Morgunblaðið - 16.11.1934, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 16.11.1934, Blaðsíða 3
FjölgaS í atuinnubotauinnu upp í 4DD manns samkuæmt tillögu Bmjarráðs. Fyrir bæjarstjórnarfundi í geer lá tillaga frá bæjarráði um að hækka framlag til atvinnu- bótavinnunnar, svo hægt verði að taka 400 manns í vinnuna fram til áramóta. Til þess að þetta geti kom- M í kring þarf framlagið að bækka um 75 þús. kr. Hefir ríkisstjórnin gefið idrátt um að leggja fram til- lag sitt til þess framlags, 25 þúsund krónur. En bæjarstjórnarfundur í gær heimilaði bæjarráði að taka að láni 50 þús. kr. til viðbótar þeim lánum sem áður hefir verið leyft að taka til atvinnubóta- vinnunnar. Að fengnum þessum lánum verður fjölgað í atvinnubóta- vinnunni, sem fyr segir. Atvinnuleysi er nú óvenju- lega mikið hjer í bænum, mun vart nokkru sinni hafa verið meira. 100 kílowatta útvarpsstöð er nauðsynleg. Tillögur Gunnlaugs Briems verkfræðings. Endurvarpsstöð á Austurlandi. Gunnlaugur Briem síma- og átvarpsverkfræðingur hefir nú usi nokkurt 'skeið verið að rann- »aka á hvern hátt væri hag- kvæmast að endurbæta útvarp- iö hjer, svo að allir landsmenn gsetu haft af því full not. Hann hefir komist að þeirri niðurstöðu, að hagkvæmasta leiðin sje sú, að stækka útvarps- stöðina hjer í Reykjavík úr 16 t£w. og upp í 100 kw., og reisa ondurvarpsstöð við Lagarfljót á Fljótsdalshjeraði. Með því að stækka útvarps- stöðina hjer í Reykjavík, myndi kraftsvið hennar vaxa sem svar- ar 21/2—falt um alt land og við það myndu skilyrðin til við- töku útvarpsins batna mjög alls •taðar á landinu; truflanir myndu stórum minka og menn kæmust af með ódýrari tæki og íoftnet en nú. Með því að reisa aðra útvarps »töð á Austurlandi, sem endur- varpaði dagskránni frá Reykja- ▼ik, myndu útvarpsnotin stór- batna á Austfjörðum, en þar hafa truflanir verið mestar að •ndanförnu. Gunnlaúgur Briem hefir gert lauslega áætlun um kostnað við wmbætur þessar (stækkun út- ▼arpsstöðvarinnar í Reykjavík og bygging endui-varpsstöðvar á Austurlandi), og býst hann við að kostnaðurinn muni vera «m 580 þúsund krónur. Einhver aiikinn starfrækslukostnaður íttyndi af þessu leiða og áætlar G. Briem hann lauslega um 60 þús. kr. Útvarpsstjóri hefir nú farið fram á það við ríkisstjórnina, að hún hlutist til um, að Al- þingi það er nú situr veiti Rík- iíútvarpinu heimild til þess að gera þær endurbætur á útvarp- iau, er að framan greinir. Hvað rikisstjórnin hefir gert í þessu máli, veit blaðið ekki, en fram er komin svohljóðandi þings- ályktunartillaga, er 7 þingmenn Hytja í sameinuðu þingi: „Alþingi ályktar að heimila ríkisstjórninni að gera þegar ráðstafanii; til þess að láta auka og endurbæta senditæki Ríkis- útvarpsins, svo að þau fullnægi þorfum landsmanna. Skulu þær endurbætur fara eftir nánari á- kvörðunum stjórnarinnar, enda beri Ríkisútvarpið sjálft kostn- að allan af framkvæmdinni.“ Ráðnin garskrif sí of an á bæjarstjórnarfundi. Á bæjarstjórnarfundi í gær- kvöldi rjeðist samíylking rauða, liðsins harðlega á Ráðningaskrif- stofu bæjarins. Yar gaman að hlusta á þær umræður, því að þar sögðu hverjir öðrum til syndanna jafnaðarmenn og kommúnistar. Fanst það á að þeir voru síst sammála um annað en skamma hvorir aðra, og þegar þeir ætluðu loksins að tala um málefnið er fyrir lá, kappkostuðu þeir hver um annan þveran að afsaka Gnnn- ar Benediktsson, af ákærunni, sem borin var fram á hann, og sagði Jón Axel Pjetursson, að fulitrúmn Alþýðuflokks- ins í bæjarstjórn dytti ekki í hug að láta uppi nöfn þeirra manna, sem hefðu rægt Gunn- ar Benediktsson og Ráðninga- skrifstofuna. Tók þá Bjarni Benediktsson bæjarfulltrúi til máls og inælti á þessa leið: ,,Það er hart að Jón Axel Pjetursson skuli koma fram hjer í bæjarstjórn með þungar ásakanir á Ráðningarskrifstofu bæjarins, segja að hann hafi þær frá öðrum mönnum, en þora svo ekki að nefna nöfn þeirra. Jeg tel þetta tilefnislausar á- rásir, aðeins gerðar af hálfu sósí- alista til þess að spilla fyrir starfi þessarar nytsömu stofnunar“. Rauðka. Umræðum frá Alþingi um hína svonefndu „skipulags- nefnd“ verður lítrarpað í kvöld- M 0 R GUNBLAÐIÐ EDÍNBORG Matar§tell 6 manna, NÝKOMIN. Gyjt, skínandi falleg og ódýrari en áður hefir þekst. KAFFIS^TELL, 6 manna í miklu úrvali c. 10.90. SMÁRA-BOLLAPÖRIN komin aftur. Gulu fötin, Leirkrukkur, Riðfrí hnífapör 1,25, — Kolakörfur 4.50. EDINBORG Knallspyrna lirela og Itala. Kínverjar útrýma eiturlyfjum. • LRP 15. nóv. FÚ vekur alheims umtal. Itali slasaðist á vellinum og kenna þeir ósigur sinn því slysi. London, 15. nóv. FÚ ítalski knattspyrnuflokkurinn j sem kept hefir í Englandi og beðið ósigur fyrir heimamönn- j um, hjelt heimleiðis í dag. Einn knattspyrnumaður, af j hálfu Italanna, meiddist í upp-. hafi leiks og var fluttur á járn- brautarstöðina í sjúkrabörum. I Foringi f lokksins benti á , hinn Særða mann um leið og lagt var af stað og sagði: ,,þarna sjáið þið orsökina til ósigurs okkar, en ef þjer bjóðið oss aítur, þá munum' vjer með á- nægju koma.“ Blöð á meginlandinu ræða mjög um leik þenna. Blöðin í Austsrríki og Ungverjalandi halda því fram, að Bretinn verði ekki sigraður í knatt- spyrnu, þegar hann sje sóttur heim. Enska loftslagið, og hin sterka samhugð hins mikla enska múgs með sínum mönn- um við slík tækifæri, verði út- lendingum ofurefli. Þýsk blöð ræða einnig mikið um þenna knattleik, og telja einróma, að leikur Bretanna hafi verið með afbrigðum góð- ur. Þau saka ítalinp um .rudda- legan leik, einkum í síðari hluta kappleiksins. ,Le Matin“ lætur í ljósi, að ef leikurinn yrði endurtekinn, þá mundu ítalir vinna, og að þeir myndu hafa unnið, ef einn besti maður þeirra hefði ekki gengið úr leik í upphafi, vegna slyss. Eru þess varla dæmi, að fylgst hafi verið með knatt- spyrnukappleik með jafnmikilli athygli út um allan heim. Með nýjum lögum hygst kín- verska stjórnin að útrýma allri ópíumsöiu í Kína á næstu 6 árum. Einstaka mönnum, aðallega gömlu fólki, sem orðið er her- fang ópíum-nautnarinnai-, mun þó verða heimilað að kaupa af því smá skamta, en aðeins und- ir ströngu fftirliti. Stjórnin hefir með lögum þessum. hafið mikla baráttu gegn nolkun eit- urlyf ja, en svo er litið á, ;að við-- leytni hennar muni ekki koma að fullu haldi, nema samvinna annara þjóða komi til. Dauðarefsing er algengasta refsingin, sem lögð er við, í hin- um nýju lögum, að smygla eit- urlyfjum inn í landið, og versla með þau án' heimildar fpá völdunum. Sömuleiðis pr dRpða- refsing lögð við því, ef njaðpr gefur öðrum manni mprfín, nema í lækningaskyni sje: gprf> Albaiiitr amast við Grikkfum. Æfi Bretakonungs kvikmynduð. London, 15. nóv. FÚ Winston Churchill er nú að ritá textann í stói'kostlega kvik- mynd um stjórnartíð núverandi George Bretakonungur og Mary drotning-. könunÉs, og. er ætlað að sýna alla helstu merkis atburði, sem orðið hafa í sögu Englendinga á þessu árabili. Anthony Asquith sjer um sjálfa myndatökuna. — Kvik- myndin á að vera tilbúin á 25 ára stjórnarafmæli konungs, en það verður haldið hátíðlegt á næsta vori. Nýir bátar til Seyðisfjarðar. Seyðisfirði, 15. nóv. FÚ í dag komu hingað til Seyð- isfjarðar 4 nýir vjelbátar, sem Seyðisfjarðai'kaupstaður hefir keypt af June Muntell í Jön- köbing í Svíþjóð. — Bátamir eru allir eins, 17,6 smálestir að stærð, smíðaðir í Nyköbing á Jótlandi. Siglu þeif þaðan beina leið um Shetlandseyjar og Fær- eyjar á 158 stundum, auk 10 stundadvalar í Færeyjum. Leiði var gott. Bátamir verða leigðir Sam- vinnufjelagi sjómanna hjer á Seyðisfirði. London, 15. nóv. FÚ Nýlega hefir gengið mikill orðrómur um það, að stjórnin í Albaníu beiti gríska minni- hlutann harðneskju, í því skyni að eyða grísku þjóðerni í Al- baníu, og hafi látið loka grísk- um skólum, bannað kennurum að kenna og jafnvel látið hand- taka foreldra, sem ekki vildu hlýðnast þeim fyrirmælum. Hefir þetta valdið miklum æsingum og óánægju í Grikk- landi, og hafa veinð haldnir fjölmennir fundir í mótmæla- skyni, þar sem skorað er á grísku stjórnina, að gera ráð- 'stafanir til þess«,ð vernda rjett hinna 200 þúsund Grikkja, sem búa í Albaníu. Svo mikið kveður að þessari óánægju, að gríska stjómin hefir fundið sig knúða til þess að lýsa yfir afstöðu sinni og skora á þjóðina að taka í málið með ró og stillingu. Hreinn Pálsson syngur í Gr.-T.- húsinu í Hafnarfirði í kvöld kl. »y2.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.