Morgunblaðið - 07.02.1932, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 07.02.1932, Blaðsíða 5
•amradaginn 7. febrúar 1932. wamt!blaí)iö í kreppunni. Hvenær vaknar íslenska þjóðin? i. Fyrir skömmu skýrði Tíminn l*'á því, að meiri hluti stjórnar Búnaðarfjelags íslands liefði á- kveðið að kalla Búnaðarþingið •aman til aukafundar í þessum mánuði. Verkefni þessa aukafund- ar skyldi vera það, að fá tillögur Búnaðarþings um, hvað gera skyldi fyrir landbúnaðinn nú í krepp- unni. Jafnframt skýrði stjórnar- kiaðið frá, að Bjarni Ásgeirsson alþm. hefði verið sendur til Dan- merkur, til þess að kynna sjer kreppuráðstafanir þær, sem Danir kafa verið að gera að undanförnu. Það vakti talsverða athygli, að •tjórnin og blað hennar skyldi nú loks fást til að viðurkenna þann sannleika, að landbúnaður vor væri einnig staddur í hættu. — Þenna •annleika hefir stjórnin ekki viljað viðurkenna til þessa. Þvert á móti kefir því verið haldið fram, að bændur mundu auðveldlega geta •studdir fleytt sjer fram yfir krepp una. Þeir væru svo vel brynjaðir *ú eftir góðærin undanfarið og kina ágætu handleiðslu ,,bænda“- •tjórna/rinnar ( !). II. Það verður vafalaust erfiðleikum kundið, að hjálpa svo landbúnað- inum nú, að honum komi verulega að gagni. Þar er margt sem steðj- »r að. V erslunarskuldir bænda eru •vðnar svo miklar, að þeir geta •kki lengur undir þeim risið. Á þessmn skuldum hvíla okurvextir, •vo að bændur geta lítið sem ekk- ert grynt á skuldum í góðu ár- ferði hvað þá á krepputímum þeim, sem uú standa yfir. Obbinn af árs- innleggi bóndans fer í greiðslu vaxta af skuldum. Ekkert verður afgangs til þess að grynna á skuld- inni. Afleiðingin verður sú, að skuldin minkar lítið eða ekkert í góðærum, en vex stórum í kreppu- árum. Utkoman hjá bóndanum ▼erður því þveröfug við nýjárs- boðskap forsætisráðherrans, þar *em hann hjelt því fram, aðskuldir yxu í góðærum, en minkuðu í harð- *erum. B.jarni Ásgeirsson þurfti ekki að rigla til Danmerkur til að fá vit- neskju um óskir íslenskra bænda, sð þyí er snertir verslunarskuldir þeirra. Kaupfjelögin og Sambandið mnleiddu þá nýjung, að setja ok- arvexti á verslunarskuldir. Nú kæmi bændum vafalaust mjög vel, að þurfa ekki að greiða vexti af þessirm skuklum á meðan kreppan stendur yfir. Spurningin er að eins »ú, h.vort kaupfjelögin og Samband iS vilja ljetta byrði bænda með þvi að strika yfir vextina. III. >ess var nýlega. getið í símfregn fi'á Danmörku, að ein kreppuráð- stöfun Dana hefði verið sú, að veita frest á greiðsiu afborgana og ▼axta af veðskuldtun, þar sem svo væri ástatt, að skuldunautar gætu ekki staðið í skilum vegna krepp- unnar, en ættu fyrir skuldum. Sams .konar ráðs’töfun kæmi sjer ▼afala,ust mjög vffl fyrir íslenska bændur .nú í kreppunni. En banka- jstjórinn, Bjarni Ásgeirsson, þurfti ekki að sigla til Danmerkur, til þess að fá fulla vitneskju um, , hvort • unt sje að veita íslenskum jbændum slíka hjálp. Bankastjórinn veit það mjög vel, að bankarnir hjer eru ekki þannig staddir nú, að þeir' geti tekið á sínar herðar þær byrðar, sem slík ráðstöfun krefet. Því að það veit væntanlega bankastjórinn, að ekki er hægt að komast hjá því, að greiða vexti og afborganir af 'lán- uiium. Spurníngin er að eins sú, hvort. aðrir en skuldarar geti þar hlaupið undir bagga. Bankarnir geta það ekki; það veít sjálfur bankastjórinn best. Þá er varla í annað hús að venda, en að leita á náðir ríkissjóðs. Alþingismaðpr- inn, Bjarni Ásgeirsson, veit einnig hvOTHÍg þar er ástatt. Þar eru engir sjóðir til. Eyðsla og óhóf valdhafanna síðustu árin hefir komið í lóg öllum góðæristekjum víðissjóðs. En ofan á tómum rík- iskassanum livílir 24 miljónir kr. skuldabaggi, og mun ríkissjóður áreiðanlega hafa nóg með að glíma við ]iá bvi'ði á komandi ármn. -—- Frá ríkissjóði getur því engrar hjálpar verið áð vænta í þessu efni. IV. Vafalaust kæmi sjer ve>l fyrir bændutt', sem og' aðra atvinnurek- endur í landinu, ef bægt væri nú i kreppunni að Ijetta ofurlítið á þeim drápsklyfjum skatta og tolla, sem hvíla á atvinnuvegunum. En er þess að vænta af núver- andi ríkissjórn, að hún stígi þetta heillaspor ? Til þess að unt sje að ljetta á sköttum, þarf vitaskuild að minka. útgjöld ríkissjóðs. En það er nú eitthvað annað uppi á teningnum hjá stjórninni. Hún hefir nýlega sent frá sjer landsreikninginn 1930, þar sem gerð eru reiknings- skil yfir meðferðina á þjóðarbú- inu það átr. Beikningurinn sýnir, að eyðslan hefir orðið um 26 milj. króna það ár, en fjárlög heimiiuðu stjórninni að greiða um 12 milj. króna. Annað eins óhóf og fjár- sukk hefir aldrei þekst hjer á landi. Ekki er minsti vafi á, að stjórnin er ekki aðeins stórvítaverð fyrir meðferðina á fje almennings á þessu þjóðhátíðarári, heldur ætti hún að sæta þungri ábyrgð fyrir atbæf'i sitt. En um slíkt rjettlæti þarf ekki að ræða, því að mútu- þegarnir á Alþingi munu þess albúnir, nú sem fyr, að veita þeim seku fulla uppreisn og fullnaðar kvittun. En þjóðin þarf ekki að gera sjer vonir um skattalækkun á meðan slíkir böðlar sitja í valda- stólnum. Hitt kæmi oss ekki á óvart, að „bjargráð“ óreiðustjórn- arinnar nú í kreppunni yrði það, að þvngja drápsklyfjarnar enn meii. íslenska þjóðin stendur senni- lega nú á þeim tímamótum, að bún hefir aðeins um tvo kosti að velja. Annar er sá, að hún lirindi úr valdastóli þeirri stjórn, sem er að stýra þjóðinni í þá fjáxhags- legu glötun, er hún fær aldrei upp ár risið, ef þessir menn halda á- fram að vera við völd. —- Hinn kosturinn er sá, að þjóðin afhendi orlendum skuldheimtumönnum reit- uv sínar og gefist upp. Hvor leiðin verðf farin er al- gerlega komið undir þjóðinni sjálfri. 5kýrsla frá vinnumiðstöð kvenna, Reykjavík. fcins og lesendur blaðsins mun reka minni til fekk Kvenrjettinda- fjelagið í haust nokkurn styrk hjá bæjarstjórn til þess að koma upp og reka ráðningastofu fyaár konur, sem vinna vildu alls konar heimilisvinnu. Stofa þessi var opn- uð 4 des. s.l. og er kölluð Vinnu- stöð kvenna. Hún er í Þingholts- stvæti 15, niðri, er opin frá 3—6 hveni virkan dag. Sími 1349. Nú um mánaðamótin hefir stöð þessi starfað um TV2 viku, þegar jólafríið er talið frá. 350 manns hafa leitað stöðvarinnar þenna tíma, auk ýmsra fyrirspurna, sem ekki hafa verið skráðar. Vinnuselj- endur og vinnukaupendur hafa ver ið nákvæmlega jafnmargir, 175 af hvorum, en 5 stúlkur tóku aftnr umsókn sína um vinnu. Af 175 vinnukaupendum hafa 139 óskað eftir að fá útvegaða vinnukonu, en 36 óskað eftir annari hjálp, en af 170 vinuubjóðenduin óskuðu 85 eftir vistum, en jafnmargar eftir annarí vinnu. AlSs hafa tekist 103 ráðningar, bafa 70 stúlkur verið ráðnar í vistir um lengri og skemri tima, en 33 til annaa starfa. f fljótu bragði virðist meira um vistir en stúlkur í Reykjavík, en þegar þess er gætt að af þessum 139 heimilum era 25 utan Reykja- víkur og 12 í útjöðrum bæjarins, (Sogamýri, Skildinganesi, Kapla- skjóli og Laugarnesveg), að 31 heimili hafi þurft stúlku vegna veikinda húsmóður eða barna, og ao allmargar af hinum vistunum losnuðu vegna veikinda vinnukonu, þá má sjá að í raun og veru hefir ekki verið mikið um lausar vistir í sjálfri Reykjavík. Stúlkur hafa verið útvegaðar á 15 heimili utan Reykjavíkur (af 25 umsóknum) og á 8 heimili í umhverfi Reykjavíkur (af 12 um- sóknum), en þangað virðist lítið ljettara að útvega stúlkur en upp í sveit. Stúlkur liafa verið útvegað- ar á nokkur sveitaheimili og hefðu fleiri slíkar ráðningar senndega tckist ef ófærð og veður hefðu ckki harnlað ferðalögum. Utveguð hefír verið hjálp á 20 veikindaheimili, enn fremur hafa niargar stúlkur verið ráðnar í vist- ir í forföllum veikrar vinnukonu. Erfiðast hefír verið að útvega stúlkur á veikindaheimili og er auðsjáanlega mikil þörf 4 því að bærinn hefði í þjónustn sinni liæfar stúlkur, sem gætu 'tekið að sjer heimili, þa,r sem þörfin er mest á hjálp. Þess skal getið að ein náms- mey við skóla í Reykjavík, utan- bæjarstúlka, sýndi þann dugnað að nota jólafrílð sitt til þess að vera hjá veikri konu ög tvær aðrar frá samá skóla tóku víst um jólin á heimilum, þar sem vinnukonan liafði orðið veik, og fengu betri jól en þær annars hefðu baft, að því er þær sjálfar sögðu. Skiftafunður. Samkvæmt ályktun skiftafundar í þrotabúi útvegs- bónda Elínmundar Ólafs í Keflavík 3. þessa mánaðar, auglýsist hjermeð framhaldsfundur í búinu, er haldinn verður næstkomandi miðvikudag 10. þessa mánaðar kl. 1 y2 e. h. í bæjarþingssal Hafnarfjarðar, til þess að taka afstöðu til framkomins kauptilboðs Útvegsbanka íslands h.f., í Keflavíkureignina. Skrifstofu Gullbringu- og Kjósarsýslu 6. febrúar 1932. ■agBtk J BSSOB. Stúdentafjelag' Reykjavíkur boðar hjer með til al- menns fundar í Varðarhúsinu, þriðjudaginn 9. febr. kl. 8V2 síðdegis. 1. P. C. Tillisch yfirrjettarmflm. flytur erindi um störf andbanningaf jelaga á Norðurlöndum. 2. Kosin nefnd til undirbúnings stofnunar andbanninga- fjelags í Reykjavík. Að loknum fyrirlestrinum verða frjálsar umræður um málið. — Skorað á andbanninga að fjölmenna! Stjóra Stúflentafjelags BeykjaTikar. Frá útsðlunnni hjð It. Einarsson 8 Biörnsson: Matardiska, margar tegundir, grunna, 50 aura. — Desertdiska margar tegundir 40 aura. Bollapör 60 tegundir frá 40 aurum. — Kaffistell 6 manna, 15 tegundir með diskum 15 kr. Kaffistell 12 manna 20 tegundir með diskum frá 20 kr. Kaffistell 12 manna af Rosenthals heimsfræga postulíni, á aðeins 44 kr. Sjóifblekungar með ekta 14 karat gullpenna 7.60. Avaxtaskálar frá 1,25. Mjólkul'könnur f'rá 80 aurum. Smjörkúpur 1.20. Kertastjakár 60 aura. l'askaföt t'rá 1.00. G-óð handsápa 35 aura. Fægilögur 40 aura. Matskeiðar og gafflar alumenium 25 aura. Teskeiðar aluminiiun 12 au. Vvaxtasett 6 manna 5 kr. Ávaxtadiskar frá 28 aurum. Rjómakönnur 50 aura. Vínglös 50 aura. Emaille mjólkurt'ötur 2 kr. Myndarammar 60 aura. Stórar dósir bóni-vax 1.50. Hnífapör frá 50 aurum. Alpaeca 60. aura, 2 turna, 1.20. Alpacca 30 aura, 2 turna 40 au. 3 turna 3.00. Handa börnum, stóra gúmmíbölta 65 aura. — Munnhörpur frá 45 aurnm. — Matar- kaffi- Þvottastell 65 aura. — Myndabækur, vasaúr, flautur, fuglar og ýmiskonar dýr 25 au. Töskur 1.50. Bílar með ljósum 4.50. Járnbrautir með teinum 4.50, stórar brúður sem geta sofið 1,80, og alls konar barnaleikföng, — alt með miklum afslætti hjá okkur, á meðan útsalan stendur, sem verður í 2 vikur enn þá. — K. EinarssoB & Bjðrnsson Bankastræti 11 — Reykjavík. jScmtsk fatalttdttíttii 0$ Uftttt 34 1300 Fttllkomnar vjelar. Nýjustu og bestu efni. Þaulvant starfsfólk. — 10 ára reynsla. Huglvsið í Morgunblaðlnu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.