Morgunblaðið - 05.04.1932, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 05.04.1932, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ fuJltrúar þjóðarinnar. Hið síðara að Alþingi, livað atkvæðamagn snertir. skuli vera lilutfallslega rjett, myncl af þeim skoðunum ogf stefnum, sem uppi eru meðal þjóð- arinnar og skifta henni í lands- málaflokka. Þetta er sama sem að segja að kosningarrjetturinn skuli vera jafn fyrir kjósendur, hvaða landsmálaskoðun sem þeir aðhyll- ast. .Teg vil nú athuga ákvæði þess- arar greinar nokkru nánar í sam- bandi við hvert þeirra fjögra mála, sem jeg áður hefi minst á, sem er tala alþingismanna, kjördæmaskift ingin, kosningaraðferðin og jafn- rjetti kjósendanna. 1. Tala alþingismanna. Hjer á landi hefir hún aldrei verið bundin af stjórnarskrárákvæði, eins og um var getið. Reynslan hefir sýnt, að öðru hvoru hefir þótt brýn þörf á að fjölga alþingismönnum. til þess að fuQlnægja kröfum vaxandi fjöl- niennis á ýmsum stöðum landsins um þátttöku í skipun Alþingis, án þess að rýra um leið þátttöku ann- ara. Með tilvísun til þessarar reynslu teljurn við varliugavert að fara nú inn á þá braut. að fast- skorða tölu þingmanna með stjórn- a.rskrárákvæði. Hjer við bætist, að á' síðari tímum hafa komið upp kosningaraðferðir, sem gera það ýmist sjerstaklega óhentugt eða rdveg ókleift. að hafa tölu þjóðar- fulltrúanna alveg fastákveðna með lagaboði eða stjórnarskrárákvæði. Má þar til nefna hlutfa'llskosningar í sambandi við einmenningskjör- dæmi. ]>ar sem mjög er æskilegt að tala uppbótarsætanna geti verið eitthvað hreifanleg, eftir því hve mikið misræmi milli flokka kemur fram við kjördæmakosninguna. — Enn fremur hina þýsku kosninga- tilhögun, sem felur ]>að í sjer, að hver þingflokkur fær eitt þingsæti fýrir tiltekinn atkvæðaf jölda (í þýska ríkinu fyrir hver 60 þús. atkv.), sem flokknum áskotnast við kosningar. Þar ákveðst tala þing- inanna að lokum af kjörfundar- sókn. Hugsum oss t. d.. að hjer yiði ákveðið að hver þingflokkur fengi eitt þingsæti fyrir hver 1000 greidd atkvæði. Þá væri taía þing- manna ekki fyrirfram ákveðin, en gæti þó ekki vaxið úr hófi. og færi eitthvað vaxandi með fó'lks- fjölguninni í landinu. Við teljum því sjerstaklega ókleift að fast- ákveða tölu þingmanna meðan ekki er fengið samkomulag um endan- lega tHhögun á kjördæmaskiftingu og kosningaaðferð. En af hálfu okkar Sjálfstæðismanna í nefnd- inni get jeg lýst yfir því, að ef samkomulag næst um kjördæma- skiftingu og kosningaraðferð, og í sambandi þar við þykir æskilegt að setja takmörk fyrir fjölda þingmanna, þá erum við reiðubún- ir til samkomulags þar um, hvort sem væri með því að setja há- marksákvæði fyrir tölu þingmanna, eða með því að binda töln þing- manna við t.ölu greiddra atkvæða við kosningar. Og sjerstaklega vil jeg taka það fram, að ef samkomu- lag fengist um þá kosningatilhög- ur> í aðalatriðum, sem við höfum stungið upp á í milliþinganefnd- inni, þá erum við reiðubúnir til þess að samþvkkja takmörk fyrir tölu þingmanna, þannig að þeir t. d. geti ekki farið fram íir 50, eins og Landsfundur Sjálfstæðismanna í febr. þ. á. samþykkti, og vikið er að í nefndaráliti okkar, þskj. 37, bls. 32, sem sent hefir verið ] mörgum kjósendum víðs vegar um land. En samkvæmt þeim tillögum og með sæmilegá skynsamlegum á- kvæðum í kosninga'lögum mundi tala þingmanna venjulega verða milli 42 og 45. 2. Kjördæmaskiftingin. Prv. fylg ir þeirri reglu, sem hingað til hefir verið ríkjandi hjer og í nálega öll- um öðrum löndum, að taka engin ákvæði um kjördæmaskiftinguna, þ e. stærð og takmörk kjördæm- anna, upp í stjórnarskrána. Með tillögum okkar Sjálfstæðismanna í milliþinganefndinni höfum við sýnt fram á það, að vel er unt að full- nægja rjettlætiskröfunni í þessari frumvarpsgrein þótt núverandi kjördæmaskiftingu sje haldið ó- breyttri. Auðvitað er Hka unt að fullnægja henni með svo að segja hverri annari kjördæmaskipun, sem menn vildu hugsa sjer. Jeg læt mjer því nægja að sinni að slá því föstu, að greinin, eins og hún hjer er orðuð, lætur löggjafarvaldinu fullkomlega óbundnar hendur um kjördæmaskipunina. Einnig lætur hún alt óbundið um fulltrúatölu hinna einstöku kjördæma. — Frá sjónarmiði ])eirra, sem hafa ein- hverjar sjerstakar óskir um kjör- aæmaskiftingu og fulltrúaf jölda hinna einstöku kjördæma er því ekki unt að hafa neitt á móti á- kvæðum þessarar greinar. 3. Kosningaaðferðin. Einnig um hana lætur frv. alt óbundið, og fylgir ])ar fordæmi þeirra 5 Norð- urálfuríkja, sem ekki hafa fyrir- skipað hlutfallskosningar í stjórn- arskrám sínum. En krafan um flokkslegt jafnrjetti kjósenda ger- ir þó vissar kröfur um tilhögun kosninganna, þannig, að annað hvort verður að viðhafa hlutfalls- kosningar beinlínis, eða þá að hafa uppbótarsæti ti'l jöfnunar á því misræmi, sem kann að koma fram við kosningar í mörgum kjördæm- um með einum eða fáum fulltrú- iim kosnum í hverju. Þótt kosningaraðferðin sje látin óbundin í þessu frv., og enginn gfti haft á móti þessari 1. gr. fyrir það, að hann aðhyllist frem- ur .eina kosningaraðferð en aðra, þykir mjer rjett að benda hjer á hvað menn virðast vera sammála urn í þessu efni. Ollum kemur sam- <vn um að ‘hafa hlutfallskosningu í ,kjördæmi eins og Reykjavík, sem við Sjálfstæðismenn höfum stungið upp á að kysi 4 kjördæmiskosna þingmenn, eins og nú er, en Fram- sóknarmennirnir í brtt. sínum vilja fjölga upp í 8. Enn fremur er það sjálfgefið, að í einmenningskjör- dæmum verður eiginlegri hlutfaQls- kosningu ekki komið við. Aftur virðist ekki vera fult samkomulag um kosningaraðferð í tvímennings- kjördæmum, ef þeim. yrði haldið að einhverju leyti, enda hefir það atriði sama sem ekki komið til umræðu hingað til. En það er þó auðsjeð, ef menn viðurkenna rjett- læti hlutfallskosningar, þegar kjósa á þrjá fulltrúa samtímis eins og nú er við landkjör, eða 4 sam- tímis, eins og nú er í Reykjavík, þá er jafnsjálfsagt að beita hlut- fa’ilskosningu þegar kjósa á tvo menn samtímis í sama kjördæmi. í þinglögum Svía, sem annars hafa engin tvímenningskjördæmi, er svo fyrir mælt. að hlutfallskosningum sludi beita ]>á er kjósa skal tvo eða fleiri fulltrúa samtímis. A- kvæðið er orðað þannig, af því að þetta er hugsunarrjett, þó að þar komi aldrei fvrir kosning á tveim þingmönnum samtímis. Inn- an Alþingis eru sömU reglur lög- leiddar og þj'kja sjálfsagðar, t. d. yið kosningu skrifara (tveggja sam timis) í þingdeildum og samein- uðu þingi. ()g þetta sama mun þykja sjá'lfsagt alls staðar, þar sem lilutfallskosningar annars eru notaðar. Og úr því að menn eru hjer á landi sammála um að nota þær við kosningu þriggja eða fleiri þingmanna, þá er alveg sjálfsagt að taka þær upp einnig við tveggja manna kosningar. 4. Jafnrjetti kjósendanna. Það er orðin viðurkend grundvallar- regla og undirstaða þjóðskipulags- ins í lýðfrjálsum ríkjum nú á tímum, að kosningarrjettur borg- aranna á að vera jafn. Einstöku leyfar af mismunandi atkvæða- rjetti fyrri akla eru enn eftir hjá íhaldssömustu þjóð á'lfunnar, Eng- lendingum, þar sein atvinnurekend ur og háskólaborgarar geta undir vissum skilyrðum neltt atkvæðis- rjettar í tveim kjördæmum við sömu kosningar. Jafnrjettiskröfunni hafa menn reynt að fullnægja með tveim mis- munandi aðferðum. Onnur, sem ■kalla mætti hið staðarlega jafn- rjetti, er í því fólgin, að láta jafn- marga íbúa eða jafnmarga kjós- endur vera um hvern þingmann hvar sem er í landinu. Þessari að- ferð er t. d. beitt í þeim tveim lönd um, Englandi og Frakklandi, sem enn þá búa við kosningu í ein- menningskjiirdæmum, og er gert þar með því að breyta öðru hvoru takmörkum kjördæmanna, svo að þau verði sem jöfnust að mann- fjölda. Það má heita að þessi leið sje óframkvæman’leg hjer, ef menn vilja halda kjördæmaskiftingu á svipuðum grundvelli og nú er. — Skiftingin í sýslur og kaupstaði ræður kjördæmaskiftingunni, og menn mundu alls ekki vilja fara að slíta hluta úr hinum fjölmenn- ari sýslufjelögum og leggja við hin fámennari til þess að jafna kjördæmin. Jeg skil ekki að nokk- ur maður treysti sjer til að leysa þá þraut, að skifta 'landinu í 36 eða 42 nokkurn veginn jafnfjöl- menn einmenningskjördæmi, svo viðunandi þætti. Hin aðferðin, sem kalla mætti hið flokkslega jafn- rjetti er víðast hvar notuð, og er í því fólgin, að tryggja 'hverjum fiokki eftir því sem unt, er þing- sæti að rjettri tiltölu við fylgi hans meðal kjósenda landsins í heild. Þessi leiðin er valin í frum- varpinu. Breyt i n garti 11 ögur minni hlutans ganga fram hjá báðnm þessum aðferðum. T orði munu nú allir Islending- ar vilja viðurkenna að kosningar- rjetturinn eigi að vera jafn. En þegar til framkvæmdarinnar kem- ur verður þess æði mikið vart úti um land. að mönnum finst að fjölmennið í Reykjavík þurfi ekki að njóta fulls jafnrjettis um þing- sætatölu við aðra landsmenn. sem búa dreifðar. Út af þessu vil jeg sjerstaklega leiða athygli að því, að krafan um flokkslegt jafnrjetti, som borin er fram í þessu frv. felur ekki í sjer beina kröfu um það, að jafnmargir íbúar komi á hvern þingmann hvar sem er á landinu. Þar er því ekki sjerstak- lega borin fram nein krafa um ful'Ia hlutfallslega þingmannatölu fyrir höfuðstaðinn eftir fólks- fjölda. En samt sem áður þykir * p> c •c e 3 «9 í> ENSKA VIKAN: ÍSLENSKA VIKAN: Dilkakjöt spoðsaltað; einnig stórhöggiÖ. Saltkjöt af fullorðnu fje úr Borgarfirði. Dilkakjöt niðursoÖið í 1/1 og 1/2 dósum. Kartöflur, Fiskimjöl, Riklingur, Sundmagi, Smjör, Tólg, Egg, Síld. Kanpið það sem Llenskt er. Trlesmfðavlnnustifa Hiðlnars Þarsteinssoaar 28 Sfmi 1956. Húsgögn: Svefnherbergi. — Dagstofur. Borðstofur. — Skrifstofur. Innrjettingar: Búðir. — Skrifstofur. Veitingahús. — Eldhús. Siergrein: Stigahandrið og stigastólpar. Teak- og Oregortpine hurðir. Vinnusteían: Úrvals kunnáttumenn. 100% íslensk vinna. Fyrirmyndar húsakynni eru trygging fyrir því, að smíðisgripir verði vandaðir. Sjerverslun meö haröviö: Mahogni — Hnotviður. Tcak — Birki. Beyki — Eik. , Oregonpine — Oregonpine krossviður Spónn: Mahogni, Hnota, Rósviður, Birki, Eik, Zelera, íslenska vikan: Nokkurir smíðisgripir vinnustofunnar eru til sýnis í búðargluggum Skóversl. Lárus G. Lúðvígsson og Braunsverslunar. íslensk bollapör. Yfir ísl. vikuna ættu allir að drekka kaffi úr ísl. boll- um. Bollapör með 100 mismunandi ísl. áletrunum. Ýmis- konar óskir, karla- og kvennanöfn. — Kaupið yður bolla- par með nafninu yðar. K. Einarsson & Bjðrnsson. Bankastræti 11. PappfrsUokklr smáar og stórar, margar tegundir, við verði frá 0.25—3.00, — fást í Bðkaverslun Sigfúsar Eymundssonar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.