Morgunblaðið - 02.11.1933, Síða 6

Morgunblaðið - 02.11.1933, Síða 6
8 MORGUNBLAÐIÐ stráka til þess starfa. Þetta gekk nú alt saman nokkurn veginn, og um kvöldið voru ráðn- ir 12 strákar til þess að bera út blaðið framvegis. Nú var eftir að ganga frá næsta blaði og gekk það fram á nótt. Var mað- ur þá orðinn þreyttur en ánægð- ur samt, því að dagurinn þótti spá góðu um framtíð blaðsins. Skr if borðskaup. Morgunblaðið var víst orðið tveggja ára gamalt þegar skrif- borðsleysinu varð ekki unað lengur. Var þá auglýst í blað- inu sjálfu eftir skrifborði. — 3ama daginn kemur aldraður maður inn í skrifstofu blaðsins/ Hann var með húfuna í hendinni og tvísteig lengi þegjandi á gólf- inu. Finsen spurði hann um er- indi. Jú — hvort blaðið hefði ver- ið að auglýsa eftir skrifborði? — Já, já, eigið þjer skrif- borð? Hvernig er það? Hvað á það að kosta? Karlinn stóð þegjandi nokkra hríð, tvísteig og sneri húfunni milli handanna. Að lokum sagði hann með hægð og nokk- uð drýgindalega: — Jeg á skrifborð — en jeg vil ekki selja það. Og með það fór hann — lík- lega ánægður út af því að hann átti það, sem Morgunblaðið átti ekki. Svo fór um þau skrifborðs- kaup. Máttur auglýsinga. Það var rjett fyrir jólin og kaupmenn voru að keppast við að undirbúa jólasöluna. Finsen spurði þá verslunarstjóra nokk- urn að því hvort hann ætlaði ekki að auglýsa í blaðinu fyrir jólin. Hinn kvað nei við, sagði að þessar auglýsingar í blöðun- um gerði ekki hið minsta gagn, fólk læsi þær ekki, og þar fram eftir götunum. Auk þess vissi fólk ósköp vel hvar það ætti að kaupa hvað eina. Þeir stældu nokkuð um gagn auglýsinga og að lokum bauð Finsen honum að hann mætti auglýsa ókeypis í Morgunblað- inu, og á hvern þann hátt sem hann vildi, einhverja þá vöru, sem hann teldi óútgengilegasta. Ef sú auglýsing bæri einhvern árangur skyldi hann setja stóra auglýsingu í Morgunblaðið á eftir. Þetta varð að samkomu- lagi og verslunarstjórinn kom með örlitla auglýsingu um rottugildrur. Maður skyldi nú ætla að rottugildrur væri eng- inn jólavarningur. En verslun- in hafði legið með birgðir af þeim í mörg ár, og var það ekki undarlegt, þar sem þetta var aðallega álnavöruverslun. En viti menn — daginn eftir kemur verslunarstjórinn með stóra auglýsingu í Morgunblað- ið. Hann var alveg orðlaus út af því hvaða áhrif auglýsingar gæti haft. Þama höfðu allar rottugildrurnar selst á svip- stundu, skömmu eftir að blaðið kom út! Fyrsta myndagerðin. Þegar Júlíana Jónsdóttir í Dúkskoti myrti Eyólf bróður sinn, fekk Morgunblaðið Bang, bíóstjóra, til þess að teikna og skera út í ,,linoleum“ myndir af Dúkskoti, bæði utan og innan. Ljósmynd var fengin af Júlí- önu til þess að gera myndamót eftir, en engin mynd var til af Eyólfi. Jeg þóttist muna eftir karlinn og teiknaði mynd af honum eftir minni, og Bang skar hana í ,,linoleum“. En sama daginn, sem myndin kom í blaðinu, var jeg á gangi í Aðalstræti, og þar mætti jeg karlinum, sem jeg helt að væri Eyólfur. Var hann Ijóslifandi og gott ef hann er ekki enn á lífi! Myndin, sem kom í blaðinu af Eyólfi þótti hálf rosaleg og honum lítill vegsauki að henni. Því var það lengi á eftir, þá er unglingar vildu hafa 1 sem stærstum hótunum hver við annan, að þeir sögðu sem svo: — Jeg skal setja mynd af þjer í Morgunblaðið h......... þitt! Kerling og neðanmálssaga. Fjöldi fólks var mjög sólg- inn í neðanmálssögur þær, sem Morgunblaðið birti fyrstu árin, en eitt man jeg glöggvast dæmi þess, hvernig sumir gátu lifað og hrærst í því, sem gerðist í sögunum. Það var sumarið 1916. Þá var í blaðinu saga sem hjet faðmi heimskautsnæturinnar“. Segir hún frá farþegaskipi, sem fórst við Spitzbergen. Komust þar aðeins fjórir farþegar af, þrír karlmenn og ein kona, þýsk barónsdóttir, sem einum þessara þriggja leist mjög vel á. Þau komust í Rússakofa. Þar var kveiktur upp eldur og bar- ónsdótturinni skipað að fara úr hverri spjör og þurka föt sín við eldinn. Karlmennirnir heldu til sjávar. ,,Og um leið og hún færði sig úr kniplingaskreyttum nærserk sínum, sá hún nakinn mann fleygja sjer í sjóinn, út af fremsta nesinu og synda hratt til hafs“. Það var sögu- hetjan, sem synti út í skipsflak- ið til þess að reyna að bjarga einhverju. Þetta stóð í Morg- unblaðinu 29. ágúst. I blaðinu aaginn eftir segir frá för hans um borð og þá lauk með þessu: ,,Hann var á leiðinni upp á þil- farið með hálftunnu af öli, en þá varð honum svo hverft við að hann staðnæmdist. Hvað var nú á ferðum? Undir fótum sjer heyrði hann eitthvert einkenni- legt marrhljóð". Þennan dag var jeg einn á afgreiðslu blaðsins um miðjan dag. Kemur þá þangað roskin kona til þess að greiða áskrift- argjald sitt. Meðan jeg var að leita í bókunum að nafni henn- ar og skrifa kvittun fyrir gjald- inu, var hún að lesa Morgun- blaðið í fremra herbergi. Alt í einu rekur hún upp hljóð og biður guð að hjálpa sjer. Jeg stökk á fætur og spurði hvort nokkur væri að henni. „Nei, en það er hjerna í sögunni. Skipið er þó líklega ekki að farast?“ Jú, jeg helt nú það. Þá bað hún enn innilegar fyrir sjer, en þagði síðan um stund og virtist íhuga málið. Heyri jeg svo að hún segir við sjálfa sig: „Nei, hann kemst af — ekki væri sagan ef enginn væri til að segja frá“. Og litlu síðar: „Já, hann kemst af, og þau bæði. Þarna er alt undir eins hjá þeim báðum. Þarna voru þau bæði allsber á sama tíma í gær!“ Ófriðarskeytin. Þegar ófriðurinn mikli byrj- aði og öll Norðurálfan var svo að segja komin í bál og brand, var Morgunblaðið sjer úti um allar þær frjettir sem hægt var að ná í. — Ljet það sjer ekki nægja þau símskeyti, sem það fekk frá útlöndum, heldur snapaði það saman öll þau skeyti, sem komu til kaupsýsl- umanna hjer í bæ. Þau skeyti bárust úr öllum áttum og gáfu mörg þeirra sjerstakar upp- lýsingar um stríðið. Öll þessi skeyti voru jafnharðan límd upp hjá dyrum ísafoldar, svo að allir gæti sjeð þau, og síð- an birtust flest þeirra í Morg- unblaðinu. Mörg af skeytum þessum þóttu brosleg, en Morg- unblaðið skeytti því ekki. Það stakk engu skeyti undir stól. Það var gert til þess að styggja ekki viðkomendur, því að vel gat verið að þeir fengi ná- kvæmari skeyti síðar, og þá var gott að eiga þá að. Sjer- staklega var það eitt skeyti sem menn skopuðust að. Það var frá Hilleröd, um að ált væri rólegt þar. Varð þetta síðan máltæki í bænum: „Alt rólegt í Hille- röd“. En mjer þótti lítið betra skeytið, sem stjórnarráðsskrif- stofan í Kaupmannahöfn sendi stjórnarráðinu um þær mundir sem herbi esturinn varð: „Horf- urnar voðalegar!“ Ekkert ann- að. En sama daginn fengu kaupsýslumenn skeyti um það, að bannaður væri komútflutn- ingur frá Þýskalandi, Rússar og Þjóðverjar hefði kallað sam- an allan sinn her, borgaraleg lög verið upphafin í Frakk- landi, en herlög sett í staðinn, o. s. frv. Ensku skeytin. Þegar hinar opinberu ensku Jkynningar fóru að birtast í Morgunblaðinu, fell það vana- lega í minn hlut að þýða þær. En Mr. Cable, sem þá var út- sendur ræðismaður Breta hjer, vændi mig um það að draga fremur taum Þjóðverja en Bandamanna og grunaði mig því um græsku, að jeg mundi þýða skeytin Þjóðverjum í vil, eða að minsta kosti draga úr hið versta, sem um þá var sagt. Vildi hann því að jafnaði fá að lesa þýðingarnar, áður en þær birtust í blaðinu. Cable skildi vel íslensku og var gott við hann að eiga, en verra var þeg- ar Olsen kom, norskur upp- belgingur ,sem með einhverjum óskiljanlegum ráðum hafði komist í þjónustu utanríkist- stjórnar Breta. Nú var það einn sumar sunnudag að þeir Finsen og Mr. Cable fengu sjer hesta og fóru upp í sveit, en Olsen var eftir. Jeg fekk skipun um að sýna honum skeytin, þegar jeg hefði 1 þýtt þau. Þetta gerði jeg. Olsen Aðal endurbætur á „1934 vagninnm í öllum stærðum: „Synchromesh gear“ er ábyrgist hljóðlausa »gear« skiftingu Hljóðlaust 2., 3. og 4. „gear“. Vjelin fest í gúmí fóðringum. Kross styrkt grind. Ljósmerki. 12 volta rafspenna á »AUSTIN 10«. Aflmeiri vjel í »AUSTIN 7«. Auk þess eru margar smá endurbætur. \ sem auka þægindi og bæta vagninn framleidd af heims- firmanu COLGftTES andlits- og handsápa Mýkir húðina. Mefir þægilegan ilm. Drjúg í notþun Fæst allstaðar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.