Morgunblaðið - 14.05.1935, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 14.05.1935, Blaðsíða 6
MORGUNBLAÐIÐ 1700 krónnm stollð af aðkomumanni. Þjófuriitn handsamað- ur og var þá búinn að eyða 250 krónum. títg-erðarmaður einn úr Grinda vík var staddur hjer í bænum síðastliðinn sunnudag. Hitti hann ýmsa menn og mun hafa komist undir áhrif víns er á leið daginn. Kom hann víða við, og var með mörgum mönnum, bæði kunnugum og ókunnugum, þar á meðal Spánverjum af spönsk- um togara, sem tíjer lá í höfn- inni. Þegar komið var undir kvöld var hann staddur vestur í bæ, tók hann þá eftir að peninga- veski hans var horfið, en í því voru 1700 krónUr í peningum, ásamt ýmsum pappírum. Maðurinn fór þegar til lög- reglunnar og tilkynti hvarf veskisins. Skýrði hann lögreglunni frá með hvaða mönnum hann hafði verið um daginn og hvar. Einnig gaf hann lýsingu á þeim mönnum sem hann ekki gat nafngreint. í gærmorgun náði lögreglan í mann einn, sem hafði verið með útgerðarmanninum. Var það Hávarður nokkur Kristj- ánsson sjómaður, stundum nefndur Hávarður Isfirðingur. Hávarður var all-drukkinn, er lögreglan náði í hann. — Fundust á honum 350 krónur í peningum. Hafði hann falið þá í fóðri á jakka sínum og sokkunum. Hann játaði þegar á sig þjófnaðinn. Lögreglunni tókst fljótt að hafá upp á hvar Hávarður hefði verið um nóttina, með því að spyrjast fyrir á bifreiða- stöðvum. Hann hafði ekki köhi- ið heim til sín alla nóttina, en verið á ferðalagi í bílum víða um nágrennið. Hafði hann verið á Kolviðar- hóli og komið við á Geithálsi. Tvisvar fór hann í Hafnarfjörð, kom hann við á verkamanna- skýlinu þar. Verkamenn voru margir þar, og bauð Hávarður þeim öllum veitingar og gaf þeim tóbak. Tveir menn voru með Há- varði á þessu ferðalagi hans. Annar aðeins stutta stund, en hinn, ungur maðúr, allan tím- ann. Hafði Hávarður falið hon- um til geymslu 1100 krónur og lagt svo til við hann, að hann geymdi þær fyrir sig, þangað til hann væri orðinn ódrukk- inn. Pilturinn afhenti lögregl- unni þessa peninga. í gærdag fann lögreglan peningaveski mannsins, var það á óbygðri lóð á horninu á Tún- götu og Garðastræti. Pening- arnir voru aliir farnir úr því. Hávarður hefir þv.í eytt af þýf- inu um 250 krónum. » Blrstúlki, (Smörrebröds Jomfru) óskast á Hótel Borg. Þær einar koma til greina, sem að einhverju leyti hafa stundað þesskonar starf áð- ur. Til viðtals kl. 1—4 e. h. Fyrirspurnum ekki svarað í síma. Húsfreyjan. Dragið ekki til morgTuis, það sem þjer getið gert í dag. — Líftryggið yðnr í Andvöku, Sími 4250. Þeir, sem vilja taka að sjer hestagæslu í sumar, fyrir Hestamannafjelagið „Fákur“, sendi skrifleg tilboð fyrir föstudagskvöld, næstkomandi, Daníel Daníelssyni. Freðýsa og reyktur lax, best í Hiötbútin Heiöubreið. Hafnarstræti 18. Sími 1575. Til Stykkishólms ▼erða fastar bílferðir alla mánu- daga og fimtudaga. Til baka þriðjudaga og föstudaga. Bifreiðastöðin Hekla. Sími 1515. POTTAR, aluminium með loki 1.00 Bollapör, postulín 0,35 Matardiskar, blá rönd 0.45 Kaffistell, 6 m., postulín 10.00 Kaffistell, 12 m., postulín 16.00 Ávaxtastell, 6 m., postulín 3.75 Ávaxtastell, 12 m., postulín 6,75 Vatnsglös, þykk 0.30 Borðhnífar, ryðfríir 0,75 Skeiðar og gafflar, ryðfrítt 0.75 Höfuðkambar, fílabein 1,25 Hárgreiður, stórar 0.75 Vasahnífar, ágætir 0.75 Matskeiðar og gafflar, alum. 0.20 Munum halda þessu lága verði svo lengi sem byrgðir endast. / l [\mm * irra Bankastræti 11. Aóalfundur Dýraverndanar- fjelags íslands. Föstudaginn 10. þ. m., var aðal- fundur Dýraverudunarfjelags fs- lands haldinn í Oddfjelagahúsinu við Vonarstræti. Áður en gengið var til dag- skrár, íuintist formaður fjelagsins Þórarinn Krístjánsson hafnar- stjóri, látinna fjelagá á starfsár-, inu, en látist höfðu: Samúel Ól- afsson fátækrafulltrúi, Haraldur Sigurðsson, forstjóri, og Theodór Sigurðsson deildarstjóri. Risu fundarmenn upp úr sætum sínum til minningar um hina látnu fje- laga. Fyrsta mál á dagskrá var upp- taka nýrra fjelaga. Bættust fje- laginu á fundinum 6 nýir með- limir . Því næst lagði gjaldkeri fje- lagsins, Tómas Tómasson ölgerð- armaður, fram reikninga fjelags- ins og Tryggvasjóðs, fyrir næst- liðið ár. Voru reikningarnir end- urskoðaðir og nppáskrifaðir af endurskoðendum fjelagsins. Sam- þykti fundurinn reikningana. Síðan skýrði formaður fjelags- ins frá starfsemi þess á árrnu, og verður skýrsla hans birt í mál- gagni fjelagsins, Dýraverndaran- um, ásamt reikningum fjelagsins og Tryggvasjóðs. Þá fór fram kosning stjómar. Var stjórnin endurkosin, en hana skipa: formaður Þórarinn Kristj- ánsson hafnarstjóri, ritari Ludvig C. Magnússon endurskoðandi, gjaldkeri Tómas Tómasson ölgerð- armaður, og m'eðstjórnendur era Sigurðnr Gíslason lögregluþjónn og Björn Gunnlaugssíon innheimtu maður. Endurskoðendur voru og líka endurkosnir, þeir Ólafur Briem framkv.stj. og Guðmundur Guð- mundsson verslunarmaður. f st j órnárnef nd „Ártíðarskrár dýranna“ voru kosnir: Tómas Tómasson gjaldkeri fjelagsins, Einar E. Sæmundsson ritstjóri, Guðbrandur Magnússon forstjóri. Loks var á fundinum kosin nefnd, er starfa á sjerstaklega að því, að. úlbr'oiða „Dýraverndar- ann“, blað fjelagsins, og safna nýj um meðlimúm í fjelagið. Nefndina skipa: Hjörtur Hansson umboðs- sali, Einar E. Sæmundsson rit- stjóri, Loftur Guðmundsson kaup- maður, Jón N. Jónasson kennari ari og frú Jóhanna Pjetursdóttir. Enn fremur komu fram á fund- inum ýmsar aðrar tillögur og bendingar til stjórnar fjelagsins, bæði menningar- og fjárhagslegs efnis. Miðuðu þær allar að því að efla framkvæmdir á hugsjónamál- um f.jelagsins, dýravemdunarmál- inu. Ríkisþingi Dana er slitið. Fyrir því lágu að þessu sinni 132 laga- frumvörp, en 87 voru samþykt. (Sendiherrafr jett). Barnaskólaböm í Hafnarfirði vinna að skógrækt, 13. maí. FÚ. Barnaskólanum í Hafnarfirði var slitið í dag. Um 500 börn sóttn skólann 'en 69 luku fullnaðarprófi. í gær var sýning á handavinnu, teikningum og vinnubókum nem- enda. Sótti hana fjöldi manns. Lýsisgjafir voru eins og að und- anfömu og mjólkurúthlutun síð- ari hluta vetrar. Börnin söfnuðu í vetur um 600 krónum í ferðasjóð með merkjasölu, blaðaútgáfu og skemtisamkomu. Bæjarsjóður legg ur ferðasjóði til 400 kr. á þessu ári. Skemtiferð er ákveðin næsta miðvikudag suður í Undirhlíðar, suðvestur af Kaldárseli, til þess að gróðursétja þar trjáplöntur. Ætlast er til að sá siður verði tek- inn upp, að börnin hafi einn skóg- ræktardag að vorinu, um það leyti er skóla er slitið. Staðurinu er mjög vel fallinn til skógræktar. Eru þar lteifar af' hirkiskógi, sem hefir áður þakið hlíðarnar, og hef- ir Bæjarsjóður látið girða þar og friða dálítið svæði. Skógrætar- stjóri hefir látið skólanum í tjé nokkrar furuplöntur, sem börnin eiga að gróðursetja. Vorið góQa grænt og hlýtt... Sumarylur, blíður blær. Ósjálfrátt vaknar löngun í huga okkar og hjörtum að fagna sól og sumri með því að hreinsa til inni og úti. Náttúran laðar okkur til þess, hún er á þessum yndislegu vordögum svo hrein, svo ung og svo fögur. Okkur mannanna höm hlýtur að langa til að eiga ein,- hvern þátt í þessari fegrun, í þessari endurreisn. Það sýnir sig líka á degi hverj- um hjer í bænum og í nágrenni hans, að menn vilja taka þátt í þessu starfi. Allir vita að ein alls- herjar hreinsun fer fram inni í húsum manna á vorinu, þar er þvegið og viðrað burt vetrarrykið, burstað og blásið. En menn láta ekki þar við lenda, þeir, sem eiga einhvern lófastóran blett, nokk- ur græn grasstrá fara á stúfana og hressa upp á þau, raka og prýð, sá og rækta, og húsagarðam- ir eru þrifnir fil, ruslið fært burt. Sumir gera sjer hægt um hönd og þvo húsin sín utan, og það ér furða, hve þau taka miklum stakkaskiftum við þá aðgerð. — Krakkamir mála girðingarnar og eru sigri hrósandi yfir að fá að vera með í þessu fegrunarstarfi. Já, börnin eru bestu starfsmenn við alt þess háttar, og hversu þolt er það ekki fyrir þau að vera hjálpleg einmitt í þessari endur- reisn. Lofið þeim að hjálpa til að gera húsagarðana, sem eru svo margir til hjer í Reykjavík, bak- garðar, í góðu skjóli, lofið þeim að hjálpa ykkur að taka þar til og grækta nokkur strá eða nokk- ur blóm og géra vistlegt, svo þar úti megi hafast við sem mest í sumar. Gleymið ekki að gera þar sæti og vistlegan verustað í góðu veðri, en dálítið rúm þarf að vera eftir handa börmmum að leika Þriðjudaginn 14. maí 1935. sjer á, svo þau þurfi ékki að vera á götunni, en uni sjer heima við lriisið sitt. Fyriir litlu börnin þarí að hafa sandkassa og lofa þeim að hafa gullin síu þar úti í góðu skjóli. Reykvíkingar eru að verða úti- verumenn miklir, allir, sem vetl- ingi valda, vilja komast út í góða veðrið, og fleiri ög fleiri þrá það að eiga einlivern blett, eiga eiu- hvern þátt í að láta tvö grasstrá vaxa þar sem áður var. eitt; Er það ekki heilbrigt, er það ekk? ekki eðlileg-t! Við eiguin einn Innna i'egursta höfuðstað að legu ril og vegna útsýnis, látum oss öll taka hön<f- um saman um að halda bænum hreinum og þrifalegum, hrækja ekki á göturnar, þvo vél glugg- ana, sópa gangstjettirnar, mála girðingarnar, taka til kringum húsin og láta það ekki líðast að verið sje með sorpvagnana í glaða sólskini um hádaginn á aðalgöt- u mbæjarins. Reykjavík, sem hefir fegurstu. legu og fríðasta útsýni allra höf- uðstaða, á líka að vera einn hinn snotrasti og snyrtilegasti hær, að allri nmgengni. Það getnr hann orðið, ef við viljum! Sfálfstæði Filipseyfa. Þjóðaratkvæðagreiðsla um það í dag. Washington 13. maí. FB.. Á morgun fer fram þjóðar- atkvæðagreiðsla á Filipseyjum og eru kjósendur spurðir að því hvort þeir sje samþykkir stjórn arskrá þeirri, sem ætluð er Fil- ipseyjabúum, þegar þeir fá sjálfstæði sitt. Uppkast að stjórnarskránni var lagt fyrir þjóðfulltrúasamkundu í Manilla 8. febr. 1935 og var því næst undirskrifað af Roosevelt for- seta 23. mars, um leið og hann lýsti yfir því, að uppkastið væri í samræmi við lög þau um sjálf stæði Filipseyja (The Philipp- ine Independen^e Act), sem þjóðþingið samþykti. Samkv. lögunum verða þau atkv., sem greidd eru stjórnarskránni„ einnig talin greidd sjálfstæði eyjanna. í atkvæðagreiðslunni á morgun hafa allir karlar og konur, 21 árs að aldri, sem geta lesið og skrifað, tekið þátt. — Fyrir 2 árum samþyktu Filips- eyjabúar að veita konum kosn- ingarjett í fýrsta sinn. — At~ kvæðagreiðslan fer fram sam- kvæmt þeim skilmálum, sem þjóðþing Bandaríkja felst á, er_ lögin um sjálfstæði eyjanna voru samþykt (Tydings-Mc* Duffie lögin), en Roosevelt for- seti undirskrifaði þau 24. mars- 1934 og felst þjóðþing FilipS- eyja á þau 1. maí sama ár. — Stjórnarskráruppkastið, sem greitt er atkv. um á morgun,. og var samið af þjóðfulltrúa- samkundu, sem kom saman í Manilla 4. júlí 1934 gerir ráð* fyrir að sníðastjórnarfyrirkomu lagið eftir því sem er í Banda- ríkjunum. Forseti lýðveldisins- verður kosinn til 6 ára og hefir víðtækt vald. Þjóðþingskosning- ar eiga að fara fram á 3 ára fresti. Þingið er í aðeins einnl

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.