Morgunblaðið - 16.11.1934, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ
7
Sjálfstæði Irlands
og de Ualera.
London, 14. nóv. FÚ
De Valera sagði í ræðu í dag,
að hann myndi aldrei telja íra
sem þjóð, fyr en fullkomlega
sameinað írland væri komið í
tölu sjálfstæðra ríkja.
Enskur lögfræðingur, er hefir
tekið sjer bólfestu í írlandi,
sagði í ræðu á fundi írskra
Royalista í dag, að innan fárra
mánaða myndi de Valera geta
lýst fullkomnu sjálfstæði írska
lýðveldsins. Samningarnir frá
1921 væru nú að heita mætti
úr sögunni, því De Valera væri
buinn að ógilda hvem lið þeirra
á fætur öðrum.
Spænskir
uppreisnarmenn
hafast við á fjöllum.
►
Berlín, 15. nóv. FÚ
Heíforingi stjómarliðsins í
Asturia segir í skýrslu, sem
hann hefir sent stjórninni í
Madrid, að flokkur uppreisnar-
manna hafist enn við á fjöll-
unt- Hann kveðst hafa sent her-
fylícingar í þá staði, þar sem
enh sjé vitað um uppreisn-
armenn — 200 manna lið — á
hvern stað.
Lýðræðissfjérn
á Saai*
undír vernd
Þjóðafoandalagsíns?
f Genf, 15. nóv. FB.
Samkvæmt áreiðanlegum heim-
H
ildum er Saar-nefndin saman kom-
in á fund í Rómaborg, til þess, að
því er fullyrt er, að mæla með því
við ráð Þjóðabandalagsins, að Saar
hjerað fái lýðræðissjálfstjóm, und
ir vemd Þjóðabandalagsins, ef úr-
slit þjóðaratkvæðisins verða þau,
að æskja engra breytinga á nú-
verandi fyrirkomulagi.
Af sumum er þó talið, að það
sje fyrir utan verkahring nefndar-
innar, að taka þetta atriði til með-
ferðar, því að hlutverk hennar er
aðallega að íhuga og koma frám
með tillögur viðvíkjandi Saar,
fjárhags og viðskiftalegs eðlis.
Furðuflugujelin
er með 4 gluggum.
Samkvæmt blaðinu Aftenposten
hefir dularfulla flugvjelin sjest
aftur, bæði í gærkvöldi og í nótt
sem leið, í nánd við Berlevaag.
Olufsen ríkislögreg'lumaður hef-
ir haft athuganir á liendi í sam-
bandi við ferðir flugvjelar þessar-
ar. Hefir margt áreiðanlegra og
nannsögulla manna sjeð flugvjel-
ína. Er því m. a. haldið fram, að
hún hafi flogið yfir Skaansviker-
fjall í 100 metra liæð og stefndi þá
til hafs.
Flugvjelin er stór og á skrokkn-
um voru fjórir gluggar og flaug
híin með öllum Ijósum, að því er
virtist- ,
1 nótt heyrðist og enn á ný, að
verið var að senda loftskeyti, sem
menn vita ekki deili á.
Leyndarmál
Rasputins.
Hvemig hann læknaði
keisarasoninn.
Rasputin,
f læknafjelagi í Yín hjelt
læknir einn fyrirlestur nýlega
um það, hvernig honum hefði
tekist að lækna sár manna, sem
líða af þeim sjúkdómi að blóð-
rás stöðvast ekki í sárum
þeirra.
Sonur Nikulásar Rússakeis-
ara hafði þann sjúkdóm, og var
keisaraf jölskyldan mjög' á-
hyggjufull út af því.
En svo kom Rasputin til sög-
unnar. Hann læknaði keisara-
soninn. En fyrir þá sök fekk
hann þau áhrif í Rússlandi, sem
seint munu gleymast. Því vilja
hans urðu allir að lúta.
Læknirinn í Vín skýrir frá,
að hann hafi komist að þeirri
niðurstöðu, að hægt sje að
græða sár þessara sjúklinga
með konumjólk.
En Rasputin hafði' altaf hóp
af ungum bændakonum á heim-
ili sínu. Er það tilgáta læknis-
ins, að hann hafi hjá þeim
fengið mjólk til þess að lækna
keisarasoninn.
□agbók.
I. O. O. F. 1 = 11611168/2 s
Veðrið í gær: Lægðin, sem var
við S-Grænland í gær, hefir
hreyfst NA-eftir Grænlandi með
allmiklum hraða og veldur nú S-
átt um alt land með 3—7 st. hita.
Á A-landi er vindur hægur, veður
þurt og' hjart- Norðan til á V-
landi er allhvast og rigning á S-
og V-landi. Lægðin er enn alldjúp
yfir Græulancli og fyrir norðan
land og hreyfast NA- og A-eftir.
Mun heldur herða á vindi hjer á
landi og verður vindstaða SV-
læg næsta sólarhring og úrkoma
á S- og V-landi. Mun heldur kólna
í veðri vestanlands á morgun.
Veðurútlit í Rvík í dag: All-
hvass SV. Skúra- og jeljaveður.
Smáþjófnaðir. Undanfarið hefir
borið mikið á smáþjófnuðum hjer
í bænum. Eru það aðallega ung-
lingar, sem stela reiðhjólum, frí-
merkjum og ýmsu smádóti. Lög-
reg'lan hefir undanfarna daga
liaft- mál þessi til meðferðar, og
haft upp á mörgum, sem valdir
eru að þessu smáhnupli.
Fimtugsafmæli á í dag Kristján
Benediktsson trjesmiður, Freyju-
götu 26.
Vilmundur Jónsson landlæknir
hefir ritað í Alþýðublaðið langa
grein um vörusvik. Stælir land-
læknir þar, eftir því sem hann
g’etur rithátt Þorþergs Þórðarson-
ar.
Hjólreiðar bannaðar í Banka-
stræti. Á fundi bæjarráðs, föstu-
daginn 9. þ. mán. bar Bjarni
Benediktsson prófessor fram þrjár
tillögur um umferð í bænum. —
Fyrsta tillagan var um það að
„banna hjólreiðar um Banka-
stræti“. Var hún fram komin
vegna hinna tíðu og sorglegu slysa
sem þar hafa orðið. Tillagan var
samþykt á hæjarstjórnarfundi í
gærkvöldi með samhljóða atkvæð-
um. Hinar tillögurnar, um sjer-
staka aðgæslu á umferð á Lækj-
artorgi og um ný bifreiðastæði í
miðbænum, eða í grend við hann,
voru líka samþyktar.
Bæjarreikningamir. Á fundi
bæjarstjórnar í gærkvöldi kom
það fram. að fulltrúar Alþýðu-
í'lokksins höfðu ekki kynt sjer
teikninga bæjarins. Kom fram til-
íaga fr.á Guðm. R. Oddssyni um
það að fresta atkvæðagreiðslu um
úrskurð á reikningunum (og hafn-
arsjóðs líka), svo að bæjarfulltrú-
arnir gæti kynt sjer þá. Var sú
tillaga samþykt með 7 atlívæðum
gegn 5.
Luigi Pirandello.
Þórhallur Þorgilsson ritar í Víð-
sjá blaðsins í dag grein um ítalska
leikritahöfúndiílri, Luigi Piran-
dello, en hann fjekk Nobelsverð-
laun um daginn^ Reykvíkingar
kyntust höfundi þessum nokkuð
hjer um árið, er leikið var hjer
leikrit han,s „Sex verur leita höf-
undar“. Grein Þórhalls skýrir m-
a. frá þeim sjerkennum þessa
heimsfræga höfundar, er fram
koma í leikriti þessu.
Egill Skallagrímsson kom í gær
með bátafisk af Vestfjörðum. —
Skipið fór í gær með farminn á-
leiðis til Eng'lands.
Niðurjöfnunarnefnd Á bæjar-
stjórnarfundi í gærkvöldi voru
kosnir fjórir fulltrúar í niður-
jöfnunafnefnd. Kosningu hlntu:
Gunnar Viðar hagfræðingur, Sig-
urbjora Þorkelsson kaUpmaður,
Ingimar Jónsson skólastjóri og
Jón Guðjónsson bókari.
Jóni E. Vestdal var í gær falið
að liafa á hendi eftirlit með smjör-
líkisframleiðslu og smjörlíki því,
sem hjer er í verslunum. Ætti
með því að fást öryggi fyrir smjör
líkisverksmiðjurnar gegn árásum
og órökstuddum getsökum um
svik og falsanir.
ísfisksala. í gær seldu afla sinn
í Englandi: Belgaum fyrir 1243
stpd., Otur fyrir 545 stpd., Skalla-
grímur 1047 vættir fyrir 670 stpd.
Næsti háskólafyrirlestur frakk-
neska sendikennarans, ungfrú
Petibón, er í kvöld kl. 8 í Kaup-
þingssalnum.
Útvarpið:
Föstudagur 16. nóvember.
10,00 Veðurfregnir.
12,15 Hádegisútvarp.
15,00 Veðurfregnir.
18,45 Erindi Búnaðarfjelagsins r
Ormaveiki í sauðfje (Níels
Duhgal próf.).
19,10 Veðurfregnir.
Lögtök.
Eftir beiðni tollstjórans í Reykjavík og að undan-
gengnum úrskurði, verða lögtök látin fram fara fýrir
ógreiddum tekju- og eignaskattsauka sem fjell í gjalddaga
25. október 1934, að 8 dögum liðnum frá birtingu þessarar
auglýsingar.
Lögmaðurinn í Reykjavík, 15. nóv. 1934.
I / .
Bförn Þórðarson
i iii ———————
Frá París
höfum við nokkur efni í
samkvæmis- og Ballkjóla,
ennfremur ullartau, aðeins í;
einn kjól af hvoru.
TískuhúsiÖ
Juno
Ingólfsstræti 21. Sírni 3544.
19,20 Þingfrjettir.
19,50 Auglýsingar.
20,00 Klukkuslátt.ur.
Frjettir.
20.30 Útvarp frá Alþingi.
þig má láta aftur,
og sú nýja uppfinding,
ennþá þetri kjaftur.
Guðspekisfielagið.
Enginn fundur í kvöld. Sameíg-
inlegur fundur beggja stúknanna
annað kvöld (laug'ardagskvöld).