- sjóðum. Aðferðin. Undir eins og berklasjúklingur leitar „praktiserandi' ‘ læknis, beinir læknirinn sjúklingnum til hjálparstöðvarinnar í því hjeraði. Þar er sjúklingurinn rannsakaður og ákveðið hvað gera skuli, hvort hann þurfi spítalavist, hælisvist, eða hvert hann getur verið heima hjá sjer. En um leið og sjúklingur kemur á hjálparstöðin|, er hjúkrunar- kona send á heimili.hans, til þess að athuga hvemig þar er umhorfs, hvort húsakynni sjeu sæmileg og hvernig aðbúð heimilisfólkið hefir. Þarf nú að gera gangskör að því. að fleira heimilisfólk sýkist ekki, kenna því varúðarreglur, sjá um að á heimdinu sje hreinlætis gætt. Ef t. d. að eitthvað af heim- ilisfólkinu hefir ljeleg eða óhentug rúm, eða einhverju öðru er ábóta- vant, þá sjer sveita-stjórn sjer hag í því að hlaupa undir bagga með smáræðisstyrk, sem varið er tli nuaðsynlegra endurbóta eftir til- lögum hjúkrunarkvenna. Hjálparstöðin hefir svo áfram- haldandi eftirlit með heimilisfólk- inu á hinum smituðu heimilum, vaiúðarreglum þess og aðbúð allri. Fólkið er hlustað við og við, svo liægt sje að vita strax, ef ein- hver sýkist svo, að skerpa þurfi varúðarreglur, eða ef hælisvist verður nauðsynleg. En þess er að sjálfsögðu vand- lega gætt, að starfsfólk hjálpar- stöðvanna taki á engan hátt upp neina keppni við lækna hjeraðis- ins, en fáist aðeins við leiðbein- ingastarf sem látið er ókeypis í tje. Það gefur að skilja, að á þessu sviði, sem öðrum sviðum heilbrigð- ismálanna, er sjerfræðin látin sitja í fyrirrúmi, eins og yfirleitt á öll- um sviðum heilbrigðismála vorra. Því við leggjum mikla áherslu að sjerfræðin sje notuð hver á sínu sviði og fái þar sem mest að ráða, enda er öll okkar heilbrigðisstjórn og heilbrigðisframkvæmdir á því bygt og naumast út af brugðið, og þykir okkur sem annað myndi ekki vel gefast. Undir stjórn hinna sjerfróðu fríhjola bíll meQ lægsta devQí. Þetta er nýi bíllinn með — fríhjólaútbúnaðinum — og heims- ins ódýrasti bíll, búinn öllum þeim kostum, sem bíl má prýða, auk sparneytni fríhjóla bílsins. Studebakers ágæti 6 cyl. bíll. — í ný- afstöðnum 200 mílna opinberum kappakstri, notaði Studebaker minni olíu og bensín, en nokkur annar bíll', án tillits til stærðar og verðs. Fríhjólaútbúnaðurinn sparar frá 15—20% í reksturskostn- að. Af hverjum 10 mílum, sem ekið er, eru 2 mílur farnar án vjelar átaka. Fyrirhafnarlaust er hægt að skifta úr minsta* í mesta hraða og mesta í hinn minsta, án þess að „kupla“ frá. Öryggi þess sem ekur er margfalt meira í þessum híl, vegna þess að bílinn lætur að stjórn með eldingar hraða. Reynið sjálf yfirburði 6 cyl. Stude- bakersbíla, með því að aka í þeim sjálf. IV2 tonna Studebaker eru bestu vörubílarnir, Egill Wilhgálmsson Grettisgötu 16—18. Sími 1717. Heima 673. Barnarúm. Bamavöggur. Barnavagnar. Barnakerrur. Altaf fyrirliggjandi. Mikið úrval. Hnsgagnaversl. Reykjavfknr Vatnsstíg 3. Sími 1940. MHiMHingsbílar. Frumvarp veganefndar um samning milli bæjarstjórnar og væntanlegs bifreiðafjelags. Ætlast er til, að sex almenn- ingsbifreiðir fari um bæinn og úthverfi hans. Fargjöld 10—30 aurar. Ferðir hvern stundar- fjórðung. um aðalumferðar- götur. lækna í hjálparstöðvunum, vinna hjúkrunarkonurnar ákaflega mik- ið verk við leiðbeiningastarfsem- ina á hinum sýktu heimilum. En með þessari aðferð berkla- varnanna liefir það áunnist, að berklaveiki gerir hvergi minni usla hin síðari ár en í Danmörku. Fæ jeg ekki betur sjeð, segir dr. Frandsen, en líkum aðferðum sje hægt að koma við hjer á íslandi, rátt fyrir strjálbýlið, enda mun þessi aðferð mjög vel á veg komin í Reykjavík og nokkuð á Ákur- eyri. Tekin hefir verið upp sama að- ferð í Færeyjum undanfarin ár, og virðist koma að góðum notum. Yfirleitt er það svo, segir dr. Frandsen að lokum — að störf læknanna og stefna heilbrigðismál- anna færist meira og meira í það horf að verjast veikindum og stöðva útbreiðslu þeirra, en að lækna- þá fyrst, þegar veikin hefir tekið menn. Undanfarið hefir veganefnd bæjarstjórnar haft almennings í bifreiðamálið til meðferðar, og hafa þeir borgarstjóri og Ágúst Jósefsson samið frumvarp að isamningi milli bæjarstjórnar iog væntanlegs fjelags, er starf- rækti almenningsbifreiðar. — Samningsuppkast þetta er snið- ið eftir frumdráttum þeim, sem Guðm. Jóþannsson gerði að skipulagi þessarar starfrækslu. Fól bæjarstjórn G. Jóh. það |verk í' vetur sem leið. En á fjár- 1 hagsáætlun bæjarins fyrir þetta ár voru Veittar 15.000 krónur , til almenningsbifreiða. i Samningsfrumvarp þetta lá fyrir síðasta bæjarstjórnarfundi í frumvarpinu eru svofeld á- kvæði m. a.: „Bifreiðir skulu aka daglega frá kl. 6 til 24 eftir ferðaskrá, er bæjarstjórn samþykkir til hálfs árs í senn, og þær leiðir sem ákveðnar verða. tJr miðbænum: að Kleppi, Elliðaám, Grímsstaðaholti og Kaplaskjóli og til baka einu sinni á hverri klukkustund. Kirkjugarðinum í Fossvogi, og stað í Vesturbænum og til baka aftur eftir nánari ákvörðun. Hlemm og til baka á hverj- um hálftíma. í ferðaskrá skal ákveða, að jtilteknar ferðir sjeu aðallega fyrir skólabörn, er gangi fyrir öðrum, að fá sæti í bifreiðun- um. Fargjöld skulu vera 10—30 aurar fyrir hvern fullorðinn mann, en hálft gjald fyrir börn innan 14 ára, þó aldrei hærra en 10 aurar fyrir skólabörn. Fargjöld skulu nánar ákveðin með gjaldskrá. j Fjelagið skuldbindur sig til þess, að hafa ávalt eftir 1. jan- úar 1932 nægilega margar bif- reiðir í nothæfu standi til að fullnægja aksturskröfunum og eina varabifreið að auki. Hver bifreið skal hafa sæti fyrir 12 v—20 farþega og skal fullnægja kröfum bæjarstjórnar um gerð og útbúnað allan“. Sócialistarnir St. Jóh. og Ól. Friðriksson snerust öndverðir gegn frumvarpi þessu. Þótti Stefáni tillag bæjarins of hátt, og taldi vafasamt hvort rjett væri.að ljetta undir með þeim sem bygt hafa úthverfi bæjar- ins, með því að setja almenn- lingsbifreiðaferðir þangað. Og Ólafur Friðriksson þvertók fyrir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.