Morgunblaðið - 23.01.1935, Qupperneq 2
MORGUNBLAÐIÐ
Miðvikridaginn 23. jan. 1935.
2
mm
porgttttUa^
Útgef.: H.f. Árvakur, Reykjavík.
Ritetjórar: Jón Kjartanseon,
Valtýr Stefánsson.
Rttstjórn og afgreiösla:
Austurstræti 8. — Sími 1600.
Auglýsingastjóri: E. Hafberg.
Auglý'singaskrif stofa:
Austurstræti 17. — Sítni 3700.
Heimasímar:
Jón Kjartansson, nr. 3742.
Valtýr Stefánsson, nr. 4220.
Árni óla, nr. 3045.
E. Hafberg, nr. 3770.
Áskriftagjald:
• Innaniands kr. 2.00 á mánuöi.
Utanlands kr. 2.50 ’ár-mánuði.
í laueasölu: 10 aura eintakitS.
20 aura meö Liesbók.
Mjélkin.
öæjarbúar munu veita því mikla
athygli hvernig borgarstjóri og
bíojarfulltrúar SjálfstæSisflokks-
ins tóku í mjólkurmálið á bæjar-
stjórnarfundi í gær, þar sem borg-
arstjóri m. a. lýsti því, með hve
mikilli harðnes'kju núverandi
stjórnarvöld ætla sjer að hnekkja
ræktunarstarfi og búskap Reyk-
víkinga, En mjólkurframleiðsla
'bæjarmanna hefir sem kunnugt er
á síðari árum orðið veruleg at-
vinnugrein bæjarmanna.
Þá eru það ekki síður eftirtekt-
arverð ummæli borgarstjóra um
luna geril,sneyddu „skemdu“
mjólk, sem bæjarbúar eiga nú að
sætta sig við.
Tillögur þær, sein B.jarni Bene-
diktsson bar fram á fundinum í
gærkvöldi, eru mjög í sömu átt og
tiUögur húsmæðrafundanna um
daginn.
Er samhugur bæjarbúa, mikill,
u’m að fylgja þeim fram.
í dag efna húsmæður til fundar
að nýju í Gamla Bíó. Þar verður
skýrt frá því, hvaða undirtektir
húsmæður íengu hjá mjólkursölu-
nefndinni.
Þar verður rætt um stofnun Hús
mæðrafjelags.
Fundurinn byrjar kl. 4.
Fimm námuslys.
London 21. jan. F.Ú.
I námuslysi sem varð í dag í
Gilberton í Fennsylvaníu fórust
60 menn, en 50 urðu fyrir gas-
eitrun.
A þriðja hundrað manna var
statt niðri í námunni þegar
sprenging varð, og eftir nokkurra
stunda tilraun tókst loks að
bjarga 100 mönnum, en óttast er
að sumir þpirra muni deyja.
Berlín 22. jan. F. Ú.
Þrjú námuslys urðu í gær. í
Kattowitz í Schlesiu hrundu nið-
ur námugöng, og urðu sjö námu-
menn fyrir hruni. Lík fjögurra
þeirra eru fundin, en engin von
um að takast megi að b.jarga hin-
um þremur. I kolanámu í Serbíu
varð sprenging, og fórust þar 11
manns, en 15 meiddust. Eins
námumanns er enn saknað.
London 22. jan. FÚ.
Enn kemur frjett um námu-
slys. Sprenging varð í dag í
asfalt námu við Havana, og fór-
ust 6 menn.
12 líkum hefir hepnast að ná
í úr kolanámunni í Gilberton
í Pennsylvaníu, bar sem spreng
ingin varð í gærdag. Rannsókn
hefir leitt í l»jós, að það var
eitrað gas, sem sprengingunni
olli.
Reykvikinguin varnað að fá
nægflegt af óskemdri mfólk
segir Jón Þorláks*
son borgarstféri.
Aukafundur var haldinn 1
bæjarstjórn Reykjavíkur í gær
og voru tvö mál á dagskrá, er
bæði snertu mjólkurmálið.
Annað málið var erindi frá
nokkrum mjólkurframleiðend-
um í Reykjavík, en hitt var
kosning manns í mjólkursölu-
nefndina í stað Guðmundar
Ásbjörnssonar, er hafði sagt
sig úr nefndinni.
í sambandi við fyrra dag-
skrármálið spunnust í bæjar-
stjórn umræður um mjólkur-
málið alment og ályktanir gerð-
ar í því. . |
Ræða borgarstjóra.
Jón Þorláksson borgarstjóri
hóf umræður.
Skýrði hann frá því í upp-
hafi ræðu sinnar, av bæjar-
stjórn hefði nýlega borist er-
indi frá nokkrum mjólkurfram-
leiðendum í Reykjavík, mönn-
um er ætluðu að vera utan við
Samsöluna.-
í erindi þessu. fara mjólkur-
framleiðendur fram á, að bæj-
arstjórn hlutist til um, að þeim
verði veittur frestur til næsta
sumars, til þess að gera þær
umbætur á fjósum. er hin nýja
mjólkurreglu£erð heimtar. Enn
fiemur fara þeir fram á, að
bærinn kosti dýralækni til eft-
irlits og læknisskoðunar.
Er borgarstjóri hafði lesið
erindi mjólkurframleiðenda,
talaði hann alment um mjólk-
urmálið.
Fyrsta flokks vara
gerð að 2. og 3.
. flokks vöru.
Það er fjarri því, sagði borg-
arstjóri, að jeg sje því mótfall-
inn, að komið sje á hagkvæmu
skipulagi með mjólkursöluna í
bænum, skipulagi, sem er fram-
leiðendum og neytendum til
gagns.
En það eru viss atriði í nú-
verandi skipulagi, sem ekki er
nægilega tekið tillit til, hvorki
í lögum nje reglugerð.
Mjólkin er misjöfn vara eins
og annað. Henni má skifta í
flokka, sumt er 1. flokkur, sumt
2. fl. og 3. o. s. frv.
Þýðing nýmjólkur er tvenns
konar.
I fyrsta lagi færir hún lík-
amanum hitaeiningar, eins og
hver önnur fæða.
En óskemd nýmjólk gerir
annað og meira. Hún færir lík-
amanum bætiefni, sem hann
getur ekki án verið, og allra
síst ungbörnin.
Menn vita, að þessi bætiefni
eru til staðar f nýmjólk, eins
og hún kemur frá heilbrigðri
kú. Þetta er 1. flokks mjólkin.
Hitt vita menn ekki, hvort j
þessi efni eru til staðar eftir
Jón Þorláksson.
að mjólkin hefir verið hituð
að. vissu marki. Og sjerfræðing-
ar fullyrða, að í gerilsneyddri
mjólk, sjeu bsetiefnin farin.
Jeg... hefi að vísu sjeð því
haldið fram í auglýsingum, að
svokölluð stassaniseruð mjólk
haldi bætiefnunum óskertum.
Úm þetta get jeg ekki dæmt,
en örugt er það ekki. Okkar
besti sjerfræðingur á þessu
sviði, er dvelur erlendis, hefir
aðeins sagt að þessi aðferð væri
skárri en hinar — þar sem bæti
efnin hverfa alveg.
Öllum má nú vera það Ijóst,
hvað í húfi er, ef ungbörnum
bæjarins er þess varnað að
neyta annarar mjólkur en þeirr-
ar, sem er bætiefnalaus eða hef
ir bætiefni aðeíns af skornum
skamti.
Bæjarstjórn getur ekki horft;
upp á þaS aðgerðalaust, að
menn annað hvort af sjerhags-
munum eða fáfræði, fari alger-
lega að tilefnislausu, að breyta
1. flokks vöru í 2. og 3. fl.
vöru.
Það kemur bæjarfjeíaginu í
koll síðar, ef það verður látið
viðgangast, að heilsu bamanna
verði spilt með því að svifta
þau hollustu fæðunni, sem er
óskemd nýmjólk.
Fyrsta krafan.
Hingað til hefir það verið
svo, sagði borgarstjóri enn-
fremur, að ekki hefir verið
skortur á 1. flokks mjólk.
Á bæjarlandinu sjálfu hefir
verið framleiddur nálægt Ys
hluti þeirrar mjólkur, sem bæj-
arbúar hafa notáð. Og í ná-
grenni bæjarins hefir verið rek-
ið stórt kúabú, sem hefir haft
öll skilyrði til þess að fram-
leiða góða nýmjólk. Auk þess
hefir borist hingað nýmjólk
austan jrfir fj.all, en vera má,
að hún hafi stundum verið orð-
in of gömul, er hún kom á
markaðinn. En mjólkin segir
best til um það sjálf — því þá
súrnar hún.
Nú hefir verið gerð breyt-
ing á þessu, en jeg fæ ekki skil-
ið hverjum það er til hagsbóta.
Nú er t. d. heimtað, að Korp-
úlfsstaðamjólkin verði geril-
sneydd, með þeirri afleiðingu,
,sem menn vita, að mjólkin verð
ur bætisefnasnauð. Og það eru
yfirvöld landsins, sem þessa
ráðstöfun gera.
Jeg álít að fyrsta l^rafan, sem
bæjarstjórn verður að halda
fram sje sú, að bæjarbúum
verði sjeð fyrir nægilega miklu
af óskemdri oýmjólk — bæti-
efna mjólk.
Þessa kröfu á að vera auð-
velt að uppfylla, ekki síst nú,
eftir að nálega öll mjólk er
komin á eina hönd.
Gerilsneyðing mjólkur kostar
stórfje, sem algerlega er á glæ
kastað. Hví að vera að eyða
því fje? Mjer er óskiljanlegt
hvaða hagsmunir það eru, sem
mjólkursölunefnd hefir fyrir
augum, er hún heimtar geril-
snéyðingu á óskemdri nýmjólk.
Nú er ástandið þannig hjer
í bænam, að eítki er hægt að
fá nægilegt af óskemdri ný-
mjólk. Heilsa barnanna er í
veði, ef þetta ástand á áfram
að ríkja.
M j ólkurf ramleið-
endur í Reykjavík.
Þá sneri borgarstjóri sjer að
mjólkurframleiðendum í Rvík.
Lýsti hann fyrst þeim stór-
feldu umskiftum, er orðið hefðu
á bæjarlandinu undanfarin ár,
þar sem nú blasti hvarvetna
við hið mikla og fallega, rækt-
aða land. Á þessu landi væri
nú framleiddur þriðjungur
þeirrar mjólkur, er bæjarbúar
neyttu.
Krafa mjólkurframleiðenda
hefði verið sú, að þeir mættu
vera frjálsir með sína mjólk
og undanþegnir öllum gjöldum
þ. á. m. verðjöfnunargjaldi.
Ekkert væri við því að segja,
þótt mjólkurframleiðendur
gerðu samtök sín á milli um
verðjöfnunargjald o. fl., til þess
að jafna aðstöðumuninn.
En gagnvart bæjarmönnum
horfði mál þetta öðru vísi við.
Mjólkurþörfin til bæjarinsværi í
raun og veru það, sem bæjar-
búar sjálfir gætu ekki fram-
leitt af mjólk.
Þessu næst rakti borgarstjóri
viðskifti mjólkurframleiðenda í
Rvík og ríkisstjórnarinnar, þar
sem ríkisstjómin hefði með
harðneskju neytt stjórn Naut-
griparæktar- og mjólkursölu-
fjelags Reykvíkinga til að
ganga inn á verðjöfnunargjald-
ið. Yfir hefði þó gengið, er Al-
þingi svo rauf þann samnings-
grundvöll og gerði hlut Reyk-
víkinga miklu verri.
Leit borgarstjóri svo á, að
svo langt væri gengið í harð-
neskju í garð mjólkurframleið-
enda í Reykjavík, að beinlínis
væri brotinn á þeim eingnar-
rjettarvemd stjómarskrárinnar.
Reglugerðin.
Að lokum mintist borgarstjóri
á mjólkurreglugerðina nýju.---
Hún gerði mjög strangar kröf-
ur til fjósa, þar sem framleidd
væri nýmjólk og leyft að selja
ógerilsneydda.
Væri það eðlileg og rjett-
mæt krafa mjólkurframleið-
enda, að fara fram á frest til
sumars til lagfæringar á fjós-
unum.
Hvað snerti hina beiðni
mjólkurframleiðenda, að bær-
inn kostaði dýralækni og lækn-
isskoðun, þá sagði borgarstjóri,
að ekki væri enn tímabært að
taka ákvörðun um þetta, eða
ekki fyr en sjeð væri hvort und
anþága fengistí
Eh atvlnnuvegum bæjar-
búa væri þannig háttað, ekki
síst nú, þar sem mjög erfiðlega
gengi fyrir sjávarútveginum,
að bæjarstjórn gæti ekki og
nlætti ekki horfa þegjandi á,
að neinni atvinnugrein væri
hnekt.
Á bæjarlandinu væri nú
framleiddir 2—2Ú> milj. lítr-
ar mjólkur, að verðmæti um 1
milj. króna. Hjer væri því um
stórmál að ræða.
Flutti borgarstjóri því næst
tillögu um að borgarstjóra yrði
falið að reyna að fá frest á
fiamkvæmd reglugerðarinnartil
aðgerða á fjósum bæjarbúa, en
frestað yrði að taka ákvörðun
um hina beiðni mjólkurfram-
leiðenda.
Var till. borgarstjóra samþ.
í einu hljóði.
Umræður.
Hófust nú langar umræður.
Sósíalistar reyndu eftir öllum
mætti að verja sleifarlag mjólk-
ursölunnar og töldu að ,,al-
þýðan“ í bænum væri mjög
ánægð með fyrirkomulagið.
Bjarni Benediktsson svaraði
sósíalistum með kröftugri og
skörulegri ræðu og sýndi fram
á óheilindi þeirra og fláttskap
í málinu.
Að lokum bar Bj. Ben. fram
svohljóðandi tillögu:
„Bæjarstjórn Reykjavíkur
skorar á fulltrúa sinn í mjólk-
ursölunefnd að beita sjer fyrir
því,
að trygt verði, að mjólkur-
framleiðendur innan lögsagnar
umdæmis Reykjavíkur geti hald
ið áfram beinum viðskiftum við
neytendur með sölu ógeril-
sneyddrar mjólkur,
að ekki verði komið í veg
fyrir sölu þeirrar ógerilsneyddr
ar mjólkur, sem hingað til hef-
ir verið seld hjer í bæ, og sjer-
staklega hefir verið vandað til,
að skilvísum mönnum sje
gefinn kostur á að vera í viku-
eða mánaðarviðskiftareikningi
hjá samsölunni,
að dreifingu mjólkurinnar
um bæinn verði komði í viðun-
andi lag,
að leyfð verði sala flösku-