Morgunblaðið - 07.02.1932, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 07.02.1932, Blaðsíða 4
MORGUNBLAÐIÐ 'Jk Símar 2098 og 1456, liafa verið, eru og verða bestu fisksímar bæj- arins. Til dæmis í matinn á morg- un, úrvals góður reyktur fiskur. Ullarpeysur á börn og fullorðna, pils, blússur, kjólar. Verslun Hólm fríðar Kristjánsdóttur, Þingholts- stræti 2. Pyrsta ílokks saltað dilkakjöt fæst í Norðdalsíshúsi. Sími 7. Tóbaksvörur alls konar kaupa menn þar sem úrvalið er mest. — Verðið sanngjarnast. Tóbakshúsið, Austurstræti 17, uppfyllir þessi skilyrði. —---------------- -------------- fbúðarhús í Vesturbænum er til sölu. Upplýsingar hjá Þorsteini Einarssyni, Holtsgötu 16. — Sími 2163. — íbúð, 3. til 4 herbergi og eldhús óskast til leigu 14. maí. Upplýsing- ar í síma 1540. Heimabakaðar kökur fást ávalt hjá Ouðmundu Nielsen, Aðalstræti tí, (beint upp tvo stiga). Kvöld- sala og sunriudagasála. Húsmæður! Sendið rnjer kökukassana ykkar og látið mig fylla þá fyrir sanngjarnt verð . Æ, hvað á jeg að gefa drengnum mínum í afmælis- gjöf ? Jú; Dýra- Ijóðiu eru besta af- mæiis- gjöfin. Hanglbjöt oy bauuir ern góðgæli allra, best að venju i Hýlendiivör uverslnnlaj JES ZIIHSEN Fyrir Sprengjudaginn: Victoriubannir, Hálfbaunir, bestar i m.. * f+rt-'* -• .v -í Samkomur verða á Njálsgötu 1, hvert kvöld þessa viku kl. 8 e.h. Margir ræðumenn. — Allir vel- komnir. Heimdallur heldur aðalfund sinn kl. 2 í dag í Varðarhúsinu. í Bethaniu. Samkoma í kvöld kl, 8y2- ABlir lijartanlega velkomn- ir. — fsland í erlendum blöðum. — í janúarmánuði birtist í „Berliner Börsen-Zeitung'c þýðing á þremur köflum úr Sturlungasögu, er segja frá Haugsnesbardaga (Sturl. 3, 204 —206). Blaðið birti þessa kafla, sem' sýnishorn af „Sammlung Thule“, sem inniheldur 24 bindi þýskra þýðinga af öllum íslend- inga sögunum, Eddukvæðum, Heimskringlu, Sturlungasögu o. s. frv. Er þessu þýðingarsafni nú lok- ið og ákaflega vel frá því gengið. Bækur þessar eru meðal annars skreyttar með Ijósmyndum af helstu sögustöðum íslands og upp- dráttum. Auk þess fylgja líka vísnaskýringar. Tollur á fiski í ítalíu. Ráðu- neyti forsætisráðherra hefir, fyrir tilmæli forseta Fiskifjelagsins leit- að upplýsinga um, hvort innflutn- ingstollur á saltfiski hafi hækkað i Ítalíu frá 1. fyrra mánaðar. — Sjálfur innflutningstollurinn hef- ir ekki verið hækkaður, en sveita- stjórnum í Italíu hefir verið veitt heimild til að krefja neysluskatt af saltfiski, frá 12—35 líra pr. 100 kg., og flestar sveitarstjórnir hafa þegar notfært sjer þessa heim- ild (Ægir). Að gefnu tilefni hefir Morgun- blaðið verið beðið að geta þess, að hvorki Öskudags- nje Nýárs- klúbburinn á nokkura hlutdeild í fagnaði þeim, sem auglýstur hefir verið að Hótel Borg þ 10. þ. m. Útvarpið í dag. 10.40 Veður- fregnir. 11.00 Messa í dómkirkj- unni. ((Síra Friðrik Hallgríms- son). 15.30 Tilkynningar. Hljóm leikar. Frjettir. 18.40 Barnatími. (Síra Friðrik Hallgrímsson). 19.15 Grammófónhljómleikar: Píanó-sóló, Impromptu í As-dúr, eftir Schubert, leikið af Pader- ewsky og Impromptu í B-dúr, eftir Schi\bert, leikið af Ethel Leginska). 19.30 Veðurfr. 19.35 Erindi: Minningar frá Möðru- völlum. (Guðm. Friðjónsson). 20.00 Klukkusláttur. Frjettir. 20.15 Ópera: La Traviata, eftir Verdi. Danslög til kl. 24. Útvarpið á morgun: 10.15 Veð urfregnir. 12.15 Tilkynningar, Hljómleikar og frjettir.. Klukkan 16.10 Veðurfregnir. 19.05 Þýska, 1. fl. 19.30 Veðurfregnir. 19.35 Enska, 1. fl. 20.00 Klukkuslátt- ur. Bókmentafyrirlestur: Ókunn skáld. (Gísli Guðmundsson). 20.00 Frjettir. 21.00 Hljómleik- ar: Alþýðulög. (Útvarpskvartett- inn). Einsöngur (Sveinn Þor- kelsson): Sólskríkjan eftir Lax- dal. í dag skein sól eftir Pál ísólfsson. Biðilsdans eftir Loft Guðmundsson. Friður á jörðu eftir Árna Thorsteinsson. Kvöldbæn eftir Björgvin Guð- mundsson. Grammófón: Ouvert- ure og Scherzo úr „Jónsmessu- næturdraumnum", eftir Mendel- sohn. Bandalagsfundur Icvenna í Reykjavík hefst í dag í Kaup- þitigssalnum kl. 5 síðd. Allar konur eru þar velkomnar, og ættu sem flestár konúr, hVort heldur eru bæjarkonur eða að- komukonur að taka þátt í fundi þessum. Það er ekki svo oft að það koma saman fulltrúar frá mörgum kvenfjelögum og ráða ráðum sínum. Það hlýtur að vera eitthvað að græða á slíkum fundi, enda eru þarna til um- ræðu ýms þau mál, sem koma öllum konum við. Þau fjelög, sem enn hafa ekki gengið í Bandalagið, ættu að> kynna sjer stefnuna og verða svo með. Ef öll hin mörgu og ötulu kvenfje- lög Reykjavíkur yrðu með í Bandalaginu, gætu þau í sam- einingu lyft grettistökum. Það ei margt ógert, sem við konur þurfum að fá framgengt. Lát- um oss vinna að framkvæmd- unum með sameinuðum kröft- um. Munið eftir Bandalagsfund inum í dag kl. 5. Kona. Tilkynning. I Aðalstræti 9, eru best og fljótast afgreiddar allar viðgerðir á slitnum skófatnaði, gúmmí og leðri. Hringið í síma 1089, ef þjer þurfið að fá gert við skóna eða skóhlífarnar yðar. Þá er það sótt og sent. Alt afgreitt samdægurs. ATH. Vinn sjálfnr á vinnnstofnnnt. Jón Þorsteinsson. skósmiður. Sími 1089. Köknhúslð 70 ára er í dag Eyjólfur Páls- son, sem nú dvelur á Elliheimilinu Forsætisráðherrunn Tryggvi Þórhallsson skrifar í Tímann, að „íhaldsmenn í Reykjavík hafi talið eftir, hátt og í hljóði hvern eyri, sem lagður hefir verið fram úr ríkissjóði, til að leggja vegi og síma, rækta tún og bæta að öðru leyti atvinnuskilyrði bændanna“. Verkefni væri það fyrir ritstjóra Tímans, sem á- byrgð ber á ummælum þessum, að finna nokkurt dæmi í ræðu eða riti, sem gæfi hið minsta tilefni til þessara aðdróttana. Takist ritstjóranum það ekki, eða þegar hann er uppgefinn í leitinni, verður ráðherrann að bæta þessum ósannindum sínum við legió þeirra, sem hann á undanförnum árum hefir stung- ið niður í meltingarveginn. NBnnngötn 16. — Sími 1883. — Allar tegundir sendar heim samstundis. Pantið í síma 1883 og þær eru komnar. Bnnfð að branðfð er vfðnrkent. Kafilfeásið minni-Borg. Nóndans í dag frá kl. 3]|2 til kl. 5 síðd. Stjórnarráðstöfun gegn kreppunni. Eins og allir vita dettur dómsmálaráðherranum margt í hug, og nú hefir hann fundið þjóðráð við kreppunni og pen- ingaleysinu. Guðm. Hannesson, prófessor, hefir í mörg ár kent heilsufræði og hjálp í viðlögum á Sjómanna- skólanum oftast 1 klst. á viku. Var þess óskað að hann kendi þetta með fyrirlestrum, því ekki þótti bætandi á bóklestur pilt- anna. Hann tók 5 kr. fyrir hverja klukkustund, enda fer nál. 1/2 klst. í gang til skólans og frá Hotf oo vondað ibúðarhós. i með öllum nýtísku þægind'um á góðum stað í bænum, ósk- ast til kaups. Útborgun 15 þús. krónur. Tilboð leggist inu á A. S. I., merkt „200“. Kartðflur. Úrvals tegnnd af norsknm kartðflnm koma með E s. Lyra 9. þ. m. Verðtð mjðg lágt. Eggert KristiánssoH & Co. honum. Það var nú svo sem auðvitað, að annar eins sparsemdarmaður og ráðherrann, sæi það í hendi sinni, að hjer var landsfje eytt til óþarfa og það til manns, sem síst skyldi. Var nú gripinn penni og blek og skólastjóra skipað að færa borgunina niður í 3 kr. Próf. Guðm. Hannesson vildi hvorki skilja við nemendur sína á miðju skólaári nje semja um neinn afslátt á kaupi sínu, og bauðst því til að kenna ókeypis, það sem eftir er skólaársins. Það er svo sem ekki hætta á, að við verðum lengi fjelitlir úr því stjórnin hefir slík þjóðráð undir rifi hverju. SkiftafunÖur í fjelagsslitabúi Fiskiveiðahlutafjelagsins Víðis í Hafn- arfirði, verður haldinn í húsi K. F. U. M. í Reykjavík, næstkomandi föstudag 12. þ. m. klukkan 5 síðdegis. — A fundinum verður lögð fram skrá yfir kröfur þær, sem lýst hefir verið í bú fjelagsins og gefið yfirlit yfir fjárhag þess. Reykjavík, 5. febrúar 1932. Skilanefnd Fiskiveiðahlutafjeagsins Víðis. Jón Ásbiörnsson. Pjetnr Halldórsson, Þórarinn Böðvarsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.