Morgunblaðið - 17.01.1935, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 17.01.1935, Blaðsíða 6
MORGUNBLAÐIÐ Fimtudaginn 17. jan. 1935. Utgerðardeilan. Á undanförnum árum hafa komið frá sjávarútgerðinni á ís- landi, yfir 90 kr. af hverjum 100 kr virði, sem flutt hefir verið til landsins af vörum, þörfum og cþörfum. Og yfir 90% af því sem greitt hefir verið út úr landinu í vexti og afborganir af öllum mil- jónatugunum, sem ríkið bankarnir og landsbúar skulda utan lands. Og yfir 90% af því sem út úr landinu er greitt til ábyrgðar og tryggingarfjelaga. Og yfir 90% af því, sem íslend- ingar þurfa að gjalda fyrir sig í öðrum löndum, og sem þeir fá til þess að leika sjer fyrir þar og drekka út- Afli togaranna að mestum mun, og útgerðin yfir höfuð, hefir gert mikið meira. Hún hefir líka lagt — beint og óbeint — eitthvað ná- lægt 90 kr. af hverjum 100 kr. í ríkissjóðinn. Frá útgerðinni hafa því vaxið allar verulegar endur- bætur hjer til lands og sjávar. Jarðabætur, samgöngubætur, húsa- bætur, frjettafleygir, atvinna í kaupstöðum og atvinnuleysis gjafafje. Hverjir hafa komið þessu öllu á stað, og hjálpað sjómönnum og verkafólki til þess að halda því uppi ? Það er fjöldi manna, með að- stoð bankanna. Bn þó þeir einir, sem hafa þorað það og tímt því, að leggja í áhættu, til hagsbóta fyrir þjóð sína, sumir nokkuð af eignum sínum (oftast samandregn um með dugnaði og ráðdeild á mörgum árum), aðrir hafa lagt til þess aleigu sína, eða því sem næst. Nú hafa þessir menn tapað sínu framlagða fje, sumir að miklu leyti, sumir að öllu leyti, cg sumir hafa orðið að bæta raiklu þar ofan á, í töp og ábyrgð- ir. Meginhluti af tapi þessu og erfiðleikum útgerðarinnar nú, tel jeg þá menn seka um, sem með rógi, undirferli og lýgi um áníðni, fjárdrátt og stórgróða, hafa vakið og viðhaldið þeirri óstöðvandi öldu öfundar og haturs til vinnuveit- enda, og heimtufrekju fólks, til þess að binda útgerðinni þyngri byrgðar en hún hefir orku til að bera. í stað þess að hjálpa til og greiða fyrir, er ár eftir ár bætt við nýjum þunga á þær herðar, sem eru að hníga undir byrðinni. Fáfróðir eru þeir, sem ekki vita það, og hugsanasnauðir eru þeir, sem ekki trúa því, að atvinna fólksins í landinu og líf vort allra íslendinga, sem sjálfstæð og fjár- ráða þjóð, blaktir nú á því skari, hvort útgerðin fær að starfa í friði eða ekki. Bn hvað hefir nú verið gert til þess? Á síðasta — svokallaða — Al- þingi, voru öll ráð tekin af út- gerðarmönnum. Allar tillögur þeirra til viðreisnar og endurbóta útgerðinni, hundsaðar og drepnar. Bn þéss í stað koma bændur og aðrir — sumir, sem aldrei hafa fengist neitt við útgerð og hafa ekkert vit á henni — með kúgun, ofríki og einokun, eftir óskum og ráðum kommúnista. Þar kom fram þakklæti þingbænda, fyrir fjár- framlögin ti] allra framkvæmd- anna í sveitum, og 12 miljóna kreppuhjálpina. Samhliða þessari „kommúnist- isku samkundu“, geta svo nokkr- ir menn þ. 15- nóv. heimtað nýjar kröfur og kauphækkun af útgerð- armönnum. Og sjómenn þola það, að fjelags- stjórn þeirra lætur sjer sæma að auglýsa slíka samþykt, eins og lagaboð fyrir alla útgerðarmenn, án þess einusinni að virða þá við- tals áður. Og svo þegar fyrsti tog- arinn á þessu ári ætlar á veiðar, roeð óbreyttu kaupi og kjörum sjómanna frá því sem verið hefir og var nú líka á öðrum togúrum, þá lætur Sjómannafjelagið sjer aftur sæma, að stöðva heldur skip- ið en að fresta framkvæmdum og leita samkomulags. Svo þegar aðrir útgerðarmenn vilja ekki heldur beygja sig auð- mjúltlega undir atkvæða-úrslit fárra manna, þá rýkur Al- þb]. upp með feitletraðar fyrir- sagnir og langar greinar um svik og ósvífni útgerðarmanna. ,, , ,, Þetta skeður á þeim tíma, sem allramest er þörfin fyrir útlendan gjaldeyrir til vaxtagreiðslu óg skuldaskila, og á þeim tíma, sem útlendur gjaldeyrir getur fengist daglega, samtímis og selt er. ís- íisksalan bjargar að jafnaði ein- hverjum brýnum þörfum, og því hafa útgerðarmenn ráðist í hana, þó þeir skaðist oft stórköstlega á Renni, og skaðinn muni fyrir þá 'út af fyrir sig,oftar verða meiri én hagnaðurinn, til jafnaðar. Hvað segir nú ríkisstjórnin um þessa vini sína, um aðferð jtjórnar Sjómannafjelagsins, og jim málsflutning AlþýðubJaðsins? Hvað segja þeir um þetta út- lendu lándrotnar vorir, og fiski- kaupendur ? Hvað segja, bankastjórarnir bjer og bæjarstjórnin? Hvað segja sjómennirnir sjálfir, þurfa þeir enga atvinnu, eða verka fólkið? Hvað segja þeir sjómenn og bátaeigendur, sem hafa selt fisk- inn til togaranna, gegn skjótri greiðslu, vissu og háu verði? Hvað segja bændur og allur al- raenningur í landi? V. G. Dánarfre^n. Norðfirði í gær. í gær Ijest hjer á Norðfirðí Jón ísfeld, kaupmaður eftir þunga ]egu. Hann var aðeins 48 ára gamall. Talsvert hefir borið á veikindum hjer í bænum undan- farið. 1 dag er hláka og snjólaust að mestu. Engin síldveiði enn sem komið er. Neumann i fangelsi. Verður líklega fram- seldur. Þýski kommúnistinn og fyrver- andi ríkisþingmaður Heinz Neu- mann, var tekinn fastur í Sviss f'yrir skemstu og dæmdur í 14 öaga fangelsi fyrir að hafa (lval- ist þar með falskt vegabrjef. Senni legt er að hann verði síðan fram- seldur til Þýskalands, því að lög- reglan þar hefir verið að leita að honum og eru honum bornar þær sakir á brýn að bann hafi myrt mann. Hauplmannsmállð. Hægra megin mynd af Hauptmann. Vinstra megin bústaður Lindberghs, þar sem barninu var rænt. Edvard Riley verjandi Haupt- manns héfir skrifað Röosevelt forsétá óg farið fram á það, að þrír lögreglúþjóiiar, seto byrjifðvi rannsóknina á máli Hanptmanns, verði leiddir sem vitni í málinu. Þeir lieita Sask. Sandberg og Enos. Bftir því sem málafærslu- maðurinn segir hafa þeir nú ver- ið fluttir til St. Antonio og Salt Jjake City tif þess að þeir verði ekki leiddir sem vitni. Málfærslumaðurinn heldur því fram, að morðákærunni á hendur Iíauptmann verði ekki hægt að balda áfram, ef þessir menn beri vitni, því að þeir hafi kom- ist að þeirri niðurst.öðvi, að rán og morð Lindberghsbárnsins getr ekki verið eins manns verk. Hanh seg- ist einnig vera hræddur um, að áhrifamiklir menn í New Jersey reyni að koma í veg fyrir að sann leikurinn komi í ljós. Á annan hátt verði það ekki skilið, að þau lög voru sett í New Jersey, að ekki megi kalla vitni í þessu máli lengra að en 1600 km. frá Flem- ington í mesta lagi. Það sje eftir- féktarvert, að allir þessir þrír menn hafi verið fluttir svo langt í burtu, að ekki sje hægt j að stefna þeim sem vitnum, sa.m- kvæmt þessari lagagrein. Ný vifni. London 15. jan. F.Ú. | Verjandi Hauptmanns varði aftur í dag næstum því öllum jtímanum til þess að reyna að í hrekja vitnisburð rithandarsjer | fræðinga, sem halda því fram, að það sje rithönd Hauptmanns, sem er á kröfunum um lausn- argjaldið fyrir Lindberghsbarn. ið. Nokkur ný vitni komu í dag til New York frá Þýskalandi, en enginn virðist vita með vissu, hver þau eru, en mælt, að meðal þeirra sje Hanna Fisch, systir Isador Fisch, þess er Hauptmann segir að hafi fengið sjer peningana, sem fundust í fórum hans, áður en hann dó. En Fisch var vinur Hauptmanns. Adatcbi láfinn. Hinn 28. desember Ijest í Haag hinn nafnkunni japanski lögfræð- ingur, Adatehi, 65 ára, að aldri. Harín mun hafa verið allra Japana kuhnugastuf áStandinu í Evrópu op; húgsunarhætti hvítra manna. Hann hafði gengt. mörgum trún- aðarstörfum í Evrópu, var fyrst við japönsku sendisveitirnar í París og Róm. Hann var einn af fulltrúum Japana er gerðu frið- arsamningana við Rússa 1908. Á árunum 1916—1928, var hann j sendiherra Japana í Belgíu, tiðan j sendiherra í París. — Efíir stríðið var hann kosinn forseti Grikkir og Tyrkir London, 14. jan. FÚ. Nefnd sú, sem í undanfarin 11 ár hefir starfað að því, að flytja Grikki og Tyrki úr hvoru land- inu í annað, og koma þeim fyrir, skilaði endanlega af sjer störfum á fundi í ráði Þjóðabandalagsins í dag. Nefndin hefir komið hálfri mdjón manna fyrir í nýjum heim- ilum í þessum löndum. Paraguay neitar að hlýða Þjóðabandalaginu. nefndar þeirrar, sem átti að jafna deilumál þjóðanna, forseH þeirrar nefndar er hafði deilu Ungverja og Rúmena til meðferðar, förseti í Koríu-málinu, forseti á fundin- um, þar sem rædd voru deilumál Eystrasaltsríkjanna, deilan um Efri-SIjesíu o. s. frv. Ha.nn var íulltrúi Japana í Þjóðaþandaíag- inu og árið 1928 var hánn gerður að forseta friðardómstólsins í Haag, og er hann á Norðurlöndum kunnastur fyrir afskifti sín af Grænlandsdeilu Nörðmanna og Dana. .1, o o ♦ Þá var tekið til meðferðar deilu- mál Boliviu og Paraguay, en Þjóða bandalaginu hefir borist svar frá stjórnum þessara landa, viðvíkj- andi tillögu til þess um friðar- samninga.. Svar' Paraguay er á við neitun um samkomulagstilraunir, og var skiþuð nefnd til þess að athuga hvaða ráðstafanir Þjóðabandalag- ið skyldi gera vegna þessarar af- st.öðu Paraguy, samkvæmt ákvæð- um Þjóðabandalagssáttmálans. Nefndin á að skila áliti sínu innan 48 klukkustunda. Innbrot í kaþólsku kirkjuna í gærmorgun þegar einn bróð- irinn í Landakoti, kom í kirkjuna tii að búa uhdir messn, varð harm þess var að innbrot hafði verið framið í kirkjuna. Gerði hann. þegar bisknpi og prestum aðvart. Háu þeir að mesti helgidómur kirkjunnar, sem er guðslíkamhús- ið, var horfið af altarinu. Guðslíkamhús ér í öllum, ka- þólskum kirkjum og er haft undir altarissakramenti. ' á- Yið rannsókn kom í Ijós, að far- ið hafði verið inn um bakdyr kirkjunnar og voru þær stungnár npp, einnig var stungin npp hurð, sem liggur inn í kórinn. Einnig var farið fram í forkirkjuna og þar brotin upp svonefnd gnðs- kista, er það samskötakassi. Ekki mun hafa verið neitt úr henni stolið, því hún var tæmd. um seinustu helgi. Álitið er að innbrotið hafi ver- ið framið til að stela úr guðskist- unni, en þegar ekkert vtfr þar að Iiafa, fóru þjófarnir að altarinu og tókú hið fyrnéfnda guðslíkamá-- hús og báru út úr kirkjunni, og brutu síðan upp með éldskörungj, er tekinn var úr rniðstöðvarber- bergi kirkjunnar. Guðslíkamhúsið er járnskápur, með tvöfaldri hurð og mjög flók- inni læsingu. í guðslíkambúsiúu' var geymt silfurker, sem altaris- sakramentið er geymt í og ýmsir smámunir. Höfðu þjófarnir ekki tekið þá með sjer, enda ekki lrægt að selja nema bræða það upp. • Þjófarnir gengu mjög þrifalega um kirkjuna, þó það hefði getað orðið þeim til mikilla óþæginda. T. d. lögðust þeir á hnjen fyrir framan altarið, í staðinn fyrir að spígspora þar með foruga skóna. Siglafrfe f aodftH i AxarfirQft. Víkingavatni 16. jan. F.Ú. Síðastliðinn mánudag sást frá Valþjófsstöðum í Núpasveit rekald nokkuð á sjónum, fram_ undan svonefndri Magnavík,. sem er austanmegin Axarfjarð. arflóa, nokkru innar en Kópa- sker. I gær fór vjelbátur frá Kópa- skeri til að athuga þetta. Reynd ist það vera siglutrje af skipú ásamt allmiklu af áföstum vír- köðlum. Báturinn dró þetta alt til Kópaskers. Siglutrjeð er ó- merkt, og talið alt að 20 métra langt, en þó vantar sýnilega siglutoppinn. Hafa þá fundist tvö siglutrje á Axarfirði á þessum vetri. Þá segir frjettaritari útvarps- ins á Víkingavatni, að veður sje þar hagstætt. Þó setti niður nokkurn snjó fyrir síðustu hejgí en í gær var aftur komið þýð- viðri. Annars hefir verið nær snjólaust þar í sveitum síðan í nóv.ember, en meirihluta des- embermánaðar voru vegir ó- færir bifreiðum \ egna of mik- illa þýðviðra. K. F. U- M. A-D-fundur r kvöld kl. 8Y2. Síra Bjarni Jónsson dóm- kirkjuprestur talar. Komið. Allir karlmenn velkomnir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.