Morgunblaðið - 08.10.1933, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ
Karlmanna-
Unglinga-
osr Drensfia-
Fermingar-
Skóla-
Ferming ar sky rtur.
Hvítar slaufur.
Enskar húfur, stórt úrval.
Fötin vel sniðin og nýjasta
tíska.
flsg. G. iunniaugsson
S Co.
Verðiœkhun.
Molasykur 30 au. % kg. Strau-
sykur 25 au. y2 kg. Sveskjur 75
au. y2 kg. Rúsínur, 75 au. % kg.
Epli, þurkuð, 1,50 y2 kg. Apri-
kósur 2,00 y2 kg. Komvörur og
— Búsáhöld með lægsta verði í
bænum.
Yersina
Símsnar Jiossonar
Laugaveg 33.
Sími 3221.
Nokkur
búsund krónur
gegn góðri tryggingu, lána jeg
þeim, sem útvegar mjer atvinnu.
Tilboð um atvinnugrein, kaup o.
fi. sendist A. S. í. fyrir 12. þessa
mán. merkt: „Atvinna“.
Verðlækkun enn.
Sjálfblekungar með 14
karat gullpenna á 5.00
Sjálfblekunga með ágætum
glerpenna á 3.00
Skrúfblýantar ágætir á 0.75
Bridge skrúfblýantar á 1.00
Spil, stór, ágæt, gylt á 0.60
Borðhnífar ryðfríir frá 0.75
Vatnsglös frá 0.25
Ávalt óýrast hjá
i. Eim
Bankastræti 11.
Því nota þeir, sem
ætíð biðja um það
besta, og mesta
þekkingu hafa á
vörum til bökunar,
ávalt
Lillu-bökunardropa
Af því þeir reynast
bestir og drýgstir.
Elly I* *orláksson, Itnnkastr. 111 .
Frk. Hrafnhildur Thors, Laug-. 70
— Milly Sigur.tSsson, SuÖurg. 12
— Sigríður Sætersmoen, Garðastr. 39
Stefán ISjarnason, Galtafelli:
Elís O. Guðmundss., c.o. Mjólkurfjel.
Hávarður Valdimarsson, co Liverpool
Árni Snævar, cand. ing., Vesturg.
Sisr. Skúlason, niag'ister:
Sig. Birkis, söngkennari
• Einar Jónsson, verkstj., c.o. Félagspr.
Þorleifur Gunnarsson, bóbandsmeistari
Dfdf Kjertilf:
Haukur Claessen
Frk. Helga Claessen
Addi Claessen
Guöni. Ganmlielsson, I.íekjarg. 6A:
Frú María Guðmundsd., Bergst.str. 6
— Kristrún Jósefsd., Lækjarg. 6A
— Kristín Guðmundsd., Gróðrarstöð
3Iorit* V, Ólafsson:
Síra Árni Sigurðsson, fríkirkjuprestur
Jón J. Auðuns, Hafnarskr.
Ól. B. Björnsson, kaupm., Akranes
Vegna rúsleysis í blaðinu urðu
mjög margar áskoranir, sem
fram voru komnar í gær, að bíða
og koma þær í næsta blaði.
Söngskemtun
Pjeturs Jónssonar.
Pjetur Jónsson ræðst aldrei
á garðinn þar sem hann er
lægstur. Söngskráin á fimtu-
dagskvöldið bar þetta með sjer.
Flest viðfangsefnin voru hvert
öðru stórfeldara og erfiðara.
Söngskráin endaði á Romerzáhl-
ung úr óperunni Tannháuser,
einhverjum erfiðasta söngbálk,
sem tenorsöngvara er fenginn,
til meðférðar. Eftir að hafa
sungið 6 stórar aríur úr ýrr
um óperum auk nokkurra ann-
ara auðveldari sönglaga, mundu
flestir söngvarar hafa hliðrað
sjer við að klykkja út með þessu
volduga söngverki. En Pjetur
er þannig gerður, að hann fær-
ist í aukana við erfiðleikana.
— í>að er í honum einhver forn-
norrænn hetjumóður, sem vafa-
laust hefir átt sinn ríka þátt í
vinsældum hans, sem Wagners-
söngvara. Hann gengur að söng
leiknum gunnreifur eins og
hann færi til vopnaþings. Hann
er hvorki ísmeygilegur nje við-
kvæmur, því síður væminn. Það
er einarðlegur, karlmannlegur
þróttur, sem einkennir söng
hans öllu öðru fremur.
Á söngskemtun hans á fimtu
dagskvöldið komu öll bestu
einkenni hans í ljós. Húsið var
nálega fullskipað og auðheyrt
á undirtektunum að menn kunnu
að meta söngvarann.
Emil Thoroddsen' Ijek undir
og leysti hlutverk sitt prýðilega
af hendi.
Munu flestir þeir, sem voru í
Gamla Bíó á fimtudagskvöld-
ið óska þess, að Pjetur Jónsson
láti bráðlega til sín heyra að
nýju.
Cis.
Blindraskólinn
Fyrsti blindraskóli á íslandi,
var settur föstudaginn 6. þ. m.
kl. 10 árdegis í samkomusal
Elliheimilisins. — Formaður
Blindravinafjelags Islands, Sig-
urður Sivertsen prófessor, setti
skólann. Skýrði hann frá tiMrög
um og undirbúningi að stofnun
hans, Iýsti þörfinni á blindra-
skóla hjer á landi og gerði
grein fyrir gildi skólamentun-
ar fyrir blinda menn alment.
Því næst talaði kenslukona skól-
ans, ungfrú Ragnheiður Kjart-
ansdóttir, og sagði frá ýmsu frá
dvöl sinni á blindraskólum er-
lendis.
í skólanum eru 4 börn, 2
stúlkur, önnur 16 en hin 10 ára,
og 2 piltar, 15 og 13 ára. Eitt
barnið er úr Reykjavík, en hin
utan af landi, úr Rangárvalla-
sýslu, Snæfellsnessýslu og frá
Akureyri, og eru þau í heima-
vist á Elliheimilinu.
Sennilegt er, að einhverjir
bætist síðar við fulltíða men|n
blindir, er læra vilja að hagnýta
sjer blindraletur.
Vinnustofa fyrir blinda menn
á öllum aldri verður mjög bráð-
lega opnuð í sambandi við
blindraskólann og er hún einn-
ig 1 Elliheimilinu. Hefir Stræt-
isvagnafjelag Reykjavíkur sýnt
Blindravinafjelagi íslands þá
velvild, að taka að sjer að flytja
alla þá blinda menn, er til
vinnustofunnar sækja, ókeypis
fram og aftur með vögnum sín-
um. (F.B.).
Væringjar
Annar fyrirlestur dr. Sigfúsar
Blöndals.
Síðari fyrirlestur dr. Sigfúsar
Blöndals bókavarðar um Vær-
ingjalíf í Miklagarði fjallaði
mestmegnis um Harald konung
harðráða og dvöl hans þar
syðra í þjónustu stólkonungs-
ins. Gerði dr. S. Bl. grein fyrir
frásögnum grískra sagnaritara
um Harald og Væringja hans,
og kemur sú saga furðuvel heim
við íslenskar sagnir um þetta
efni. Meðal annars las dr. S. Bl.
upp kafla úr grísku riti, þar
sem getið er Haralds og sumra
hreystiverka hans, og greint frá
því, að hann væri bróðir Ólafs
Noregskonungs. Að lokum sýndi
dr. S. Bl. margar myndir úr
Miklagarði, af mönnum, bygg-
ingum, götum og listaverkum
og til samanburðar myndir af
íslenskum vefnaði, þar sem
greinileg eru áhrif af bysantisk-
um stíl. Dr. Blöndal taldi þó,
að aðrir en Væringjar myndu
hafa átt drýgstan þátt í því, að
flytja grísk menningaráhrif til
Norðurlanda, því að þeir myndu
flestir hafa borið beinin þar
syðra, en fáir einir átt aftur-
kvæmt í átthagana.
Á morgun kl. 6 flytur dr.
Blöndal í Kaupþingssalnum
fyrsta fyrirlestur sinn (af þrem)
um pílagrímsferðir Islend-
inga til rómönsku landanna á
miðöldunum.
Dagbók.
I. O. O.F.3 — 1151098 = 8V* I.
Edda □ 593310107—1. Atkv.
Veðrið í gær: Suður af Reykja-
nesi er allstór lægð, sem hreyfist
A-eftir og veldur hvassri A-átt
og dálítilli rigningu við S-strönd
íslands. í öðrum landshlutum er
NA-gola o g víðast þurt veður.
Hiti frá 0—4 st. Suðaustanlands
mun verða nokkur úrkoma í nótt
en ljettir líklega til á morgun.
Veðurútlit í dag: Stinnings-
kaldi á NA. Úrkomulaust.
Útvarpið í dag: 10.40 Veður-
fregnir. 15.00 Miðdegisútvarp.
11
Víking-haf r amj öl
í 1/1 og 1/2 kg. pökkum.
Gerana-bygggrfón
í 1/1, 1/2 og 1/4 kg. pökkum, er hreinn, ódýr
og heilnæmur matur, ráðlagður af læknum- —
§imi 1-2-3-4.
Saltkjöt.
Eins og undanfarin haust fáum við valið dilkakjöt bæði í
hálfum og héilum tunnum. Kjötið kemur hingað um miðjan
þennan mánuð. — Sendið pantanir sem fyrst.
Eggert Kristjánsson & Co.
Sími 1400.
SSiatíœglieijbiainkur
Sztmsk fútaörcittsttii litutt
34 «£úbís Í300 Jtejjktaatk.
Fullkomnar vjelar. Nýjustn og hestu efni. Þaulvant starfsfólk.
10 ára reynsla.
15.30 Kvikmyndin „Tákn kross-
(Ragnar Kvaran). 17.00
íns .
Messa í fríkirkjunni. (Síra Árni
Sigurðsson). 18.45 Barnatími. (Arn
grímur Kristjánsson). 19.10 Veður-
fregnir. 19.20 Tilkynningar. Tón-
leikar. 19.35 Óákveðið. 20.00
Klukkusláttur. Tónleikar: Fiðlu-
sóló (Einar Sigfússon). 20,20
Erindi frá Væringjum, I. (Dr.
Sigfús Blöndal). 21.00 Frjettir.
21.30 Grammófóntónleikar: Nýju
íslensku plöturnar. Danslög til kl.
24. —
Útvarpið á morgun: 10,00 Veð-
urfregnir. 12.15 Hádegisútvarp.
15.00 Veðurfregnir. 19,00 Gram-
mófóntónleikar. 19,10 Veðurfregn-
ir. 19,20 Tilkynningar. Tónleikar.
19,35 Einsöngur. 20,00 Klukkusl.
Tónl. Alþýðulög (Útvarpskvart-
ettinn). 20,30 Erindi: Frá útlönd-
um. (Sr. Sig. Einarsson). 21,00
Frjettir. 21,30 Grammófóntónleik-
ar. Beethoven: Krentzer-Sonate
(Thibaud & Cortot).
Morgunblaðig er 12 síður og
Lesbók.
Þórhallur Þorgilsson heldur uppi
námskeiðnm í rómönskum málum
í vetur eins og að undanförnu.
— Vegna viðskifta vorra við
Suðurlandaþjóðir, er ungum og
upprennandi kaupsýslumönnum
íslenskum nauðsyn að læra mál
þessi.
Daufdumbir töldust hjer á landi
við manntalið 1930 76 alls, 45
karlar og 31 kona. Er það minna
heldur en við manntalið 1920. —
Þeir eru á öllum aldri, en flestir
ógiftir. Þó vorn 6 karlar og 4
konur gift.
Fábjánar eru þeir taldir i mann-
tali, setn frá fæðingu eða ung-
barnsaldri hafa verið vitfirringar.
Við manntalið 1930 voru þeir tald-
i ir 101 og er það sama tala og við
næsta manntal á nndan (1920).
Komu 0,9 á hvert þúsnnd lands-
manna 1930, en 1,1 árið 1920.
Mesta mál nútímans heitir fyr-
! irlestur, sem Arthnr Gook flytur
í Varðarhúsinu kl. 8,30 í kvöld,
Allir velkomnir.
Mannfjöldi á fslandi. í árslok
' 1932 eru íbúar alls landsins taldir
111.555, en voru við næstu áramót
á undan 109.844. í sveitnm fækk-
aði fólki dálítið á árinu og kenrur
aukning fólksfjöldans eingöngu
niður á kaupstöðunum. Mannfjölg
unin er svipnð og undanfarin ár.
En samkvæmt bráðabirgðaskýrsl-
um um fædda og dána árið 1932,
hefði fjölgunin samt ekki átt að
vera nema 1455. Mismunurinn 256
ætti því að hafa bæst við utan frá
(útlendingar fluttir til landsins og
íslendingar komnir aftnr frá út-
löndum). Þess ber að geta, að
fólksfækkunin í sveitnnum stafar
j af breyttri umdæmaskipun. Árið
j 1931 var Skildinganes talið með
j Gullbringu- og Kjósarsýslu, en
• 1932 var það innlimað í Reykja-
I víkurkaupstað. Ef Skildinganes er
i talið með kaupstöðunum 1931, þá
' er mannfjölgun þeirra aðeins 1196
! manns, en í sýslunum hefir fólki
fjölgað um 515 manns. í sumum
kauptúnum hefir fólksfjölgun orð-
, ið meiri heldur en í Reykjavík, t.
! d. Keflavík og Þingeyri 8.5%,
, Búðareyri 7%, Flateyri 6.4%,
. Akranesi 5.9%, Húsavík 4.3% og
Borgarnesi'3.8%. (Eftir Hagtíð-
indum). . 1
Leiðrjetting. t blaðinu í gær var
sagt. frá því að Carl Tulinius vá-
tryggingastjóri hefði farið með
íslandi norður, en það er ekki
rjett, heldur var það frændi hans,
Carl Tulinius útgerðarmaður á Ak
ureyri.