Morgunblaðið - 18.06.1933, Side 2
2
MORGUN BLAÐIÐ
Kreppan og þjóðernismálin
uestan hafs.
Ásmundur P. Jóhannsson segir frá
Fyrir nokki-u kom Tiingað vest-
an um liaf Ásm. P. Jóhannsson
byggingameistari, kona hans og
sonur þeirra, Jónas Yaldimar að
nafni. í fylgd með þeim er Oscar
Anderson, sonur Pjeturs Ander-
son hveitikaupmanns í Winnipeg.
Br Ásmundur hingað kominn
m. a. til að sitja fund Eimskipa-
fjelags íslands, er haldinn verður
innan skamms.
Blaðið hefir hitt Ásmund að
máli, og spurt hann ýmsra frjetta
að vestan, um kreppu atvinunlífs-
ins þar og ýms málefni fslendinga
]>ar vestra.
— Þegar jeg er að því spurður,
segir Ásmundur, hvernig íslend-
íngar komast af þar vestra í þeirri
erfiðu kreppu er þar ríkir, þá get
jeg ekki annað sagt, en að þeir
komist a. m. k. eins vel af eins
og annara þjóða menn —; ef ekki
hetur. Því hvar svo sem fslend-
ingar setjast að í heiminum, eru
þeir yfirleitt samkepnisfærir.
En ástandið vestra er slæmt,
erfiðleikar miklir, atvinnuleysi
talsvert og fjárhagsvandræði, eins
og geta má nærri þegar aðalfram-
Teiðsluvörur landsins; hveitið og
kjötið fer niður í fjórðapart af því
sem talið hefir verið viðunanlegt
verð.
Hveiti hushel af bestu tegund
komst í vetur niður í 38 cent. En
áður var vanalegt verð 1—2 doll-
ara mælirinn. Og álíka verðfall
Tiefir verið á kjötinu.
Landsstjórn, fylki og bæjarfjelög
hafa orðið að leggja fram geysi-
miklar fjárhæðir til lífsviðurhalds
átvinnulausu fólki, og hafa skatt-
ar verið hækkaðir mikið til þess
að standast, þann kostnað. Ný lög
«ru um það í Manitoha, að hver
sá verkamaður, sem vinnur
fyrir níu hundruð dollurum á ári
■skuli í viðbótarskatt greiða 2%
af vinnukaupi sínu.
Til að bæta fyrír markaði á
útflutningsvöru. Canadamanna tók
Bennett forseti upp samninga við
Bretastjórn 1930. Gerði hann mikl-
ar kröfur til Breta um það, að
beir veittu Ca.nada sjerstök hlunn-
Tn.'íí áfrrðlr sínar. En Benn-
■ett var teliið mjög fálega, og
fekk hann' litla . áhevrn.
Árið 1931 sigkli hann aftur ti1
Englands. Þá fekk hann alt aðrar
viðtökur. Þá hafði Bretastjórn í
millitíð komist að raun um, að
•’eigi myndi hlýða að daufhevrast
við kröfum Canadamanna.
Þá fekk hann því framgengt, að
lialdin yrði Ottawaráðstefnan á
næsta ári, er síðar lagði grund-
völl að þeirri verslunarstefnu er
nú ríkir innan breska heimsveld-
isins.
Nú hefir opnast markaðsleið
fyrir Canadahændur með kvikfje
sitt til Bretlands. Alla leið frá
vesturfylkjunum eru nú sendir
nautgripir á fæti til stórhorga
Bretlands. Tekur ferðin 12—14
<laga. Kjötmarkaður fer því batn-
andi, og kjötverð hækkandi.
Lakara er útlitið á hveitimark-
aðinum. Aldrei hefir hveitiverðið
verið Tægra en á síðastliðnum
vetri. Til verðhrunsins á cana-
diska hveitinu liggja þær orsakir,
að hveitiframleiðslan hefir aukist
svo mikið á undanförnum ár-
um, en hver þjóð varðveitir sína
framleiðslu eftir mætti.
Fpphaf þessa máls var það, að
þegar hveitiverðið fór að falla
fyrir einum 4—5 árum, mynduðu
Canadabændur í sljettufylkjunum
sölusamlag. Allir hveitiframleið-
endur landsins skjddu vera í því
samlagi, og gengu flestir í samtök
þessi.
Með því að safna útflutnings-
hveitinu öllu á sömu hendur tókst
um skeið að halda verðinu iippi.
Samlagið hafði sína eigin sölu-
menn víðs vegar um markaðslönd.
Aðrir hveitikaupmenn, er áður
höfðu haft Canadahveiti til sölu,
fengu það nú ekki lengur. Til þess
þess að geta haldið hveitiverslun
áfram, urðu' þeir að taka upp sölu
á hveiti annara þjóða, svo sem
Argentínumanna og Ástralíu.
Þjóðir þær, sem keypt höfðu
Canadahveiti, fepgu nú meira
framboðí af hveiti annara þjóða.
Og sakir þess, hve verðið var um
tíma óeðlilega hátt, fóru ýmsar
þjóðir að spara við sig liveiti-
kaup, og leitast við að rækta
meira hveiti sjálfar. Hafa þær síð-
an verndað þá framleioslu sina
eftir mætti.
Hveitiframleiðslan í heild sinni
varð svo mikil í heiminum, að öll
forðabúr fyltust, og liefði hveiti
verið nægilegt til neyslu, þó ekk-
ert hefði verið ræktað í viðbót
i 1—2 ár.
En óvinsældir Canadahveitis
urðu svo magnaðar um tíma, vegna
samlagsins, að í Englandi þektist
það, að matsöluhús auglýstu sjer-
staklega fyrir géstum sínum, að
þau notuðu ekki Canadahveiti í
brauð sín. En nú er -slíkri óvild
hrundið.
Hvernig ráðið verðnr fram úr
fjárhagsmálnm og fjárhagsvand-
ræðum vestra, er ómögulegt að
segja. Menn búast við að dollar-
gengið falli. En gengismálið verð-
ur eitt þeirra stórmála sem við-
skiftastefnán í Lundúntim fær til
vneðferðar.
Þ j óðræknisf j elagið,
Síðan barst ’takð ’-að málefnum
Vestur-íslenclinga og Þjóðræknis-
fielagsins. Sagði Ásmúnd’ur að
þeim fjelagsskap vegnaði sífelt
betur og betur.
Hefir fjelagið nvv ýms nýmæli
með höndnm. Eitt er það, m. a.
að gangast fvrir því, að endur-
varpað yrði vestra íslensku útvarpi
nokkrum sinnum á ári. Hefir þing
rnaður Winnipeg W. W. Kennedey
lofað stuðningi sínum við það mál.
Þá er það markmið fjelagsins,
að örfa viðskifti Canada og Ts-
lands. En um árangur af þeirri
viðleítni verður ekki sagt enn. 1
því sambandi mintist Ásmundur
á hina margumræddu Hudsonflóa
braut, og hveit.i útflutninginn um
Hudsonflóa. TTann er nú byrjaður.
En hve lengi á ári verður hægt.
að halda uppi skipasamgöngum
um Hudsonflóa, er óvíst enn, og
eins hvort, þessi nýja samgöngu-
leið hefir áhrif á íslenskt við-
skiftalíf.
Mjög lætur Ásmundur af því,
hve ánægðir Vestur-lslendingar
voru með hingaðkomu sína Al-
þingishátíðarsumarið, og ekki síst
unga fólkið, er aldrei hafði sjeð
ísland fyr. Flestir þeirra, sem
ungir voru í heimfararhópunum,
hugsa til þess að líta ísland síðar
á æfinni.
Dómsmálaráðherra Manitoba-
fylkis, W. J. Major, sem var
fulltrúi Manitoba á Alþingishátíð-
inni hefir haldið fjölmarga fyrir
lestra . um ísland, síðan, og látið
mjög vel af TancTi og þjóð, og
liátíðahöldunum 1930. Hafa Vest
ur-íslendingar glaðst mjög vfir
því, hve vel þessi merki Vest-
urheimsmaður hefir kynt þjóð
vora.
Lækkun á uppbótargreiðsl-
ura til uppgjafahermanna.
Washington, 16. júní.
United Press. FB.
Áform Roosevelts forseta um að
lækka nppbótargreiðslur til upp-
gjafarhermanna um á að giska 260
miljónir dollara, hafa loks náð
fram að ganga. Voru miklar deilur
úih þetta mál á þjóðþinginu og
segja má, að í þessu máli einu hafi
Roosevelt mætt harðvítugri mót-
spyrnu á þingi. Þegar mál þetta
hafði fengið afgreiðslu var þing-
fundum frestað um sinn.
Skuldir Þjóðverja.
London, 16. júní.
United Press. PB.
Þeir lánveitendur Þjóðverja, sem
íafa veitt þeim lán til skamms
tíma, hafa fallist á nýtt samkomu-
lag, að því er snertir lán, sem
falla í gjalddaga frá 1. júlí til
28. febr. 1934. en t.il þess tíma er
samkomulagið í gildi. Heildarupp-
hæð lána þeirra, sem hjer um ræð-
ir, er 80 miljónir ríkismarka, og
falla lánveitendurnir frá fyrri
kröfum um endurgreiðslur á þessu
tímabili, en vextir lækka úr 4%%
í 4%%.
Aukakosning í Bretlandi.
London, 15. júní.
Unitcd Press. FP». ",
Aukakosning hefir fram farið í
Altringham, Cheshire. íhaldsfram-
bjóðandinn, Sir Edward Grigg,
bar sigur úr býtum. Hlaut hann
25.392 atkvæði. P. M. Oliver,
löinm fyrirliggjandi:
Sagogrjón.
Hrísgrjón.
Hrísmjöl.
Haframjöl.
Kartöflumjöí.
Sími einn, tveir, þrír, f jórir.
Fyrirliggjandi:
Kartöflur norskar.
Appelsínur 150, 240 og 300 stk.
Epli. Laukur.
Eggert Kristjánsson 4k Ge.
Sími 1400 (3 línur).
i
BiireiðastSð íslands,
WWW
//ssz/ ^
Hafnarstræti 21.
Sími 1540.
sssss/
\ww\
Breska stjórnin hefir tilkynt
verslunarmálaráðuneytinu, að al-
þjóðamerkjabókin (signalbok)
verði tekin í notkun frá 1. jan.
1934.
Yerðfesting punds og dollars.
'London, 15. júní.
United Press. FB.
Tilkynt hefir verið. að Bret-
land og Bandaríkin hafi náð sam-
komulagi í aðalatriðum um vevð-
festingu dollars og sterlingspunds,
einnig gagnvart frankanum, en
skoðanamunur sje enn um mikil-
væg einstök atriði milli þeirra
Roosevelts og Chamberlain, sem
nauðsynlegt sje að ná fullnaðar-
amkomulagi um.
COLGATES
rakkrem
mýkir skeggrótina.
Græðir hörundið.
Fljótastur og bestur
rakstur fæst með
COLGATES RAKKREMI,
Heildsölubirgðir.
H. Ólafsson & Bernhöft.
’rjálsl. hlaut 15.892 atkvæði. J. H.
ITudson hlant 8.333 atkvæði. -—
Aukakosningin fór fram vegna
þess, að fráfarandi þingmaðnr,
Cyril Atkinsson, var skipaður
dómari.
Frá Noregi.
Oslo, 15. júni. NRP. FB.
Uta n ríkism ál anefn d Stórþingsins
hefir lagt til, þrátt fyrir nokkra
óánægju, að Stórþingið samþykti
norsk-bresku viðskiftasamningana
til fnllnustu.
Norska eimskipið Seierstad,
rakst á ísjaka við Newfotfndlancl
í maímánuði s.I. og sökk. Skipið
sökk þar sem Atlantshafssæsima-
leiðslur eru á botninum og hefir
höggvið sundur tvær leiðslurnar.
Átján hlaðamenn frá Suður-
Ameríku eru komnir til Noregs.
Movinkel forsætisráðherra hjelt
þeim veislu í gær.
Ófriðarskuldir Breta.
London, 16. júní.
United Press. FB.
Skuldamálanefnd, sem er að,
hálfu leyti opinber nefnd, fer af
hálfu Breta til Washington í á-
gust mánuði. Formaður nefndar-
innar verður Neville Chamberlain.
f nefndinni er m. a. fjármálasjer-
fræðingurinn Sir Frederick Tæith.
Bréská stjómin býst nú við; að i
árslok verði unt að ganga frá
bráðabirgðasamkomnlagi um ó-
friðarskuldirnar, því 'næst verði
bráðabirgðasamkomulagið sent
þinginu til umræðu og fullnaðar-
samþyktar.
Ófriðarskuldir Frakka.
Washington, 16. júní.
United Press. FB.
Samkvæmt áreiðanlegri heimild
hefir frakkneska stjórnin sent
Bandaríkjastjórn varfærnislega,
orðaða orðsendingu til Roosevelts
um skuldamálin. T orðsendingunni
mótmælir stjórnin. því, að Frakk-
lancl hafi nokkurn tíma ætlað sjer
að neita að standa við skuldhind-
ingar sínar. Jafnframt lýsir stjórn
in yfir því, að hún geri sjer vonir
um, að innan langs tíma verði
málið til lykta leitt.
Teomiii
cigarettur
eru reyktar um alt
land'.
20 stk. 1.25.