Morgunblaðið - 17.08.1934, Síða 2
2
3Hor0imRaðta
Útgef.: H.f. Árvakur, Reykjavík.
Ritstjórar: Jón Kjartansson,
Valtýr Stefánsson.
Ritstjórn og afgreitSsla:
Austurstræti 8. —- Sími 1600.
Auglýsingastjóri: E. Hafberg-.
Auglýsingaskrifstof a:
Austurstræti 17. — Sími 3700.
Heimasímar:
Jón Kjartansson nr. 3742.
Valtýr Stefánsson nr. 4220.
Árni Óla nr. 3045.
E. Hafberg nr. 3770.
Áskriftagjald:
Innanlands kr. 2.00 á mánutSi.
Utanlands kr. 2.50 á mánutSi
í lausasölu 10 aura eintakitS.
20 aura metS Lesbók.
Atvinnubætur.
Alþýðublaðið í gær lætur mik
ið yfir verkum Haraldar Guð-
mundssonar í þágu atvinnubót-
anna í Reykjavík. „Ríkisstjórn-
in leggur frá 85 þús. kr. og út-
vegar 100 þús. k"r. lán“, segir
blaðið í feitletraðri fyrirsögn.
Ríkissjóði ber, samkv. ákvæð-
um í fjárlögum, að kosta at-
vinnubætur að þriðjungi móts
við framlag bæjarsjóðs. Ríkis-
stjórninni ber ennfremur að
gefa bæjarsjóði „kost á“ láni
sem svarar þriðjungi þeirrar
upphæðar, er til atvinnubóta er
varið
Nú hefir Reykjavíkurbær var
ið alls á þessu ári rúml. 328 þús.
kr. til atvinnubóta og bar því
ríkissjóði að leggja fram þriðj-
ung þeirrar upphæðar, eða rúm-
lega 109 þús. kr.
Fyrir 1. ág. hafði ríkissjóður
lagt fram 66 þús. kr. og vantaði
því 43 þús. af því se mfjárlögin
ákveða.
Ætla mætti, að Har* Guð-
mundsson ljeti ekki á sjer
standa, að greiða það sem rík-
issjóði ber skylda að greiða.
Þó atvikaðist þetta þannig, að
Haraldur sá sjer ekki fært að
greiða nema 30 þús. kr„ þegar
hann var ,,rukkaður“ um styrk-
inn. Var því raunveruleg skuld
ríkissjóðs 13 þús. kr.
Reykjavíkurbær hafði ennfr.
ákveðið að nota heimild fjár-
laganna og taka 150 þús. kr.
lán til atvinnubóta, sem ríkis-
stjórnin skyldi gefa bænum
„kost á“ að fá.
Þegar Haraldur er krafður
um lánið, getur hann ekki gefið
„kost á“ nema 100 þús. kr. og
vilyrði um 50 þús. kr. seint í
haust.
En þegar Haraldur er búinn
að þessu öllu, setur hann upp
valdsmannssvipinn og segir: Alt
það fje, sepi jeg greiði upp í
styrk ríkissjóðs eða útvega að
láni til atvinnubóta, verður að
ganga til beinna atvinnubóta og
má engu af því varið til endur-
greiðslu á því, sem bærinn hefir
þegar varið til atvinnubóta.
Nú ,er Reykjavíkurbær búinn
að eyða 112 þús. kr. umfram
sína fjárveitingu og vitanlega
upp á væntanlega greiðslu rík-
issjóðs. Má gera ráð fyrir, að
bærinn skuldi Landsbankanum
mikið af þessari fúlgu, sem
greiðast skyldi með ríkissjóðs-
styrknum.
En nú segir Haraldur: Mig
varðar ekkert um hvað bærinn
er búinn að verja til atvinnu-
bóta og mig varðar ekkert um,
þótt ríkissjóður standi í skuld
við bæinn. Alt sem jeg greiði
MORGUNBLAÐIÐ
Atvinnubæfurnar
og rikisstjómin.
Borgarritari sendi nýlega at-
vinnumálaráðherra svohljóð-
andi brjef:
Með tilvísun til viðtals við
hæstv. atvinnumálaráðherra síð-
astliðinn laugardag vil jeg taka
fram eftirfarandi:
I fjárhagsáætlun Reykjavík-
urbæjar fyrir yfirstandandi ár
er ráð fyrir því gert að varið
verði til atvinnubóta kr. 450.-
000.00. Er svo til ætlast að þriðj
ungur upphæðarinnar verði
greiddur af tekjum bæjarsjóðs
á árinu, þriðjungur tekinn að
láni og loks að ríkissjóður leggi
fram sinn þriðjunginn kr. 150.-
000.00 samkv. 16. grein fjár-
laga fyrir árið 1934.
Frá síðastliðnum áramótum
og þar til atvinnubótavinna var
lögð niður í maímánuði hafði
verið varið til þessara ráðstaf-
ana alls rúml. 328 þús. krónum,
eru þá ca. 122 þús. krónur sem
ekki hefir þegar verið ráðstafað
af allri fjárveitingunni til at-:
vinnubóta samkv. f járhagsáætl-
un bæjarins.
Atvinnubótalánið, kr. 150
þús-, sem samkv. framanáögðu:
er ráðgert að taka á yfirstand-
andi ári, hefir ekki verið te'kið
enn, en alveg fyrirsjáanlegt að
hjá þeirri iántöku verður ekki
komist.
Vil jeg þess vegna spyrjast
fyrir um hvort ríkisstjórnin
mpni gefa bæjarsjóði Reykja-
víkur kost á láni er nemi þess-
ari upphæð, svo sem ráð er fyr-
ir gert á fyrgreindri 16. gr.
fjárlaganna fyrir yfirstandandi
ár. Þess skal getið að bæjarráð-
ið hefir leitað til Landsbanka
Islands og Útvegsbanka Islands!
h.f. um möguleika fyrir láni til
atvinnubóta hjá þessum stbFrt-'
unum og fengið daufar undif-
tektir.
Jafnframt vil jeg beina þeirri
fyrirspurn til ríkisstjórnarinnar
hvort greiddur muni verða úr
ríkissjóði á þessu ári þriðjung-
ur atvinnubótakostnaðar Reykja
víkurbæjar sá er verða kann
umfram það sem fjárhagsáætl-
unin gerir ráð fyrir, og enn-
fremur hvort ríkisstjómin muni
gefa bænum kost á láni til slíkr-
ar aukningar atvinnubóta á ár-
inu, ef bæjarstjórnin telur óhjá-
kvæmilegt að verja meiru fje til
þess að bæta úr atvinnuleysi, e«
áætlað er.
Að svo stöddu er ekki unt að
gera grein fyrir því hversu mik-
ið fjs bæjarsjóður muni þurfa
til atvinnubóta á yfirstandandi
ári umfram áætlun, það fer að
sjálfsögðu eftir ýmsum atvikum,
fyrst og fremst almennum at-
vinnuskilyrðum í bænum. En alt
útlit bendir til þess að talsvert
fje muni þurfa ef vel á að vera.
Það má telja alveg víst —
og enda sýnir hin lögboðna
skráning atvinnulausra bæjar-
búa nú um síðastliðin mánaða-
mót, að atvinnuleysi er hjer
úr ríkissjóði í atvinnubótastyrk
eða útvega að láni, ber að reikn
ast beint framlag frá mjer, Har-
aldi Guðmundssyni!
töluvert meira en um svipað
leyti árið sem leið.
Hefir bæjarstjórn því falið
bæjarráði að láta hefja atvinnu-
bótavinnu nú þegar í trausti
þess að nauðsynleg lán fáist.
Hvort bæjarsjóður Reykjavík
ur getur framkvæmt atvinnu-
bætur það sem eftir er þessa
árs, og hversu víðtækar, fer
fyrst og fremst eftir möguleik-
um um útvegun lánsfjár, því
eins og fyr segir hefir bæjar-
stjórn þegar lagt fram til at-
vinnubóta aít það fje sem til
þeirra var áætlað af tekjum
bæjarins á árinu og þó nokkru
meira.
Svar ríkisstjórnar.
Þessu brjefi borgarstjóra
svaraði Haraldur Guðmundsson
atvinnumálaráðherra í gær.
I svarinu er þess getið, að
ríkissjóður hafi 7. þ. m. greitt
bæjarsjóði 30 þús. kr., én áður
voru greidda^r 66 þús. kr. Nem-
ur þá alt framlag ríkissjóðs 96
þús. króna, en ætti að vera 109
þús. kr. mótijj við framlag bæj-
arsjóðs.
Þá getur ráðherrann þess að
þær 54 þus. kr. -— eftirstöðvar
af þeim 150 þús. kr„ sem ríkis-
sjóðí ber að leggja fram til at-
vinnubóta á móti þeim 450 þús.
ki„ sem á fjárhagsáætlun bæj-
arsjóðs eru — muni verða greidd
ar fyrir lok þessa árs, svo ekki
er hraðinn mikill hjá blessuðum
atvijmumálaráðherranum. ,
I brjefi ráðherrans er þess
ennfremur getið, að ráðuneytið
hafi útvegað bæjarsjóðk 100
þús. kr. lán til atvinnubóta í
Landsbanka íslands —^ 50 þús.
fyrir lok þessa manaðar og 50
þús. um mánaðamótin sept.—
okt. n.k„ en í fjárlogum er gert
ráð fyrir, að stjórnin útvegi lán
í þessu skyni. En þær 50 þús.
kr. sem á vantar til þess að
bærinn iái það lán sem hann
þarf og ráð er fyrir gert í fjár-
lögum, kveðst ráðherrann reyna
að útvega síðar.
Það skilyrði setur Haraldur í
brjefi sínu, að alt það fje, sem
ríkissjóður leggur fram sem
styrk eftir 1.. ág. og ríkisstjórn-
in hlutast til um að bærinn fái
lánað, samtals alt að 234 þús.
kr. verði notað til „beinna at-
vinnubóta“ og „engu af því var-
ið til endurgreiðslu á því, sem
bæjarsjóður hefir varið til at-
vinnubóta fram til þess tíma“
(þ. e. 1. ágúst).
Ráðherrann svarar engu til
um það, hvort ríkisstjórnin muni
greiða þriðjung atvinnubóta-
kostnaðar bæjarsjóðs, sem varió
kann umfram það, sem fjárhags
áætlun gerir ráð fyrir. Hann gef
ur heldur ekkert vilyrði um lán
í þessu skyni.
Afgreiðsla bæjarstjórnar.
Á bæjarstjórnarfundi í gær
komu atvinnubótamálin til um-
ræðu og var þar samþykt að
vísá þeim til bæjarráðs.
Jafnframt var samþ. áskor-
un um, að leita samkomulags
við ríkisstjómina um styrk til
atvinnubóta í sömu hlutföllum
og ráðgert er í fjárlögum.
Haustmótiö.
2, kappleikur.
Yalur:K. R. 2:1.
Ef dæma skal eftir þeim tveim-
ur kappleikjum, sem búnir eru á
liaustmótinu, verður maður að á-
líta, að knattspyrnan sje farin að
fara út í öfgar að því er snertir
kapp einstakra manna og' hörku-
legan leik í heild. Leikurinn milli
K. R og Vals í gærkvöldi var
sýnu harðari en hinn fyrri á milli
Fram og Víkings. Hjer var sá
munurinn, að liðin voru jöfn að
leikni og þroska, svo annað varð
ekki tiltakanlega fyrir barðinu
á hinu.
1. hálfleikur.
Valsmenn halda yfirleitt betur
uppi sólín sinni, en K. R. er skæð-
ári í Snöggum áhlaupum. Á 9
míhútu hleypur útframherji Vals
hægra megin afar snarlega upp
með línunni og leggtir fyrir á síð-
ásta augnabliki- Það var hepni K.
R., að ekki varð mark en 4 mín-
útum seinna fær Valur vítaspýrnu
fyrir hryndingu og skorar fyrSta
markið. Annað mark í þesSum
hálfleik skorar útframherji Vals
h. m. með afar fallegu skoti á
fjórðu síðustu mínútu leiksins úr
óhægri aðstöðu á hlið við markið.
Mark Vals hefir þó enganveginn
verið után við alla hættu. Á 22.
mínútu fær K. R. fríspyrnu og
miðvörður spyrnir feykna hart á
mark, en markyörðurinn, sem
stóð sig yfirhöfuð prýðilega allan
leikinn, nær knettinum og fell þó
við og annar á hann ofan. í mesta
hættu kemst; þó markið, þegar K.
R'. “féðt' Vítaspyrnu: • En markvörð-
urinn forðar því jafnvel úr þess-
u<n voða og nær knettinum, og er
það fátítt. að markverði takist
slíkt.
2. hálfleikur.
er öllu snarpari en hinn fyrri og
verður dómarinn að stöðva leik-
inn mjög oft og dæma fríspyrnu
á báða bóga. Á 12. mínútu tekst
K. R. að skora mark eftir upp-
hlaup á vinstri hlið vallarins og
ljómandi fallega sendingu frá
vinstri útframherja. Stóð nú leik-
urinn 2:1 og harðnaði um allan
helming. Miðvörður K.R. meiðist á
fæti og seinna á höfði, svo stöðva
varð leik í 2 mínútur, og eftir það
er þátttaka hans í leiknum meira
af vilj aen mætti. K. R. heldur þó
uppi stöðug'ri sókn síðari hluta
hálfleiksins; en þeim tekst ekki að
skora og lýkur leiknum með sig'ri
Hitler
slepptr fosA|$sfl9ti
Berlín, 16. ágúst. FB.
Fregn frá Wimar hermir, að
samkvæmt forsetaboðskap ný-
útgefnum verði fjölda margir
pólitískir fangar, sem hafa ver-
ið í haldi í Bad Sulza fanga-
búðunum, verði látnir lausir.
Verða þeim gefnar upp allar
sakir. Mælt er, að um einn
þriðja fanganna í þessum fanga-
búðum sje að ræða.
(United Press).
v. Papen i Vin.
Austurríska stjórnin
Vínarborg, 16. ágúst. FB.
von Papen er kominn hingað
til þess að taka við sendiherra-
embættinu. Enginn hinna kunn-
ustu meðal ráðherranna voru við
staddir komu hans. að eins að-
stoðar-ráðherrar. Draga menn
af þessu þær ályktanir, að aust-
urríska stjórnin sje ekki enn
fús til þess að sættast fullum
sáttum við Hitlersstjórnina.
Hins vegar verður kurteislega
með von Papen farið í öllu,
•••—--------
Hindenburg sagði:
Hillesr fiefir
sameÍKiaÓ Pfóíl-
werja.
London, 16. ágúst. FÚ.
Allar getgátur og flugufregn-
ir um það, hvað hin pólitíska
erfðaskrá Hindenburgs hafi inni
að halda, hafa nú þokað fyrir
staðreyndum, þar sem skjal
þetta hefir verið birt. Var það
birt samkvæmt skipun Hitlers.
Fyrsti hluti erfðaskrárinnar
er ritaður 1919, og í honum
harmar forsetinn hinar hörmu-
legu ástæður Þýskalands, og
biður þess, að upp úr þessu
brimsogna hafi, megi rísa klett-
ur, er borgið geti landi hans.
Næsti hluti erfðaskrárinnar
er ritaður í maí þetta ár, og fer
forsetinn þar lofsamlegum orð-
um um viðreisnarstarf það, er
herinn hafi unnið, og' segir þar,
að herinn hljóti altaf að vera
tákn þess máttar, sem með þjóð-
inni býr.
Um Hitler kemst hann svo að
orði:
„Kanslari minn, Adolf Hitler,
og hreyfing hans hafa markað
spor i sögu lands míns í því
a ðgera þýsku þjóðina að einni
heild. Mjer er ljóst hvað eftir
er að gera, og jeg óska af öllu
hjarta, að á bak Við endureisn-
arstarfið standi hugarfar, sem
leiði til sameiningar þjóðar
minnar“.
Meðal farþega með Gullfossi frá
Kaupmannahöfn í gær voru: Ól-
afur Johnson ræðism. og frú, ung-
frú Magna Einarsdóttir, frú Ásta
Jónsson, Meinholt kaupm. og frú,
A. Claessen, A. Johnson, frú Ásta
Ólafsson, ungfr. Geirþrúður Niku-
lásdóttir, Svanhildur Ólafsdóttir,
Emilía Borg, Ingibj. Sigr. Þor-
steinsdóttir, Ólöf Ríkarðsdóttír,
Halldóra Bjarnadóttir, frú Guð-
munda Guðmundsdóttir, ungfr.
Vi8gdís Nýborg, Valdís Halldórs-
dóttir, Ágústa Þorkelsdóttir, Ein-
arMagnússon kennari, Nikulás
Frðriksson, Torfi Jóhannesson,
Mag'nús Thorsteinsson og fi|ú,
ungfr. Petrea Sveinsdóttir, frú M.
Jónsson, frú Sigr. Geirsdóttir, frú
Guðrún Jóhannesdóttir, Ágúst Guð
mundsson, Jón Ólafsson lögfr. og
frú, Eggért Stefánssoxi söngvari,
ungfr. Ólöf Sæmundsdóttir, Bryn-
leifur Tobiasson, Sig'fús Halldórs.
o. m. fl.
Hjónaband. í gær voru gefin
saman í hjónaband af síra Árna
Sigurðssyni Hrefna Þorsteins-
dóttir, Þorsteinssonar kaupm.,
Laugaveg 52 og Þórir Jónsson.