Morgunblaðið - 21.03.1934, Blaðsíða 3
M O R G U N B L A Ð l Ð
3
—i
Byrds-
leiðangurinn.
London 20. mars. FÚ.
Byrd í pólfararflugvjel sinni.
Nokkurir af leiðangursmönn-
um Byrds eru nú orðnir viðskila
við meginleiðangurinn og teptir
í ís. Þeir eru þó ekki taldir í
neinni hættu, því að þeir hafa
góðan útbúnað og flugvjel verð-
ur send þeim til hjálpar við
fyrsta tækifæri.
Stavi§ki»
málin.
Deilan um dauða
Staviskis.
LRP. 20. mars. FÚ.
Rannsóknarnefndin, er hefir
Staviski-málin til meðferðar
skoðaði í dag kvikmynd, sem
tekin var í Chamonix daginn, er
Staviski dó, og sjest hann þar í
blóði síhu, og blæðir úr nefil
hans, munni og brjósti. Sýning
myndarinnar vakti afar mikla
athygli. Einn nefndarmaðurinn
Ijet svo ummælt, að blóðrásin,
sem á myndinni sjest, verði ekki
skýrð svo, að Staviski hafi verið
skotinn í gagnaugað, og ýmsir
aðrir hafi látið í ljós efa á því,
að frásögn lögreglunnar um það
að Staviski hafi framið ’sjálfs-
morð,geti verið rjett. Þeir gera
ráð íyrir því, að gerð verði krafa
um það, að önnur líkskoðun fari
fram á Staviski.
Chéron
dómsmálaráðherra Frakka, sem
hefir heitstrengt að láta ekki
hætta rannsókn í Stavisky-mál-
inu, fyr en öll svikin sjeu orðin
kunn.
Ekkjudrotningin
í Hollandi látin.
I
Haag, 20. mars. FB. j
United Press.
Bmma ekkjudrottning andaðist
kl. 8 f. h. í morgun, sjötíu og
fimm ára gömul. Við banabeð
hennar var Wilhelmina drottn-
ing og Juliana prinsessa. Einnig
Walbeck, bróðir ekkjudrotningar-
innar.
Námskeiðið á Eiðum.
Samkvæmt ósk skólastjóra al
þýðuskólans á Eiðum sótti jeg,
undirritaður, námskeið eða mót, j
sem þar var háð dagana 1.—B.j
mars s. 1. og flutti þar nokkur|
erindi. Blöðin hafa nú þegar|
sagt frá námskeiðinu, en ofur-
lítið nánari frásögn mun þó ekki
vera óviðeigandi,
Þess er þá fyrst að geta, að
engu líkara var en að Eiðaskól-
inn væri uppáhaldsbarn þess
Guðs er ræður vindi og veðr-
áttu, því veður var unaðsblítt
og fagurt þá daga alla, sem
mest varðaði fyrir mótið, og
glaða tunglskin var á kvöldum.
Að Eiðum kom jeg daginn áður
en námskeiðið átti að byrja og
voru þá fyrstu gestimir að-
koma. Þá var bílfært alla leið
frá Reyðarfirði. Menn komu úr
ýmsum áttum og langt að, bæði
frá Seyðisfirði, Loðmundarfirði
og Borgarfirði, nyrðra. Þess
þarf varla að geta, að viðtökur
fekk maður á Eiðum hjartan-
legar og góðar, því ráðamenn
þar eru þjóðkunn valmenni. Jeg
skoða það engan veginn sem ó-
viðeigandi skjall, þótt jeg segi,
að slík stjórn og alúð, sem mót-
aði lífið á þessu fjölmenna heim
ili, á fylsta hrós skilið. Aðsókn
varð mikil og sú allra mesta,
sem þekst hefir á þessum nám-
skeiðum á Eiðum og mun hafa
verið upp undir 400 manns þeg-
ar flest var. Að staðaldri borð-
uðu þarna hátt á annað hundr-
að manns og einn daginn
drukku 250 manns kaffi. Þær
höndur, sem að veitingunum
unnu og undirbúningi öllum, og
auðvitað eins og æfinlega vill
verða unnu verk sitt í kyrþey,
áttu áreiðanlega bestu þakkir
skyldar og það engu síður en
hinir, sem skemtu og andlega
fæðu og fróðleik báru á borð
fyrir gesti. Páll Hermannsson,
alþingismaður og bústjóri á
Eiðum, annaðist aliar veitingar
með röggsemi og dugnaði.
Blöðin hafa þegar sagt frá
ræðumönnum, sem þarna voru
og er því óþarft að geta þeirra
frekar. Alls voru flutt 10 er-
indi auk upplesturs, og stuttra
ræðuhalda, er námskeiðinu var
slitið, sem var einhver allra á-
nægulegasta stundin. „Skugga-
sveinn“ var leikinn fjórum sinn-
um af námslýð skólans og mátti
það heita þrekvirki að leggja í
slíkt við þau skilyrði, sem um
var að ræða. Um helmingur af
nemendum skólans mun hafa
tekið þátt í leiknum, og bar
flestum saman um að vel hefði
tekist. Leiksýningin fór fram í
kjallara skólans, svo ófullnægj-
Bfiin íegofiðDur
(Vorkápurnar)
Nýkomið stórt og fallegt úrval.
W aaterpr oof kápur
Gúmmíkápur
Silkiolíukápur
allar stærðir.
Nýir litir! Ný snið!
Verð frá kr. 8,00.
6ETSIR
andi húsrúmi að nauðsynlegt
var að sýna fjórum sinnum til
þess að um 400 manns gætu
sjeð leikinn. Þórarinn Þórarins-
son, kennari, annaðist leiksýn-
inguna og allan undirbúning og
málaði sjálfur tjöldin, og fekk
mikið lof fyrir. Jeg tel mig ekki
mann til þess að segja frá tjöld-
unum frá listarinnar 'sjónar-
miði, en víst er um það að jeg
horfði á þau hugfanginn og
mun lengi sjá grasafjallið í hug
anum. — Það er tæpast ac
menn geri sjer grein fyrir því
hversu skólalýður leggur á sií
við þessi námskeið. Undirbún
ingur allur er mikill og nemenc
ur ganga úr rúmum sínum og
lána alt, er þeim tilheyrir og
liggja sjálfir á gólfum við
þrengsli og lítinn klæðakost. —
Slík kjör og lítill svefn ætti líka
að gera óvönum unglingum erf-
itt að leika kvöld eftir kvöld,
en slíkt kom þó ekki í ljós.
Mjög kurinugur maður þar í
sveit, sagði mjer að þessi nám-
skeið væru rómuð alment mjög
mikið, og þetta síðasta ekki
hvað síst. Hann sagði, að næst
mætti búast við slíkri aðsókn,
að ekki yrði hægt að taka á
móti öllum, er koma vildu, og í
þetta skifti voru gestir í raun
og veru of margir. — Skólann
vantar tilfinnanlega rúmgóðan
samkomusal, sem verið gæti
líka leikfimisalur* Þessi mót
hafa vafalaust mikla þýðingu
og er það neyðarbrauð að þurfa
að kássa fjölmenni inn í tvær
skólastofur og ganga, þar sem
menn verða að standa og verða
fyrir truflun og ónæði. Stór leik
fimisalur og raflýsing er skól-
ans brýnasta þörf. Það mun
varla verða þjóðinni til falls,
sem hún gerir fyrir skóla lands-
ins og menningarmál, og væri
óskandi að hún gæti hlúð sem
allra best að þessu í komandi
framtíð.
Um leið og jeg að lokum
þakka skólastjóranum, sjera Ja-
kob Kristinssyni og frú hans,
innilega fyrir hjartanlégar við-
tökur, og heimilisfólki skólans
öllu fyrir þá skemtun og á-
nægju er það veitti okkur gest-
unum á námskeiðinu, vildi jeg
mælast til þess, að skólastjór-
HHKX
Tökum upp í dag mikið og fallegt
úrval af
kfólum.
Ný efni. — Nýir litir. — Ný snið.
inn ljeti almenningi í tje, ein-
, hversstaðar á prenti, erindi það,
' er hann flutti á námskeiðinu.
Pjetur Sigurðsson.
Háloftsflug
Rússanna.
Rannsókn út af slysinu.
London 20. mars. FÚ.
Skýrsla um háloftsflug Rúss-
anna, sem fórust fyrir nokkrum
vikum, eftir að hafa sett met i
háflugi, hefir verið birt, en rann-
sókn hefir staðið yfir undanfar-
ið á því, hvað valdið muni hafa
slysinu. I skýrslunni segir, að
þeir sem í loftfarinu voru hafi
fórnað lífi sínu, til þess að geta
komist hærra en aðrir. — Þeir
vörpuðu út nokkru af kjölfestu
sinni, er þeir voru komnir í 12
mílna hæð, til þess að geta kom-
ist enn hærra, og það olli því, að
belgurinn komst út úr jafnvægi
á leiðinni niður aftur, rifnaði og
frrst, en ráðagerðir þær, sem
flugmennirnir höfðu um það að
bjarga sjer með fallhlífum mis-
tókust, og fórust þeir allir þrír.
Rðelns 10,50
Ýmsír aðrír ódýrír
kvcnskór ný*,omnir.
Munið
Þjófnaðartryggingarnar.
Upplýsingar á
V átr yggingarskrif stof u
Sígftísar Sighvatssonar
Lækjargötu 2. Sími 3171.
Silfurrefir
1 seljast nú til afhendingar í haust.
Verðlaunuð og óverðlaunuð dýr.
Borgun við móttöku dýranna. Erik
Holden, handelsbest., Övre Árdal
i Sogn, Norge.
#