Morgunblaðið - 23.01.1935, Qupperneq 6
0
MORGUNBLAÐIÐ
Miðvikudaginn 23. jan. 1935.
Hver
syXurverðið?
Spínalín,
HIÐ VÍTAMÍNAUÐUGA.
Fæst í Apótekum
„floðafoss11
fer á föstudagskvöld kl. 8 í hrað
ferð vestur og norður.
Farseðlar óskast sóttir fyrir
hádegi sama dag.
„Brnarfoss"
fer á föstudagskvöld (25. janúar)
um Vestmannaeyjar, til Grimsby
»g Kaupmannahafnar.
Verðlækkn
Á sykri.
Strásykur 20 aura Vi kg.
Molasykur 25 aura Vi kg.
<^Li/ipemooi,
Odýrt.
Epli, ítölsk.
Appelsínur,
rnismunandi stærðir og verð.
Haupflelag Borgfirðlnga,
Sími 1511.
Stór verðlækkun.
Strausykur 20 aura pr. % k-g.
Melís 25 aura pr. % kg.
Kaffi brent og malað
90 aura pr. kg.
Allar aðrar vörur með tilsvarandi
lágu verði.
Jóhannes Jóhannsson,
Grundarstíg 2 Sími 4131.
Breskao togara rekur
upp að Látrabfargi. *
{[Sennilegt uð öll skipshðín*
’in hafl fai-ist i nólfj S |
Togarinn mjög brotinn ofan þilja.
að smeygja inn 4 myndum með
hjálp Finns Jónssonar."
Eigi hefir hann heldur getað
sagt hjer rjett frá, í umræddri
sýningarnefnd voru: Ásgrírtiur
Jónsson, Jón Stefánsson, Finnur
Jónsson, Matthías Þórðarson og
Jón Þorleifsson.
I nefndinni var enginn á-
greiningur um'hvað fara skyldi,
nje heldur um hitt, sem ekki
þótti boðlegt. En 14 manns
tóku þátt í sýningunni í Ósló,
Ásgrímur hafði 16 myndir,
Eggert Laxdal 6, Finnur 15,
Guðm. Einarsson 6, Guðm. heit.
Thorsteinsson 19. Gunnl. Blön-
dal 10, Scheving 2, Jón Ste-
fánsson 19, Jón Þorleifsson 8,
Kjarval 8, Júlíana 8, Kristín
6, Sveinn Þórarinsson 3, Þor-
valdur Skúfason 5.
Það er alger firra að sjálf-
sagt sje að hafa jafnmargar
myndir eftir hvem þátttakanda,
og viðgengst hvergi í víðri ver-
öld. Enda máske margir, sem
aðeins senda fáar myndir inn,
af því að þeir sjálfir hafa ekki
meira að senda, eða vilja ekki
senda meira t. d. í þetta sinn
Kjarval og nokkra yngri malara
Fyrst og fremst verður ávalt
að gæta þess, að sýningarnar
sem heild njóti sín sem best.
Sumir málarar eru svo ein-
hæfir að þegar maður hefir
sjeð nokkrar myndir, þá- hefir
maður sjeð allar myndir þeirra,
og er þá nvorki málurunum nje
sýningunni til gagns að hengja
upp margar myndir þeirra. Þeg
ar ekki er um 'hreina sölusýn-
ingu að ræða.
Guðmundur segir að sýningin
hafi ekki fengið góðar viðtök-
ur hjá útlendingum. Þetta er
líka rangt. Það var mjög vin-
samlega tekið á móti sýning-
unni. Eins og líka blaðaummæli
þau frá Ósló, sem Guðm. vitnar
í og þýdd voru í Vísi, bera með
sjer.
Guðmundur ærist.
Þegar líkur á greinina, gríp-
ur hann eitthvert brjálæði,
hann segist skrifa af ,,illgirni“,
hann sjer menn landflótta, aðra
liggjandi í líkhúsum bæjarins
eða hlaupandi ,,á spjótsoddum
að leita sjer brauðs“ o. ys. frv.
Þetta kennir hann hinurri hatn-
römu dómum „Orra“ og anncira
í Morgunblaðinu!
Mjkil má ánægjan vera með-
al íslenskra málara yfir slíku
foringjaefni, sem Guðmundi
Einarssyni, því sá mun víst
líklegur til að lyfta þeim til virð
inga og valda, úr eymd og nið-
urlægingu.
Að endingu vil jeg beina
því til allra þeirra, sem unna
list, að þeir taki nú höndum
saman og hefja til vegs það
besta, sem þjóðin á af listaverk-
um, og skapi þessum verkum
samboðinn samastað.
Franski myndhöggvarinn Ro-
din sagði eitt sinn: „Listin
grípur fram fyrir hendurnar á
aldarhættinum, og sá, sem kann
að hlusta, heyrir þar hófa dyn
framtíðarinnar“.
Svo mikils má listin sín, og
því er vert að vera vandlátur
við sjálfan sig og aðra.
t gærkveldi sendi togarinn Jeria
frá Grimsby út neyðarmerki í
gegnum talstöð skipsins. Togar-
inn var staddur nálægt Látra-
bjargi. Hafði hann samband við
annan enskan togara, en gat ekki
beyrt til hans sökuip þess að mót-
takari skipsins var í ólagi. — Var
togarinn þá staddur á Breiðafirði,
að hann helt ca. 4 sjómílur frá
Látrabjargsvita. Sagði hann að ef
þá ræki þarna á land, eins og lík-
ur væri til — væri lítil eða engin
von um að þeir kæmust lífs af.
Kl. 18,20 heyrðist síðast til hans.
Var skipið þá orðið ljóslaust, reyk
háfur og mest af yfirbyggingu
skipsins hafði sjórinn sópað burt.
Skipið stjómlaust og vindur þann
ig að það rak til lands.
Þrír eða fjórir togarar leituðu
að skipinu í: gærkvöldi en urðu
leinskis vísari, enda blindhríð og
I versta veður á þeim sloðum. Skip-
ið þar að auki ljóslaust og ekki
fært um að gefa frá sjer nein
merki.
Þegar síðast frjettist var ekki
vonlaust um að skipið myndi reka
að landi svo austarlega að það
ræki ekki upp í björg.
Slysavarnafjelagið sendi út til-
kynningu um þetta í útvarpið í
gær, #og bað menn á Rauðasandi
hafa gát á skipinu og vera til taks
á strandstaðnum, til að reyna að
bjarga skipshöfninni.
Seint í gærkvöldi voru 4 enskir
togarar komnir á þessar slóðir. En
ekkert var hægt að gera vegna
óveðurs.
Lögreglan í 5aar
skýtur boejarstjóra
til bana.
Hann bjóst tíí varn-
ar i kjalíara.
London 22. jan. FÚ.
í Saar, hefir það viljað til
að maður að nafni Paul Meyer,
bæjarstjóri 1 bæ einum í ná-
grenni við frönsku landamærin,
var skotinn til bana af lögregl-
unni. Meyer var flóttamaður
frá Þýskalandi, og hafði áður
verið undirbæjarstjóri í borg
einni í Rínarlöndum, og hafði
þá verið sakaður um fjársvik.
Kæran hafði síðan lognast útaf,
þangað til nú fyrir nokkrum
dögum, að þýsk yfirvöld gáfu
út skipun um að handtaka hann
og var handtökuheimildin sam
þykt af lögregluyfirvöldum í
Saar.
í dag þegar átti að fram-
kvæma handtökuna, bjóst Mey-
er um í kjallaranum í húsi sínu
og hótaði að skjóta. Lögreglan
boðaði skothríð 'aftur á móti
og skaut Meyer til bana gegn
um dyr, er hann opnaði þær.
Sonur- Meyers, sem var með
föður sínum, var tekinn hönd-
um. Hann hefir kært málið fyr-
ir kjörstjórninni í Saar og hef-
ir þess verið krafist, að lögreglu
maður, sá, er skaut Meyer verði
tekinn höndum.
200 grömm af
„þungu vatniM.
Osló 22. jan. FB.
Klaus Hansen prófessor hefir
fengið 200 grömm af svonefndu
„þungu vatni“ til þess að rann-
saka hver áhrif það hafi á mann
eskjur og dýr. — Prófessorinn
telur að“vatn þetta muni hafa
mikla þýðingu, að því er snert-
ir serum-framleiðslu.
Nazistar stöðva
flóltamenn
frá Saar.
London 21. jan. F. Ú.
Þjóðernissinnar í Saar reyna nú
með öllu móti að stemma stigu
fyrir því, að fólk' flýi hjeraðið, og
fari til Frakklaiids. Hafa þeir
jafnvel sent menn á eftir flótta-
mönnunum yfirum í Frakkland,
til þess að biðja þá að koma td
baka, og fullvissa þá um, að þeir
verði ekki látnir gjalda fyrri and-
stöðu sinnar gegn því, að Saar
innlimaðist Þýskalandi.
Maður deyr
af brunasárum
eftír Val Verda
brunann.
London, 22. jan. FÚ.
3. vjelameistarinn á Yal Verda,
olíuflutningaskipinu frá Glasgow,
liefir dáið af brunasárum þe'im, er
hann fekk við slökkvistarfíð. —
Fröbishér kom á vettvang, þar
sðm hið brennandi skip var kl. 8
morgun, og tókst að ná allri skips-
höfninn um borð, síðan var Yal
Terda tekin í drátt og haldið á-
leiðis til Bermudaeyja.
Hryðjuverb
i Somalilandi.
London 22. jan. FÚ.
Franska nýlendumálaráðið
tilkynnir, að atburður sá er
vildi til í franska Somalilandi á
föstudaginn, er upphlaupsmenn
frá Abyssiníu drápu á annað
hundrað manns Frakka og inn-
fædda, eigi ekkert skylt við
skærur þær, sem orðið hafa
milli Italíu og Abyssiníu.
Enn er það fullyrt, að á þetta
mál sje litið, sem algerlega
staðarlegt mál, og það sje ó-
líklegt, að það hafi neinar af-
leiðingar að því er utanríkismál
snertir.
Slys vegna
niðaþoku.
Bífreíðarstjórí hætt
kominn.
London, 22. jan. FÚ.
Mjög mikil þoka hefir verið á
norðuj- Englandi í dag, og hefir
hún valdið 3 slysum.
Fiugmaður úr enska hernum,
sem var á skólaflugi, frá flugskól-
anum í Cheshire, flaug beint til
jarðar í þokunni og brotnaði vjel
hans algjörlega. Flugmaðurinn dó
þegar í stað/
Bifreiðarstjóri frá Derbyshire,
slapp á merkilegan hátt við dauða,
cr bifreið hans, fór í gegnum járn-
lirautfrhlið samtímis því að -lestin
óh framhjá. Varð hastarlegur
árelcstur og mölbrotnaði hifreiðin,
en bifreiðarstjórinn slapp með
nokkrar skeinur.
Á Viktoria stöðinni í Manchest-
er, rann eimlest á verkamann, og
marði hann til dauða.
SUglnn han$
Haupfmanns.
— London 22. jan. FÚ.
I máli Hauptmanns, var stig-
inn sem talið er, að ræriinginn
hafi notað til þess að komast
inn í barnaherbergið, lagður
fram, sem sönnunargagn í dag.
Sækjandi málsins, er nú að
reyna að færa sönnur á sam-
bandið milli Hauptmanns og
þessa stiga, með því að leiða
í ljós hvaða verkfæri hafi verið
notuð við smíði hans. Áður
hafði verjandanum tekist, að fá
stigann úrskurðaðan ógildan.
sem sönnunargagn með þeim
rökum að síðar hefði hann ver-
inn sundur og settur saman á
ný. Þessum úrskurði hefir ná
verið breytt.
Bankar
og sparisjóðir
amast við lánabreyt-
íngum Statmíngs.
Kalundborg, 22. jan. FÚ.
í dag áttu fulltrúar danskra
hanka og sparisjóða, fund með
dönsku stjórninni, til þess að ræða
u m breytingu þá á lánum í hag-
kvæmari lán, sem stjórnin hefir
verið að undirbúa. Var fundur-
inn haldinn á skrifstofu forsætis-
ráðherra. í fundarlok var boðað
Lil nýs fundar síðdegis í dag.
Af fundinum hefir það helst
frjest, að fulltrúar sparisjóðanna
hafi talið ýmsar hömlur á því, að
þeir gætu tekið þátt í þessari
lánabreytingu á þeim grundvelli,
sem stjórnin hafði hugsað sjer.
Töldu þeir meira að segja vafa-
samt, hvort sá grundvöllur væri
að öllu leyti í samræmi við lögin
um sparisjóði.
Fulltrúar bankanna töldu hins-
vegar að þeir sæju sjer ekki færfe
að ráðast í þessa lánahreytingu
nema því að eins að sparisjóðirnir
tæki þátt í henni.
Þessar fjármálaumræður hafa
orðið þess valdandi, að óvenju
mikið var verslað á kauphöllinni í
dag. Til dæmis seldust 4Ú2 milj-
af ýmiskonar skuldabrjefum.
I