Morgunblaðið - 24.09.1933, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 24.09.1933, Blaðsíða 8
8 N b M VeraiæUan: Matarstell 7 teg. 6 m. frá 17.50 Matarstell 6 teg. 12 m. frá 30.00 Kaffistell 28 teg. 6 m. frá 10.00 Kaffistell 19 teg. 12 m. frá 16.50 Avaxtastell 26 teg. 6 m. frá 3.75 Ávaxtastell 18 teg. 12 m. frá 6.75 Mjólkurkönnur ótal teg. frá 0.60 Sykursett margar teg. frá 1-35 Diskar afar margar teg. frá 0.30 Kökudiskar ýmiskonar frá 0.50 Skálar margskonar frá 0.25 Bollapör 44 teg. postulín frá 0.50 Borðhnífar ryðfríir frá 0.80 Skeiðar og Gafflar 2ja turna 1.85 Skeiðar og Gafflar ryðfrítt 1.00 Dömudtöskur ekta leður frá Ö-50 Yekjaraklukkur ágætar frá 5.00 Aldrei hefir úrvalið hjá okkur verið eins mikið og nú eða verðið eins lágt. I Bnu & HiliBif Bankastræti 11. Tii Biurevraí alla mánudaga, þriðjudaga, fimtu daga og föstudaga. Afgreiðsluna Reykjavík hefir Aðalstöðin. Sím 1383. Slfreiðastðð Hkurevtar. Sími 9. Lifurog hjörtu. KLEIN. Baldursgötu 14. Sími 3073. Hin aukna sala á Rósol-tauBkremi, sannar, að það eru fleiri og fleiri, sem læra að meta gæði þess. H.f. Efnagerð Reykjavíkur kemisk-teknisk verksmiðja. Fljótshliðar - rjsttir eru á þriðjudaginn. Sætaferðir frá Aðalstððinni Sími 1383. Sjálfum sjer líkir eru þeir jafnan skriffinnar Tímans. — Nú telja þeir, að Magnús Guðmunds- 'son dómsmálaráðherra hafi mis- boðið sjálfstæði landsins með því að bera það undir þýsku stjórnina hvort höfða skyldi mál gegn kom- múnistum þeim, sem svívirtu stjórnarfánann þýska við bústað þýska konsúlsins á Siglufirði í sumar- Annað hvort er, að Tíma- menn vita ekki, að það er beint fyrirskipað í lögum (sjá 85. gr. hgnl.) að eigi skuli höfða mál út af slíkum afbrotum nema stjóm sú, sem í hlut á, krefjist þess, ellegar þá hitt, að þeir álíti sjálf- sagt, að núverandi dómsmálaráð- herra fari að eins og fyrirrennari hans frá Hriflu gerði, að virða lög landsins vettugi. En hvað sem Tíminn segir um þetta, mun nú- verandi dómsmálaráðherra halda sjer að fyrirskipunum landsins laga um framltvæmdir sínar. Spyrðubandið. Tíminn skýrir frá því, að nýlega hafi verið stofnað „Framsóknarfjelag“ í Snæfells- og Hnappadalssýslu og að for- maður þess sje Jón Steingrímsson sýslumaðim, sem hefir verið og er sósíalisti. Þetta sýnir að enn held- ur spyrðubandið milli Hriflunga og sósíalista. Bvrd leggur af stað frá Boston 25. sept. Byrd sjóliðsforingi hefir í hyggju að leggja af stað í Suður- Pólarleiðangurinn 25. sept. 70 menn taka þátt í leiðangrinum. Hafa þeir meðferðis flugvjel, sem fer 250 lcm. á klst. Var hún hygð sjerstaklega fyrir leiðangur þenn- an. — 35 Getur bð fyrlrgefið? hverju jeg mátti eiga von. Ljósið skein á bak við eina hauskúpuna — en hinar glottu á móti mjer — og kolsvart tjaldið á bak við. — Það var þó ástæða til að finnast sviðið dálítið óviðfeldið, ekki satt ?“ ,,Ef til vill“, samsinti hann. „En þegar þjer nú bráðum sjáið inn- tektir yðar aukast um helming — þá er það að þakka uppfinningu minni um aukna næringu fyrir taugarnar — og þá munuð þjer fyrirgefa mjer.“ í þessu kom bíllinn. Hann hjálp- aðj henni upp í. „Komið þjer svo bráðum aftur til að borða hjá okkur?“ Hann hristi höfuðið. „Nei, þakka yður fyrir- Jeg hefi leið á samkvæmum. Jeg vil heldur koma þegar þjer eruð einar“. Hún hugsaði sig um stundar- korn. „Jæja, þá getið þjer símað þeg- ar þjer viljið koma“, og hún hall- aði sjer aftur á bak í sætinu og ók burt. Samúel yngri, sem hafði beðið í móttökuherberginu var nú vísað inn í dagstofuna. Hann litaðist um með sýnilegum áhuga. Honum fanst sjer hafa verið sýnd óþarf- lega mikil virðing af verslunar- eigandanum síðustu vikurnar, og ákvað því með sjálfum sjer að viðhafa nokkuð öðru vísi tón. „Hæ, hæ“, hrópaði hann og leit á teborðið. „Þetta er allra snotrasta pipar- sveinaíbúð, sem þjer hafið fengið hjer. —- — Te fyrir tvo — ker með gulum rósum, og kökur, og meira að segja mjög góðar kök- ur“, hjelt hann áfram, og fekk sjer eina. „Slikt sjer m-aður ekki hinum megin á svæðinu — eða hvað“. Paule svaraði ekki, en tók sjer vindling, og ýtti öskjunni yfir til rkt þvoiHu ef n i Heiðraða húsmóðir! Hversvegna nota önnur þvottaefni, þegar að til er þvottaefni, sem sameinar alla kostii — sem er ódýrt, fljótvirkt og hlífir bæði höndun- um og þvottinum? Það heitir FLIK-FLAK — það þvær fljótt og rækilega. Bff Þegar þvotturinn hefir soðið stundarfjórðung eru öll óhreinindi horfin og eftir er aðeins að skola þvottinn — og svo eruð þjer búnar. Auðveldara getur það ekki verið. — Og ekk- ert þvoítaefni gtur gert það betur. Sparið tíma og peninga. Látið FLIK-FLAK hjálpa yður með- erfiði þvottadagsins. Heildsölubirgðir hjá I. BRYNJÓLFSSON & KVARAN. gestsins. „Getið þjer giskað á hversvegna jeg er kominn hingað?“ hjelt hann áfram. Það er þetta styrktar- meðal sem þjer gáfuð pahba — það gerði hann alveg að nýjum manni. Honum bragðaðist matur- inn ágætlega — meira að segja reykti liann vindil á eftir — og það er nokkuð sem hann hefir ekki gert í heilt ár. Honum leið vel allan seinni hluta dagsins, eíi varð svo syfjaður eins og þjer sögðnð að hann mnndi verða Nú langar hann að vita hvort hann getur ekki fengið uppskriftina“. Paule hristi höfuðið. „Mjer þyk- ir það mjög leitt — en það getnr hann ekki fengið“. „Hvað er þetta“, mótmælti Sam- úel. „Hvers vegna ekki? Það þarf ekkert skrautlegt vörumerki, eða þess háttar, slíkt gerir ekkert'. „Það er heldur ekki ástæðan“, sagði Paule. Þetta er óþekt örfun- armeðal, sem almennir efnafræð- ingar geta ekki búið til. Jeg nota í það efni, sem undir vissum á- stæðum getur verið hættulegt". „Búið þjer þá bara til eina inntöku fyrir hann — jeg verð að geta friðað hann einhvem veg- inn“. „Jeg vil heldur komast hjá því“ sagði Paule. „Þessi óþekti, örfandi drykkur, er hættulegur þó hann sjo tekinn einu sinni — en í hvert sinn þar á eftir, getur fylgt því hætta, einkum ef hjartað er ekki sterkt“. „Nú, jæja. Þjer hljótið að vita það best sjálfir“, sagði Samuel hikandi. „En vitið þjer hvað þjer gætuð gert fyrir mig, Panle, ef þjer vilduð, hjartað í mjer er eins sterkt og í uxa, en finnið þjer bara slagæðina“. Paule gjörði það, og varð mjög undrandi. „Jeg hjelt áð þjer værað í Brighton hjá fiiður yðar“. „Það er jeg líka“, sagði Samuel. „En hann fer að hátta klukkan níu, og í gærkvöldi fór jeg til höfuðstaðarins til þess að fá mjer í staupinu og dansa ofurlítið. Jeg kom heim ldukkan fimm i morg- un. Jeg á að borða kvöldverð hjá hans hátign, Joseph frænda — og það er hátíðleg athöfn — enda- laus dýrð. Nú sjáið þjer sjálfir í hvaða ástandi jeg er. Mjer datt fyrst í hug að fara til kunningja míns, sem er efnafræðingur, en jeg vil þó heldur að þjer gefið mjer. eitthvað'. Paule kinkaði kolli. „Eruð þjer syfjaðir?“ spurði hann. „Jeg hefi ekki beint verið syfj- aður, þó er jeg það ef til vill. En jeg er búinn að taka fjóra „Asp- erin“-skamta, og jeg hefi ógnr- legan höfuðverk“. „Setjist snöggvast í þennan stól“, sagði Paule, „svo skal jeg blanda eitthvað handa yður í skyndi- Það mun ekki skaða yður neitt“, hjelt hann áfram meðan hann stóð og athugaði gest sinn, „þó þjer gætuð sofið augnablik. Svefninn færði taugum yðar hvíld“. Samuel rjetti höndina út eftir1 glasinu, saup úr þvi, og skyndi- lega sat hann þráðheinn í stólnuml „En hvað er þetta?“ lirópaði hann. „Jeg hefi þó ekki sofnað?“ Paule ypti öxlum. „Þjer hafið kannske aðeins gleymt yður á meðan jeg setti glösin frá mjer“, sagði hann. — „Hvernig líður yður núna?“ „Jeg er dálítið undarlegur, en alt öðru vísi en jeg var‘, sagði Samuel, og stóð upp. „Herra minn trúr! Fyrst svimaði mig, en það batnar sjálfsagt strax. Þakka yð- ur fyrir, Paule. Yerst að jeg gat ekkert fengið handa pabba. Nú líður mjer hetur. En sá árans fjöldi af bókum sem þjer hafið, maður“ sagði hann, þegar hann leit til haka frá dyrunum- „Yerið þjer sælir kunnin gi“. Meiislar afnrðir seldar í umboðssölu, Albert Obenhaupt. Hamburg 37, Klosterallee 49u Símnefni: Sykur. Hár Hefi altaf fyrirliggjandi hár við» íslensan búning. Verð við allra hæfi. Veril. GoHifoss. Laugaveg 5. Sími 3436,- HOTEL ROSENHRHHTS BERGEN. Centralt beliggende ved Tyskebrygg-en. Værelser m. varmt og koldt vann, tele- fon og bad. Rimelige priser.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.