Morgunblaðið - 14.05.1935, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 14.05.1935, Blaðsíða 2
2 MO..GUNBIAÐÍP Þriðjudaginn 14. maí 1935 Útgef.: H.f. Árvakur, Reykjavík. Ritstjðrar: J6n Kjartansson, Valtýr Stefánsson. Ritsfjðrn og afgreiSsla: Austurstræti 8. — Sirai 1600. Auglýslngastjóri: E. Hafberg. AuglýsingaSkrifstofa: Austurstræti 17. — Simi 3700. Helmaslmar: Jðn Kjartansson, nr. 3742. Valtýr Stefánsson, nr. 4220. Árni Óla, nr. 3045. E. Hafbergr, nr. 3770. Áskriftagjaid: Innanlands kr. 2.00 á mánubi. Utanlands kr. 3.00 á mánutil. í lausasöiu: 10 aura eintakitS. 20 aura metS Lesbök. ii Landhelgisgæslan. Þegar Magnús Guðmundsson hafði stjórn landhelgisgæslunnar með höndum ljetu blöð rauðu flokkanna sjer ákaflega ant um smábátaútveginn og sjómenn þá, sem þann atvinnuveg stunda. Altaf voru blöð rauðu flokk- anna að bera fram kvartanir fyr- ir hönd sjómanna og smábáta- útvegsmanna. Altaf var landhelgis gæslan í megnasta ólagi. Og altaf var það „bölvað íhaldið", sem þessu rjeði af eintómri illgirni í garð hinna fátæku sjómanna og smábátaeigenda. Nú er þetta löngu liðið. Nú er það stjórn „hinna vinn- andi stjetta“, sem heldur um stjórnartaumana. Nú þarf því ekki lengur að bera fram kvartanir fyrir hönd hinna fátæku sjó- manna. En hvernig er annars með landhelgisgæsluna núna ? Óðinn er enn. bundinn í vetrar- lagi suður á Skerjafirði. Þa,r hef- ir hann verið síðan snemrna í vetur. Afskráð var af skipinu um leið Og því var lagt. Hásetum og ó- breyttum liðsmönnum var (kastað í hóp atvinnuleysingjanna. Yfir- menn allir halda fullum launum og fá fæðispeninga að auki. Það er stjórn „hinna vinnandi stjetta“, sem þessu ræður. Ægir hefir nú í meira en mán- uð verið að dútla við að bjarga enskum togara. sem strandaði í vetur á skeri hjer suður í Skerja- firði. Yið og við hafa birst í dag- blaði Tímamanna lofgreinar um ágæti og dugnað skipherrans á Ægi, sem var falið þetta vanda- sama björgunarstarf. Aldrei hefir verið minst á hinn erlenda kafara, sem aðalverkið hefir únnið til þessa. Það er einnig stjórn „hinna vinnandi stjetta1', sem því ræður, að Ægir er tekinn frá landhelgis- gæslunn,i, til þess að yinna þetta björgunarsfarf. Þetta er gert í von um það, að síðar megi skrifaj lofgrein um skipherrann. fyrir; björgun hins erlenda togara. Síðan Þór hætti björgunarstarfi og gæslu veiðarfæra við Vest- mannaeyjar, hefir hann verið við fiskirannsóknir. Landhelgisgæslu hefir hann ekki stundað — nema þá í hjáverkum. . j Þannig er þá landhelgisgæslan hjá stjórn „hinna vinnandi st jetta“. ,, Vikur og mánuðir líða, án þess nokkurt varðskipanna kemur náJ lægt gæslunni. ..... j Er því síst að undra, þótt. n# berist víðsvegar utan af landi fregnir um það, að erlendir tog arar hópist inn í landhelgi, enda hafa þeir ekkert að óttast þar. nmræna blaðamannamatiQ sel( í Kaupmaimanöin. Ræða Tryg'gva Svelnbjömsson- ar vekur sjerstaka athygli. KAUPMANNAHÖFN í ,GÆK. EINKABKEYTI TIL MORGIJNBLAÐSINS Norræna blaðamannamótið hófst í gær í Kristjánsborgar- höll í viðurvist konungs. Staun- ing forsætisráðherra- setti mót- ið með ræðu, en Eskelund for- maður dönsku blaðamannanna, bauð gesti velkomna, og ljet í ljós ánægju út af því að nú væri þar fleiri fulltrúar frá Is- landi en áður hefði verið. Formaður Islendinganna, Tryggvi SveinbjÖrnsson, sendi- herraritari, þakkaði fyrir hönd íslensku blaðanna. Talaði hann um það, hvað ísland væri ná- tengt hinum öðrum Norður- löndum. Ræða hans þótti ágæt og var hún þökkuð með dynj- andi lófataki. Ríkisútvarpið danska mint- ist sjerstaklega á ræðuna og ,,Politiken“ birtir útdrátt úr henni og segir að hún hafi hrif- ið áheyrendur. Sendiherra íslands hafði ís- lensku og dönsku fulltrúana í boði sínu, og voru menn mjög hrifnir af viðtökunum þar. Tryggvi Sveinbjörnsson. I dag var blaðamannamótið f lutt til HindsgavL Þaðan vérða farnar skemtiferðir um Fjón og Jótland. PálL Fulltrúar íslenskra blaða á þessu móti eru þeir Tryggvi Sveinbjörnsson og Páll Jónsson, báðir fyrir Morgunblaðið, Svavar Hjaltested fyrir viku- blaðið Fálkann og Pjetur Bene diktsson fyrir Vísi. Mesti maðar Póllands látinn Pílsudskí hershöfðíngi Varsjá 13. maí. FB. Pilsudski marskálkur l.jest í gærkvöldi. I opinberri tilkynningu segir að Pilsudski hafi átt við veik- indi að stríða um margra mán- aða skeið, en honum versnaði skyndilega og á laugardag sáu læknar, að hann myndi eiga skamt eftir, því að hjarta hans var að bila og varð hjartabilun og krabbamein í lifrinni dauða orsökin. Ríkisstjórnin hefir fyr- irskipað þ.jóðarsorg og að öll- um opinberum skemtistöðum skuli lokað ófyrirsjáanlega langan tíma. Frú Pilsudski hættulega veik. Varsjá 13. maí. FB. Frú Pilsudski hefir orðið sriögglega veik af hjartabilun og telja læknar alvarlega horfa um líðan hennar. — Lík mar- skálksins verður smurt og á að ilggja á börum í Belevedere- höll, þar til útförin fer fram. Ríkisstjórnin hefir fyrirskipað sex vikna þjóðarsorg. (UP). (Joseph Pilsudski var einn af kunnustu stjórnmálamönnum og herforingjum á yfirstand- andí öld. Hann var fæddur í Lithaugalandi í nóvember 1867. Hann átti í brösum við stjórn- .aTyöldin rússnesku þegar á stúdentsárunum og var gerður bJJ rí » u> En nú hafa blöð rauðu flokk- anna engar kvartanir fram að bera, enda er það stjórn „hinna vilínandi stjetta“, sem stjórnar Íáridheígisgæslunni núna! útlægur fyrir pólitískar skoð- anir sínar og undirróður gegn stjórninni. Var hann dæmdur til 4 ára Síberíuvistar. Síðar var hann í fangelsi í St. Pjet- ursborg, en tókst að flýja það- an. Hann komst úr landi, og ferðaðist til Bretlands og Aust- urlanda. Saga hans öll þessi ár var viðburðarík, en . hann kemur þó fyrst verulega við sögu í heimsstyrjöldinni, er hann gerðist herforingi og óð inn í Rússlánd með pólskan her. Hann var kosinn forséti pólska lýðveldisins 1919 og gerður marskálkur 1920. Og alt frá því heimsstyrjöldinni lauk, hefir hann í raun og veru verið einræðisherra í Póllandi. Hann hefir altaf barist heil- huga fyrir sjálfstæði Póllands, en þótti harður í horn að taka, einráður og óvæginn). UP. Enskar hótanir • í garð Þjóðverja. KAUPMANNAHÖFN 1 GÆR. EINKASKEYTl TIL MORGUNBLAÐSINS Símskeyti frá London herm- ir það að blaðið „Sunday Ex- press“ hóti því, að Engiend- ingar skuli mótfallnir kröfum Þjóðverja í flotamálunum og muni auka lofther sinn stór- kostlega, ef Þjóðverjar ætli að auka sinn lofther. Páll. Verkfalli lokið. Samningar kom-s ust. á. áLsimnndag taifli málara- meistara og málarasveina, og er ]>ar með, .Jokið verkfalli lnnna síðarnefndu. Karlakór Reykjavíkur syngur í konungshöllinni i Stokk- hólmi fyrir rikiserfingjahjónin og Ingiríði prinsessu. Stokkhólmi í gær. EINKASKEYTI TIL MORGUNBLAÐSINS Samsöngurinn í Gautaborg á laugardaginn tókst ágætlega. I gær (sunnudag) komum við hingað til Stokkhólms kl. 3. Á járnbrautarstöðinni tók stór söngflokkur á móti okkur, með söng, en Ljungberger ritstjóri bauð kórinn velkominn með ræðu. Svaraði fararstjórinn með annari ræðu, og síðan söng kórinn þjóðsöng Svía. Klukkan sex fórum við til hallarinnar ög þar söng kórinn fyrir Ingiríði prinsessu, Gustav Adolf ríkiserfingja og konu haris. Lögin, sem þeir sungu voru: Ó, guð vors lands, Ave María, það söng Stefán Guð- mundsson, og sænski þjóðsöng- urinn. Ingiríður prinsessa ósk- aði eftir því, að kórinn syngi aukalag, og var þá sungið: ís- land, vorý land. Á eftir þakk- aði ríkiserfinginn komuna og sönginn með ræðu. Blöðin, sem komu út í morg- un í Stokkhólmi, birta mynd- ir af kórnum á forsíðu, frá- sagnir um hann og viðtöl. Samsöngur verður hjer á morgun (þriðjudag). Frjettaritari. Ríkiserfingi þakk- ar og hyllir ísland KAUPMANNAHÖFN I GÆR. EINKASKEYTI TIL MORGUNBLAÐSINS ‘ Símskeyti frá Stokkhólmi hermir það, að Karlakór Reykjavíkur hafi fært Ingiríði prinsessu fyrsta vott hollustu Islendinga, með því að syngja íslenska söngva í konungshöll- inni. Gustav Adolf ríkiserfingi þakkaði fyrir hönd hlusténda og mintist íslandsferðar siriri- ar á Alþingishátíðina 1930. *— Var ræða hans hjartnæm þakk- i arræða til íslands. Páll. Laval tekftH metS fögnuðft i Moskva. KAUPMANNAHÖFN f GÆR. EINKASKEYTI TIL MORGUNBLAÐSINS Laval er kominn til Moska. Alment er álitið að heimsókn hans í Póllandi hafi orðið til þess að draga úr ótta Pólverja við bandalag Frakka og Rússa. Páll. London 13. maí. FÚ. Laval var tekið með ákaf- lega miklum fögnuði í Moskva í morgun, og ekki síður er Ant- Tyrkir fái rjett að víggirða Dardanellasund ef Bálgörttm og Ung- verínm verðar leyft að hervæðast, segír Balkansambandíð. Búkarest 13, maí. FB. Samkvæmt áreiðanlegum heimildum hefir Baldanríkja- sambandið tekið þá ákvörðun, að lýsa yfir því, að ef Búlgaríu og Ungverjalandi verði leyfð- ur endur-vígbúnaður komi ekki til annara mála en að Tyrjum verði veittur aukinn rjettur í vígbúnaðarmálum. Kveðst Balk anríkjasambandið því vera hlynt því, að Tyrjum verði leyft að koma upp víggirðingum við Dardanellasund, svo fremi að slakað verði til við Ungverja og Búlgara. — Hinsvegar er talið mjög vafasamt, að Italir og Bretar muni fallast á, að Tyrkjum verði leyft að víg- girða iDardanellasund. UP. Slyi vftð hersýnftngn. ony Edén hafði verið tekið, egar hann kom þangað á dög- num. Litvinoff tók á móti hon- m og seinna um daginn byrj- iðu þeir að tala saman um af-( töðu Frakka og Sovjet-banda-! agsins. Menn búast við því, að hinn lýi frarisk-rússneski sáttmáli ( erði undirskrifaður meðan ,aval er í Moskva. Osló 13. maí. FB. Slys varð á íþróttavellinum í Bislet s.l. laugardag, er her- sýning fór þar fram. —• Tyeir hestar, sem beitt var fyrir fall- byssuvagn, fældust við skothríð og losnuðu úr tengslum. Nýliði, 20 ára gamall, var traðkaður til bana af hestunum, en tveir menn úr stórskotaliðinu meidd- ust. „Aliette“, franskt eftirlitsskip, Færeyskur línuveiðari og ann-' aem verið hefir hjer við land um ar norskur kom hingað mn helg- tíma,- fór í gær áleiðis til Frakk- ina, lands.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.