Morgunblaðið - 07.03.1934, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 07.03.1934, Qupperneq 6
6 MORGUN BLAÐIÐ Nýkomin: Matarstell, ný gerð Kaffistell. Bollapör 0.35 Skeiðar, g'afflar ryðfríir 0.50 Katlar, kaffikönimr, Pottar, vandaðir og ódýrir, Andlitsduft í dósum og öskjum, Krem, ilmvötn o. fl. o. fl.J Krystall í miklu úrvali. Þ j e r sem hafið i hyggju að Gifta yður kaupið húsáhöldin í Edin- borg, þar er úr mestu að] velja, þau eru ódýr og endingargóð. EDINBORG Bspr!íí«!j|l! för utombordsmotorer önsk- as av svensk firma. Svar till Aktiebolaget Archimedes, — Box 332, Stockholm 1. Danskar kartöflar óvenju góðar. r Ki D DA0 U D Sími 4060. DeíÍGiOIIS epli Jaffa glóaldin. Fyffes bananar. Matarepli 50 aura V2 kg. NÝJABÚBIN Bergþórugötu 2. Sími 4671. D r e k k i ð íesiey’s Te því það er bragðbest, fæst í A Herkostnaður Breta áætlaður 3 miljónum Ster- lingspunda meiri en í fyrra. London 6. mars. FÚ. Áætlanir Breta um hergjöld þessa árs, voru birtar í dag. Sam- kvæmt þeim eru öll gjöld áætluð 56y2 milj. sterling'spund, en það er 3 miljónum meira en þau voru síðastliðið ár. f þessari gjaldaáætl- un er fólginn kostnaður við smíði fjögurra nýrra beitiskipa, 8 tund- urspilla og eins forystu skips. — Einnig er gert ráð fyrir því, að byggja flotstöðvar fyrir flug- vjelar. Björgun skipverja af „Tcheljuskin“. London 6. mars. FÚ. Björgunarstarfsemin við rúss- neska ísbrjótinn, sem fastur hefir verið norður í íshafi undanfarið, ér sífelt haldið áfram. Tólf mönn- um af skipshöfninni var í gær bjargað úr ísnum af flugvjelum og fjórar aðrar flugvjelar eru nú á leiðinni norður í ísinn, til þess að taka þátt í björgVnarstarfinu. Nýr vistaforði hefir verið fluttur norður og loftskeytastöð leiðang- ursmanna fekk í gær ný tæki svo að hún getur haldið áfram að hafa samband við umheiminn. Flugfloti U. S. A. • Berlín, 6. mars. FÚ. Fjárhagsnefnd fulltrúadeild- ar Bandaríkjaþings hefir sam- þykt að veita fje til byggingar 290 flugvjelar á þessu ári. Er ætlað, að flugfloti Bandaríkj- anna verði þá 1.230 flugvjelar um næstu áramót. Alþýðublaðið á vegum sannleikans í Alþbl. í gær var skýrt frá því, að jeg væri í ferðalagi um landið sem erindreki Sjálfstæð- isflokksins og væri nýkominn til Akureyrar til að skipuleggja störf flokksins þar. Það er ekki í fyrsta skifti að Alþbl. fer með vísvitandi lygar þegar það minn- ist á mig. Það er rjett að jeg fór til Akureyrar fyrir nokkru, en kom aftur hingað til bæjarins með „Dettifoss“ sl. laugardag (áður en ritstjóri Alþbl. vakn- aði). Mjer láðist að biðja Alþbl. um fararleyfi eða tilkynna því um för mína. Alþýðublaðinu gremst að jeg skuli hafa ritað í blaðið „íslend- ing“; þeim er altaf illa við þeg- \r sannleikurinn er sagður um þeirra skaðsemda- og niðurrifs- störf. Það er rangt, að jeg hafi á nokkurn hátt verið að reka erindi Sjálfstæðisflokksins. En það er rjett, að jeg ljet ekkert tækifæri ónotað til að vinna gegn skaðræðisstefnu marxista. Annars mun Alþbl. slá út sitt eigið met í lygi í þetta skifti og má það teljast vel gert, þar eð ekki er nokkur fótur fyrir frá- sögn blaðsins. Gísli Sigurbjörnsson. íslendingum þakkað fyrir hinh, hátíðlegu sorg- arathöfn í Dómkirkjunni á jólunum. Mikið hefir verið talað í þýsk- um blöðum um sorgarathöfnina, sem fór fram hjer í Dómkirkjunni á jólunum yfir kistum hinna tveg'gja þýsku sjómanna, sem druknuðu hjá Svínafellsósi. Fara hlöðin sjerstaklega þakklátnm orð- um um íslendinga fyrir það. Auk þess hafa síra Bjarna Jónssyni borist ýms þakkarbrjef fyrir hina hjartnæmu ræðu, sem hann flutti við þetta tækifæri. Birtist ræðan, samkvæmt ósk Þjóðverja, í þýsk- um blöðum. Þegar lík sjómannanna komu til Hamborgar fór þar fram sorgar- athöfn og talaði þar W. Thun sjó- mannaprestur í Altona. Valdi hann sjer hinn sama texta og síra Bjarni hafði valið til þess að leggja út af. Hann sagði síðan frá slysinu, hvernig það vildi til, hversu vin- gjarnlega íslendingar hefði tekið á móti þeim, sem af komust og hjúkrað þeim á allan hátt. Svo sagði hann frá ferðinni til Reykja- víkur og' minningarathöfninni, og mælti því næst á þessa leið: — Af öllu hjarta þökkum vjer nú á þessari stundu íslendingum og dómkirkjuprestinum í Reykja- vík, í nafni allra aðstandenda, í nafni þýsku sjómannastjettarinn- ar og þýsku þjóðarinnar, fyrir fórnfýsi, náunganskærleika og hluttekningu.------ Annað líkið var síðan flutt til Windheim og jarðað þar. Við jarð- arförina flútti presturinn þar Wil- helm Hof, ræðu, og þakkaði þar með mörgum hjartnæmum orðum íslensku stjórninni, Sjómannastof- unni hjer, íslensku þjóðinni og sjerstaklega síra Bjarna Jónssyni fyrir minningarathöfnina og hlut- tekningu við hið sviplega fráfall þessara manna. — Með hrærðu hjarta, mælti hann, þökkum vjer frændum vor- um og trúbræðrum í hinu fjar- læg'a landi.------ Valdi hann svo einnig hinn sama ræðutexta, sem síra Bjarni hafði valið sjer. — SlðkrahQslð ð Hkireyrl vantar tvær ársráðnar hjálparstúlkur við hjúkrunina frá 14. maí næstkomandi. Umsóknir sendist hjeraðslækninum fyrir miðjan apríl. Seinasti dagur útsðlunnar er í dag og því síðasta tækifæri til að fá sjer karl- mannaföt, unglingaföt o. fl. fyrir hálfvirði. Hsg. 0. Ounnlðugsson & Go. Austurstræti 1. Þjóðverjar vilja vingast víð Frakka. Berlín, 6. mars.FÚ. Dr. Goebbels hefir átt tal við frjettaritara franska blaðsins „Le Matin“ um utanríkisstefnu þýsku stjómarinnar, sjerílagi gagnvart Frakklandi. í viðtali þessu lagði Dr. Goebbels mikla áherslu á það, að það væri ein- lægur vilji núverandi stjórnar í Þýskalandi, að binda enda á hinn aldalanga fjandskap milli Frakka og Þjóðverja. Ennfrem- ur fullyrti hann, að kviksögur sem birtar hafa verið í erlend- um blöðum um megnt ósamlyndi innan stjórnarinnar, væri á eng- um rökum bygðar. /~A agbók. Frá útgerðarfjelagi þýska tog- arans hefir síra Bjarni einnig fengið þakkarbrjef. Segir þar með- al annars svo: — Þjer megið vera viss um það að hluttekning yðar, íslensku þjóðarinnar og íslensku stjórnar- innar hefir haft mikil og varanleg áhrif um Þýskaland. Tófuvargur gerir nú mjög' vart við sig í sveitum austan Mýrdals- sands, einkum í Skaftártungu og Útsíðu. Vita menn ógerla hvaðan tófa hefir komið, nema ef kynni að vera utan af Landi eða Rang- árvöllum. Hefir hún nokkuð bitið fje manna, en mest hefir þó enn borið á slóða og troðning eftir dýrið. Hefir nú verið tekin upp eitrun alls staðar á þessu svæði, sem menn ætla að komi að haldi, því svo var fyrrum að það eitt dugði, er tófu varð útrýmt úr Skaftafellssýslum nálægt aldamót- um síðustu. (FÚ). Veðrið í gær: Lægðin milli Noregs og' íslands veldur enn N- átt hjer á landi. Vindur er hvass víða um austurhelming landsins, en er orðinn hægur á NV-landi. Snjókoma er nokkur norðan- og austanlands en bjartviðri á S- og V-landi og frost 2—5 stig um alt land. Lægðinni við Grænland hef- ir lítið miðað til austurs, en lík- lega ná áhrif hennar hingað á morgun. Veðurútlit f- dag': Stilt og bjart veður fram eftir deginum, en þyknar síðan upp með SA-átt. Föstuguðsþjónusta í dómkirkj- unni kl. 8V2 í kvöld. Síra Friðrik Hallgrímsson. Föstuguðsþjónusta í fríkirkj- unni. í kvöld kl. 8Y2, síra Árni Sigurðsson. Útvarpið í dag: 10,00 Veður- fregnir. 12,15 Hádegisútvarp. 15.00 Veðurfregnir. 18.15 Háskóla fyrirlestur: Sálarlíf barna og ung linga (Ág. H. Bjarnason). 19,00 Tónleikar. 19,10 Veðurfregnir. — Tilkynningar. 19,25 Erindi: Alex- ander mikli (Arnór Sigurjónsson) 19,50 Tónleikar. 20,00 Klukku- sláttur. Frjettir. 20,30 Föstumessa í fríkirkjunni (síra Árni Sigurðs- son). 21,20 Tónleikar: a) Fiðlu- sóló (Þór. Guðmundsson). b) Grammófónn: Grieg: Per Gynt Suite No. 1. Sálmur. Kenslukvikmynd. Stjórn í. S. í. hefir nýlega fengið danska kenslu kvikmynd í einmennings úti-íþrótt um. Verður hún sýnd í kvöld kl. 8y2 í Iþöku. Og er öllum þeim, sem leggja stund á einmennings- útiíþróttir heimill aðgangur, með- ar. húsrúm leyfir. í Franski flugmaðurinn sem sagt var frá í blaðinu í gæ»\ er kom- inn fram. Belgískir, þýskir, fm1 lenskir og' danskir flugmenn höfðu leitað að honum. En í fyrradag kom hann til Kaupmannahafnar, hafði hrept vont veður og lent á leiðinni. Frithiof Hansen verksmiðjueig- andi frá Bergen kom hingað með „Lyra“. Hann er forstjóri veiðar- færaverksmið.janna Johan Han- sens Sönner, Fag'erheims Fahriker, stm mörgum eru kunnar h.jer á landi. Hann býr að Hótel Borg. Afli í Grimsey varð árið sem leið 52,390 kg. stórfiskur og 101.- 200 kg. smáfiskur í salt, en tölu- vert var hert. Róðra stunduðu 7 smátrillur og 3 árabátar. — Lúðuafli var meiri en nokkuru sinni áður og var mest af lúð- unni selt til Akureyrar. Hákarl fekst enginn, hvernig og hvar sem reynt var. Mestallur sumar- aflinn var verkaður, metinn og pakkaður í evnni. Telst það ný- lunda, en g'afst ágætlega. Gengi erlends gialdeyris. Síðan 1926. að fast gengi var sett á Sterlingspund, hafa orðið þessar breytingar á gengi annara mynta hier í bönkunum: Dollar 4.57 nú 4.3734, dönsk króna 119.61 nú 100.00, norsk 102.08 nú 111.44, sænsk 122.20 nú 114.41 franskur fra.nki 15,06 nú 28.87. ríkismörk 108.66 nú 172,80 , gyllini 183,31 nú 294.28. Reki. f suðvestanáttinni seint í síðasta mánuði kom allmikill timburreki á fjörur í Mýrdal og víðar. Trjáviður þessi er einkum plankar, og er talið að þeir muni skifta hundruðum, sem rekið hafa á Mýrdalsf.jörur og' þvkir þetta góður fengur. Annars virðist þetta hafa legið all-lengi í sjó og því orðið miðjafnt að gæðum, og fúi kominn í suma plánkana. (FÚ). íslenska vikan. Boðið hefir ver- ið til samkepni um að búa til auglýsingaspjöld fyrir íslensku vikuna. Fresturinn til að skila toikningum hefir nú verið fram- lengdur til laugardags.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.