Morgunblaðið - 28.09.1934, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ
a
4
K
Asgeir Signrð§son
sjölugnr
Fyrir 40 árum fluttist Ásgeir
Sigurðsson konsúll hingað til
Reykjavíkur, þ(i um þrítugt.
I dag á þessi merkismaður
sjötugsafmæli.
I fjörutíu ár hefir hann
stjórnað einu því mesta verslun-
arfyrirtæki á landinu, Edinborg,
er hann stofnaði 1895, ásamt
Skotunum tveim Copland og
Berrie.
En nokkru fyrir ófrið varð
Ásgeir einn eigandi þessa mikla
verslunarfyrirtækis.
Alt fram til þessa tíma hefir
hann haft alla stjórnartauma
Edinborgar í sinni hendi. Með
sömu varkárni og fyrirhyggju
hefi^ sú stjórn hans verið alt
frá upphafi.
Sem forgöngumaður íslenskr-
ar verslunar utan lands og inn-
an verður hans lengi minst.
Sem hins varfærna, sann-
gjarna og diplomatíska ræðis-
manns Breta hjer á lanai verð-
ur hans ekki síður minst.
En minnisstæðastur verður
hann þeim, er haft hafa per-
sónuleg kynni af rjettsýni hans,
drenglyndi og höfðingsskap.
Sá er þetta ritar heimsótti
Ásgeir Sigurðsson hjer á dög-
unum á hinu vistlega heimili
hans í Suðurgötu.
Þó aldur sje tekinn að færast
yfir hann er fyrirmannsbragur-
inn og hin höfðinglega fram-
koma hin sama, er einkent hef-
ir manninn alla tíð.
Á borðinu fyrir framan hann
voru tvær þykkar bækur, úr-
klippubækur; þar sem hann hef-
ir safnað blaðaúrklippum, mynd
um og ýmsum skjölum er snerta
æfi hans og starf.
Þar eru t. d. einkunnablöð frá
barnaskóla þeim 1 Edinborg, þar
sem hann fjekk sína fyrstu
kenslu. Því 10 ára fór hann af
ísafirði til frænda síns Jóns A.
Hjaltalín, er þá var bókavörð-
ur í Edinborg.
Þarna eru stílar frá þessum
skólaárum, með sviphreínni
skrift, sem er svo sjerkennilega
samsvarandi manninum sjálf-
um, skaplyndi hans og æfiferli.
Og síðar koma ýmsar minn-
ingar. Frá Möðruvöllum í Hörg-
árdal, þar sem hann var skóla-
sveinn tvö fyrstu ár skólans,
undir handleiðslu Hjaltalíns.
Það var ísavorið 1882 er
hann útskrifaðist þaðan. Þá tók
hann að sjer verslunarstörf við
Gránufjelagsverslun á Oddeyri,
er J. V. Havsteen veitti for-
stöðu. Þar gekkst hann fyrir
stofnun Goodtemplarareglunn,
ar, gaf út Bindindistíðindi —
og ,,Jón rauða“, svo útgáfu-
starfsemin sje nefnd. En ,,Jón
rauði“ er einn allra íslenskra
blaða prentaður á rauðan papp-
ír. Og sagði Ásgeir svo frá,
hvernig sú útgáfa kom til.
í' Gránuf jelagsverslun var
pappír, sem lengi hafði þar leg-
ið, rauður að lit, of góður fyrir
umbúðapappír, en seldist ekki.
Og þegar gerð var vörutalning
eitt sinn kom Ásgeir að máli
við húsbónda sinn og bað hann
að selja sjer pappírinn til að
prenta á hann blað.
Þegar komin voru þrjú tölu-
blöð var pappírinn búinn og út-
gáfunni hætt. En hjer komu
fram í smáum stíl tvö einkenni
Ásgeirs, hugkvæmni og nýtni á
öll verðmæti.
Frá Oddeyri fór Ásgeir á
vegum Tryggva Gunnarssonar
til Hafnar. En þar festi hann
ekki yndi. Hann vildi hið breska
andrúmsloft. Fór til Leith og
vann hjá Steenberg ræðismanni
þar. En Steenberg hafði nokkur
viðskifti við ísland. Þau jukust,
meðan Ásgeir var þar.
En árið 1894 kom Ásgeir Sig-
urðsson hingað til Reykjavíkur
og stofnaði Edinborg ári síðar,
er fyr segir.
Starfssaga Ásgeirs Sigurðs-
sonar síðan hann stofnaði Edin-
borgarverslun er bæjarbúum
kunn. Því hefir áður verir lýst
hjer í blaðinu hvernig sú versl-
un óx og tók hamskiftum lyer
í bænum, hvernig stakkur henn-
ar fór eftir vexti bæjarins, þar
sem hún byrjaði í gömlu risháu
húsi, með veggjum er voru rúm-
lega mannhæð. Síðan timbur-
húsið Edinborg er brann, og síð-
ast hið reisulega steinhús í Hafn
arstræti.
En lífið og sálin í öllu því
fyrirtæki hefir Ásgeir verið, for-
göngumaður í verslun utan
lands og innan, í utanlands-
verslun, þar sem hann byrjaði
saltfisksendingar beint til Mið-
jarðarhafslanda, og má nærri
geta hve verslun sú hefir verið
erfið frá símalausu landi.
En í annari utanlandsverslun
hefir Ásgeir fært okkur nær
aðalleiðum heimsverslunarinnar
með því jafnan að beina við-
skiftunum til Bretlands.
Svo enn sje vikið að blaða-
bókunum, er geyma myndir úr
lífi hans. Þar er sægur af ensk-
um blaðagreinum.
Við komum að greinunum um
togaramálin.
— Þau hafa víst stundum
verið erfið?
— Já, það hafa oft verið Ieið-
inleg mál, segir Ásgeir. Hann
vill ekki fjölyrða um þau. En
margra atburða hefir hann að
minnast, er hann hefir staðið
sem fulltrúi enskra skipstjóra,
með skýlausan skilning á ís-
lenskum hagsmunum og rjetti.
Mest verk vann hann þó sem
ræðismaður á ófriðarárunum.
Árum saman annaðist hann
kauþ á íslenskum afurðum. Um
hendur hans runnu miljónir inn
í landið. Alt var í reglu. Hvergi
skeikaði. Öllu stjórnaði hann
með óskeikulli lipurð og stjóm-
semi. Fyrir það verk f jekk hann
traust sem aldrei bilar, það álit,
sem ekki gleymist.
Alla tíð hefir Ás^eir Sigurðs-
son verið sönn fyrirmynd í versl
unarstjett fyrir sakir ráðdeildar,
varkárni og drengskapar í öll-
um viðskiftum.
Slíkir öndvegismenn eiga skil-
ið margfaldar þakkir fyrir Iangt
og heillaríkt starf.
Kirkiuliliömleikar.
Kirkjunefnd kvenna dóm-
kirkjusafnaðarins hefir miklu
komið til leiðar þau fáu ár, sem
liðin eru síðan hún tók til
starfa. Þess sjást ótvíræð merki
bæði inni í kirkjunni og líka
fyrir utan ; blómagarðurinn fyr-
ir sunnan kirkjuna er bæjar-
prýði,- sem hefir vakið fögnuð
þeirra, er fram hjá honum
ganga.
Allmiklu fje hefir nefndin
þurft að verja til þess, sem hún
hefir unnið og látið vinna, og
mestu af því hefir hún aflað
sjer með samkomum, sem haldn
ar hafa verið í kirkjunni. Þær
samkomur hafa ekki aðeins orð-
ið til þess, að afla nefndinni
fjár, heldur hafa þær tekist svo
vel, að þær hafa veitt mörgum
unaðslegar stundir ánægju og
uppbyggingar, eins og þeir
Ijúka allir upp einum munni
um, sem þær hafa sótt.
Nú efnir nefndin aftur til
samkomu í kvöld, og hefir ver-
ið vandað sem best til hennar.
Þar flytur erindi síra Sigurður
Ólafsson frá Árborg í Manitoba.
Einsöng syngur Einar Sigurðs-
Þið þekkið öll
§ól§kin§§ápuna.
II ii ii er heimsfræg.
Nú kostar pakkinn kr. 1.50 og stöngin 50 aura.
Nýjar bírgðír.
Verslunln Vfslr.
Símar 3555 og 2555.
i
Ný hárgreið§ln§(ofa
Á laugardaginn, 29. þ. m.. opna jeg hárgreiðslu-
stofu á Ásvallagötu 52 (Samvinnufjelagshúsun-
um nýju).
Allskonar hárliðun — hárþvottur — klippingar — andlitsböð
og nudd — hár- og augnabrúna-litun — handsnyrting (mani-
cure) — fótsnyrting (pedicure) o. s. frv.
Alt unnið af útlærðum stúlkum.
Lína Jónsdótfir.
son. Einnig syngur þar hin á-
gæta söngsveit kirkjunnar. Og
loks gefst mönnum tækifæri til
að heyra í fyrsta sinn hljóm-
leika á hið nýja og vandaða
orgel kirkjunnar, og leikur á
það Sigfús Einarsson, dóm-
kirkjuorganisti.
Þetta tækifæri ættu þeir að
nota, sem vilja gera tvent í
senn, njóta góðrar kvöldskemt-
unar og styðja gott málefni. Og
þeir, sem er ant um starf safn-
aðarins, ættu að stuðla að því,
að hvert sæti í kirkjunni verði
skipað, með því að segja vinum
sínum frá þessari samkomu og
hvetja þá til að koma.
F. Hallgrímsson.
Arnold Földesy
Það hlýtur að vera eitthvað
bogið við hljómlistaráhugann hjer
í Reykjavík, þegar manni eins og
Arnold Földesy, er tekið nieð fá-
læti. Hann er einn af þeini örfáu
núlifandi cellóleikurum, sem hafa
orðið heimskunnir, hann er ipaður,
sem heillar ekki að eins þá, sem
dást að leikni og' töfrabrögðum,
heldur einnig þá, sem finna full-
nægingu í að hlýða á túlkun
þroskaðs og gáfaðs listamanns á
góðum tónverkum. Það ætti auð-
vitað að taka á móti slíkum manni
sem fursta hjer á hala veraldar,
á stað, þar sem öll tónlist ber enn
á sjer merki vanmáttar ■ og kunn-
áttuleysis. Á sama tíma er undir
yfirskyni tónlistar verið að inn-
leiða hjer ameríska loddarháttu,
með rjómakökukasti og fléiru góð-
gæti; ætlar íslenskur almenningur
að gleypa við slíku, en skella
skollaeyrum við góðri list. J
Fiiklesy, mun halda lijer síðustu
hljómleika sína í kvöld. Það
trúir því enginn að óreyndu. að
ékki finnist svo margir sannir
Hlkomlð:
Handa börnum:
Nærföt. Sokkar.
Peysur. Buxur.
Regnkápur. Frakkar.
Húfur, margar teg.
Treflar o. m. fl.
Handa dömum:
Nærföt
ur silg'i, ull og- ísg'arni.
Sokkabandabelti.
Corselett og Lífstykki
sjerlega g'óð peysu-
fatalífstykki að ó-
R'leymdum borgarinn-
ar bestu silkisokkum.
Handa herrum:
Manchettskyrtur, einl.
og- misl. Vinnuskyrtur,
margar teg. Stakar
buxur margir, litir.
Enskar húfur, fallegt
úrval. Peysur og vesti
fjöldi feg. Allsk. trefl-
ar og' m. fl.
Laug'avegi 42.
Lifur og lijörtu.
Klein.
Baklursgötu 14.
Sími 3073.
tónlistarvinir hjer í Reykjavík,
að þeir fylli ekki lmsið. til þess að
kveðja þennan sjaldgæfa gest.
Emil Thoroddsen..