Morgunblaðið - 29.01.1933, Síða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ
lega skvldur erlendnm miðflokk-
um.
Eftir því sem Lloyd George lýs-
ir sínum gamla og úrelta flokki,
mun ekki síður nú en áður vera
hægt, að draga samlíkingar milli
hins breska flokks og hinnar ís-
lensku eftirmyndar.
Minningarathöfa.
' í nýkomnum erlendum blöðum
er frá því skýrt, að norsku fje-
lögin í Chicago hafi boðið Ifákoni
Noregskonungi til þess að vera
viðstaddur afhjúpim minnismerkis
Leifs hepna er afhjúpað verður
þar vestra í júní í sumar.
Megum við íslendingar að sjálf-
sögðu fagna þeirri virðíng allri,
sem minnings hins íslenska forn-
aldarkappa er sýnd.
En því verður ekki neitað, að
skuggi nokkur fellur á þá gleði
vora. fi-á ýmsum þeim skrifum op
athöfnum frænda vorra Aust-
manna, er lýsa skoðun þeirri, að
Leifs frægð sje þeirra þjóðfrægð.
Verður fróðlegt að heyra hvern-
ig þær tilfinningar verða túlkað-
ai við hina miklu minningarat-
höfn.
í sömu Norðurlandablöðum og
fregnin er um konungsboðið, er
sagt frá því, að NorrænafjelAgið
ætlí að gangast fyrir því, að sam-
ræmd verði sögukensla í alþýðu-
skólum allra Norðurlanda, svo
sögukenslu þjóðanna gefi livergi
tilefni til misskilnings, kala og
misklíðar meðal Norðurlandabúa.
Hefir fjelagið hjer tekið sjer
fyrir hendur menningarstarf, sem
við íslendingar ættum vissulega
að fagna.
Dutlungar.
Þegar sósíalistar ræða um opin-
beran rekstur togara, og ímynd-
aða kosti þess, að ríki eða bær
eigi framleiðslutækin er jafnan
þetta viðkvæði, að meðan veiði-
skipin sjeu eign einstakra manna,
sje það „undir dutlungum eigend-
anna komið“ hvort skipin fái
að fara á veiðar, eða ekki.
Ekki ber á öðru, en „dutlung-
ar“ annara manna en eigenda
geti stöðvað togara.
Vikum saman hefir togarinn
Otur nú legið á hinni nýju drátt-
arbraut og ekki fengið nauðsyn-
lega aðgerð, vegna þess að þar
vantar lítilsháttar járnsmíði. Járn-
smiðirnir hindra vinnuna. Eins er
með togarann Ólaf, er misti skrúf-
una. Vjelstjórar fengu að setja
skrúfuna á, eftir dúk og disk. En
togarinn var lýstur í bann.
í Kennaraskólanum.
Nemendur Kennaraskólans lafa
beðið blaðið að birta fundarsam-
þykt eða yfirlýsingu, sam gertí
var á almennum nemendafundi um
kenslu Sigurðar Einarssonar.
Segja nemendur Jar m. a. að Sig-
urður gæti hTatleysis við kensl-
una, og noíi sjer ekki kennara-
stöðuna ? flokksþágu.
j>ar eð roaður þessi hefir utan
kernarastarfsins sýnt sig svo of-
jtopafullan í pólitískri þröngsýni,
að jafnvel flokksbræður hans, sem
eru ekki sjerlega feimnir að eðlis-
fari, hafa lýst andstygð sinni á
framkomu mannsins, verða menn
að óreyndu máli að tortryggja.
hann í kennarastarfinu, og hafa
vakandi auga á, að þessi
kennari sleppi ekki taum-
haldi á sínum lökustu tilhneiging-
En Hklegt er, að ekki síst rjett-
sýni sjálfra nemenda skólans sje
að þakka, að þessi pólitíski bullu-
strokkur situr á strák sínum við
kennarastar f ið.
t
Frú Guðrún Ragr.tieiður
Snorradóttir
Hinn 7, janúar s.l. Ijest að heim-
il: sínu hjer í bænum, frú Guðrún
Ragnheiður Snorradóttir. Hún var
fædd 26. ,ágúst árið 1863, að Syðra
Hóli í Kaupangssveit í Eyjafjarð-
arsýslu. Foreldrar hennar Hall-
dóra Randversdóttir og Snorri
Snorrason járnsmiður. Þau bjuggu
fyrst á Syðra-Hóli. Þaðan fluttust.
þau kingað og búsettust á Sel-
tjarnarnesi. Ung fór Gnðrún sál.
frá foreldrum sínum að Mýrar-
húsúm. Þar giftist hún fyrri manni
sínum, Bjarna Sigurðssyni, er hún
misti eftir þriggja ára sambúð.
Eina dóttir, Sigríði, eignuðust þau
í hjónabandi sínu, sem enn er á
lífi, gift hjer.
Eftir lát manns síns dvaldi hún
um tíma í Engev- Þar kyntist hún
seinni manni sínum, Benedikt
Daníelssyni. Bjuggu þau saman í
samfelt 40 ár.
í seinna hjónabandi sínu eign-
aðist hiin 4 börn, er öll komust
upp, og urðu hin mannvænlegustu.
Auk þess tóku. þau einn dreng til
uppfósturs. Dóttur sína eina mistu
þau fyrir þremur árum. Sonur og
fóstúrsonur hafa ávalt dvalist, á
heimili hinnar látnu. Með þyí að
jeg vil teljs mig einn af viriúm
hinnar látnu, get jeg ekki stilt
mig um að minnast hennar dálítið
nánar. Guðrún sál. var kona mjög
myndarleg og sköruleg í allri
framkomu þróttmikil, björt og
sviphrein, og hjelt hún sjer vel til
líkama og sálar fram á síðústu
æfiár sín, þótt oft bljesi kalt í
fangið. Guðrxin sál. var ein af
þeim mörgu, sem verða að stríða
hinni hörðu barát.tu í Hfinu. En
sökum þreks síns, og þolinmæði
veittist henni ljett að sigrast á.
örðugleikunum. Ætíð og altaf var
hún vakin og sofin yfir velferð
Jieirailisins. og ávalt fann hún ein-
hverja leið, þótt örðugt væri. Að
koma sem gestur á heimili hennar,
mun engum gleymast. Guðrún sál.
var ein af okkar ramíslensku hús-
freyjum; sem tók á móti gestum
sínum með rausn og höfðingsskap.
Og þótt oft, væri af litlu að taka,
var sjálfsagt að deila bæði broðir
og systir og vinum. Og kæmi ein-
hver sem byrðar bar af ömurleik
lífsins var líka sjálfsagt að styrkja
hann í raunum hans. Því var eins
Veiði-
rjettnrinn.
í Hvítá í Borgarfirði, tilheyrandi
höfuðbólinu Hvítárvcllir, er til
leigu á næstkomandi vori, ásamt
tilheyrandi veiðiáhöldum
Semja ber við
Hannes Ólafsson,
Hvítárvöllum, eða í síma 4304.
og sagt er: „Bá er kom hryggur,
fór aftur glaðúr“.
Mjer virtist altaf það hafa mjög
góð áhrif þegar maður var í þungu
skapi, að vera í návist þessarar
hughraustu, glöðu og kjarkmiklu
lionu, og svo mun áreiðanlega hafa
verið með fleiri sem kyntust henni.
Og nú er þessi systir okkai1 farin
burtu frá okkar mannlegu augum.
En í hjárta okkar eru ,svo marg-
ar og hlýjar endurminningar að
þær verða sem sólargeislar, er
þerra tár hinna syrgjandi ástvina.
Svo þökkum við þjer fyrir öll
þin blessunai’ríku og vel unnip
störf.
Blessuð sje minning þín.
Vinur.
Rannvelg ItnlbeinsJðttir.
Daglega lesum vjer andláts-
fregnir í blöðunum. Að jafnaði
vekja þær athygli vora, um leið
og þær njinna oss á vort eigið
skapadægur, og stundum koma
þær oss til að Hta um öxl og
bregða Ijósi endurminninganna yf-
ij liðinn tíma.
Þannig fór mjer er jeg las and-
látsfregn Rannveikar Kolbeins-
dóttur, sem lauk jarðneskri æfi
sinni i Hafnarfirði 21. þ. m.
Ung og glæsileg stúlka elst upp
í föðurranni, gáfuð og gjörvileg
ber hún öll einkenni þess að heilla
vænleg störf biði góðrar úrlausn-
ar í höndum hennar. Umkringd
er hón af ástvinum, sem ala með
sjer Itinar fegurstu vonir um
framtíð hennar.
En skyndilega syrtir að. Á svip-
stundu hverfur gleðin og vonar-
ljósin slokkna. Unga stúlkan sýk-
ist af megnri lömunarveiki, sem
á stuttum tíma ræður niðurlögum
heilsu hennar og líkamsþreks.
Barátta hefst. Ægileg viðureign
Vonar og kvíða, sem lýkur með
fullum sigri kvíðans, að því er
líkamsþróttinn snerti. Þannig eru
í stuttu máli æfiatriði Rannveigar
Kolbeinsdóttur, sem þessar Hnur
eru helgaðar.
En —- „þegar mát.tur mannsins
dvín, miskunn DrottÍBH bjart.ast
skín“.
Helldsðlubirgðlr:
Þakjárn nr. 24-6-10’
do - 26-7-10’
Sími: Eina - tveir - þrír - Ijórir.
jScmtskfðtahreittffUtt Ututt
íaugavej 34 ^únir 1300
avtk.
Fullkomnar vjelar. Nýjnstu og bestu efni. Þaulvant starfsfólk
10 ára reynsla.
Þessi orð hlut.u staðfestingu
allra þeirra, sem kyptust Rann-
veigu. Kolbeinsdóttur, og sáu með
eigin augiim hvernig hún bar hinú
örðuga kross, sem á lienni hvíldi
fullan aldarfjórðung.
•Jeg liygg’ að fáura er sáu, gleym-
)st hið frábæra þrek hennar og
óbifanleg hugpvýði, liið glaða við-
mót og innilega samúð sem henni
var svo lagið að auðsýna vinum,
sem til hennai' komu.
A3 heimsækja Ranuveigu Kol-
beinsdóttir var að standa augliti
til auglitis við hugprúða hetju,
sem um mátti segja: „Hvergi
hræddur hjörs í þrá, hlífum klædd
ur Drottni frá“.
Slíkt er sjerhverjum manni lær-
dómsríkt, enda fullyrði jeg að
margur gekk frá sjúkrabeði Rann-
veigar, styrktur í hugar og kunn-
iigri æðstu verðmætnm lífsins.
Seinustu 8 ár æfiunar dvaldi
hún óslitið í sjúkrahúsi, ávalt
rúmliggjandi og oft mikið þjáð.
1 sjúkrastofunni eru stundirnar
hægfara. Dagarnir hver öðrum
líkir. Urið á veggnum er oft hið
eina sem rýfur þögnina, annað en
veikindastunur sjúkra manna. —
Tnnan þeirra vjebanda þrengir að,
og mörgum hættir þá, við að missa
sjónar á öllu öðru en eymdum og
basli lífsins.
En það gerði Rannveig aldrei.
Andi hennar hóf sig upp yfir
eymd og basl daglega lífsins. Hún
bar jafnan höfuðið hátt og hún
horfði ávalt hátt. Ekki dvaldi hún
við eigin kjör nje taldi harma
sína. Hún vorkendi öðrum, en
hún vildi ekki lát,a vorkenna sjer.
Sönn hetja hugsar heldur ekki
fyrst og fremst um sjálfa sig,
Jeg þekti Rannveign um ma.rgra
ára skeið Jeg kyntist lífi hennar,
starfi, hæfileikum, lunderni, og
því betur, sem mjer gafst að
skygnast inn í hennar -stórhuga
sál, því sárari, því örðugri varð
mjer spurningin: Hvers vegna
fjekk hún, fiekk þjóðin hennar
ekki að njóta hinna góðn og miklu
hæfileika hennar?
TJm nokkur ár hafði hún barna-
kenslu á hendi, og reyndi þannig
t.il að hafa ofan af fyrir sjer sjálf.
Það er vissulega átakanlegt dæmi
þess, hverju sjálfsbjörgunarþrá-
i in fær til vegar komið. Hægt
| átti hún þó ekki nm vik, jafn
I iömuð og hún var. Þnrfti hún
, ii jálp til að klæðast og afklæðast,
! en þegar búið var að setja hana á
stólinn við borðendann, og börnin
i sest umhverfis hana, bar ekki á
1
; neinni lömum, allra síst andlegri,
í því að Rannveig átti yfir að ráða
I frábærum skilningi, og gat því
j raanna best útskýrt fyrir öðrum.
Rannveig var ljóðelsk og list-
elsk Sönglistinni unni liún mjög
j og var gædd góðri söngrödd.
i í hópi vina sinna gat hún verið
„hrókur alls fagnaðar“, orðhepp-
in og gamansöm. Þrátt fyrir van-
j heilan líkama, sem aldrei tók á
heilum sjer, hreyfði sálin hennar
heilum vængjnm, og var gleðin
! jafnan efst á baugi er vinafundum
I bar saman. Það var að vísu eigi
j liávær kæti, heldur kyrlát gleði
I hinnar reyndu sálar, sem mótuð
er og þroskuð i skóla þjáriinganna,
og hefir lært þar til hlýtar að
treysta Guði og „láta hverjum
degi nægja sína þjáning“.
Rannveig Kolbeinsdóttir fædd-
ist 17. ágúst 1887, að Vestra-Mið-
felli á Hvalfjarðarströnd.
Foreldrar hennar voru Kolbeinn
Þórðarson Þorsteinssonar að Leirá,
og kona hans Láretta Þorvalds-
dóttir, Böðvarssonar prests að
Saurbæ á Hvalfjarðarströnd.
Hún dvaldi fyrstu æfiárin með
föðurömmu sinni, Rannveigu Kol-
. beinsdóttur að Leirá, liinni ágæt-
j ustu konu og hafði af henni ást-
ríki mikið.
Þeir, sem best kyntust Rann-
veigu Kolbeinsdóttur bljóta að
sakna hennar, þótt þeir fagni
lausn hennar frá þrautnm og þján
ingum. Vinirnir hennar fjær og
nær, fela hana miskunn Drottins í
von nm sæla endurfundi, þar sem
„sjerhver rún er ráðin, og rauna-
spurning er oss duldist hjer“.
Guðrún Lárusdóttir.
Einar maqnÚ55on
fyrverandi kaupmaður
á Patreksfirði.
Ifann andaðist þann 14. þ. m.
að heimili sínu Vatneyri við Pat-
reksfjörð, tæpra 82 ára að aldri.
Hann var fæddnr á Hamri í Múla-
um.