Morgunblaðið - 17.05.1934, Qupperneq 6
6
M O R G U N B L A Ð T f >
SlðtDflieiag Suðurlands
býður yður úrvalsvörur í hvítasunnumatinn:
Aíikálfakjöt, Nautakjöt af ungu, Hangikjöt, nýreykf
Rjúpur, Svínakjöt, Dilkakjöt, Rjómabússmjör, xískurí
á brauð, margar tegundir. Grænar baunir, í dósum
lausri vigt, o. m. fl.-
Svínakjötspantanir óskast sem fyrst, því að birgðu
eru takmarkaðar.
Matarbúðin
Laugaveg 42.
KfötbúHin
T'ýsgötu 1.
Kfötbúðin
Ljósvallagötu 10.
Matardeildit
Hafnarstræti &
K)ötbúdit
Hverfisgötu
Norður
á Holtavörðuheiði
eru ferðir frá Bifreiðastöð íslands, annan hvern dag,
áfram til Akureyrar strax og færi gefst. ^
Ferðir þessar fara hinir góðkunnu bifreiðastjóraT
Páll Sigurðsson og*Ari Jónsson frá Blönduósi, á nýju**
og traustum bifreiðum.
Bilreiðastöð islands
Sími 1540.
rrr'J K *■ ,
lunar- og íbúðarhús tii sÖW
i besta stað i bænum.
Yerslunar- og íbúðarhúsin við Laugaveg 25 A og B, ásan’1
meðfylgjandi eignarlóð, eru til sölu nú þegar.
í húsunum eru 2 sölubúðir með skrifstofuherbergjum in*1'
ar af, auk mikillar geymslu í neðri hæð íbúðarhússii»s#
I leigu gefur eignin nú af sjer kr. 9000.00 á ári.
Allar nánari upplýsingar viðvíkjandi sölunni gefur undiT'
ritaður, er jafnframt tekur á móti kauptilboðum í eigni*13
Gunnar E. Benediktsson.
málafl.m.
Skrifstofa: Bankastræti 7. Sími 4033.
Heima: Fjölnisveg 15. Sími 3853.
Slysfarir
og björgun
árið 1033.
Slys voiu tíðari árið s«m leið
heldur en nokkrunx sinni síðan
Slysavarnaf jelag íslands var
stofnað. Og þrátt fyrir niargvís-
lega aðstoð, hjálp og björgun,
; sem sjómönnum var veitt á árinu,
hefir druknana talan ekki komist
eins hátt um langt árabil. Urðu
sum slysin svo hrapalleg, að engu
tali tók. og hefði ekki verið auðið
að koma í veg fyrir þau með nein-
; um björgunartækjum, þar eð þau
bar svo brátt að, að enginn, tími
var til þess að koma hjalp við,
enda þótt fullkomnustu björgunar-
tæki hefðu verið í námunda við
slysastaðina.
Alls druknaði 81 maður á ár-
* inu. Af gUfuskipum á fiskiveið-
um druknuðu 25 (þar af 13 af
„Skúla fógeta“ og 9 af „Papey“,
einn tók út, en 3 fellu fyrir borð).
Af flutningaskipinu Gunnar frá
Isafirði, sem fórst 27. ágúst, drukn
uðu 5 menn. Af vjelbátum drukn-
uðu 40 menn, þar af 36 af bátum
sem fórust. 3 tók út og einn fell
' útbyrðis. Af árabát druknuðu
tveir. Sex menn fellu út af bryggj-
um og druknuðu og 3 druknuðu
í ám og vötnum. Auk þess fór-
ust • hjer við land þrír útlendir
togarar með öllum mönnum og
2 Þjóðverjar af „Consul Dubbers“
druknuðu í lendingu austur á
Söndum.
Bjarganir.
Á þessu ári var 95 mönnum
bjargað frá druknun hjer við
land, þar af 17 útlendingum og'
78 íslendingum. Af íslendingun-
um björguðu enskir togarar 11,
skipshöfnum af tveimur vjelbát-
um; þýskur togari bjargaði vjel-
bát með 4 mönnum; þýskt flutn-
ingaskip bjargaði 8 mönnum af
línuveiðara, sem sökk við ásigl-
ingu. 29 mönnum var bjargað af
opnum vjelbátum, þar af 11 fyrir
snarræði og hugsunarsemi einnar
konu. 24 var bjargað með fluglínu-
tækjum Slysavarnafjelagsins og
2 með krókstjaka, er fjelagið hafði
kornið fyrir á bryggju.
Til björgnnar mætti þó telja
margt annað, mörgum mannslífum
verið b.jargað með því, að bátar,
'sem voru með bilaða vjel úti í
hafi, voru leitaðir uppi og dregnir
til lands, og fyrir eftirlitsstarf
„Þórs“ við Yestmannaeyjar á
vertíðinni.
Skipströnd.
urðu óvenjulega mörg á árinu.
Eru talin strönd 33 íslenskra
skipa (aðallega vjelbáta), 4 enskra
togara („Sicyion“, „St. Honorius“,
,,Braeanmore‘‘ og „Margarete
Clark“), 3 þýskra togara („Gustav
Meyer“, ,,Newfoundland“ og
,,Blueher“), 1 frönsk fiskiskúta
„Fleur de France“, færeyska
fiskiskútan ,,Budanes“, finska
vjelskipið „Suomon Lokki“„
danska síldveiðagufuskipið „Ní-
ord“ og belgiski togarinn „Jan*
Volders“. Eru það þá aiis 45
skipströnd á árinu.
(Eftir Árbók Slysavarnafjel.).
fsland var væntanlegt hingað í
nótt frá útlöndum.
Kve n naskólinn
i Reykfavik.
fi’
Síðastliðið haust settust 107 nem
ehdur í skólann. Starfaði hann í
5 deildum (annar bekkur tví-
skiftur). Vorpróf tóku 102 nem-
endur burtfararprófi úr 4. bekk
lúku 12 nemendur. Það voru:
Guðný Guðjónsdóttir, Reykjavík.
Guðríður Þ. Þprvarðsd. Súgandaf.
Hulda Runólfsd. Hlíð Árnessýslu.
Ingibjörg Vigfúsdóttir Reykjávík.
Kristín Gunnarsdóttir —
Marg'rjet Lovísa Thors
María Árnadóttir, Patreksfirði.
Óla Guðrún Magnúsd. Reykjavík.
Ólöf Sigurjónsdóttir, ísafirði.
Ragnhildur Erla Erlingsd. Rvík.
Unnur Jónsdóttir —
Hólmfríður Árnadóttir, Patreks-
firðí ,stundaði nám í nokkrum
greinum, og tók próf í þeim, sam-
hliða námi við Tónlistaskólann. ■—
Einn nemandi, Guðrún Markús-
dóttir, Sólvallagötu 6, Reykjavík,
fór úr bekknum um páskaleytið,
vegna þess, að hún war ráðin á
sumarskóla í Svíþjóð.
Skólanum var sagt upp j). 14.
maí. Var það sextugasta skóla-
uppsögn hans og í sambandi við
hana bárust skólanum heillaóskir
og gjafir. Fyrverandi skólastúlka,
er ekki vill láta nafn síns g'etið,
sendi skólanum 2000 krónur til
stofnunar ferðasjóðs. Er svo mælt
fyrir af hendi gefandans að: „Á
hverju vori komi ákveðin vaxta-
upphæð til útborgunar af sjóðs-
f je- þessu ,og sje því ráðstafað af
forstöðukonu, landafræðiskennara
og * umsjónarstúlku SkóTanS,
eins og þessir aðilar álíta að
henti best, til handa einhyerjum
bekk eða bekkjum eða einstökum
námsmeyjum, þó koma ekki aðrar
námsmeyjar til greina sem ein-
staklingar, þegar um styrk er að
ræða, en þær, sem verið hafa þrjá
vetur í skólanum“. Auk þess gjöf
frá Ríkharði Jónssyni, listamanni,
en hennar var áður getið hjer í
blaðinu.
í gær eftirmiddag hafði skóla-
nefnd og forstöðukona boð fyrir
nemendur 4. bekkjar og kennara
skólans í Oddfellowhúsinu.
Nýtt Gyðingaland.
Það ei' nú i ráði, að flytja um 5
miljónir Gyðinga frá Miðevrópu
.(Þýskalandi, Austurríki, Rúmeníu
og Póllandi) ti] portúgölsku ný-
lehdunnar Angola í Afríku og
stofna þar nýtt Gyðingaland. Eins
og kunnugt er, hefir fjöldi Gyð-
ing'a orðið . landflótta á síðustu
tímum úr Miðevróplöndunum, en
engin önnur þjóð í álfunni vill
taka við þeim. Þess vegna var haf-
in alþjóðaráðstöfun til þess áð
koma þeim af hönduin sjer. og
hefir nokkuð af þeim verið flutt
til Gyðingalands, en þar eru þeir
illa sjeðir af Aröbum. Hefir mönn
unl því komið þetta ráð til hugar
að flytja þá til Angola, og er bú-
ist við að portúgalska stjórnin
fallist á það. Með þessu móti verð-
ur stofnað þarna sjerstakt ríki
undir vernd Þ jóðabandalagsins.
Hekla kom til Newport í fyrra-
dag. Fer ]>aðan í dag beina leið
hingað.
Var Belgakonungur myrtiír.
Fyrir nokkru 1 jet enskur of-
ursti, Hutchinson að nafni, opin-
berlega í ljós þá skoðun sína, að
xVlbert Belgakonungur hefði ekki
farist af slysi', heldur hefði hann
verið myrtur.
Hutchinson.
Ut af þessu komu fram mörg
mótinæli frá Belgum, en nú liefir
Hutehinson endurtekið staðhæf-
ingu sína og' segist hafa óygg.j-
andi sannanir fyrir henni, Og ef
málið hefði komið fyrir enskan
kviðdóm, myndi hann hafa kom-
ist að nákvæmlega sömu niður-
stöðu. Konungurinn hafi hrapáð
15—30 metra og þótt hann hefði
runnið niður skriðuna þannig, að
höfuðið hefði gengið á undan, þá
hefði hlotið að s.jást, á líkinu hrufl-
ur- á herðum og alnbogum.
— Jeg hefi upplýsingar, segir
Hutchinson, bæði beint og óbeint
fi á Belgíu og' París um, að það
vár sjerstök ástæða, til þess að
rvð.ja Albert konungi úr vegi,
vegna póiitískrar foringjastöðu
hans, en það er engin hætta á,
því, að nokkurn tíma muni kom- j
ast upp um morðingjaná.
Dagbók.
Veðrið í gær: Enn er köld N-átt
h.jer, á landi með hríðarjeljum á
,\- og A-landi. Hiti er þar um
frostmark en 2—3 st. víðast á S-
og' V-Iandi. Veður mun litlum
breytingum taka næsta sólarhring.
Veðuriitlit í Rvík í dag: NA-
kaldi. Bjartviðri.
Næturvörður verðui; í nótt í
Laugavegs Apóteki og Tngólfs
Apóteki.
Framboð Sjálfstæðisflokksins.
Lárus Jóhannesson hæstar.jettar-
málaflutningsmaður verður í kjöri
fyrir flókkinn í Seyðisfirði. en í
Barðastrandasýslu Jónas Magnús-
son kennari.
Niels Bohr, hinn heimsfrægi
danski eðlisfræðingur, er væntan-
legur hingað í sumar, ætlar
hann að lialda h.jer nokkra fyrir-
lestra við háskólann. Ovíst er enn
livort liann kemur liingað í júní-
lok, eða ekki fyrri en í júlí.
Haukanes kom til Hafnarfjarð-
ar í gær af veiðum, með 47 tunn-
ur lifrar, 93 smál. af fiski.
Umsækjendur um bæjarfógeta-
embættið á Akureyri og sýslu-
mannsembættið í Eyjafjarðarsýslu
eru 14 og eru þeir þessir: Júl.
Havsteen sýslumaður, Sig. Eggerz
bæ.jarfógeti, Sigurður Sigurðsson
sýslumaður, Jón Hallvarðarson
fulltrúi, Jóhann Skaftason lögfr.,
Þórhallur Sæmundsson lögreglu-
stjóri á Akranesi, Jón Þór Sig-
tryggsson lögfr., Garðar Þorsteins-
son hrm., Ragnar Ólafsson lögfr.,
ísleifur Árnason fulltrúi, Hákon
Guðmundsson fulltrúi, Jónatan
Hallvarðsson fulltrúi, Gústav
Jónasson fulltrúi og Ragnar Jóns-
son fulltrúi.
Framboðsfrestur til kjördæina-
kosninganna 24. júní, rennúr út
4 vikum og 3 dögum fvrir k.jör-
dag, eða 24. þ. in. — Landslistar
skulu tilkyntir landsk.jörst.jórn
eigl síðar en 25. þ. m.
Árbók Slysavarnafjelags Is-
lands fyrir 1933, er nýkomin.; Er
þar skýrsla um starfsemi f.jelags-
ins á árinu og skýrsla um sjóslys
við ísland á árinu, Af öðrum
greinum má nefna grein um strand
„Skúla fógeta“ með myndum'frá,
því og- monnunum, sem björgúðúst.
Þá er frásögn um björgun skip-
ver.janna af belgiska togaranum
„Jan Voldets“. Smágrein um
björgun enska togaran
Rider“ sem liafði vilst inn í skei’.F
garðinn fram a f Mýrum. í ÁrbóT'
inni eru og margskonar skýrsF1'
Ritið er vel úr garði gert og F
eigúlegasta og fróðlegasta.
Sæmundur Jóhannesson kenna1'1;
frá Akureyri flytur fyrirlestu1’ 1
Betaníu kl. Sþjj í kvöld. Ef111’
„Nýtt og gamalt úr fjársjóði k°n
ungsins“. Allir velkomnir.
0 rf
60 ára er í dag frú Guð’d
Björnes.
Heimatrúboð leikmanna, VatJlS
stíg 3. Samkoma í kvöld kl-
Allir velkomnir.
Landsbókasafnsbækur, sem e]^
hefir verið skilað, verða sóttar »
kostnað lántakenda, nema ]l(l1
skili þeim næstu daga.
Hjónaefni. Nýlega hafa °PllJ
berað trúlofun sína, ungfru Mar
gr.jef Þorvarðardótti’r ÁjálsgöP1
29 B og Ragnar Þörðarson XjáB'
„Night, g'ötu 73.