Morgunblaðið - 07.02.1934, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 07.02.1934, Blaðsíða 3
Miðvikudaginn 7. febrúar. MORGU'NBLAÐH) 3 DTSHiH stendur ylir bessa dagana hiá Marteini iinarssyni i Go. Dalaðier reynir að ðraga úr æsingunum Stjörn hans íær traustsyfirlýsingu Herlið verndar þingið. Stavisksi-málið í nefnd varð Daladier að hætta við að lesa yfirlýsingu sína. Var þá á- kveðið að fresta þingfundum að svo stöddu. \ I Þingvemd með vjelbyssum og brynvörðum bifreiðum. Sjerstakar ráðstafanir voru gerðar til þess að koma í veg fyrir óeirðirnar á meðan umræð- ur fóru fram á þinginu í dag. Var sent herlið, vopnað vjelhyss- um og brynvörðum bifreiðum til Parísar. — Er mikil æsing meða! íbúa borgarinnar. Lausafregnir frá París . í gærkvöldi bárust þessar fregnir frá París. ógurlegar æsingar í París. Lögreglan skaut úr vjelbyss- um á múginn á götunum um hverfis þinghöllina. Sextíu lögreglumenn fjellu í bar- daganum. Valkestir á götun- um eins og á vígvöllum ó- friðarins. Herlið heldur vörð um þinghöllina. Þingmennimir komust ekki út úr þinghöllinni. Skráning atwinnulausra. Atvinnuleysi minna en í fyrra. Dagana 1.—3. febrúar fór fram skráning atvinnulausra manna hjer í bænum og gáfu sig fram 554, þar af 5 konur. Til jafnaðar höfðu þeir verið atvinnulaustir 52,6 daga seinasta ársfjórðunginn. Til samanburðar má geta þess, að yið skráninguna um þetta íeyti í fyrra gáfu sig fram 643, þar af 3 konur, og höfðu þeir til jafnaðar verið atvinnulausir 54.6 daga seinasta ársfjórðunginn. Og í hittifyrra gáfu sig fram 654 og höfðu þeir að meðaltali verið atvinnulausir 60.7 daga um ársf jórðunginn. Eftir þessu fer atvinnuleysi minkandi í bænum. Bæði fækkar 1 þeim, sem gefa sig fram og eins styttist meðaltíminn, sem þeir hafa verið atvinnulausir. Árið 1932 hafa 39.697 dagsverk farið forgörðum, en núna 10,500 dagsverkum færra. Má því segja að atvinnuleysi hafi minkað um A4 síðan 1932. --------------- ■5í'S@#sI«íss{® fer í kvöld klukkan 10 í hraðferð vestur 0g norður. Farseðlar óskast sóttir fyrir kl. 2 í dag. “Brnarfess** fer væntanlega annað kvöld kl. 10 um Vestmannaeyjar til Leith 0g Kaupmannahafnar. Farseðlar óskast sóttir fyrir kl. 2 á morgun. Frá skattsfofunni Frestur til að skila fram- tölum rennur út kl. 12 í nótt Daladier forsætisráðherra Frakka (í flugbúningi). Myndin var tekin þegar ráðherrann var nýlega að skoða vígi á landmærunum. Berlin, 6. febr. FÚ. Æsingar miklar og óeirðir urðu í París í gærkvöldi, gegn frönsku stjórninni, og varð lögreglan víða að tvístra. mannfjöldanum. Mestar urðu æsingarnar í Champe Elyseés, og varð að kalla herlið þangað, en 0:singamenn hjeldu sig þar í ná- grenninu fram eftir allri nóttu. London 6. febr. FÚ. Daladier forsætisráðherra flutti í dag boðskap til Parísarbúa, þar sem hann bað þá að gæta skyn- seminnar, og vera ekki með neinar æsingar, og varaði þá við að gleyina aðalat.riðunum — sem væri tilraun frönsku stjórnarinn- ar til þess að komast fyrir rætur Staviski hneykslisins — vegna aukaatriða og æsinga. Hann minti þá á, að ráðstafanir stjórnarinn- ar miðuðu að því einu, að kom- ast að sannleikanum í fjársvika- málunum í Bayonne, og á þann hátt að hreinsa til í rjettarfars- legu lífi þjóðarinnar, en einmitt þessa hefði Parísarbúar, ásamt allri frönsku þjóðinni, krafist. Staviski málið saltað í nefnd. Þá sagði Daladier, að hann myndi fara fram á það við full- trúadeildina, að sett væri rann- sóknarnefnd í Staviski málinu, undir eins, en síðan myndi þingið snúa sjer að öðrum viðfangs- efnum, á meðan nefndin væri að vinna sitt starf. Hann minti á það, að önnur máléfni biðu úrlausnar, svo sem eins og fjárlögin, seiú yrðu að vera afgreidd fyrir marslok. Ann- ars yrði 18 mánaða starf fimm stjórna_ að engu. Bændur biðu eftir því að geta selt kornvörur sínar, verkamenn horfðu fram á minkandi sparisjóði og áfram- haldandi atvinnuleysi nema eitt- hvað væri að gert, og um þetta alt þyrfti stjórnin að hugsa. Franska stjóm vill frið. Þá sagðist forsætisráðherra einu sinn enn ætla að nota tækifærið til þess að fullvissa bæði frönsku þjóðina og allan almenning um einlægan friðarvilja Frakklands. Kjörorð stjórnarinnar í utanríkis- málum væri: alþjóða samvinna, og öryggi heima. fyrir. Frakkland hjeldi trygð siuni við Þjóðabanda- lagið og vináttu sinni við aðrar þjóðir. Daladier fær traustsyfirlýs- ingu í þinginu. Að loknum boðskap forsætisráð- herrans, var borin fram trausts- yfirlýsing á stjórnina í fulltrúa- déildinni, og var hún samþykt með 300 gegn 218 atkv. Meiri ólæti í þinginu en nokkru sinni áður. London 6. febr. UP. FB. United Press. F.B. Þegar Daladier var að lesa yfir- lýsingu sína var gerður svo mik- ill hávaði í fulltrúadeildinni, að menn muna ekki önnur eins óp og læti á franska þinginu, enda Ayarp fll Islendinga > frá sljórn tslensku vik annap á Swðisrlandi. í samráði við stjórn ísl. vik- unnar á Norðurlandi höfum vjer ákveðið að beita oss fyrir því, að haldin verði ísl. vika um land alt dagana 22.—29. apríl n. k. Vjer heitum því hjer með á alla íslendinga, að leggja hönd á plóginn með oss, til þess að gera starfsemi þessa sem áhrifa mesta. — Alþingi og ríkisstjórn hafa viðurkent nauðsyn starf- seminnar með því, að veita nokk urn styrk til stuðnings henni á þessu ári, og enginn íslendingur gengur þess dulinn, að oss getur verið það lífsnauðsyn, að til- einka oss kjörorð ísl. vikunnar, „Notið íslenskar vörur og íslensk skip“, og fara eftir þeim. Allar þjóðir keppa nú að því, að búa sem mest að sínu, hvaða þjóð mundi það nauðsynlegra en einmitt oss Islendingum. Skólastjórar og kennarar um land alt. Ljáið oss liðsinni yðar og notið tímann þar til vikan hefst, til þess, að glæða áhuga nemenda yðar fyrir þessu nauð- synjamáli, því, „Ef æskan vill rjetta þjer örfandi hönd“, þá er stórt spor stigið. ið ætíð fyrst ísl. vörur. Og þjer allir, sem íslenskar vörur kaup- | ið, athugið og festið yður í ! minni, að hver sú króna, er þjer greiðið fyrir ísl. vörur, er geymd í landinu og styður að velgengni Islendinga í framtíðinni, en hin, sem greidd er fyrir erlendan varning, er oss glötuð. Þeim vörutegundum fer nú stöðugt fjölgandi, sem búnar eru til hjer á landi, og til þess að gera mönnum auðveldara um kaup á þeim, höfum vjer ákveð- ið að gefa út vöruskrá yfir ísl. framleiðsluvörur, eins og gert hefir verið tvö síðast-liðin ár. Islenskir framleiðendur, send- ið oss auglýsingar í vöruskrána sem allra fyrst, og eigi síðar en 20. febrúar, svo tími vinnist til að prenta skrána og koma henni i til allra verslana á landinu, svo tímanlega, að þær geti notið stuðnings hennar við innkaup sín fyrir næstu ísl. viku. Skrifstofa vor er í Austurstr. 12. Sími 4189. Virðingarfylst, í stjórn ísl. vikunnar á Suðurl. Kaupmenn, kaupfjelög og Helgi Bergs, form. verslunarfólk, undirbúið yður Guttormur Andrjesson, ritari. undir það, að hafa sem allra Brynjólfur Þorsteinss., gjaldkeri mest úrval af ísl. vörum að bjóða Eggert Kristjánsson. 1 og sýna næstu ísl. viku, og bjóð-' Tómas Jónsson. (7. febr.) Þau framtöl, sem berast eftir þann tíma verða eigi tekin til greina, nema sýnt sje fram á að dráttur- inn stafi af sjerstökum óvið- ráðanlegum ástæðum eða sjerstaklega hafi verið samið um frest fyrir kl. 12 í nótt. Skattstofan er opin til kl. 5 (en svarað í síma til kl. 12. Símar 2488 og 3288). Skattstjórínn ffiæffiffiffimffiffiffiffiffiffiffiæffiffiffiffiffiffiæffiffiffiæs fú B5 m » !’:i; s jl? Námskeið m: i í P F A F F-út- saum (Maskínubroderi) —- byrjar í þessari viku. Nán- ari upplýsingar í síma 2136. s Emilía Þorgeirsdóttir. Bergstáðastræti 7. Vörullutninga- bflreið, Volvo, 2 tonna í ágætu standi, til sölu fyrir lágt verð. Uppl. gefur Óskar Halldórsson Sími 2370.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.