Morgunblaðið - 18.10.1931, Blaðsíða 12
12
M 0 1 U V W B L A Ð I Ð
niðnrsTiðuglösin hafa reynst
best til geymslu á öllum mat.
Allar stærðir og varablutir
fyrirliggjandi.
Notið aðeins Weck.
NB. Verðið lækkað!
Miðlkurbú Flöamanna
selur nýmjolk, rjóma, skyr.
Týsgötn 1. Sími 1287.
Vesturgötu 17. Sími 864.
Silvo
silfurfægilögur
er óviðjafnan-
legur á silfur,
plet, nickel og
alumineum
Fæst í ðllum
helstu verslun-
um.
Borðstofnborð
og borðstofustóla
kaupa nú allir í
HúsgagnaversL Reykjavíkur,
Vatnsstíg 3. Sími 1940.
Hveoær borgar
Sildareinkasalan?
Þessa spurningu leggja sjómenn
Iiver fyrir annan, er þeir hittast á
gatnamótum nú daglega.
Svörin eru misjöfn, sem eðlilegt
er. En flest munu þau vera á þá
leið, að hún borgi aldrei.
í>á er spurt hvernig standi á
þessu? Svarið er, að þó síld seldist
eða hafi selst, þá sje nóg af göml-
um víxlum, ónýtum tunnum og
salti, sem aldrei hafi verið nothæft,
en verði nú að greiðast.
Er þetta satt?
Er þetta þá gullöldin, sem átti
að rísa upp hjá okkur sjómönnum
með Einkasölunni 1
Eigum við nú að láta okkur
nægja 100—öOO kr. fyrir 9—19
þúsund tunna veiði,. sem er langt
fram yfir meðalafla.
Hvað myndu sjómenn hafa borið
úi' býtum eftir meðal aflaár?
Hvað segja nú þeir menn sem
mest hafa gylt fyrir sjómönnum
þeíta einkasölufyrirkomulag.
Það heyrist lítið frá þeim. Hvern
ig skyldi standa á því? Það væri
fróðlegt fyrir sjómenn að athuga
það.
Sjómenn eru illu vanir, en jeg
trúi ekki öðru, en þolinmæði þeirra
sje nú þegar þrotin, þegar þeim er
sýnd önnur eins smán og nú hefir
verið gert.
Samkvæmt síðustu skýrslum um
xítflutta síld og áætlað verð henn-
ar, er engin ástæða til að halda
annað en Einkasalan gæti greitt nú
þegar, eitthvað til viðbótar við
fyrri útborgun.
•Teg vil leyfa mjer að spyrja
rjetta hlutaðeigendur:
Megið þið ekki, getið þið ekki
eða viljið þið ekki gera grein fyrir
ástæðunum fyrir því, að ekki er
greitt meira út á síldina?
Það er alveg óhugsanlegt að
stjórn slíks fyrirtækis sje saman
sett af slíkum glópum, að þeir ekki
geti gert grein fyrir gerðum sín-
nm, en það eigum við heimting á.
•Teg ætla ekki að hæla útkomu
þeirri sem orðin var hjá sumum
af síldarútvegsmönnum, áður en
Einka.salan kom til sögunnar, en:
Hvað myndi vera sagt nú, ef
sjerstakir menn ættu hlut að máli?
•Teg get, liugsað að sumum fyndist
þeir hafa lítinn tdverurjett. Hann
hefir Einkasalan engan.
H. S. sjómaður.
A Qrcenlanösjökli,
Jökullinn er 2700 metra þykkur.
Grænlandsfarið „Hans Egede“
kom td Kaupmannahafnar hinn 23.
september og með því komu þýsku
vísindamennirnir dr. Georgi og dr.
Sorge, fjelagar dr. Wegeners. Þeir
voru í fyrravetur á stöðinni „Eis-
mitte“, sem er á miðjum Græn-
landsjökli, og fóru ekki þaðan fyr
en í ágúst í sumar. Stöðin er nú í
eyði. Hinir leiðangursmennirnir, 14
alls, þ. á. m. G;úðmundur Gísla-
son stúdent, voru þá í Kamarajuk,
en ætluðu að fara til Kaupmanna-
hafnar með næstu ferð „Hans
Egede“ eða þá með „Disko“.
Dr. Georgi sagði frá því, að þeir
fjelagar hefði dvalist 400 daga í
„Eismitte“, og væri þetta í fyrsta
sinn, og líklega í seinasta sinn, að
menn hefðist við árlangt, uppi á
miðjum Grænlandsjökli. 1 janúar,
febrúar og mars hefði frostið oft
verið 65 gr. þar, en meðalkuldi 40
gr. C.
Þeir höfðu alveg nóg matvæli á
stöðinni, svo að Wegener þurfti
ekki að yfirgefa þá þess vegna. En
hann vildi komast til vesturstöðv-
arinnar, vegna þess ,að hún var
ekki fullger, þegar hann skildi þar
við, og hann hafði með sjer Kas-
mus Grænlending. Rasmus stjórn-
aðii hundasleðanum, en prófessor
Wegener gekk á skíðum. Álítur
dr. Georgi, að ihann muni hafa feng-
ið hjartaslag af þreytu á leiðinni.
Rasmus hefir ekki fundist enn,
og ekki heldur hinar vísindalegu
minnisbækur Wegeners. — Ætla
menn, að Rasmus hafi tekið þær
með sjer til að reyna að bjarga
þeim.
Dr. Georgi segir, að með berg-
málsmæli hafi hann mælt, hvað
jökulHnn á Grænlandi sje þykkur
og hjá Eismitte hafi hann verið
2700 metrar.
AHt með islenskmn Skipum!
Tilkynning.
Ráðuneytið vill hjermeð vekja athygli almennings á
því, að heimild sú, er gefin er í 52 gr. 1. nr. 75 27. júní
1921 um stimpilgjald til að lækka og láta falla niður sektir
fyrir vanrækslu á að láta stimpla skjöl innan lögákveðins
tíma, fellur niður 1. janúar næskomandi.
Frá þeim tíma verður því eigi hægt að veita nokkrar
undanþágur frá stimpilsekt.
Fjármálaráðuneytíð 9. október 1931.
Revkvfskar húsmæður! i
Hafnfirskar húsmæður
hafa síðastliðinn hálfan mánuð, keypt og notað 500®
stangir af G. S. kaffibæti
og með því sparað sjer 500—600 krónur, miðað við
ef þær hefðu keypt hinn erlenda kaffibæti.
Munið að biðja kaupmann yðár um
R. S. kafiibatl.
Stiernerne paa Htmmelen
(The Stars in their courses)
eftir próf. Sir James Jeans, segir frá allra nýjustu niðurstöðu stjörsm-
fræðinnar um undur himingeimsins. Hjer er um óenju fróðlega og
iskemtilega bók að ræða, sem vjer fullyrðum að enginn fróðleiksfú»
lesari sjer eftir að kaupa, lesa og eiga. Bókin er prýdd fjölda mynda.
Kostar í bandi kr. 7.30.
Bðkav. Sigfúsar Eymundssonar.
Stór borðstofihúSDðgn
sem ný, einstæð gerð, óvenju vönduð, fögur og sterk, seljast með tæki-
færisverði og mánaðarlegri afborgun ábyggilegum kaupanda. Listhaf-
endur leggi nafn sitt og heimilisfang í lokað umslag, merkt „1867“, og
afhendist afgr. Morgunblaðsins.
Kvennagullíð.
barðist eitt andartak ótt og títt í
mjer, en síðan varg eins og það
hætti alveg að slá. Hvað átti bún
við. Jeg stóð þarna í sömu sporum
og drakk í mig myndina af henni
og jeg er ekki í nokkrum vafa um
að jeg hafi verið fölur. En til þess
að hjegómagimd mín skyldi ekki
hlaupa með mig neitt gönuskeið,
þorði jeg ekki að hegða mjer eins
og grunur minn bauð mjer.
— Það er rjett sem þjer segið,
náðuga ungfrú, sagði jeg. Þjer
munuð verða mjög einmana. Mig
tekur það sárt yðar vegna.
Þegar hiín svaraði engu, sneri
jeg aftur til dyranna og vonin
dofnaði við hvert fótmál.
— Herra minn ....
Rödd hennar stöðvaði mig í þeim
svifum sem jeg stóS á þröskuldin-
um.
— Hvað á veslings ung stúlka
að taka td bragðs með svona stóra
jarðeign undir sjer? Hún mun ger-
samlega ejrðast, þegar enginn karl-
maðurinn er til að taka við stjóm-
inni.
— Þjer megið ekki reyna að
taka alt ag yður sjálf. Þjer verðið
að útvega duglegan eftirlitsmann.
Jeg þóttist heyra, sem var svipað
ekka. Gat það verið ? Ó, hamingj-
an góða, gat það verið þrátt fyrir
alt. Jeg sneri mjer aftur við til
hálfs, en rödd hennar stöðvaði mig.
Hún hljómaði eins og hún væri
óþreyjufull.
— Herra Bardelys, þjer hafið
efnt loforð yðar eins og göfugum
manni sómdi. Ætlið þjer þá alls
ekki að krefjast launa yðar fyrir
það?
Stutta andrá störðu augu hennar
á mig. Hinn óendanlegi blámi
þeirra var ems og skyggður af tár-
um. Síðan leit hún aftur niður fyr-
ir sig.
— Ó, af hverju viljið þjer ekki
veita mjer lið? hraut alt i einu út
úr henni og því næst hætti hún við
svo óendanlega innilega. — Jeg
mun aldrei geta fundið hamingj-
una án yðar.
— Þjer eigið við ? hrópaði jeg
og stóð á öndinni, gekk eitt skref
áfram og snaraði ihattinum inn í
eitt herbergisskot.ið.
— Að jeg elska yður, Marcel,
— að jeg vil ekki sleppa yðnr.
— Og þjer getið fyrirgefið mjer
—• þjer fyrirgefið mjer? hrópaði
jeg og greip hana í faðm minn.
Svar hennar var hlátur, sem gaf
greinilegar 1 skyn, en orð fá gert,
hversu fyrirlitning hennar væri
djúptæk fyrir öllu í þessum heimi
— fyrir öllu að okkur tveimur
undanskildum — fyrir öllu að ást-
inni undanskiHnni.
Hlátur þessi og svo rauðar og
blómlegar varir var alt og sumt
sem jeg fekk í svar. Og ef þessar
freistandi varir — en nei, nú verð
jeg of óhæverskur.
Og jeg þrýsti henni að barmi
mjer og hrópaði:
— Ganymedes!
—• Hvers óskar yðar göfgi? svar-
aði hann um hæl gegnum hina
opnu glugga.
—- Sjáðu til þess ,að karlarnir
komist af baki og komi hestunum
í hús. E N D I R .
isperBntosaibapd Islands
heldur námskeið í Esperanto ,sem hefst föstpdagskvöldið
23. þ. m. Kent verður eftir hinni heimsfrægu aðferð Andreo
Ce. Kennarinn verður Þórbergur Þórðarson. Kenslugjald
fyrir alt námskeiðið (40 til 50 tíma) er að eins 15 krónur.
Til þess að gefa mönnum kost á að kynnast kensluaðferð-
inni heldur sambandið
ókeypis kenslnsýningn.
í Iðnó kl. 9 annað kvöld. Allir velkomnir. Væntanlegir nem-
endur tilkynni þátttöku sína í lok sýningarinnar eða hjá
Þórbergi Þórðarsyni, Stýrimannastíg 9, kl. 8—9 síðdegis.
Sími 33.
Stjórn Esperantosambands íslands.
■jé Allt ineð íslenskum skipuni!