Morgunblaðið - 24.03.1932, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ
i'* •••••••••••••••••••••••••
i
* Útgeí.: H.f. Arvakur, R«ykJ»Tlk. •
* Hltatjörar: Jön KJartanaaon. a
Valtýr Stefánaaon. •
* Wltatjörn og afirrelöala:
Auaturatreetl S. — Slaal (00. a
í AuKlýalnaaatJörl: n. Hafberk.
auKlýalnkaakrlfatofa' •
t Auaturatrgetl 17. — 81aa* 700. •
ttelaaaalBiar: «
3 Jón KJartanaaon nr. 741. •
Valtýr Stefánaaon nr. 1110. •
E. Hafber* nr. 770 J
| Aakriftagrjald: •
:« Innanlanda kr. 1.00 á aaánnQi. *
Utanlanda kr. 1.50 4 naAnuBL •
* 1 lauaaaölu 10 anra atntaklB. *
ta 10 anra maB Ueabök. •
S •
**•••••••••••••••••••••••••
Síjórnarskrárnefnö
Efri öeilöar klafin.
Afturhaldið hafði hvað
eftir annað fengið frest
til þess að koma með til-
lögur í kjördæmamálinu.
Frestinn notaði það að
eins til þess að tefja
málið.
Stjórnarskrárnefnd efri deild-
.ar hefir setið á rökstólum síð-
an snemma á þingi. Nefndina
skipa tveir Sjálfstæðismenn,
tveir úr liði Afturhaldsins og
einn sósíalisti.
Fulltrúar Afturhaldsins Ijetu
•á sjer skilja, að þeir myndu
bera fram í nefndinni tillögur
í kjördæmamálinu. Báðu þeir
«m frest til þessa. Þeir fengu
viku-frest til að koma saman'
tillögunum. Að þeim tíma lokn-
um báðu þeir um framhalds-
frest, og fengu hann. Hjeldu
þeir þessum leik áfram lengi
— fengu frestinn hvað eftir
annað framlengdan.
Loks var svo ákveðið, að til-
lögur skyldu fram komnar á
fundi, sem haldinn var síðdeg-
is í gær. Fór enn sem fyr, að
fulltrúar Afturhaldsins höfðu
engar ákveðnar tillögur fram
að bera. Var þá sjeð, að hjer
var enn verið að leika gamla
leikinn: að tefja fyrir fram-
gangi rjettlætismálanna. Var þá
.gengið til atkvæða um stjórnar-
skrárfrumvarpið, eins og það lá
fyrir og klofnaði þá nefndin.
Afturhaldið fekkst ekki til að
vera með frumvarpinu — það
sat hjá.
Kemur nú stjórnarskráin á
-dagskrá í Ed. fyrstu dagana
■eftir páska. Hefst þá væntan-
lega úrslitaorusta um málið inn-
^n þings að þessu sinni.
Togari stranöar
í Grmdavík.
Enski togarinn „Dairycoates“
strandaði í fyrri nótt í þoku á
Þorkötlunesi í Grindavík. — Guð-
mundur Benónýsson á Þorköt.lu-
■stöðum varð var við strandið þeg-
•ar hann ætlaði að róa, og bjargaði
Tnönnunum.
„Ægir“ var sendur í gær til
þess að reyna að hjarga skipinu
■Og mun hann hafa komið á strand-
staðinn um nón í gær. Enn fremur
Fom enska eftirlitsskipið ,Godetia‘
á vettvang.
Það tókst fljótlega að ná skip-
inu af grunni. Lagði „Godetia“
svo á stað með það í eftirdragi og
munu þau hafa komið hingað í nótt.
------—
Fellibylur
veldur stórtjóni í U. S. A.
Newyork 22. mars.
United Press. FB
Fellibylur hefir farið yfir nokk-
urn liluta Alabamaríkis og gert
mikinn usla í bæjunum Columbia,
Marion, Faunsdale, Clanton og
Northport. 106 menn biðn bana, en
250 meiddust.
Þeir sem biðu bana, voru flestir
frá Northport. Er unnið að skóg-
arhöggi þar skamt frá og voru
timburlilaðar uniklir í nánd við
borgina. Fauk timbrið sem fis væri
inn í bæinn og varð að manntjón
og eigna. 133 manns meiddust þar.
Eldur kviknaði í borginni um sama
leyti, en slökkvitækjum var hrað-
að frá Birmingham og fleiri bæj-
um og tókst að slökkva eldinn. —
Verið er að flytja hina meiddu
á brott í sjúkrabifreiðum. Flug-
menn, sem flogið hafa yfir svæðið
segja, að á svæði sem nær yfir
16 götur sje alt í rústum. Sam-
bandslaust er við ýmsa bæi á
svæðinu, sem hvirfilvindurinn fór
vfir, og óttast menn, að langt um
fleiri hafi farist en rnenn nú vita
til, bæði í Northport og víðar.
Svæði það, sem hvirfilbýlurinn fór
yfir þar syðra er 500 mílur enskar
á lengd.
Síðar: Giskað er á, að 186 manns
liafi farist af völdum hvirfilbylsins,
en 700 meiðst. Tala þeirra, sem
farist hafa og meiðst, hækkar með
bverri stundu.
Tuscaloosa, Alab. 23. mars.
United Press. FB
Manntjón af völdum hvirfilbyls-
ins virðist. ætla að verða meira en
menn hafa ætlað. 243 hafa beðið
bana, en 726 meiðst. Þessar tölur
hækka vafalaust enn. Fólk er hús-
næðislaust í þúsundatali.
Aðalbjörgunarstarfsemin fer fram
j Clanton. Bíður þar fjöldi manna
fregna um ástvini, sem þeir óttast
að hafi farist.
Birmingham, Alabama, 23. mars.
United Press. FB.
Opinberlega tilkynt, að 275
rianns hafi beðið bana af völdum
hvirfilbylsins, en á annað
þúsund meiðst. Af þeim sem fórust
áttu 220 heima í Alabamaríki.
Irska fríríkið
vill ainema hollustueiðinn.
• Dublin, 22. mars.
United Press. FB.
Opinberlega tilkynt, að fríríkis-
stjórnin hafi tilkynt stjórninni í
jBretlandi, að hún muni þegar beita
^jer fyrir afnámi hollustueiðsins.
London, 23. mars.
United Press. FB.
Thomas nýlendumálaráðherra
hefir tilkynt neðri málstofunni, að
ríkisstjórnin undirbúi orðsendingu
til frírIkisstj órnarinnar írsku út
■f þeim ákvæðum hennar, að beita
sjer fyrir afnámi hollústueiðsins.
Kvað Tbomas að stjórnin mundi
marka afstöðu sína til þess máls
svo skýrt í orðsendingu sinni, að
+vka muni af allan vafa í þeim
efnum.
K. F. U. M. A.—D. fundur í
kvöld (skírdag) kl. 8V2. Allir karl-
menn velkomnir.
Goethe-hátfð Háskólans
fór fram í Gamla Bíó í fyrra
kvöld, og var húsið fult af á-
heyrendum.
Fyrst ljek 14 manna hljóm-
sveit, en því næst bauð próf.
Ágúst H. Bjarnason gesti vel-
komna fyrir hönd rektors, sem
var forfallaður, og flutti því
næst erindi um skáldskap Goe-
thes , eða öllu heldur hinn rauða
þráð, sem gengur í gegn um
allan skáldskap hans, og náði
hámatki sínu í „Faust“.
Þá söng ungfrú Guðrún Páls-
dóttir einsöng, þrjú kvæði eftir
Goethe, og hlaut mikið lófaklapp
að launum, og eins ungfrú Sig-
rún Ögmundsdóttir, sem las upp
tvö kvæði. Dr. Alexander Jó-
hannesson flutti erindi um áhrif
Goethes á íslenskar bókmentir
og hvað vjer eigum af þýddum
kvæðum eftir hann. Dr. Max
Keil las upp eintal Fausts, og
að lokum söng Karlakór stu-
denta „Álfakonginn'* og „Kvöld-
vísu vegfaranda".
Hátíðin fór hið besta fram, og
var samboðin minningu skálds-
ins og Háskólanum til sóma.
SfBlng á skrifsiofuviBlum
Verslunarskólinn hefir í vetur1
starfrækt dáJlitla sjerstaka æfinga-
stofu, þar sem kenna á ýmisleg
skrifstofustörf og notkun og hirð-
ingu skrifstofuáhalda. Enn sem
lcomið er, er það aðallega vjelritun
og fjölritun, sem þarna fer fram
og fá nemendur tveggja efri bekkj
anna þar nú daglegar vjelritun-
aræfingar. I gær hafði Verslunar-
skólinn þarna sýningu á helstu
skrifstofuvjelum, sem notaðar eru
og var veitt tilsögn í notkun þeirra
og meðferð. Sýningin var fyrst
og fremst ætluð nemendum efsta
bekkjar, en aðrir nemendur höfðu
einnig aðgang að henni og var
húsfylllir allan daginn. Þetta mun
vera í fyrsta skifti, sem slík alls-
herjarsýning á skrifstofuvjelum er
haldin hjer og nokkrir verslunar-
menn hafa farið fram á það, að
fieirum en Verslunarskólanemend-
[um einum verði veittur aðgangur að
sýningunni á frídegi. Skólinn hefir
því ákveðið að hafa hana opna
fyrir almenning í dag kl. 2—4 e. h.
ef einhverjir verslunarmenn vildu
kynna sjer hana. Þar er gott tæki-
færi til þess að kynnast vjelar-
vinnu á nýt.ísku skrifstofum. A
sýningunni eru 40—50 vjelar af
ýmsum gerðum og sumar þeirra
eru enn þá mjög sjaldgæfar á skrif
stofum hjerlendis. Þar eru, auk
ýmissa ritvjelategunda, m. a. raf-
magnsritvjelar, fjölritarar, hefti-
vjelar 0. fk, einnig nýtísku bók-
haldsvjelar, frímerkjavjel, reikni-
vjelar, utanáskriftavjel, tjekkvjel,
fjárhirsluvjel o. s. frv. Þeir, sem
hafa í hyggju að kaupa slíkar
vjelar, geta þarna kynst ýmsum
gerðum þeirra, auk þess sem í því
er nokkur almennur fróðleikur
fólginn að sjá slíkar vjelar saman
komnar á einum stað.
Strætisvagnarnir verða ekki á
ferðinni á föstudaginn langa og
páskadaginn fyr en eftir kl. 1, en
eftir það eru reglubundnar ferðir
tiT lcvölds báða dagana.
________________ _ %
Fnndarboð.
Mánudaginn 28. þ. m. kl. 4 e. h. verður haldinn aðal-
fundur í h.f. „Land“ í Kaupþingssalnum.
STJÓRNIN.
AðalfunÖur
Iðnaðarmannafjelagsins verður haldiinn föstud. 1. apríl n.
k. í Baðstofunni kl. 8V2.
STJÖRNIN.
Friðarsamningar
Japana og Kínverja.
Shanghai, 21. mars.
United Press. FB.
Bráðabirgasamkomulag hefir
náðst milli Japana og Kínverja.
Hafa fúlltrúar þeirra komið sjer
saman um að fela nefnd sem báð-
ir aðilar eiga sæti í, að ræða frið-
arskilmálana í einstökum atriðum.
Nefnd þessi lieldur fyrsta fund
sinn kl. 10 á miðvikudag.
Shanghai, 23. mars.
Friðarskilmálafundinum, sem átti
að hakla ld. 10 í gærmorgun var
frestað, þegar Kínverjar tilkyntu
að hershöfðingi 19. hersins væri
farinn til Nanking og neitaði að
t.aka þátt í fundinum þar sem full-
tiúi Japana væri yfirforingi, sem
hefði herforingjatitil.
Shangliai, 23. mars.
United Press. FB.
Tilkynt, að friðarskilmálafund-
Urinn hefjist kíl. 10 f. h. á skírdag.
Tuiehi hershöfðingi kemur fram á
fundinum fyrir hönd Kína.
Veðurútllit í Rvík í dag: SA-
kaldi. Dálítil rigning.
Páskamessur í fríkirkjunni í
Reykjavík: Á skírdag kl. 2, altaris
ganga. Á föstudaginn langa kl. 5.
Á páskadagsmorgun kl. 8. Á páska
daginn ld. 2. Á annan páskadag kl.
5. Síra Árni Sigurðsson prjedikar
plla dagana.
Rúmsjármjaidasýning Sigurðar
ÍTómassonar verður opin á skírdag
og ann\an páskadag kl. 2—10. Sjá
nánar í auglýsingu í blaðinu í dag.
Mannalát vestra. Látinn er í
(Norður-Dakota bændaöldungurinn
Jósef Einarsson frá Víðislæk í
Skriðdal í Suður-Múlasýslu, Jósef
iiafði búið í Dakota í nær 50 ár,
yar búhöldur góður og sæmdar-
luaður. Látinn er að Blaine Jón
Jónsson Freeman. Hann var fædd-
ur 28. maí 1843 að Miðgerði í
Miklagarðssókn í Eyjafjarðarsýslu.
lann var bróðir Karolínu, ltonu
dr. Jóns Þorkelssonar skjalavarð-
hr. — Látin er Margrjet Guðmunds
idóttir, ekkja Jóns Sigurðssonar frá
Kumblavík á Langanesi. Hún var
fædd að Flögu í Þistilfirði 1852.
(Bjó faðir hennar þar þá, en síðan
að SyðrarLóni og í Sköruvík á
Langanesi.
Tsai Ting-Kai,
yfirforingi 19. hers Kínverja. —
Honum eiga Kínverjar að þakka
það, að ekki varð meira úr innrás
Japana hjá Shanghai.
Dagbók.
______ •
Gamla Bíó. Goethe-mynd sú,
þem Gamla Bíó sýndi í fyrsta skifti
á þriðjudaginn var, hefir vakið
fnikla eftirtekt meðal bæjarbúa,
pnda er það alt af kvikmyndum
il gildis ef þær greina frá sann-
ögulegu efni — þegar saman fer
þá um leið góður og skemtilegur
Jeikur. Myndin skýrir frá þætti í
æfisögu skáldjöfursins, frá æsku-
járum lians og æskuást. Leikur Hans
Stúvve sjálfan Goethe, en Elge
{Priuk leikur Friedrikke ástmey
þans.
1 Voraldarsamkoma verður haldin
! Goodtemplarahúsinu, uppi, í
kvö'ld ld. 8V2. — Allir velkomnir.
Pjetur Sigurðsson talar.
I Hjúskapur. Gefin verða saman
í dag Jónína Sigurðardóttir og
Ásgeir Guðbjartsson í Viðey.
„Heim að Hólum“. Skólastjóri
bændaskó'lans á Hólum hefir, með
,augl. á öðrum stað hjer í blaðinu,
,bcðað „Hólamenn“ á fund í Bún-
aðarfjelagshúsinu kl. 2 á morgun.
Verkefni fundarins er að ræða um
50 ára afmæli skóllans á Hólum.
Afmælið verður haldið í sumar. —
| ,Heim að Hólum“, segja Skag-
firðingar enn í dag, eins og sagt
[var á dögum Jóns Ögmundssonar
bg alla þá tíð, er Líkaböng kallaði
Veðrið (miðvikudagskv. kl. 5) : toenn þangað. Þá menn, sem verið
Veðnr er enn mjög lcyrt um alt kafa á Hólum, dregur þangað röm
land, nema í Vestmannaeyjum er aug. Mun það sjást í sumar, þegar
stinningsgola á SA. Á N- og A- Hólaskóli hinn yngri heldur 50 ára
landi er víðast bjart veður, en \afmæli sitt. Hjer í Reykjavík eru
þykt loft austan lands og þoku- margir Hólamenn. Allir munu þeir
veður. Fyrir sunnan land er grunn kjósa sig á Hólum í sumar. En
lægð, sem hreyfist hægt NA-eftir. hvort sem ástæður leyfa, eða ekki,
Lítur út fyrir góðviðri áfram hjer í.ð þeir sæki „heim að Hólum“, á
á landi. Hiti er frá 2—6 st., mest- mæsta sumri, ættu þeir að mæta á
úr sunnan lands.
fundinum á morgun.