Morgunblaðið - 20.12.1931, Side 5

Morgunblaðið - 20.12.1931, Side 5
Sunnudagiim 20. desember 1931. 5 JPtoripiiwMjtMI) Ftdlveldí og fákænska. Eftir Gísla Sveínsson. Það var næsta vel til fallið, að stúdentar tóku hátíðahöld „fullveldisdagsins“ 1. desem- ber á sína arma og gerðu hann að sínum hátíðisdegi. Því að hvorttveggja var, að ella hefði hann enginn tilhaldsdagur orð- ið með þjóðinni — þótt merki- legt sje —, og einnig eru stú- dentar (með hverri þjóð) allra manna rjettbornastir til þess að hafa á hendi forustu slíks dags. Ef nokkur frelsishugsun er lifandi í landi, þá er hún það hjá stúdentum. Það er kunnugra en frá þurfi að segja, að íslenskir stúdentar hafa verið frumherjar hins ís- lenska fullveldis, þeir báru uppi frelsishreyfinguna fram á þessa öld (Hafnarstúdentar ekki síð ur en heimastúdentar) og þeir stóðu í fylkingarbrjósti sjálf- stæðisbaráttunnar, þangað til fullum sigri var hrósað með viðurkenningu hins íslenska ríkis hinn 1. desember 1918. Lærðir og leikir tóku þátt i henni og loks þjóðin öll, en meðal stúdenta, eldri og yngri, var foringjana að finna. Þetta er mjög eðlilegt. Stú- dentar höfðu átt kost á að afla sjer víðtækastrar og gagn- gerðastrar mentunar, innan lands og utan; þeir höfðu fram að síðustu tímupi ausið af Mím- isbrunni þekkingar og gamall- ar og nýrrar menningar þjóð- anna, framar öllum öðrum stjettum þjóðfjelagsins, svo að útsýn þeirra yfir menn og mál- efni hlaut að verða þroskaðri, víðsýni þeirra að jafnaði meira en gerðist með öðrum lands- mönnum. Þetta verða menn að vita, þótt upp á síðkastið hafi verið gerð allsvæsin tilraun af hálfu nokkurra skammskóla- genginna manna (þetta orð er notað andspænis „langskóla- genginn“) til þess að ,,eyða“ þessari staðreynd, sumpart af greinilegu lýðfylgisbralli. — Það er ekki óholt á þessum tímum og eins og nú árar, að minnast þess, sem mikið er í fari þjóðanna, ef það mætti verða til þess, að menn rankaði við því, hvert horfir nú' með s.jálfstæði lands og lýðs. Það var því vissulega ánægjulegt að hlusta á það, sem fram fór á fullveldisdeginum 1. desem- ber síðastliðinn. Og sjerstakur hátíðarauki var að því, er minst var nokkurra ágætismanna þjóðarinnar vegna afhjúpunar minnismerkis Hannesar Haf- stein. Þeir, sem sátu að mál- pípu útvarpsins þann dag, heyrðu að vísu ekki allt, sem sagt var, en þeir bjuggust þó ýmsir við því sem sjálfsögðu, að ríkisstjórnin mundi koma til skjalanna við hátíðahöldin, er sú afhjúpun fór fram — íraman við dyr sjálfs stjórnar- ráðshússins; en ekki hefir heyrst, að svo hafi verið, og mega það firn heita, að forsæt- isráðherra skuli ekki hafa talið það skyldu sína að mæla þar. — Aftur voru töluð nokkur orð að kveldi dagsins í útvarp- ið um H. H. og getið annara frömuða sjálfstæðismálsins, að því er skilja mátti á ræðumanni (Þ. G.), en sá er þetta ritar, heyrði hann ekki nefna nema fáa þeirra og sleppa öðrum, er fremri voru sumum þeim, er tijgreindir voru. T. d. varð ekki tekið eftir, að nefndir væru menn eins og Benedikt Sveinsson eldri, Einar Bene- diktsson, Bjarni Jónsson frá Vogi, próf. Guðmundur Hann- esson, Skúli Thoroddsen, dr. Jón Þorkelsson, Benedikt Sveins son yngri, o. f 1., svo að sýnt er, hve ófullkomin upptalningin hefir verið, og þó verður því ekki borið við, að kostað hefði of mikinn tíma eða fyrirhöfn að nefna þessi nöfn; — Ekki er um að sakast, þótt talað væri vel um Valtý Guðmundsson — hann átti það að ýmsu leyti skil- ið — og til skammar var skít- kast það, er úr einni átt var haf- ið á hann fyrir fáum árum, og var hann þá annað hvort við andlátið eða liðinn. En sjerleg sjálfstæðishetja á íslenskan mælikvarða var Valtýr aldrei (enn þá kannast menn við ,,val- týskuna“ gömlu). Og Jón Magn ússon — já, í hans hlut fjell það, að vera forsætisráðherra í þessu landi, er samningunum var á komið við Dani 1918. — Hann var heppinn, í þvf eins og fleiru, það skal viðurkent. En nokkuð var mér kunnugt um (jeg átti þá sæti á Alþingi), hvernig á því stóð, að hann íekst til að tefla fram sam- bandsmálinu og lausn þess á þeim tíma, og fullvíst er það, að ef eigi hefði staðið svo sjer- staklega á fyrir Dönum 1918 eins og stóð (þá voru þeir hræddir við alt og alla), hefði J M. ekki hreyft því máli; og tf eigi hefði honum skjelegg- ari menn fengist við samninga- gerðirnar af íslands hálfu (svo sem þeir nefndarmennirnir Ein- ar Arnórsson og Bjarni Jóns- son frá Vogi), hefði ekki kom- ið þaðan neitt hreint í vorn garð. En vitaskuld studdi hann hinar íslensku niðurstöður, | enda tóku Danir talsvert tillit til hans, m. a. vegna stöðu hans^ svo að hans þáttur á málalykt- unum var nokkur, svo sem skylt var. En skörungur í sjálfstæð- ismálum var hann ekki, hvorki fyr nje síðar. Um það held jeg að verði ekki deilt (jafnvel þótt breitt sje yfir „uppkast“ og alla ,,bræðinga“). Ekki er mein að, þótt satt sje sagt um menn þá, er framarlega hafa staðið, þá er ríkt tilefni er gefið; kostir þeirra geta borið þá uppi jafnt sem áður. J. M. var að mörgu leyti hygginn stjórnandi og gegn starfsmað- ur, í hverju því, er hann fjekst Dettiioss" » fer hjeðan um jólin til ísa- ijarðaa', Si^lufjarðar og Ak- ureyrar. — Þaðan beint til Hamborgar. „Gnllfoss“ fer hjeðan annan jóladag (26. des.) að kvöldi, um Leith til Kaupmannahafnar. Vörur í bæði skipin af- hendist fyrir hádeg'i á að- fangadag;, og farseðlar ósk- ast sóttir fyrir sama tíma. við, þó að landið græddi ekki á ,,makki“ hans við framsókn- ar- og jafnaðarmenn um eitt skeið. En langt var frá, að hann væri háfleygur stjórnmálamað- ur. Sumir mundu hafa kallað hann í þeim efnum fremur lít- illa sanda og lítilla sæva. Heima stjórnarflokkurinn gamli átti ýmsa dugandi menn, en að eins einn úrvalsmann, og um hann munaði líka, — það var Hann- es Hafstein. í því málinu, er áður skifti flokkum hjer í landi, V _

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.