Morgunblaðið - 24.05.1935, Page 8

Morgunblaðið - 24.05.1935, Page 8
8 MORGUNBLAÐIÐ Föstudaginn 24. maí 1935. Allir Reykvíkingar iesa auglýsingar Morgunblaðsins. Jfoujts/íajtuv StíkyMtiiufav Sparisjóður Hafnarfjarðar. Glæný rauðspretta í öllum. Dömur og herrar geta feng- fiskbúðum Hafliða Baldvins- ið 1. flokks fæði í Tjarnargötu sonar. Sími 1456, 2098 og 4402. 16, 2. hæð. Sími 1289. Þórarna, ------------------------------- Thorlacius. Glænýr stútungur í dag. Fiskbúðin, Brekkustíg 8. Sími 1689. Jarðarberja- og fleiri fjöl- ærar plöntur til sölu í Blátúni. Sími 4644. Kaupum gamlan kopar. — Vald. Poulsen, Klapparstíg 29. Kaupsvslumenn! Það er viðurkent, að maturinn á Café Svanur sje bæði góður og ódýr. Veggmyndir og rammar í fjölbreyttu úrvali á Freyju- götu 11. flytur auglýsingar yðarj og tilkynningar til flestra blaðlesenda um alt land, í sveit og við sjó - utan Reykjavíkur. Tek hús utan sem innan til hreingerninga. Sívaxandi að- sókn sannar vinnugæðin. Ágúst Jónsson, Frakkastíg 22, sími 2613. Eins og undanfarin ár tek jeg að mjer að gera við leiði. Hefi um 30 tegundir af plönt- um að velja úr. Johann Schröd- er, garðyrkjumaður. Til viðtals í síma 4881 eftir 7 á kvöldin. Blaðið kemur út vikulega 8 síður samanlímdar. Ekkert blað er lesið jafn víða í SVEITUM lands- ins og Jafnaðarreikningur pr. 31. des. 1934. A k t í v a 1. Skuldabrjef fyrir lánum: > fasteignarveðskuldarbrjef............................. kr. 445.965.56 2. óinnleystir víxlar ..................................... — 465.361.09 3. Bankavaxtabrjef og önnur slík verðbrjef ................ — 17.197.00 4. Inneign í bönkum ....................................... — 61.499.91 5. Aðrar eignir (skrifstofuhúsgögn) ....................... — 2.307.56 6. Ógreiddir vextir ........................................ — 6.193.98 7. Peningar í sjóði 31. des. 1934 ........................ — 16.941.48 kr. 1015.466.58 P a s s í v a 1. Innstæðufje 1839 viðskiftamanna .................. kr. 814.722.31 2. Innheimt fje óútborgað ............................. — 949.21 3. Fyrirfram greiddir vextir ........%.............. — 11.398.73 4. Varasjóður ....................................... — 188.396.33 ________ kr. 1015.466.58 » Hafnarfirði 8. apríl 1935. Þ. Edilonsson. Ólafur Böðvarsson. Sigurgeir Gíslason. Framanritaða reikninga, bækur, verðbrjef og önnur skjöl Sparisjóðs Hafnar-- fjarðar, höfum við undirritaðir yfirfarið, talið peningaforða sjóðsins og ekkert fundið athugavert. Hafnarfirði 11. maí 1935. Ingólfur Flygenring. Böðvar Böðvarsson. I 8NÖRUNNI. 20. því að það heyrðist sjerstaklega lítið í bílnum. Til allrar óhamingju beindist athygli hans frá bílnum í svip, að bifhjóli hinum megin við götuna, sem var ljóslaust, og hann fór til þess að skrifa niður númerið. En þegar hann kom aftur yfir göt- una, var bíllinn horfinn. Þetta er alt og sumt, sem við vitum, enginn annar hefir heyrt vagninn eða sjeð. — Vagn, sem er við húsið einmitt um þetta leyti er grunsamlegur, sagði Matterson. — Jeg hefi fengið tveim leynilögreglumönnum það hlutverk, að finna vagninn, sagði Cowling. — Það var áætt, sagði foringinn hugsi. Matterson ræskti sig. — Reyndar hefði jeg gaman af að vita eitthvað nánar um samband dómsmálaráðherra okkar, og frú Brandts og manns hennar. — Jeg held satt að segja, að það skifti litlu máli, svaraði yfirmaðurinn. — Sir Humphrey er ekki ljettúðugur, og hefir aldrei verið það. Jeg veitj hvað jeg er að fara. Jeg hefi oft verið með þeim þrem, og jeg er þess fullviss, að það hefir aldrei verið neitt á milli þeirra, enda hefir aldrei verið neitt talað um frú Brandt og sir Humphrey. Annars skuluð þjer fylgja yðar eigin geðþótta í þessu. Get jeg verið yður hjálplegur með nokkuð, Cowling? — Jeg vildi gjarna fá listann yfir veiðigestina á Keynsham Hall, svaraði hann. — Þjer ætlið þá, þegar öllu er á botninn hvolft, að haga rannsókninni, eins og þessi tvö mál stæðu í sambandi hvort við annað. — Aðeins að einu leyti, svaraði leynilögreglu- maðurinn. Annars mun jeg halda hverju fyrir sig. — Listann skuluð þjer fá. En jeg held nú að það komi að litlu gagni. Cowling stóð á fætur. — En jeg byrja að sjálfsögðu á Savoy Court, sagði hann og strauk yfir hatt sinn. — Mig skyldi ekki furða á því, þó að það væri það sama, sem hefir komið fyrir frú Brandt til þess að halda ekki orð sitt og það sem fekk sir Humphrey til þess að fara út að borðstofuglugga sínum. — Jeg hefi altaf verið mótfallinn fljótfærni. En auglýsingarnar hjálpa okkur altaf um nokkra daga. Það er annars erfitt að ætla sjer að fara á bak við blöðin um þessar mundir. — Jeg hefi þegar sent fjóra af mínum bestu mönnum af stað. Og jeg skal ekki láta eina mín- útu fara til spillis, svaraði leynilögreglumaðurinn. Þegar tveir æðstu menn Scotland Yard voru einir eftir, gaf Moore yfirmaður hinum merki um að koma nær. — Já, hvað líst yður, Matterson, spurði hann. — Já, hvað skal segja. Jeg fyrir mitt leyti gæti vel trúað því, að hvarf frú Brandt og sir Humphreys standi í sambandi hvort við annað, að sömu menn standi bak við hvort tveggja. — En hvernig í áranum ættum við að geta sann- að samband þar á milli? — Það er nú einmitt vandinn. Hjer er við tvent að etja, lítur út fyrir. En að svo stöddu er ómögu- legt að finna orsök sem gæti verið fyrir þessu þrennu: Hinu fyrra hvarfi sir Humphreys, hvarfi frú Brandt og nú þessu, að sir Humphrey er á ný horfinn. Við höfum þegar komist að því, að allar okkar glæpamanna-„stjörnur“ eru saklausar að þessu. En ef það eru viðvaningar, sem hjer eru að verki, þá segi jeg bara — guð sje oss næstur — en nú sje jeg að yður dettur eitthvað sniðugt í hug? Moore hristi höfuðið. — Nei, ekki neitt sniðugt, sagði hann, en það sem mjer datt í hug var þetta: Eina manneskjan, sem hefði getað fengið sir Humphrey út að glugg- anum, án þess að hugsa sig um, er Katherine Brandt. — Má vera. En ef hún vildi sir Humphrey eitt- hvað, hví í skollanum gat hún þá ekki komið til miðdegisverðar á tilsettum tíma? — Já, ef við vissum það, væri gátan ráðin, svar- aði hinn þurlega. — En nú verð jeg að fara í ut- anríkismálaráðuneytið. Ef þjer heyrið eitthvað> nýtt vitið þjer hvar mig er að hitta. I Savoy Court voru menn heldur en ekki hrifnir af að fá tækifæri til þess að vera Scotland Yard hjálplegir, og einn af forstjórunum vísaði sjálfur Cowling upp til herbergja Katherine Brandt, og bað hann blessaðan að hafa sína hentisemi og gera húsrannsókn eins og honum þóknaðist. Og Cowling ljet ekki segja sjer það tvisvar og byrj- aði þegar nákvæma rannsókn, ekkert, sem nokkru máli kunni að skifta, fór fram hjá honum. Að lokum ljet hann kalla á herbergisþernu frú Brandt. Hún var ensk, stilt og prúð stúlka, heldur lagleg og vel klædd, en dálítið feimin. Cowling var eins elskulegur og hann gat og flýtti sjer að' bjóða henni sæti. — Jeg sje, að ferðakisturnar eru tilbúnar? — Já, alt er tilbúið til utanferðarinnar, svaraði hún. Frúin sagði mjer, að við legðum af stað í dag eða á morgun, bætti hún við. — Hvert, til meginlandsins? — Til Cannes. — Frú Brandt var búin að fá farmiða með „bláu lestinni“ í morgun, sagði nú forstjórinn, og við erum búnir að hringja til Cárlton í Cannes og fá herbergi fyrir hana. — Frú Brandt hefir ekki látið yður vita neitt um, að hún hafi breytt ákvörðun? — Nei. Cowling sneri sjer aftur að stúlkunni. — Hefir frú Brandt nokkuð minst á, að hún ætlaði að hætta við að fara til Frakklands? — Nei, ekki einu orði. Jeg skil ekki hvað hefir komið fyrir. Jeg gæti best trúáð, að frú Brandt kæmi þá og þegar, tilbúin til þess að fará með lestinni í fyrramálið. Hún hefir heldur ekki verið í burtu nema eina nótt. Forstjóri Savoy Court kímdi. — Yður finst við kannske gera fullmikið úr hvarfi frúarinnar í eina nótt.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.