Morgunblaðið - 14.05.1935, Page 3
Þriðjudaginn 14. maí 1935.
MORGUNBLAÐIÖ
3.
Fulltrúar bænda sameinast
um nýja framkuæmda-
stjdrn mjDlkursamsölunnar
Eyjólfi Jóhannessyni fram-
kwæmdasffóra M. [R. og
. Agli Ihorarensen falin
framkrwnidasfjérnin.
Eins og iesendum blaðsins, er
kunnugt, áttu mjóikurframleið-
endur samkvæmt mjólkurlögun-
um að fá framkvæmdastjórn
Mjólkursamsölunnar í sínar
hendnr um síðastliðin mánaða-
mót.
Hafa umboðsmenn bænda,
austan og vestan heiðar, und-
anfarna daga, setið á fundum
til þess að ná samkomulagi sín
á milli um það, hvernig skipa
ætti hina nýju framkvæmda-
stjórn samsölunnar.
., Á sunnudag satu þeir fund
er stóð yfir fram á mánudags-
nótt. Og mestan hluta dagsins
í gær, sátu þeir enn á fundi.
í gærkvöidi náðist samkomu-
lag um það, að fela þeim tveim
Eyjólfi Jóhmannssyni fram-
kvæmdastjóra Mjólkurf jelags
Reykjavíkur, og Agli Thorar-
ensen , formanni Mjólkurbús
Flóamanna, að taka við fram-
kvæmdastjóm samsölunnar.
Þessir tveir menn eiga að
„annast alla sölu og dreifingu,
og aðrar framkvæmdir sölu-
samlagsins“.
Er mjólkursalan með þessu
að nýju fengin framleiðendum
í hendur. Ef þessir menn verða
á eitt sá.ttir um skipulag fram-
kvæmdanna, hafa þeir öll völd
um mjólkursöluna.
Þar sem þessir menn eru
kosnir af fulltrúum framleið-
enda austan og vestan heiðar,
er vonandi, að þeir beri gæfu
til þess, að haga svo fram-
kvæmdum, að til sameiginlegra
hagsmuna verði fyrir framleið-
endur og neytendur.
Verður þess vænst, uns ann-
að kann að reynast.
Sauðaþjófarnir í Dölum.
5kaðabótakröfur á þá nema
um lO þúsunöum króna.
Nýlega er Jónatan Hallvarðs
son fulltrúi ltominn heim úr 5
daga ferðalagi í Dalasýslu, og
víðar, þar sem hann var að
rannsaka sauðaþjófnaðarmál
feðganna á Heinabergi.
Blaðið átti tal við Jónatan í
gær og skýrði hann því frá
hvernig málinu er nu komið.
Sauðaþjófnaðarmál þetta ér
órðið æði umfangsmikið og hafa
þeir feðgar játað að hafa fram
ið sauðaþjófnað á hverju ári
síðan 1914.
Hann yfirheyrði fjölda
manna í fjórum sýslum:
Strandasýslu, Barðastranda-
sýslu og Dalasýslu. Einnig at-
hugaði hann gamlar rjettar-
8kýrslur í sambandi við þetta
mál.
Ekki er hægt að segja ná-
kvæmlega hve miklu sauða-
þjófnaðurinn nemur, en líklegt
er að þeir hafi stolið til jafn-
aðar 15 kindum á ári síðan
1914, eða alls rúmlega 300 fjár,
þó er líklegt að um meiri þjófn-
að sje að ræða.
Þeir sem hafa orðið fyrir
Sauðaþjófnaði, gera alls um 10
þús. króna kröfur á þá feðga.
Helstu kröfurnar eru frá þess-
um mönnum:
Ólafi Sturlusyni, nú í Ögri.
Var stolið fje frá honum frá
1914—1920 meðan hann bjó í
Akureyjum. Hann gerir 1200
króna kröfu með vöxtum frá
1. jan. 1921. Eyjólfur Björns-
son í Fagurey gerir 340 króna
kröfu, Gísli Björnsson í Fagur-
ey gerir 45 króna kröfu. Þrír
bræður í Innri-Fagradal gera
150 króna kröfu hvor. Tveir
bændur, sem áður voru í Fagra
dal nú á Hólmavík, gera sam-
tals 400 krÖna kröfu. Bóndinn
í Ytri-Fagradal gerir 165 kr.
kröfu. Langstærsta krafan er
frá ekkju Karls Þórarinssonar
í Búðardal, hún gerir 6000 kr.
kröfu. Hefir verið stolið frá
henni fje á hverju ári síðan
1914.
Einnig gerir Kaupfjelagið í
Salthólmavík, sem bræðurnir
Jón og Grímur brutust inn í, í
vetur, gerir 300 kr. skaða-
bótakröfu.
Rannsókn málsins er nú lok-
ið og búið er að höfða mál
gegn þeim feðgum. Hafa þeim
verið skipaðir verjendur.
Er ekki enn fullráðið hvort
höfða skuli mál gegn konu
Magnúsar á Heinabergi, fyrir
að vera í vitorði um þjófnaðinn.
Ekki er talið ólíklegt að þeir
sem krefjast skaðabóta, fái eitt
hvað greitt af kröfum sínum.
Þeir feðgar eiga jörðina Heina-
berg og 14 hluta úr Akurey,
einnig töluverða búslóð.
Þetta mun vera eitt stærsta
sauðaþjófnaðarmál, sem komið
hefir fyrir hjer á landi.
Þórunn Á Björnsdóttir ljós-
móðir lætur af starfi sínu 30. júní
n. k. Tillaga kom fram í bæjar-
ráði um að skipa ljósmóður í
hennar stað, en sú tillaga var
feld.
„Er þetta það,
sem koma skal?“
• . sWi' '■ , -V ''
„Til tryggingar skilvísri og skaðlausri greiðsiu
. . . veðsetur bæjarsjóður Hafnarfjarðar rikis-
sjóði .... bæjariand Hafnarfjarðarkaupstaðar,
þar með taldar allar lóðir bæjarins, sem leigðar
eru út, með 2. — öðrum — veð- og uppfærslurjetti
á eftir tveimur 1. veðrjettarlánum til Kirkju-
jarðasjóðs----
Stjórnarblöðin hafa við 0g
við undanfarið verið að ílytja
Re.vkvíkingum þann sæluboð-
skap (!), að sú stund nálgast
nú óðum, að rauðu flokkarnir
fái yfirráðin í bæjarmálum
Reykjavíkur.
Að vísu hafa stjórnarblöðin
ekki haft neitt við að styðjast
úr viðBurðum stjórnmálanna,
er þau hafa flutt Reykvíkingum
þenna boðskap.
Ekkert það hefir komið fyrir,
sem gæti bent til þess, að Reyk-
víkingar vildu breyta til um
stjórn bæjarmálanna og fela
rauðliðum forsjá þeirra í stað
Sjálfstæðismönnum.
Fullyrðingar stjórnarblað-
anna um breyting á hugarfari
Reykvíkinga eru því aðeins upp
hrópanir ráðþrota manna, sem
enga stoð eiga 1 veruleikanum.
Eftir hverju er að
keppa?
Upphrópanir stjórnarblað-
ánna einar nægja ekki til þess
að fá Reykvíkinga til að fylkja
sjer í rauðu flokkana. Þar þarf
annað og meira til.
Og þó að mörgu og fögru
sje lofað fyrir kosningar, láta
kjósendur þetta engin áhrif á
sig hafa — allra síst þegar lof-
orðin koma frá flokkum, sem
staðnir eru að því að svíkja alt-
af öll kosningaloforð sín, eins
og rauðu flokkarnir hafa gert.
Hvað ætti það annars að
vera, sem gerði Reykvíkinga
ginkeypta fyrir því núna, að fá
rauða stjórn yfir málefni bæj-
arins?
Ekki eru Reykvíkingar svo
hrifnir af Mjórn rauðliða á rík-
isbúinu, að þeir óski eftir sams
konar stjórnarfari hjá sjer. —
Jafnvel eindregnir flokksbræð-
ur valdhafanna hjer í Reykja-
vík myndu ekki æskja þess, að
þeim Eysteini óg Hermanni yrði
falin stjóri^ bæjarmálanna. —
Taustið er nú ekki meira en
þetta! %
Til þess eru vítin —
Og þó að Reykvíkingar hafi
sjálfir ekki fengið reynslu af
stjórnarhæfileikum rauðliða að
því er snertir stjóm bæjarmál-
anna, þurfa þeir engan veginn
að renna blint í sjóinn um það,
hvernig sú stjóm myndi fara
úr hendi.
Hafnarfjörður er hjer á
næstu grösum. Þar hafa rauð-
liðar stjórnað í mörg ár og með
svo öflugum meiri hluta, að
þeir hafa haft öll ráð í sinni
hendi.
Hefir stjórn rauðliða í Hafn-
arfriði verið svo glæsileg, að lík
legt sje að hún ýti undir Reyk-
víkinga með að óska breytinga
hjá sjer?
»
Reykvíkingar hafa heyrt
nefnda „gulu seðlana“, sem
Emil bæjarstjóri gaf út sem
einskonar gjaldmiðil fyrir ríki
sósíalista í; Hafnarfirði.
En ,gulu seðlarnir‘ voru ekkí
gjaldgengir nema upp í kaup-
greiðslu til „hinna vinnandi
stjetta", sem voru í þjónustu
Emils.
Þetta staðbundna og tak-
markaða gildi „gulu seðlanna“
varð orsök þess, að ,,ríki“ só-
I síalista í Hafnarfirði komst í
vanskil „út á við“.
En þá leitaði Emil á náðir
sinna rauðu samherja í ríkis-
stjórninni og á Alþingi og fekk
strax ríkisábyrgð fyrir stóra
láni, sem Hafnarfjarðarbær
ætlaði að taka í London.
Vegna þessarar ábyrgðar
varð Emil bæjarstjóri að veð-
setja ríkissjóði alt bæjarland
Hafnarf jarðarkaupstaðar, þar
með taldar allar þær lóðir, sem
j bærinn hefir leigt út til erfða-
! festu, ásamt öllum meðfylgj-
andi gögnum og gæðum.
! Segir svo um þetta í veðskjali
því, sem Emil bæjarstjóri hefir
gefið út:
j „Með því aðríkisstjórnin hef-
1 ir samkvæmt ályktun samein-
aðs Alþingis og vegna ríkis-
sjóðs, tekið ábyrgð á láni bæj-
arsjóðs Hafnarfjarðar, að upp-
hæð 10000-0-0 — tíu þúsund
sterlingspund — sem tekið er
í hjá The Pearl Assurance Com-
;pany Ltd. London, þá veðset-
| ur bæjarsjóður Hafnarf jarðar
; ríkissjóði hjermeð, til trygg-
• ingar skaðlausri og skilvísri
| greiðslu á þeim hluta af fram-
! angreindu láni, sem gengur til
Hafnarf jarðarkaupstaðar, en
ekki til byggingar Verkamanna
bústaða í Hafnarfirði alt að kr.
150.000.00 — eitt hundrað og
fimtíu þúsund krónur —, bæj-
arland Hafnarfjarðarkaupstað-
ar, þar með taldar allar lóðir
bæjarins, sem leigðar eru út,
með 2. — öðrum — veð- og
uppfærslurjetti á eftir tveimur
1. veðrjettarlánum til Kirkju-
jarðasjóðs, upphaflega að upp-
hæð kr. 70.800,00, nú að eftir-
stöðvum samtals kr. 52,584,00
— fimtíu og tvö þúsund fimm
hundruð áttatíu og fjórar krón-
ur.
„Veð þetta er til tryggingar
á skilvísri greiðslu bæði höfuð-
stóls og vaxta þess hluta skuld-
arinnar, sem að framan grein-
ir og eru eignirnar veðsettar
með öllu því, sem eignum þess-
um fylgir og fylgja ber, að
engu undanskildu.
Verði vanskil á framan-
greindu láni, þannig að ríkis-
sjóður þurfi að greiða fyrir lán-
takanda vexti eða afborganir
Lítið
rannsóknaskip,. i
18 tonna bátur frá
Danmörku verður
hjer mánaðartíma
og fer til Grænlands.
Nýlega kom hingað smá vjel-:
bátnr frá Danmörku, sem ætlarj
áð gera ýmsar hafrannsóknir hjer:
i Faxaflóanum og við Austur-
Grænland.
Á bátnum er 7 manna áhöfn.
Tveir vísindamenn, dr. Stengman-
Nielsen og kandidat Bertelsen,
ungur stiident. Auk þess eru á
bátnum Gessing skipstjóri og
köna hans, Just Nielsen, stýri-
maður. Sehultz, sem ér vjelstjóri
Og lofskeytamaður og Christian-
sen bryti.
Bátur þessi er þriggja ára gam-
all og var bygður sem rannsóknar
skip 1 Helsingjabotni. Fyrir tveim
árum keypti kaptein Throlle bát-
inn og gerði bann út í rannsókn-
kom meðál annars við hjer í
arför til Spisbergén í fyrra. Var
hann sjálfur með í þeirri för, og
Reykjavík í fyrrasumar. En á leið-
inni heim veiktist hann og dvelur
nú í París. Kaptein Throlle kostar
för þessa að öllu léyti og eru vís-
indamennirnir gestir hans um
borð í skipinu.
Hjer við land dveljast þeir í
U/2 mánnuð, en fara síðan til
Grænlands.
Biertelsen kandidat er dýrafræð-
ingtir og liggur ihann við í tjaldi
skamt frá Keflavík ásamt ung-
um stúdent, ungfrú Véstergaard,
sem einnig leggur stund á dýra-
fræði.
Báturinn flytur þau stað tir
stað lijér við flóann, þar sem þau
ætla að rannsaka dýralífið.
Báturinn fór aftur út í morgun,
en er væntanlegur aftur éftir
nokkra daga.
lánsins, er ríkissjóði þá heimilt
að láta ganga að veðinu, án
undangengis dóms eða sátta,
eftir fyrirmælum 15. gr. laga
frá 16. des. 1885, um lögtak og
f járnám, og láta selja það á op-
inberu uppboði. Sömuleiðis er
veðhafa rjett, ef hann óskar
þess, að taka í sinar hendur
innheimtu á lóðargjöldum, eða
öðrum afgjöldum af hinni veð-
settu eign, til ljúkingar þeim
greiðslum, sem hann kynni að
þurfa að greiða vegna ábyrgð-
ar þessarar“.
„Er þetta það, sem
koma skal?“
Skyldi þetta vera agnið, sem
Reykvíkingar eiga að bíta á?
Skyldi það vera ósk margra
Reykvíkinga, að rauðu flokk-
arnir fái völdin hjer í bænum,
til þess að veðsetja land bæj-
arins og erfðafestuland ein-
staklinga á sama hátt og Emil
hefir gert?
Hafnarfjarðarbær er kominn
undir eftirlit ríkisins og er ekki
lengur frjáls um meðferð sinna
tekna.
Blöð rauðliða geta ekki
vænst þess, að Reykvíkingar
taki sjer slíka fjármálastjóm
til fyrirmyndar.