Morgunblaðið - 02.11.1933, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 02.11.1933, Qupperneq 10
12 MORGUNBLAÐIÐ nema það, að atburðirnir hefðu gerst. I>á varðaði ekkert um það hvemig atburðir gerast, varðaði ekkert um nánari atvik, lýsingar. Þeir voru orðnir svo vanir þeirri frjettamensku, er fór ekki lengra, að þeir gerðu ekki hærri kröfur. Það er lítilf jörleg blaðamenska að segja aðeins frá því, að at- burðir hafi gerst, án þess að láta nokkrar lýsingar fylgja. Vandi frjettamannsins byrjar þá fyrst, er til lýsinganna kemur. Þegar frjettamaðurinn er svo heppinn að vera sjálfur sjónar- og heyrnarvottur, á hann að geta haft efnið á valdi sínu. Sjást þó stundum hörmuleg mistök, þó slík sje aðstaða frjettamanns. Stundum er það afsakanlegt. Þegar óvæntir stórviðburðir ger- ast, svo sjónarvottar missa meira og minna rólegt jafnvægi, fer at- hyglisgáfan oft óendanlega mik- ið á ringulreið. Það er þá e. t. v. ekki fyr en með langri íhugun og yfirvegun, að samhengi og hinn rjetti atvikaþráður fæst í meðvitund sjónarvotta. Má í þessu sambandi minna á, hve geisimiklum erfiðleikum það var bundið, að fá skýr og skil- merkilega greinargerð, um at- burðina sem hjer gerðust 9. nóv- ember í fyrrahaust, er kommún- istar og samherjar þeirra hleyptu upp bæjarstjórnarfundinum í Goodtemplarahúsinu, og lögreglu- lið bæjarins hlaut hin alvarleg- ustu meiðsl. Þá skorti þó ekki sjónarvotta. Þeir voru í hundr- aðatali viðstaddir. Þeim bar ekki saman, jafnvel þótt þeir vildu satt eitt segja. Til slíks eru ótal dæmi og alkunn. Erfiðleikar blaðamanna, sem eiga að fá rjett samhengi og skrifa frásögn samdægurs eða svo að segja á svipstundu, eru miður ljósir almenningi. Það eru gamansamar tilviljanir, þegar menn hjer, sem nefna sig blaða- menn, en árum saman reyna aldrei á sig, til að greina skil- merkilega frá atburðum, láta ekki annað frá sjer fara frjetta- kyns en margra daga gamlan sparðatíning. Þeir gera stund- um gleiðgosalegar ásakanir í garð þeirra manna, sem leggja á sig vandasaman frjettaflutning. Sú er tækifæri til þess að eignast reglulega vandaðan og ódýran híl. Verð á nýjasta FORD er í dag sem hjer segir: Fólksbílar: 5 m. drossía 2 dyra, 4 cyl. kr. 4190.00 og kr. 4300.00 5 m. I I I — 4525.00 — — 4750.00 5 m. — 2 — 8 — — 4910.00 — — 5115.00 5 m. — 4 — 8 — — 5340.00 — — 5560.00 7 m. _ 4 — 4 — — 6055.00 — — 6330.00 7 m. I I 00 I — 6305.00 — — 6580.00 Vjjrubílar: Model B, 106" 4 cyl. kr. 2830.00 — 118" eða 122" 4 — — 3205.00 — 106" 8 — — 3220.00 — 118" eða 122" 8 — — 4105.00 — AA, 131" 4 — — 3480.00 Fordson BB 131" 4 — — 4315.00 — 131" 8 — — 4705.00 157" 4 — — 4430.00 — 157" 8 — — 4820.00 \ FORD JUNIOR yfírbygðar vörabílí kr. 2700.00. Komið á Lækjartorg 1 og þá fáið þjer allar frekari upplýsingar. Vísið til þessarar auglýsingar. P. STEFÁNSSON. Hjer úti á íslandi, í fólksfæð- inni, fátækt blaða, og fjarlægð heimsviðburða er auðsætt, að hið algilda fullkomna blaðamensku- starf, verður aldrei rækt sem skyldi, að íslensk blöð eru svo óendanlega langt frá því að hafa mátt til að leysa hið víð- feðma hlutverk blaða. Mest alúð er að sjálfsögðu, einkum fyrst í stað, við það lögð, að láta blöðin flytja fregnir um alt sem innlent er, og máli skift- ir fyrir einstaklinga og alþjóð. Með því að leitast sífelt við að segja sem mest frá innlendum viðburðum og öllum nýjung- um, sem gerast á sviði andans mála og veraldlegra fram- fara, á sviði uppeldis og í- þrótta og ótal margs annars, er unnið að því, að örfa og glæða hraða daglegra framfara, þjóð- fjelagsþróunina. fenglegra iðukasti heimsviðburð- anna. Eftir því sem blöðunum tekst betur, að vekja lesendur sína til fróðleikslöngunar um fjölbreytt- ari og fjarlægari viðburði, eftir því verður svið það stærra, sem lesandinn getur vænst áhrifa frá, þeim mun betri verða þroska- skilyrði hans. ! • Þegar jeg afrjeð, fyrir tæpum tíu árum, að gerast blaðamaður, átti jeg eitt sinn tal við kunn- ingja minn í Danmörku. Hann er kunnugur blaðamensku og blaðaútgáfu. Hann fremur latti mig en hvatti til þess að leggja út á þá braut. Hann komst, man jeg, að orði á þá leið, að út úr blaðamenskunni losnaði jeg aldrei. Hans skoðun var þessi: Sá sem gerist blaðamaður með lífi og sál, hann verður heillað- ur af starfinu. Blaðamenskan verður líf hans, andrúmsloft hans, starfið slítur kröftum hans öll- En því má heldur ekki gleyma, að lögð skal sívaxandi áhersla á, að flytja frjettir af hinu stór-!um. — Af þekkingu minni á íslenskri blaðaútgáfu hafði jeg ekki litið svo á. Hjer hefir ritstjórn blaða oft verið aukastörf, íhlaupaverk manna, sem hafa haft öðrum hnöppum að hneppa, og farið hafa frá því starfi við fyrsta tækifæri. Fyrir löngu hefi jeg fallist á, að skoðun kunningja míns var rjett og rjettmæt. Sá maður, sem á annað borð gefur sig við blaðamensku, á fyrst og fremst að ganga að því starfi heill og óskiftur. Annars er hann ekki blaða- maður. Hann á að standa í straum- þungri móðu daglegra viðburða, og leitast við að greina samstund is frá því, sem fyrir hann ber, og hann veit, að gerist fjær og nær. Blaðamaðurinn sem frjettir flyt ur, á að vera tilfinninganæmur, alsjáandi, ópersónulegur áhorf- andi hinna daglegu viðburða. — Hann á að leiða lesendurna við hönd sjer og gefa þeim útsýn yfir alt, sem er að gerast, gera þá þátttakendur í viðburðunum, og kenna þeim að greina tildrög þeirra, orsakir og afleiðingar. Engin fyrirhöfn á að vaxa blaðamanni í augum, eh getur bætt frásögn hans. Og þó hann að kvöldi sjái, hvað lítið hefir áunnist, hve ábótavant er öllu því, sem hann vann í dag fyrir lesendur sína, verður hann að vakna að morgni með sama áhugann, sömu viss- una og í gær um það, að hver dagur færi hann í einhverju nær því marki, að umbæta starf hans, blað hans. Á hverjum degi verður hann að finna til þess, að blaðamensk- an, hin daglega þátttaka í öllu því, sem gerist og máli skiftir, er gróandi þjóðlífsins á öllum svið- um — er lífið sjálft. Leggið leið yðar um Hafnarstræti í EDINBORG Fullkomnasta gleruöru og bús- öhalöauerslun lanösins. Óöýrar og uanö aðar uörur. Eöinborg «

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.