Morgunblaðið - 14.05.1935, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 14.05.1935, Blaðsíða 5
J»riðjudaginn 14. maí 1935. M0RGUNBLAÐI9 B imeð kænsku, með hetjuseiglu, með ofbeldi ' og slóttugri þolraun, er meistaralegt, grípandi meitlað af fínni högglist ... Guðmundur Kamban finnur . sig auðsjáanlega svo skuldbund- inn sínu strang-sögulega efni, að hann vill ekki neyta frjálsræðis skáldsins til þess að fara hjer með persónur og efni að eigin lögum. Og saint hefir þessi bók hans skelfahdi stórleik og kraft“. „Frankfurter Zeitung" ritar 30. ■ okt.: ,,Það má telja það m'eð stærstu kostum þessárar bókar að hún virðist ekki' vera kompóneruð. iHúii er líkt qg' hið víða land. Valdboð örlaganna virðist liún vera. Það er ekki fyr en seint að maður skilur mennina. En þá veit maður líka að athafnir þeirra og þjáningar heita nauðsyn j Sjaldan leggur maður frá sjer ^ bók er sannfærir eins og þetta verk, sem fjallar um óþekta norðlæga ey, með siðum sem oss eru annarlegir, og menn sem lifðu á löngu horfinni öld“. „Berliner Börsen Zeitung“ (sem ; er eitt stærsta og áhrifamesta i þýskt blað nú á tímum) skrifar m. a. 17. febr.: „Og þessari elfi (þ. e. af þýdd- um norrænum bókmentum) barst ! nýlega vöxtur úr merkilégri upp- Salazar leiðtogi Portugala f Víðsjá blaðsins í dag birtist fyrrihluti greinar eftir Guðmund Hannesson prófessor um liinn mikilhæfa stjórnmálaleiðtoga Portúgala, Salazar, forsætisráðherra, sem á fáum árum gerbreytti stjórnmála- og' fjármálaástandi þjóðar sinnar með fyrirliyggju og röggsemi. Á myndinni hjer að ofan sjest Salazar ásamt Carmona forseta á leið til þingsetningar, Salazar til hægri á myndinni. sprettu: skáldsaga eftir Guðmund Kamban, „Skálliolt". Það er sögu- i legur róman, en ekki í grunnum skilningi æfisögulegrar endur- sagnar eða með ryklykt skjala- snuddarans, heldur sögulegur og skáldPegur ,éins og sjálfar forn- sögurnar eru....... En þá fyrst (þ. e. eftir barns- fæðing Ragnheiðar) . setur að voldugur mikilleiki hins stranga, norræna lieims og hinnar skapandi glóðar skáldsins, hóflátrar glóðar, sem afmarkar sig í tærri, alt að því stílþurri frásögn. . . . í þess- ari dýrlegu, hptjufengnu ástar- sögu, þar sem ung stúlka geldur skammvinnrar sælu svo, beisklega með þjáningum og lífi, dregur skáldið fjölmargar myndir og lit- sterkar úr germönskum norður- Aregum 17. aldar, myndum lífs- hátta, landssiða og sögu, sem fræða og fanga huga vorn. . . . Svo stórar sem skapgerðir þessa verks eru og örlög þeirra skelf- andi, svo mjög auðgar oss þetta verk, sem vill láta glíma um sig, alveg eins og p'ersónur þess verða að berjast (hart og vasklega fyrir lífi sínu, örlögum og óláni. Voldug leiki landsháttanna, hinn skírlífi stórleiki manna og kvenna, hin harða nauðsyn laganna, alt eru þetta hlutir og viðfangsefni sem auka á vöxt vorn. En sá er hinn óendanlegi ávinningur þeim, <er þessi bók héfir hlotnast, að hann styrkist í skyldu sinni og efl- ist td að fylgja lögmáli eigin eðl- isf ars‘ ‘. „Skálholt“ (1—2) kemur út í haust á ensku og samtímis í enskri og amerískri útgáfu, og síðar að vetri kemur út tjekknesk þýðing í Prag. En áður er verkið komið út í þessum fjórum löndum, auk fs- lands: í Þýskalandi, Danmörku, Svíþjóð og Hollandi. K. A. Vík i Mtyrdal. - Eyjafiðll. - Fljotshlíð. í dag hefjast sumarferðir vorar. Til Víkur: Mánudaga, miðvikudaga og föstu- daga. Suður næsta dag. Að Steinum: Þriðjudaga, fimtudaga og laugar- daga. Suður næsta dag. Að Þverá og Hemlu alla daga vikunnar, til og frá Burtfarartími frá Reykjavík: Til Víkur og að Steinum kl. 10 f. h., að Þverá kl. 5 e. h. Bllraiiistfii Reykiivlkur Sími: 1720. Sími: 1720. (Ath. Viðskiftamenn vorir eru beðnir að athuga að enginn verður sóttur heim og öll fargjöld staðgreiðist) $nmarbú§(aðar við Álafoss, fæst leigður frá 1. jffiní. Öll bestu og fínustu þægindi. — Upplýsingar hjá Brynjólfi Árnasyni, lögfræðing, Hafnarstræti 8. Sími 3294. Tíl Boroartiarðar no Búðardals verða bílferðir í sumar alla mánudaga og fimtudaga. Frá Búðardal og Borgarfirði alla þriðjudaga og föstudaga. • «. BlfteiOaslððin HEKLA Sími 1515. færi og taka jafnframt móti fjölda manna“, sagði hann við Ferro. Hann lifir mjög einföldu ‘Og óbrotnu lífi, sparsamlegar en flestir aðrir og helsta skemtunin »er að aka í bíl upp í sveit. Hann ú þar kotið, sem faðir hans bjó á, rekur þar búskap og er ágætur bóndi. Eins er skrifstofa hans, í stjórnarbyggingunni. Þar er fátt inni annað en skrifborðið, bóka- skápar og einfaldur legubekkur. Á veggnum er mynd af aldraðri konu og tvær kaþólskar helgi- myndir. Þannig er manninum lýst, en 'hvað hafðist hann svo að, og hver ráð fann hannn. til hagsbóta fyr- ir landið? Það liggur í augum uppi að maðurinn, sem rjeði öllum fjár- málum, varð að láta flest til sín taka í landinu, en fyrst og fremst að gera fjárlögin svo úr garði að tekjur hrykkju fyrir gjöldum, 'því honum var ekkert fjær skapi en að taka ný lán og eyða meiru en aflað var. Það var þá aðeins um tvent að gera, að halda sem sparsamlegast á öllu og afla liins- vegar sem mestra tékna. Hann gerði hvorttveggja. Skattar voru auknir til mikilla muna og var það vitanlega ekki vinsælt, enda þótti stjorn Salazars hörð í horn að taka til að byrja með og mætti árásum úr ýmsum áttum. Hins- vegar sagði hann, að hjá þessu yrði ekki komist og hefði þess verið vandlega gætt, að skattarnir sliguðu enga atvinnuvegi, sem reknir væru á heilbrigðan hátt. Svo mun þetta hafa reynst,, og óánægjan hvarf fljótlega, er menn sáu fjárliaginn batna og alt kom- ast í betra lag. Annars er það álit Salazars, að það borgi sig fyrir landið, úr því sem komið er, að hafa tiltölulega háa skatta, því bæði þurfi að grynna á ríkis- skuldunum og koma mörgum framfaramálum í framkvæmd, sem einstaklingar hafa ekki bolmagn til. Segja svo sumir, að hann geri ríkið auðugt en borgarana fátæka. — I augum Salazars verður flest að fjármálum. Hann spyr ætíð hvað lcostar það, hvernig ber það sig og livar á að taka peningana 1 Alt kák og hálfverk er honum fjærri skapi. Þegar hann veitir fje til einhvers fyrirtækis þá er það nægilegt. Hvað eftir annað hefir Salazar haft raunverulega mikinn tekju- afgang, sem hefir þá verið notað- ur til þess* að borga skuldir eða annara nauðsynja ,en hverníg sem alt hefir gengið, þá hafa tekjur á fjárlögum hrokkið fyrir gjöldum eins og sjá má á þessu yfirliti (talið í milj.i eseudos*) Þegar þess er gætt, að „krepp- an“ hefir gengið yfir á þessum árum og eitt sinn byltingartil- raun, sem kostaði of fjár, þá er það furða hversu Salazar hefir tekist að halda fjárlögunum í jafnvægi. Honum hefir jafnvel tekist að fá fjárlög allra nýlendn- anna hallalaus. Það má segja, að það sje hæg- ur galdur að hækka skattana og rýja almenninginn. Þá list kunn- um vjer líka. En Salazar hafðist margt annað að. Honum tókst að breyta miklu af ríkisskuldunum í hagkvæmari lán og færa vextina niður. Jafnframt var talsverðu af erlendu skuldunum komið á inn- léndar hendur. Urðu lánardrottn,- ar og viðskiftamenn ríkisins fljótt varir við að nú var flest tekið öðrum tökum en áður, að ágæt- lega var staðið í skilum við alla, en annars seintekið að græða á Portugal. * The States mans Yearbook 1934. Tekjur Gjöld. 1929—’30 2033 2024 1930—’31 2104 2098 1931—’32 1947 1946 1932—’33 2135 2133 1933—’34 2213 2212 Annað stórmál var að bæta hag bænda, sem lifðu við þungar álög- ur í örbyrgð og fáfræði. Salazar er það mikið áhugamál að geta fjölgað býlum og gert þau arð- vænleg, en ekki vill haim liafa þau öllu stærri en svo, að fjöl- skvldan geti annað störfunum. Þetta kefir honum tekist á skömm um tíma, öllum vonum framar, bæði með sundurskiftingu stór- jarða og nýrækt á ófrjóu landi, sem vatni var veitt á. Er svo sagt, að Salazar hafi tekist það, sem engum öðrum (hefir lánast, að fá bæjarbúa til þess að flytja upp í sveitir. Jafnframt hefir verið reynt til þess að kenna bændum nýtískubúskap. Salazar lítur svo á, að fjöldi sjálfseignarbænda sje besta tryggingin gegn öllum öfga- stefnum, jafnvel skilyrði fyrir heilbrigðu þjóðlífi. Öllum ríkis- rekstri er hann mótfallinn, þar sem unt er að komast hjá honum, en eftirlit vill hann hafa með stóriðju o. fl. Hvað verkamenn snertir í borg- unum, þá hefir einkum verið unn- ið að því, að þeir gætu fengið sæmilegar íbúðir, og vinnu ef hana brestur. Enginn atvinuleysisstyrk- ur fæst handa vinnandi mönnum, nema vinna komi móti. Salazar segir Sjálfsagt, að ríkið geri vinnumönnum jafnhátt undir höfði og öðrum stjettunj, en að hitt væri ranglátt að veita þeim nokkur sjerrjettindi framar öðr- um, eins og gert hefir verið í Rússlandi. Ymislegt mun Salazar hafa lagfært í verslun og viðskiftuin og meðal annars látið sjer mjög ant um banlcana. „Helstu bank- arnir eiga alt sitt undir því að fjárhagur ríkisins og lánstraust þ>ess sje í góðu lagi, og hvar stæð- um við ef þeir gætu ekki staðið í skilum“, sagði Salazar við Ferro. Peningamálum hefir Salazar stjórnað eftir sínu höfði. Þegar breski gjaldeyrinn fell í verði 1 jet hann peningagildi hjá sjer fylgjast með honum um tíma, en breytti síðar (1931) um mynt og verðfestí hana með gullgildi. Voru svo peningar slegnir ur gulli og silfri, en jafnframt er enskt pund gjaldgeng mynt. Bankaseðl- ar eru nú trygðir með gulli og hefir Salazar lagt kapp á að Portu galsbanki hafi nægan gullforða td tryggingar. Hann segir jafnvel, að þess verði skamt að bíða að hann verði einn a£ traustustu bönkum í álfunni. Meira.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.