Morgunblaðið - 28.09.1934, Page 2

Morgunblaðið - 28.09.1934, Page 2
2 MORGUNBLAÐIÐ Ötgef.: H.f. Árvakur, Reykjavlk. Rttstjórar: J6n Kjartansson, Valtýr Stefánsson. Rttstjðrn og afgreiSsla: Austurstrætl 8. — Slml 1600. Auglýstngastjórt: E. Hafberg. Auglýslngaskrifstof a: Austurstræti 17. — Slmi 8700. Helmaslmar: J6n KJartansson nr. 3742. Valtýr Stefánsson nr. 4220. Árni Óla nr. 3045. E. Hafberg nr. 3770. Áskriftagjald: Innanlands kr. 2.00 á mánutii. Utanlands kr. 2.50 á mánubi 1 lausasölu 10 aura eintakitS. 20 aura meti Eesbök. i Lýðræði ranðliða. í stjórnarskrám allra lýð- frjálsra landa eru ákvæði, sem miða að því að vernda skoðana- og athafnafrelsi embættismanna gagnvart ríkjandi stjórnum. I>etta ákvæði þótti sjálfsagt að stjórnarskrárnar geymdu, því á einveldistímunum var það svo, að embættismenn urðu að sitja og standa eins og einvalds- herrarnir vildu vera láta og þeir máttu enga aðra skoðun hafa, en yfirboðarar þeirra. I stjórnarskrá vorri er einnig ákvæði, sem miðar að þessu sama. í 43. gr. segir m. a. svo: „Embættismenrí þeir, sem kosnir verða til Alþingis, þurfa ekki leyfi stjórnarinnar til þess að þiggja kosninguna, en skyld- ir eru þeir til, án kostnaðar fyr- ir ríkissjóð, að annast um, að embættisstörfum þeirra verði gegnt á þann hátt, sem stjórnin telur nægja‘‘. Á þetta stjórnarskrárákvæði er vert að minna nú, í sam- bandi við þau tíðindi sem gerst hafa vestur á Isafirði. Jón A. Jónsson er kjörinn þingmaður Norður-ísafjarðar- sýslu. En hann er bæjarstjóri á ísafirði, þar sem rauðu flokk- arnir hafa þó meiri hluta; hann komst í þá stöðu á hlutkesti. Nú er að því komið, að Al- þingi komi saman. J. A. J. fór því fram á það við bæjar3tjórn fsafjarðar, að hún leyfði full- trúa hans að gegna störfum bæjarstjóra um þingtímann og á ábyrgð J. A. J. En rauðliðar í bæjarstjórn neituðu þessu. Fór þá J. A. J. fram á, að bæjarstjórn benti á einhvern þann mann, er hún gæti fallist á til starfans. Þessu neituðu einnig rauðlið- ar í bæjarstjórn ísafjarðar! Var því einn kostur fyrir J. A. J. að segja lausri bæjar- stjórastöðunni, því að öðrum kosti var honum gert ókleift að sitja á þingi. - Er. hvað skeðurþá? Nú höfðu rauðliðar ekkert við það að at- huga, að sá maður yrði settur bæjarstjóri, sem J. A. J. hafði stungið upp á! Þessi atburður er svo fáheyrð ur að furðu gegnir, að ríkis- stjórnin skuli ekki grípa í taum ana. Eða er ætlun rauðliða sú, að innleiða, þá reglu, að gera em- bættismönnum í andstæðinga- flokki ókleift að sitja á þingi? Það væri eftir öðru framferði þeirra. Rauði ranosðknarrietturinn Leikvaogur RevXiaufkur. á að fá vald til þess að „heimta skýrslur munnlegar eða brjeflegar, bði af embætt- ismönnum og einstökum mönnum, stjórn- endum fjelaga og stofnana, um þau at- riði, sem hún telur þörf á í starfi sínu. Fyrir þingið verðu rlagt stjórnarfrum- varp um þetta rannsóknarvald. . v- . -gr,---------------------—------------------ Meðal þeirra stjórnarfrumvarpa, sem lögð verða fyrir Alþingi, ber eitt eftirfarandi heiti: „Frum- varp til laga um heimild handa skipulagsnefnd atvinnumála til þess að krefjast skýrslna o. fl.“. í 1. gr. frv. segir: „Nefnd sú, sem ríkisstjómin skipaði 29. ágúst 1934, til þess að rannsaka fjármál ríkis og þjóðar og hverskonar atvinnurekstur í landinu, og til þess að gera tillög- ur um hagskipulag þjóðarbúsins o. fl., sljal hafa heimild til þess að heimta skýrslur munnlegar eða brjeflegar, bæði af embættismönn- um og einstökum mönnum, stjóm- eridum fjelaga ög stofnana, um þau atriði, sem hún telur þörf á í starfi sínu“. Nefnd sú, sem hjer um ræðir er skipulagsnefndin svonefnda. Henni er m. a. ætlað það verkefni, að gera tillögur um „nýtt skipulag“ á grundvelli þjóðnýtingar sósíal- ismans. Þetta heitir nú „hagskipu- íág' þ jóðarbúsins“!! í nefndinni eiga sem kunnugt er sæti 5 menn, þrír hreinræktaðir og tveir grímuklæddir sósíalistar. Formaður nefndarinnar er Hjeð- inn Valdimarsson og með honum Lindsay leiðangudnn kominn til Patreksf jarðar. Patreksfirði, 27. sept. FÚ. Hingað til Patreksfjarðar kom í gær línuveiðaskipið Jac- inth frá Aberdeen, til þess að fá sjer vistir. — Með skipinu voru 3 Englendingar, leiðang- ursmenn frá Grænlandi sem teknir voru í Angmagsalik, þeir Lindsay, Godfray og Croft. Lindsay, sem var fararstjóri, og Godfrey, höfðu tekið sjer far með Gertrud Rask frá Kaup- mannahöfn, en Croft, sem hafði verið í Jakobshavn síðastliðinn vetur, slóst þar í förina. — Lagt var upp frá Jakobshavn við Diskoflóa 17. .ýíní síðastlið- inn á þremur hundasleðum, og haldið þvert yfir Grænlandsjök- ul á 70. breiddarstigi, og komið niður að austanverðu fyrir botni Scoresbysunds. Þaðan hjelt Ieiðangurinn til suðurs, alt af uppi á jöklinum, alla leið til Angmagsalik. Þangað kom hann 5. þ. m. eftir að hafa farið 1150 mílur á jöklinum. Leiðangursmenn kortlögðu fjöllin milli Scoresbysunds og Angmagsalik. Þeir fengu verstu veður á ferðalaginu en alt gekk þó slysa laust. éru í nefndinni: Jónas' Jónsson frá Hriflu, Emil Jónsson bæjarstj. Hafnarfirði, Steingrímur Stcin- þórsson Hólum og Asgeir G. Stefánsson Hafnarfirði. , Þessi rherrar skipa Rauða rann- sóknarrjettinn, sem settur er til höfuðs einstaklingsframtaki og einstaklingsrekstri. Þessir herrar eiga að fá vald til þess,. að heimta skýrslur munn- legar eða brjeflegar af einstökum mönnum, stjórnendum fjelaga og stofnana, um öll þau atriði, gem þeim þóknast. í 3- gr. frv. segir, að sá sem vanrækir eða þrjóskast við að gefa Rauða rannsóknarrjettin- um umbeðnar skýrslur, skuli sæta 10 til 100 kr. dagsektum, uns fullnægt er valdboði „rjettarins“. Og ef nokkur dirfist að gefa Rauða rannsóknarrjettinum ranga skýrslu, varðar það sektum eða fangelsi! 1 2. gr. frv. ér næsta hlálegt ákvæði. Þar segir, að „meðlimum“ nefndarinnar og' „starfsmönnum“ hennar sje bannað, að „viðlagðri ábyrgð eftir ákyæðum almennra hegningarlaga um embættis-, og sýslunarmenn“, að skýra „óvið- komandi mönnum“ frá því, sem þeir verða áskynja! Þess er ekki getiðj hverjir hinir „viðkomandi“ menn eru, sem nefndarmenn og starfsmenn mega lepja í. Auðvitað heyra þar undir ráðherrarnir og þeir mega svo vafalaust koma boð- skapnum til stjórnarblaðanna- Eða dettur nokkrum manni í hug, að Jónas frá Hriflu eða Hermann Jónasson, svo nefnd sjeu að eins tvö nöfn hinna heiðarleg- ustu(!) • stjórnmálamanna í flokki Tímasósíalista, fari að þeg'ja yfir því, sem þeir verða „áskynja“ í sambandi við yfirheyrslur Rauða rannsóknarrjettarins ? Stjórnarskrárbrot. Alþingi kemur saman innan fárra daga og fæst þá úr því skorið, hvort það lætur Rauða rannsóknarrjettinum í t.je hið um- beðna vald. Ótrúlegt þykir, að Alþingi fáist til að leyfa nokkuð slíkt, því þaxS yrði alveg tvímælalaust stjórnar- skrárbrot. 1 stjórnarskránni er til ein grein, sem leyfir undir sjerstokum kringumstæðum að skipa nefndir með rannsóknarvaldi. Er það 34. gr. stjórnarskrárinnar, sem fjallar urn þetta- Hún er svohljóðandi: „Hvor þingdeild getur skipað nefndir innandeildarþingmönnum, til að rannsaka mikilvæg mál, erá menning varðar. Þingdeildin getur veitt nefndum þessum rjett til að heimta skýrslur, munnlegar og brjeflegar, bæði af embættismönn- Hcntngasfi sfaðurinn fundinn. Mesta framtíðarmál fyrir æskulýð bæjarins. Sameiginlegt áhugamál allra íþróttamanna bæjarins, og íþrótta- vina, er það, að upp komist sem fullkomnastur leikvangur fyrir allar íþróttaiðkanir. Hafa mis- munandi staðir verið tilnefndir, fyrir framtíðar leikvang. Nú hefir Jón Þorláksson bent á hentug- asta staðinn, sem er fyrir sunnan skemtigarðinn við Tjörnina. Viðtal við borgarstjóra. Er blaðið hitti Jón Þorláksson borgarstjóra í gær, og spurði hann um Leikvangsmálið, sagði hann m. a.: — Jeg hefi komist; að þeirri niðurstöðu, að íþróttasvæði bæjar- ins eiga að vera á svæðinu sunnan Hringbrautar, sunnan við skemti- garðinn við Tjörnina, norðan Njarðargötu, og austan við fyrir- hugaða Háskólalóð- Yestan við íþróttasvæðið verð- ur lögð gata, sem á að vera aðal samgönguæð milli Skerjafjarðar og miðbæjarins. Yerður sú gata lögð svo austarlega, að hún sje á takmörkum þess svæðis að aust- an, sem hægt er að nota fyrir byggingarlóðir.. En austan við þá götu, er landið svo lágt, að ekki verður hægt að leggja um það holræsi, er frárensli fái til sjávar. Svæði þetta er alveg miðsvæðis í bænum, nokkurnveginn jafn- langt þangað úr öllum lielstu bæjarlilútum. Og svæðið er svo víðlent, að þar verður nægilegt rúm fyrir íþrótta- velli, æfingavelli og' alt sem þar þarf með. Fyrst er að ræsa landið fram fullkomlega. Er hægt að byrja á því fljótlega. Og svo er það íþróttamannanna, að segja til um það, hvernig fyrir- komulag þeir óska sjer að hafa á hinu fyrirhugaða íþróttasvæði- um og einstökum mönnum“. Eins og sjest af þessari grein, er mikill munur á þeim nefndum, sem stjórnarskráin. léyfir að fái rannsóknarvald og nefnd þeirri, sem stjórnin hefir skipað. í stjórnarskrárgreininni segir, að slíkar nefndir skuli skipaðar „innandeildarþingmönnum“, og ætlast stjórnarskráin til, að „mál- ið“, sem rannsaka á, sje fast- ákveðið, en ekki eitthvað óákveðið út í loftið. Rauði rannsóknarrjetturinn er hinsvegar skipaður sumpart þing- mönnum og sumpart mönnum utan þings. Rannsóknarsvið hans er alveg óákveðið; hann má rann- saka alt sem honum dettur í hug! Slíka rannsókn er óheimilt að fyrirskipa, nema geg'n glæpamönn- upi, eða mönnum, sem grunur leikur á að framið hafi glæp. Af þessu er ljóst, að Alþingi myndi fremja stórkostlegt stjórn- arskrárbrot, ef það samþykti að veita Rauða rannsóknarrjettinum hið umbeðna vald. Vonandi þarf ekki að gera ráð fyrir, að Alþingi ljái sig til þessa. Að lokum sagði borgarstjóri, að hann hugsaði sjer, að flug- vellir yrði í Vatnsmýrinni suður af íþróttasvæðinu- En ef til þess kæmi, að hjer yrði réist járn- brautarstöð, þá teldi hann hæfi- legan stað fvrir hana á hryggnum sunnan við mýrina, norðvestur af Öskjulilíðinni. Yiðta! við forseta í. S. í. Benedikt Waage. Blaðið lagði það fyrir forseta íþróttasambands íslands í gær hvernig honum litist á staðinn fyrir Leikvang Reykjavíkur. Hann komst svo að orði: — Jeg hefi lengi haft auga- stað einmitt á þessum stað fyrir íþrótatsvæði. Er staðurinn m. a. vel valinn vegna þess hve hann er mið- svæðis í bænum. Og þarna verð- ur- tiltölulega auðvelt að hafa grasigróna velli, en það tel jeg alveg bráðnauðsynlegt. Þarna verður hægt að hafa íþróttasvæði fyrir alla skóla bæjarins. Skólafólk getur iðkað þar íþróttir að afloknum kenslu- stundum. En síðar geta komist þar að þeir menn, sem eru bundnir við atvinnu sína fram undir kvöld. Ryklaus völlur. Með því að hafa grasvelli, verður íþróttasvæðið ryklaust. Er það mjög þýðingarmikið bæri fyrir íþróttamenn og áhorfend- ur. — Þarna þarf að vera fullkom- inn knattspyrnuvöllur, þar sem landsmót og milliríkjakepni geta farið fram. Þarna þurfa menn að geta iðkað allskonar knattleika, tennis, hockey o. fl. Völlur þarf að vera fyrir allar einmenningsíþróttir, — en hlaupabraut umhverfis hann, sem yrði a. m. k. 400 metrar á lengd. Áhorfendapallar yrðu þannig útbúnir, að undir þeim yrðu búningsklefar fyrir íþrótta- menn, böð og ræstingarklefar. Áhorfendasvæðin þurfa að vera vistleg, með sæmilega góð- um sætum og pallstæðum alt í kring. Undirbúningur undir Olympsleika. Mjög væri það æskilegt, að hægt væri að ræsa landið fram sem fyrst, svo íþróttamenn gætu fengið not af því næsta sumar fyrir æfingar sínar. Því ef við eigum að senda menn á Olymps leikana í Berlín 1936, verða þeir sem þangað fara að geta æft sig á góðri hlaupabraut og knatt- spyrnumenn á grasigrónum leik velli. Samþyktu íþróttamenn í vetur áskorun til bæjarstjórnar um þetta. Jeg er í engum efa um, að hjer er um að ræða eitt hið mesta framtíðarmál fyrir æsku- lýð Reykjavíkurbæjar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.