Morgunblaðið - 03.08.1934, Page 5

Morgunblaðið - 03.08.1934, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ Matskorfur i Þýskalandi. MatsparnaSur: Darré landbúnaðarráðherra, Hitler kanslari og Göbbels útbreiðsluráðherra við :matspárnaðarborðið. Engin máltíð mátti kosta meira en 50 pfennig. En menn borguðu sama verð og fyrir venjulegar máltíðir. Mismuninum var varið til hjálpar fátækum og á þann hátt söfnuðust í fyrravetnr um 400 miljónir marka. í byrjun fyrra mánaðar sá ’þýska stjórnin fram á það, að mat- væíaskortur mtuidi verða í land- inu í vetur, ef ekkert væri aðhafst. 1 Gaf hún því út ný lög, sem gera viðskiftamálaráðherrann, dr. . Schmidt að hinum fyrsta viðskifta- einvaklsherra í Þýskalandi. Hon- um er gefið vald til þess að taka hverjar þær ákvarðanir, sem hon- um sýnist, án þess að leita sam- þykkis stjórnarinnar. Ratlienau, sem var matvælaráðherra í stríð- inu hafði ekki eins mikið vald. Að vísu var dr. Schmidt. ekki veitt þetta vald nema fram til 1- : sept., eða í tæpa tvo mánuði. En það er sýnilegt að hann á að skipuieggja skömtun matvæla og vefnaðarvöru. Og nú lætur hann vinna að því af kappi að rann- : saka allar þær takmarkanir, sem gerðar voru í stríðinu, og áhrif þeirra. Mestu vandræðin í viðskiftalífi Þjóðverja stafa af því, að þá skort ír algerlega erlendan gjaldeyri. En á erlendum gjaldeyri þurfa ’þeir að halda, jafnvel til þess að :geta fengið brauð. Brauð úr inn- iendum korntegundum er ekki -gott, nema í það sje haft hveiti frá Kanada. Uppskerubrestur er í Þýskalandi eins og víðar vegna hitanna, og þess vegna þyrfti Þjóð verjar nú á meiri erlendum kornmat að halda, en venjulega. 'Sem stendur er enginn hörgull ■ á kjöti, en veg'na þurkanna er hörgull á fóðurtegundum. f ýms- um hlutum Prússlands hafa bænd- ur ekki aflað nema helming þess j fóðurs, sem þeir þurfa handa grip-1 tim sínum. Bændur geta ékki feng ; ið erlenda mynt til þess að kaupa j fóður frá útlöndum, og þess vegna I verða þeir að slátra meiru en þeir j ■ ætluðu sjer. En niðurskurður naut-' gripa hlýtur að hafa áhrif á smjör- framleiðsluna. Smjörverð hefir þegar hækkað stórkostlega í Þýskalandi. Og á hverju ári flytja Þjóðverjar inn geisimikið af smjöri. En þeim innflutningi haml ar g'jaldeyrisskorturinn nú. Smjör- líki notar fátæka fólkið í staðinn fjrrir smjör, en til þess að fram- leiða smjörlíki þarf að flytja inn kopra og hvalsmjör. Birg-ðir af 'þessum efnum eru nú mjög tak- markaðar í landinu, því að það ’hefir jafnan verið látið sitja fyr- ir að kaupa hrávörur til iðnaðar. Nú fyrir skömmu var orðinn liörgull á, kartöflum í Berlín. Hinn 9. julí fekk enginn keypt meira en 1 kg. Vegna þess að kartöfíur er aðalfæða fátæka fólksins, varð að vinda bráðan bug' að því að flytja inn kartöflur frá Belgíu og Hollandi.Annars kaupa Þjóðverjar venjulega kartöflur frá ítalíu og Malta, en nú gátu þeir ekki feng- ið kartöflur þaðan vegna gjaldeyr- isskorts. Pyrsta kartöfluuppsker- an í Þýskalandi er þeg'ar uppetin. Stjórnin hefir reynt að bæta úr þessu með'þyí að hita fólk fá hrís- grjón og maccaroni yið vægu verði. Miklar birgðir eru í landinu af hrísgrjónum. Matskömtun er þegar byrjuð. Verslanir hafa fengið að kerina á þ.ví, ef þær ætluðu sjer að nota vöruskorttil þessað sprengja upp verð, og einstakir menn, fyrir það að ætla að birgja sig upp. Víða má sjá í búðargluggum: Verslun- in lokuð vegna okurs. Þýska stjórnin byrjaði mat- sparnað í öllu ríkinu í fyrrahaust, með því að fá menn til þess að spara við sig' mat af sjálfsdáðum einn dag í viku, og með því að láta matsölustaði ekki framreiða annað þá, en óbrotinn og ódýran mat. Atvinnuleysi minkar. Framleiðsla eykst. — Utflutn- ingur minkar. í „Daily Mail“ er grein hinn 9. júlí um ástandið í Þýskalandi, sem blaðið kallar óskiljanlegt. Það bendir fyrst á það, að iðnfram- leiðslan hafi aukist mjög 1933 og Stórkpstlega fyrstu 6 mánuði þessa árs. En jafnframt hafi útflutn- ingur minkað. Og þrátt fyrir hin- ar miklu framkvæmdir þýsku stjórnarinnar sje ólíklegt að heima markaðurinn hafi þörf fyrir alla þá miklu aukningu, sem orðið hef- ir í járn, stál og vjelaframleiðslu. í þessum iðngTeinum starfa nú 15 milj. manna, eða 4 miljónum fleira heldur en 1932. 1 Þýskalandi voru 4.058.000 atvinnuleysingjar 1. des- ember í fyrra, en 31. maí s. I. voru þeir ekki nema 2.525.000. „Fagranes((. Nýr flóabátur, sem hefir áætlunarferðir milli Reykjavíkur og Akraness. í gærmorgun kom hingað nýr flóabátur, sem ætlað er að fara daglegar ferðir milli Akraness og Reykjavíkur. Hann heitir ,,Fagranes“ og er smíðaður hjá Bolsöens Værft í Molde í Nor- egi, en eigendur eru Leifur Böðvarsson frá Akranesi og Ár- mann Halldórsson skipstjóri. Verður Ármann skipstjóri á bátnum, en Leifur framkvæmda stjóri fyrirtækisins. Skipið er um 70 fet á lengd og afar sterklega bygt, líkt og íshafsskútur. Er hvergi meira en þrír þumlungar milli banda í því. Það er út búið bæði fyrir farþega og vöruflutning o'g hefir verið mikið lagt í það að hafa farþegarúmin sem allra snyrtilegust og viðkunnanleg- ust. Er þar bæði fyrsta og ann- að farrými og kostar farið milli Akraness og Reykjavíkur kr. 2.50 á fyrsta farrými og kr. 1.50 á öðru farrými. Getur skip- ið flutt alt að 150 farþegum í hverri ferð, hefir ágæta björg- unarbáta og björgunarbelti og hringa. Um alt skipið eru raf- magnsljós og hitaleiðsla alls- staðar. I því er 150 hestafla Scandia- vjel, fjögurra cylindra og getur hún knúið skipið um 10 sjóm;l- ur á klukkustund, og er það.því ekki nema klukkustund á leið- inni milli Akraneess og Reykja- víkur. Skipið hefir tekið að sjer alla mjólkurflutninga frá Hvalfjarð- arströnd, Skilmannahreppi, Leir ár- og Melasveit hingað til Reykjavíkur, og fer áætlunar- ferðir þess vegna til Akraness, þangað sem mjólkin er flutt, annan hvorn dag. En búist er við því að það fari daglegar ferðir þegar fram í sækir. Nýtt dilkakjðl, Nautakjöt af ungu, og alikálfakjöt. Gjörið svo vel að panta tímanlega. Munið búðarlokunina kl. 4 á laugardögum. Maíarbúðln Matardeildin Laugaveg 42. Hafnarstræti 5. Rjötbúðin Kjötbúð Austurbæjar Týsgötu 1. Hverfisgötu 74. Kjötbúð Sólvalla Ljósvallagötu 10. IRMA er besti staðurinn til innkaupa fyrir húsmæðurnar og er, eins og vant er ODÝRUST Athugið verðin: Amk. hveiti pr. y2 kg. 22 aura Dsk. hveiti — — — 19 — Rismjöl — — — 22 — Kartöflumjöl — — — 26 — Haframjöl — — — 27 — Risgrjón — — — 35 Sjerstakur kaupbætir meðan endist, fagurlega skreytt kaffimál 5 aura. Hafnarstræti 22. Vörur sendar heim. ÁFRAM. Gefið unglingunum góða bók, sem hvetur þá tii dáða. Áfram eftir O. S. Marden, sem Ólafur heitinn Björnsson ritstjóri íslenskaði, er besta unglingabókin. Kostar í fallegu bandi kr. 3.50. EIMSKIPAFJELAGIÐ ÍSAFOLD H.F. E.s. „EddaM fer væntanlega frá Barcelona um 14. þ. m. — Tekur vor- ur til flutnings til Reykjavíkur. — Umboðsmaður í Barcelona er: H. ENBERG, símnefni „Enberg BarceIona“. Allar frekari upplýsingar gefur: Gunnar Guðjónsson skipamiðlari, sími 2201.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.