Morgunblaðið - 16.04.1933, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 16.04.1933, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ T íslenðingar } eru ekki bleyður og ómenni. Út o f grein þeirri er enska blaðið „Grimsby Evening Telegrahp“ flutti 6. febrúar, um Guðna Pálsson, skip- stfóra á enska togaranum „Sabik“, ritaði Þórarinn 01- geirsson skipstjóri eftirfarandi grein, og birtist hún skömmu síðar í sama blaði. Herra ritstjóri! Jeg get ekki annað en látið í ljós gremju mína ®g margra annara fiskimanna, sem atunda veiðar við ísland, út af fregnum í blaði yðar frá 6. febrú- •ar síðastl. um togarann „Sabik“ •og framkomu íslensks skipstjóra, sem gefið er í skyn að hafi neit- að að hlýða S- 0. S. neyðarkalli. Jeg lá veikur af inflúensu heima k íslandi þegar jeg frjetti fyrst um þetta mál og hefi ekki haft ástœður til að koma fram vörnum fyrir landa mína fyr en nú eftir að jeg kom aftur til Grimsby, sem var í gærdag. Ummælin í hlaði yðar eru þannig, að þeim má ekki láta ómótmælt, Jeg get fullyrt með vissu, að það hefir aldrei komið fyrir, að íslensk skip hafi neitað um hjáíp, þegar um hana hefir verið beðið. Bf til vill er sjómönnum og tog- araeigendum í Grimsby ekki kunn- ugt nm það. að árið 1928 ákváðu íslenskir skipstjórar og fjelag loft- skeytamanna að láta jafnan þrjá togara með loftskeytatækjum •skiftast á um að halda vörð, á hverri nóttu, svo að hægt væri undir eins að koma til hjálpar, ef •eitthvert skip sendi út neyðarkall. Þessu fyrirkomulagi er haldið úfram enn, og því var það að þakka, að skip mitt komst í sam- band við norska skipið, sem talað er um í Sabik-málinu, og hjeldum við þegar af stað með fullri ferð til hjálpar. Um loftskeytastöðina fjekk jeg að vita, að skipið hefði mist öll siglingatæki og sjálft •stýrishjólið fvrir borð, ljeti því ekki að stjórn, en ræki upp að klettaströndinni með 5 sjómílna hraða á klukkustund. Jeg gat reiknað út afstöðu hins nauðulega stadda skips með mið- unartækjum mínum og sendi því þegar þau hughrevstandi boð. að það væri 20 sjómílur undan strönd ínni, og að jeg mundi geta verið búinn að ná því áður en það ræki upp. Á meðan þetta gerðist voru einnig íslenski togarinn „Max Pemberton“, varðskipið ,,Óðinn“ og póstskipið „Goðafoss' öll komin á vettvang til hjálpar. En þó að minsta kosti 100 breskir togarar hafi loftskeytatæki, þá virðist svo ■sem aðeins einn þeirra, togarinn „Sabik“, hafí heyrt neyðarkallið, þar sem hann var eina, skipið, auk hinna fyrnefndu, sem var í sam- bandi við ..Tngerto". Ef bresk- ir togaraeigendur og skipstjórar hefðu komið á sams konar fvrir- komulagi og hjer hefir verið lýst. til þess að halda vörð á nóttunni, þá liefðu að öllum líkindum fleiri en eitt breskt skip heyrt neyðar- kallið. Jeg vil einnig vekja athygli yðar á því, að þó að meira en 100 breskir togarar stundi fiskiveiðar á íslenskum miðum, þá er ekkert gert af hálfu eigenda þessará tog- ara til að sjá þeim fyrir spítala- skipi eða nokkurri læknishjálp, svo að alt slíkt er þeim í tje látið at íslendingum sjálfum á liöfnun- um kringum landið. Þar er alls ekki spurt um þjóðerni. Ollum er j hjúkrað eftir bestu getu og hjétp- i að til lieilsu — og oft og mörgum j sinnuni á sjálfum heimilum landa minna. I þessu sambantli vil jeg einnig minna á, að fjölda breskra sjó- manna hefir verið bjargað af skip- um, sem Iiafa strandað við hinar hættulegu strendur vorar. Álveg nýlega strönduðu tveir breskir togarar við norðurströnd íslands. Báðar skipshafnirnar nutu húsaskjóls og hjúkrunar á sveita- bæjum, þar sem húsakynni eru þröng og aðstæður erfiðar. Onnur þessara skipshafna var veik af inflúensu. Islendingarnir veittu henni alla hjúkrun, en tóku svo sjálfir sömu veikina. Þessi hjálp var veitt án endurgjalds, og fólk- ið taldi sig ekld hafa gei’t annað en skyldu sína, og að það væri ekki neitt til að hrósa sjer af- Loks er mjer kunnugt um, að landar mínir liafa veitt breskum skipum á veiðum við fslands- strendur ómetanlega hjálp, hætt lífi sínu í ofviðrum í þágu þeirra. Bleyðiorðin, sem vitnin í rjett- inum hafa borið, og ásokunin í blaði yðar, er hvorttveggja órök- stutt og í æði mikilli mótsögn við þá rjettsýni og þann dreng- skap, sem ætla má að hver bresk- ur þegn telji sjer skylt að iðka. Hugrekki og hreysti er ekki einkaeign neinnar þjóðar, heldur dygðir, sem landar mínir eru gæddir í engu minna mæli en aðrir. Grimsbv 16. mars 1933. Þórarinn Olgeirsson (skipstjóri á íslenska togaranum ,,Venusi“.) Þingrrof í Danzig. Hanzig 14. apríl. United P’,ess. FB. Þingið í fríborginni Danzig hef- iv með 66 atkvæðum gegn 6, samþ. þingrof. Þingmenn jafnaðarmanna — nítján að tölu — greiddu ekki atkvæði. Nýjar lcosningar fara fram 28. maí. Kampavín. Kampavíns-bændur kvarta und- an því, að kampavínssölu í heim- inum hraki. Orsökin talin sú, að þeir sem hafa efni á að drekka kampavín kæri sig ekki svo mjög um það, því það sje ekki lengur talið eins fínt og áður var. Göring, önnur hönd Plitlers, kom að sögn á heimili um daginn, þar sem framreitt var danskt smjör á borð- um. H-ann sneri sjer samstundis þaðah með þeim ummælum, að hann stigi ekki fæti sínum inn á heimili er hefðu slíkan ósóma í frammi! niheimsmót skáta. „UJorlú-iamboree" 1933. Með fjögurra ára millibili eru haldin alþjóðaskátamót eða„Jam- boree“, en svo eru þau kölluð. Á mót þessi streyma þúsundir af skátum víðsvegar úr hinum ment- aða lieimi, fullir af eftirvæntingu og tilhlökkun, enda verða þeir ekki fyrii’ vonbrigðum, .því mót þessi eru stórviðburður í sögu skátahreyfingarinnar, og bera ljós- an vott um þroska hennar og fram •ang. Fyrsta skátamótið (Jam- boree) yar haldið í Englandi árið 1921. Annað var í Danmörku 1924 og voru þar eitthvað 5000 skátar. Ilið þriðja var í Englandi 1929. Það var haklið í skemtigarði skamt frá Birkenhead, sem er lítil borg andspænis Liverpool. Þar voru kringum 50.000 skátar sam- ankomnir, þar á meðal 32 frá ís- ur sýnt svifflug. Mestum tíma verður várið í mótið sjálft, meðan það stendur vfir, en 2—3 dögum til ferða- laga um nágrennið. Baden Powell lávarður verður lieiðraður á þessu móti á þann hátt, að honum verður gefið vand- að tjald með öllum hugsanlegum útbúnaði og skrauti, sem hægt er þar við að koma, en þar sem hon- um á að koma þetta á óvart, er því haklið leyndu fyi’ir honum. Ollum skátum er heimilt að sækja mót þetta: n. Ef þeir hafa lokið II- flokks prófi. b. Ef þeir liafa verið starfandi skátar í tvö ár. c Ef þeir hafa skriflegt leyfi sveitaforingja og forráðamanns d. Ef þeir eru fullra 14 ára að aldri. Enn er ekki hægt að segja með fullri vissu hve margir íslenskir Gata á Jamboree 1929. landi, Hið fjórða Jamboree verð- ur baldið í Ungverjalandi í borg sem heitir Göddöllö, og er 25 km. frá Búdapest. Til þess' að gera mót þetta sem fullkomnast og best hefir verið við liafður geysi- mikill undirbúningur, svo sem: Lagðir yægir, leitt vatn,, sími o. fl. Einnig verður útvarpað ræð- um o. fl. meðan mótið stendur yf- ir. Þá hafa og verið haldin mörg námskeið undanfarin tvö ár með- al ungverskra skáta, til þess að gera þá sem hæfasta til þess að vera leiðbeinendur og stjórnend- ur á þessu skátamóti. Mótið stendur yfir frá 1.—15. ágúst í sumar. Fyrirkomulagið á þessu móti verður nokltuð svipáð því og var 1929, að skift verður niður í tjaldbúðahjeruð — Sub camp — með 2500 til 3000 skátum í hverju. skátar muni sækja þetta mót en gert er ráð fyrir, að vegna krepp- unnar fari talsvert færri en á hið síðasta. En þeir, sem fara, leggja af stað frá Revkjavík með e.s. Detti'- fossi 19. júlí til Hamborgar, það- an á járnbraut um Berlín, Prag og Vín, til Búdapest og þaðan á mótið í Göddöllö og til baka ,sömu leið til Leipzig, þaðan til iVai’ne- munde og á ferju yfir til Gedser og þaðan til Kaupmannahafnar. Þar verður höfð þriggja daga við- dvöl, og síðan haldið lieim með Brúarfossi 22. ágúst og komið til Revkjavíkur 29. sama mánaðar. Kostnaður verður kr. 475.00 á mann. f því eru innifaldar allar ferðir, uppihald og annar kostn- aður. Að því athugiiðu, hvað þetta cr löng ferð með viðkomustöðum felenskir skátar glíma við tjaldbúðii' sínar á Jamboree 1929. Á móti þessu er gert ráð fyrir, að esperanto verði notað mikið sem hjálparmál, enda verður flokk að niður eftir þyú, hvaða mál af fjórum; ensku, þýsltu, fronsku eða esperanto menn vilja tala- í tilefni af mótinu hefir alþjóða- bandalagið gengist fyrir brjefa- skriftum milli skáta yúðsvegar um heim, sem væntanlega munu kom- ast í persónulega kynningu á Jam- borée. Á mótinu verða allskonar sýningar, sa7o sem: íþróttasýning- ar og sýningar frá skátalífinu á útisamkomusvæðinu. Einnig verð- í Englandi, Þýskalandi, Tjekkó- slóvakíu, Austurríki, Ungverja- landi og Danmörku; er hjer sjer- stakt tækifæri fyrir skáta til að sjá sig um og kynnast erlendum fjelögum sínum. Jamboree-nefnd fslands, póst- hólf 831, Reykjavík, veitir fús- lega allar frekari upplýsingar. Tr. Kr. Eldtrygg- gluggatjöld. í Englandi hafa nýlega’ verið s'erð gluggatjöld. sem ekki geta brunnið. ' Seljast vegna gæðanna. 40,000 tPílir óskast lánaðar gegn 1. veðrjetti í stórri og góðri eign hjer í bænum. Sje lánveitandi reglusamur og duglegur maður, getur hann feng- \ ið fasta atvinnu með 5.000 kr. árs- launum. Tilboð merkt „Sólvalla- gata“, sendist A. S. í. Geldingafrumvarpið og Burdizzo aðferðin. Landbúnaðarnefnd neðri deild- ai flytur frumvarp um að hesta og naut, sem gelda þarf, skuli svæfa áður en gelding fer frarn. Er gert ráð fyrir því, að x hverri sýslu sjeu hæfilega margir geld- ingamenn, sem læri að fara með chloroform (svæfingarefni) og einnig afla sjer þeirrar þekkingar og leikni, sem þarf til að leysa. verkið af hendi. Á undanförnum þingum hefir þetta sama frum- varp verið flutt, en ekki náð fram að ganga. Nxi á enn á ný að reyna að koma frumvarpimi fram, og er það eftir tilmælum Dýraverndun- arfjelags fslands. Þær ástæður, sem liggja til grundvallar fyrir því, að frum- varp þetta er fram komið, munu vera þær, að geldingar eins og þær hafa verið framkvæmdar hjer á landi, eru mjög ómannúðlegar og verða dýrin að þola miklar þjáningar. Það virðist því vera, góðverk að fá frumvarpið gert að lögum, ef geldingxi á fi’amvegis að framkvæma með sömu aðferð og hingað til. En hjer er að verða breyting á, því á síðustu árum hafa flust hingað verkfæri til g.eldingar með nýrri aðferð. Geld- ingaraðferð þessi hefir rutt sjer til rúms um hinn mentaða heim. og er nú nær eingöngu notuð í Englandi. Canada. Ástralíu og víð- ar. Aðferð þessi er komin frá Ital- in og er kend við Burdizzo. Hún er bæði fljótvirk og mannúðleg. Það þarf enga svæfingu yúð, þeg- i

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.