Morgunblaðið - 15.01.1933, Side 3

Morgunblaðið - 15.01.1933, Side 3
m < > K G t; N H 3 r E.kk\ er öll uitleysan eins. Hátekjuskattu’-inn og hálaunamenn rikisins * JpftorgunMaMft Útgef.: H.f. Árvakur, Reykjavfk. Rltstjörar: Jön KJartanaaon. Valtýr Stefánsaon. Rltatjörn og afgrelRsla: Austuratræti 8. — Slml 1800. Augrlýslngastjörl: E. Hafberc. Auglýslngaskrlfstofa: Austurstrætl 17. — Slml 3700 Helmasfmar: Jön Kjartansson nr. 3742. Valtýr Stefánsson nr. 4220. K. Hafberg nr. 3770. ÁskrlftagJald: Innanlands kr. 2.00 á. mánuOt. Utanlands kr. 2.50 & mánuBl. t lausasölu 10 aura elntaklfl. 20 aura með Lesbök. Spyrðubanöið, Borgarstjórakosning fór nýlega fram í bæjarstjórn Reyk.javíknr. Það er látið heita svo, sem þrír stjórnmálaflokkar eigi fulltúa í 'bæjarstjórn: Sjálfstæðisflokkurinn með 8 fulltrúa, Alþýðuflokkurinn -eða sósíalistar með 5 fulltrúa og ,,Framsókn“ með 2 fulltrúa. En reynslan befir sýnt, að flokkarnir í bæjarstjórninni eru í raun og veru aðeins tveir: Sjálfstæðisflokk urinn og sósíalistar. Við síðustu bæjarstjórnarkosn- ‘ingar kom „Framsóknarflokkur- inn“ tveim fulltrúum að í bæjar- -stjórn. Hafa þar setið að jafnaði taf flokksins hálfu þau Hermann -Tónasson lögreglustjóri, sem nú «er orðinn frægur fyrir „dómara“- •störf sín og frú Aðalbjörg Sig- urðardóttir. Bæði tilheyra þau -Tónasar- eða sósíalistadeild „Fram sóknar“, enda hafa þau í öllum stefnumálum í bæjarstjórn dyggi- lega fylgt sósíalistum að málúm. „Framsóknar“-hjúin í bæjar- stjórn geta ekki afsakað sína fram l;omu með því að segja. að þau hafi ekki haft annað úrræði en að kjósa með öðrum hvorum hinna flokkanna, því að enginn „Fram- •sóknar“-maður hafi verið í boði. Allir flokkarnir þrír áttu fulltrúa við borgarstjórakosninguna. Þar var m. a. í boði Magnús -Tónsson lagaprófessor, fyrv. fjármálaráð- herra „Framsóknar“. En hjúin hans Jónasar frá Hriflu í bæ.jar- stjórn, Hermann og frú Aðalbjörg, litu ekki við þessum fyrverandi ráðherra flokksins, heldur kusu frambjóðanda siósfalista, Sigurð - Jónasson. Tíminn gefur þá einu skýringu ■á þessu- fvrirbrigði, að Sig. J. sje „alviðurkendur liæfileiba- og dugn aðarmaður“ Qg að hann hafi allra manna mest lagt sig fram til þess að koma Sogsvirkjuninni í fram- kvæmd. Um dugnað og liæfileika Sig. -J. skal eigi fjölyrt hjer. Hann er vafalaust góður fyrir sig, eins og fleiri fjáraflamenn í liði sósíalista. En hitt gegnir furðu, að Tíminn sltuli nú telja ]iað kost á manni, að hann er fylgjandi virkjun Sogsins. Áður hjet þetta svindil- ‘brask á Tímamáli, og það er ein- göngu „Framsókn“ að kenna, að þessi virkjun hefir ekki enn kom- ist í framkvæmd. Jón Þorláksson hefir allrá manna mest barist fyrir Sogsvirkj- uninni. Hann hefir með þeirri virkjun viljað leggja grundvöllinn að raflýsingu svéitanna. Hins veg- •ar mun Sigurður Jónasson, í sam- bandi við þetta mál, aðallega hafa 'haft fjáraflaplön sjálfs sín í huga. í sumar er leið birti þetta blað skýrslu yfir launagreiðslur við noklcrar stofnanir ríkisins, sem .Framsóknar' -stjórnin sællar minn ingar setti á laggirnar. Þessi skýrsla vakti feikna at- hygli um land alt. Hún opnaði tjaldið, og sýndi mönnum, hvernig óreiðustjórn Hriflunga hafði ráð- stafað fje ríkissjóðs á hátekjuár- unum. Þjóðin hafði ekki minstn hugmynd um hvað þarna hafði gerst, vegna þess, að reikningum þessara ríkisstofnana var haldið leyndum fyrir almenningi. 0 En þegar skýrslan kom fyrir almennings sjónir, kom í ljós, að ríkissjóði hafði þarna bættst ár- legur launabaggi, sem nam a. m. k. 350.000 kr. — Þarna var sæg- ur starfsmanna og laun þeirra í engu samræmi við laun annará starfsmanna ríkisins, er laun taka' samkvæmt launalögunum. Þarna voru margir „forstjórar“ og flest- ir með ráðherralaun og þar yfir. Þarna voru ótal skrifstofumenn með hærri laun en prófessorar við Háskólann o. sí frv. Þjóðin átti í fyrstu erfitt með að trúa því, að skýrslan um launa- greiðslurnar við ríkisstofnanirnar væri rjett. Hún vildi ekki trúa því, að nokkur ríkisstjórn leyfði sjer að fara með fje ríkissjóðs á þann liátt, sem skýrslan bar vitni um. Einkum og sjer í lagi voru það stuðningsmenn „Framsókn- ar“, sem vildu bera brigður á að skýrslan væri rjett, þar sem hún fór svo mjög í bág við áður gefin lofoi-ð þeirra manna, sem sátu í stjórn á þessum tíma. En nú er enginn sá maður til á landinu, sém ekki veit að launa- skýrslan var rjett og sannleikan- um samkvæm í öllum greinum. Forstjórar ríkisstofhananna liafa ekki treyst sjer til að mótmæla skýrslunni; Tíminn, málgagn Hriflunga hefir engu getað mót- mælt í skýrslunni; og sjálfúr höf- uðpaurinn. Jónas frá Hriflu hefir orðið að viðurkenna hana rjetta- Það vita allir, að Jónas frá Hriflu rjeði mestu í ríkisstjórn- inni þau ár, sem hann átti þar sæti. Hann hefir því vafalaust ráð- ið mestu um það, hvernig launa- greiðslum var háttað í hinum nýju ríkisstofnunum og hverjir veittu þeim forstöðu. Yar og dyggi lega farið eftir hans kokkabókum við val á forstjórum fyrir stofn- anirnar. Þar var eingöngu litið á ílókkslega liagsmuni, en ekkert hirt um hitt, hvort forstjórarnir væru hæfir til starfans eða ekki. Jónas frá Hriflu mun hafa skoðað ríkisstofnanirnar nýju sem einskonar pólitísk mötuneyti fyrir sig og sinn flokk. Og mönnum skilst það e. t. v. betur hvers i’egna hann ákvað launin við stofn anirnar margfalt hærri en laun annara starfsmanna ríkisins, ef það hefir verið alment, sem upp- lýst er að átt hefir sjer stað við surnar þessar stofnanir, að starfs- mennimir hafa verið krafðir um s.ierstakt gjald í flokkssjóð „Fram sóknar“. Það út af fyrir sig er fullkomið hneyksli, að maður er ráðinn í opinbera stöðu, miáske beinlínis með því skilyrði, að hann greiði árlegt gjald til styrktar starfsemi ákveðins stjórnmála- flokks. Jónas frá Hriflu hefir nú fund- ið þá miklu og almennu andúð í landinu, sem risin er upp gegn launafarganinu við ríkisstofnan- irnar. En hann er ekki nú, fremur en endranær maður til, að taka afleiðingum sinna eigin verka. Hann þykist *hafa komist að raun um, að ríltið hafi ekki ráð á að greiða neinum manni hærri laun en 8000 kr. Svona er þá komin ,,brynjan“, sem hann saum aði handa ríkissjóði á hátekjuár- unúm, úr 15 miljóna króna tekj- um, umfram fjórlagaáætlun og 15 miljóna króna lánsfje. En svo kemur það skoplega. Jónas fer að leita að leiðum til þess, að koma laununum niður í S000 kr. Ekki má lækka launin niður í þessa upphæð. Nei þau eiga að vera óbreytt. En það sem fram yfir er 8000 kr„ skal tekið í skatt — hátebjuskatt. Sá skattur á svo að fara í nýja eyðslu ríkis- sjóðs. —- Það er sagt að ósvífnustu okrarar hafi þá aðferð er þeir eru að herja fje út úr náuðstöddum mönnum, sem til þeirra leita um lán, að þeir gefi út skulda- brjef fyrir ákveðinni upphæð, segjum 10 þfis. krónum, en út- borgaðar eru að eins 8 þús. kr. Mismunurinn, 2000 kr. er skattur ti! okrarans, ofan á hina árlegu vexti. Svipaða aðferð vill Jónas frá Hriflu nú hafa til þess að lækka laun hátekjúmannanna. sem Ijann sjálfur hafði ungað út. Enginn skyldi undrast það, þótt slíkur fjár.málaglópur sem Jónas frá Hriflu láti sjer detta í hug, að enn muni vera hægt að fleyta þjóðarskútunni eitthvað áfram með nýjum álögum. Hitt gegnir furðu, að nokkur maður skuli fást til að leggja slíkri regin-firru liðs- yrði, e.ins og ástandið er hjá at- vinnuvegum landsmanna. Það er öllum Ijóst, að kommún- istar og sósíalistar stefna að því, að kollvarpa núverandi þjóðskipu- lagi. Þeir fara ekki dult með þessa stefnu sína, enda þót.t. þá greini á um leiðirnar að markinu. Sú skoðun hefir alment verið ríkjandi hjer á landi, að bvltinga- stéfna kominúnista og sósíalista væri húgarórar, sem enga stoð ætti í veruleikanum. Menn hafa sagt, og ]tað með nokkrum rjetti, að þjóðin væri mjög fráhverf þess- um kenniúgum. En hafa menn athugað, hvað það er, sem í raun og veru er ver- ið að gera með þeirri taumlausu skattakúgun, sem hjer er rekin ’? Með skattakúguninni er beiúlínis stefnt að kollvörpúú núverandi þjóðskipulags. Auðug þjóð getur ekki staðist það, að farið s,je ránshendi um eignir sinna þegna. Því siður getur iátæk þjóð og fámenn staðist slíkt Jónas frá Hriflu og samherjar Slðmenn 01 Verkamenn Alt sem þið þarfnist til klæðuaðar áðnr en þið ^ iarið á sjóínn, fáið þið ðdýrast og[i fjölbreytt- nstn úrvali hjá okknr. Gúmmístígvjel, W.A.C. allar stærðir. Olíustakkar Olíukápur, gular og svartar. Olíubuxur gular og svartar Olíukápur síðar, svartar Sjóhattar Olíuermar Fatapokar Fatapokalásar Trawldoppur Trawlbuxur Nankinsfatnaður allar stærðir Kakífatnaður allar stærðir Peysur bláar, fjölda tegundir Færeyiskar peysur Vinnuvetlingar, fjölda tegundir Sjóvetlingar Vattteppi Ullarteppi Madressur Nærfatnaður, fjölda tegundir Ullarsokkar, fjölda tegundir Hrosshárstátiljur Trjeskóstígvjel do. fóðruð Klossar do. fóðraðir. Strigaskyrtur Kakískyi'tur Ullartreflar Úlnliðakeðjur Axlabönd Enskar húfur Kuldajakkar fóðraðir með lambskinni Kuldahúfur (skinnhúfur) Gúmmíkápur Samfestingar brúnir og gráir Kakísloppar og margt margt fleira. Veiðarfærauerslunin „0EY8IR“. Sími 1350 (3 línur). hans í flokki kommúnista og sósí- alista ganga vitandi vits til verks. Þessum mönnum er það ljóst, að því fleiri atvinnufyrirtæki ein- staklinga, sem að velli eru lögð, því nær stendur byltingin. Þess vegna heimta þeir í sífellu nýjar íálögur á þrautpínda og sligaSa atvinnuvegi landsmanna. En eru valdhafarnir og þeir menn, sem á Alþingi sitja virki- lega svo blindir, að þeir ekki sjái hvert stefnir með þeim eigna-rán- um, sem framkvæmd eru hjer í skjóli skatta- og tollalaga? Morgunblaðið er 8 síður í dag og Lesbók. Flugslys. Hjá París var nýlega verið að reyna flugvjel á skíðum. Tókst henni vel að hef.ja sig til flugs, en alt í éinu hrapaði liún og kóm niður í þorpinu Antony, sem er rjett fyrir sunnan París. Lenti lnin þar á húsi og við áreksturinn varð sprenging í bensíngeymi hennar. Logandi bensínið flóði yfir húsið og stóð það á svipstundu í björtu báli. Fimm menn voru í því þegar slysið varð og björguðust fjói’ir út, en gömul kona brann inni. Flugmaðurinn beið lika bana í eld- inúm, en 21 maður af þeim, sem komu til hjálpar og ætluðu að slökkva, eldinn, brendust meira og rninna.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.