Morgunblaðið - 02.11.1933, Side 14
16
MORGUNBLAÐIÐ
Mánudagar. Ótrúlega oft kem
ur það fyrir, að bæjarbúar segja
við þá, sem við ritstjórn Morg-
unblaðsins vinna, að þeir hafi
það óvenjulega náðugt með tvo
hvíldardaga í viku, því, eins og
allir vita, blaðið komi ekki út á
mánudögum. En þessir menn
hugleiða það ekki, að blaðið
verður að fara í pressuna á mið-
nætti, til þess að vera fullprent-
að og komið út um bæinn að
morgni. Bæjarbúum myndi finn
ast ,,mánudagsblöðin“ vera seint
á ferðinni, ef að þeim væri ekki
unnið fyrri en samdægurs. Að
blaðið kemur ekki út á mánu-
dögum kemur til.af því, að fólk
það, sem við ritstjórn og prent-
un starfar, hefir frí á sunnudög-
um. Afgreiðslufólkið og ,,sendi-
sveitin“ verður aftur á móti að
vinna alla sunnudagsmorgna.
Fyrir 20 árum.
Eins og áður er sagt, hafði
Morgunblaðið þegar frá önd-
verðu á sjer annað snið heldur
en hin blöðin. Var það eðlilegt,
þar sem það lagði mest kapp á
að birta frjettir úr öllum átt-
um. Af frjettum í fyrsta tölu-
blaðinu, 2. nóv. 1913, má telja:
Brunmnál Reykjavíkur.
Samkvæmt skýrslu brunabótaf jelags-
ins naxrt vátryggingaiuppbæð búsa í
Reykjavík bjá fjelaginu þ. 1. október
1912 tæpum 12 miljónum króna. Iðgjalds
upphæðin var þann dag kr. 10.642.27.
Tala vátrygginga 1228. A árinu síðasta
bafði vátryggingarupphæðiti öll aukist
um rúma hálfa miljón króna (Kr. 511.-
729). Greiddar skaðabætur voru á ár-
inu kr. 21.092, af þeirri upphæð krónur
19.850 fyrir eitt hús (hús Sturlu Jóns-
sonar).
Rafveita Seyðisfjarðar. Þann 18. okt.
var haldin ljósahátíð í Seyðisfirði, vígslu
veisla rafveitunnar; voru þá kveikt
fyrsta sinni rafljós Seyðisfjarðar, og
mikið um dýrðir, eins og nærri má geta.
Aðalræðuna hjelt Jóhannes Jóhannesson
bæjarfógeti, en margir aðrir töluðu. Val-
urinn var staddur í Seyðisfirði og voru
foringjar hans boðnir. Ekki minna en 7
kvæði voru ort við þetta tækifæri og
sungirt í veislunni, 3 eftir Sig. Arn-
grímsson og 4 eftir Karl Jónasson.
Framfundur. Hann stóð fram til kl.
1 í nótt. Ræðumenn v.oru: Agúst
Bjamason, Jón Þorláksson, Jón Ólafs-
son, Lárus Bjarnason og Eggert Gla-
essen. Fyrst var borin upp tillaga frá
Eggert Claessen svohljóðandi: „Með
því að fundurinn telur Hannes Hafstein
hæfastan núlifandi Islendinga til ráð-
herra stöðunnar, lýsir hann megnri óá-
nægju yfir tilraunum þeim, er gerðar
voru á síðasta Alþingi af hálfu nokk-
urra Heimastjómarmanna, þar á með-
al þingmanna Reykjavíkur, til þess að
veikja stöðu hans og bola honum úr
sessi’L Var hún samþykt með 156 atkv.
gegn 85. Þá var borin upp svohljóð-
andi tillaga af 12 mönnum: „Heima-
stjómarfjelagið „Fram“ lítur svo á,
að Heimastjórnnrflokkurinn á Alþingi
1913 hafi í öllu verulegu fylgt stefnu
fjelagsjns, og að meðlimir þess megi
ekki vera í öömm pólitískum flokk-
um“. Var hún feld með 146 atkv. gegn
77. —' Róstusamt hafði verið í meira
lagi í fundarbyrjun við dyrnar —
ryskingar og handalögmál.
Tekjii- og skattskrá. I blaðinu birt-
ist skrá yfir tekjur og eignaskatt allra
þeirra bæjarbúa, sem höfðu 2000 kr.
árstekjur eða meira.
Fisksaian. Breskt gull drífur að land-
inu þessa dagana. Nýskeð seldi Bragi
fyrir 12.240 kr„ Ingólfur Arnarson
fyrir 5.760 kr„ Eggert Ólafsson fyrir
rúml. 7.400 kr„ Apríl fyrir 6.840 kr„
Maí fyrir nær 6.400 kr„ ísafjarðar-
botnvörpungurinn fyrir nærri 10.700
kr.
Svell á Austurvelli. Skautafjelagið
hefir sótt um það til bæjarstjómarinn-
ar að mega láta gera ís á Austurvelli
í vetur. Verður málið ' rætt á næsta
bæ j arst jórnarf un di.
Þyngsti sauður, sem skorinn hcfir
verið í Sláturhúsinu í haust, var frá
síra Jóni Thorstensen á Þingvöllum.
Sltrokkurinn 68 pund.
Gjörir silkisokkana
ENDINGARBETRI
Slæmt þvottaef ni getur un»
nið fíngerðum silkisokkum
meira tjón en nokkura vik-
na notkun. Því venjuleg
sápa hefir skaðleg áhrif á
viðkvæma silkiþræði. Sok-
karnir endast mörgum vi»
kum lengur, ef þeir eru
aðeins kreistir upp úr
volgu Lux löðri, með
þeirri þvotta aðferð halda
þeir einnig lögun sinni og
lit. Það er Lux, sem
gefur sokkunum endin-
guuö-
BIÐJIÐ UM
FÍNGERÐA
LUX
Hinir nyju Lux spæmr eru
svo fingerðir og þunnir að
þeir leysast samstundis upp
í þykkt hreinsandi löður. Það
þarf minna Lux — og það
skúmar enn fyrr. Það er
spamaður a4 kaupa finna Lux
og sem er 1 stærri pökkum.
•)
M-LX 398-047A lð LSVBR BROTHBRS LIMITED, PORT SUNLIGHT, tNC.LANO
REFANETIN
verða að vera vönduð að allri gerð,
ef þau eiga að halda þessum dýrum.
Við höfum síðastliðin 10 ár flutt til landsins
hin bestu og vönduðustu refanet, sem fáanleg
eru á heimsmarkaðinum. Flestar stærstu og
vönðuðustu refagirðingarnar hjer á lanði
eru frá okkur.
Leitið tilboða hjá okkur, áður en
þjer kaupið efni til refagirðinga.
nilðlkirnelao Reykiavikur
Sími 1125 (sex línur).
Símnefni: Mjólk.
fíunnar bankastjðri Hafstein frá
Færeyjum er nýkominn hingað til bæj-
arins. Dvelur hana hjer aöallega til þess
að kaupa þilskip ■ fyrir Færeyinga. Haf-
stein hefir keypt 9 af skipum Edinhorg-
arverslunarinnar. ;
Klingenberg konsfdl varð fimtugur í
fyrradag. Hafði hann boð mikið inni
þann dag fyrir landa sína og nokkra
aðra kunningja.
Dúmw í gjaldkeraniálinu er væntan-
legur á morgun.
I þessu blaði voru líka greinir.
um Leikhúsið (um leikinn Alt
Heidelberg, sem leikinn var kvöld
ið áður), frásagnir um myndir
kvikmyndahúsanna, frjettir af
löndum erlendis (Guðm. Kamban
og Jóni Stefánssyni málara), sím
skeyti frá Akureyri og ísafirði
og margt annað.
Kanpmeun og kanpfjelfig:
StrausvKur og Melis
væntanlegur með Brúarfossí.
Gjöríð pantanír sem fyrst.
H. Benediktsson & Co.