Morgunblaðið - 22.08.1935, Side 8

Morgunblaðið - 22.08.1935, Side 8
8 MORGUNBLAÐIÐ Fimtudaginn 22. ágúst 1935.. mmBBSBsmssBamsasBsmssBsmmms 9fAsn€SíZí Herbergi óskast 1. okt. ttá- lægt miðbænum. Skilvís borg- un. Upplýsingar í síma 2130 kl. 8—9 síðd. í dag. €l}imiruX' Kennaralærð stúlka óskar að segja til börnum eða ungl- ingum á góðu heimili í bæn- um, gegn fæði og húsnæði. — Innanhússtörf geta komið til greina. Upplýsingar í síma 3544. e. Ef þjer viljið fá heimsendan góðan miðdegisverð þá hringið í síma 1289. Kjötfars og fiskfars, heima- tilbúið, fæst daglega á Frí- kirkjuvegi 3. Sími 3227. Sent heim. SiCínftvninqac Prjónasilkið í peysuföt er komið aftur, sjerstaklega fal- legt. Versl. „Dyngja". Afarmikið úrval af einlitu Crepe de Chine í kjóla og blússur, verð frá 2,75 mtr. — Versl. „Dyngja“. Höfum fengið svört efni í peysufatasvuntur. Einnig dálít- ið af mislitum svuntuefnum, Georgette í svuntur og upp- hlutsskyrtur, nýkomið, 11,25 í settið. Versl. „Dyngja“. Káputau og Ulsterefni í góðu úrvali. Ullartau í kjóla og pils. Kápufóður frá 2,15 mtr. — Versl. „Dyngja“. Tvistar í kjóla og svuntur. Tilbúnir morgunkjólar frá 4,95 stk. Versl. „Dyngja“. Nýr silungur daglega. Lægst verð. Fiskbúðin Frakkastíg 13. Sími 2651. ódýr húsgögn til sölu. Göm- ul tekin í skiftum. — Hverfis- götu 50. Húsgagnaviðgerðar- stofan. Islenskar kartöflur fást í Verslun Símonar Jónssonar, Laugaveg 33. Silungur glænýr fæst dag- lega í Nordalsíshúsi. Sími 3007. Hangikjöt nýreykt. Nordals- íshús. Sími 3007. Kaupum gamlan kopar. — Vald. Poulsen, Klapparstíg 29. Sími 3024. Það eru færri vitlausir en mað- ur heldur, en fólkið skilur ekki hvort annað. Franskur málsháttur. Hlátursmælir. 1 Cirkus í horg- inni Manchester vinna tvö fífl, sem keppa sín á milli um hylíi | áhorfenda. Til þess að geta fúll- vissað forstjórann um livor þeirra veki meiri hlátur hjá áhorfend- um, hefir annar þeirra fundið upp áhald til að mæla hlátur- inn. Það er þannig, að línurits- mælir er í sambandi við hljóð- nema. Eftir því sem áhorfendur hlæja meira, því hærri strik koma á línuritið! Ódýrt að lifa í Abyssiniu. Ensk- ur blaðamaður, sem dvelur í Abyssiniu skrifar blaði sínu að matvæli sjeu afar ódýr þar eystra. T. d. sje hægt að fá 20 egg fyrir 1 krónu og 5 kg. af kaffi fyrir 2 krónirr. Erfitt próf. Það er ekki auðvelt að fá aðgang að balletskólanum í Konunglega leikhúsinu í Höfn. Yfir 200 börn sóttu um upptöku í skólann fyrir næsta ár, en hið erfiða próf stóðust aðeins fjögur. Eftirsótt merki. Lögreglan .í New York hefir látið gera skrá yfir alla leigubílastjóra, sem hafa ekið í 15 ár án þess að verða fyrir slysi. Bílstjórarnir fá merki, sem þeir fá leyfi til að merkja vagna sína með. Lata menn langar ætíð til að gera eitthvað. Franskur málsháttur. Til Akureyrar. Á tveimur dögum: Alla þriðjudaga, fimtudaga og Iaugardaga, Á einum degi: Hraðferð um Borgarnes, alla þriðjudaga og: föstudaga. Frá Akureyri áframhaldandi ferðir: Til Austf jarða. Afgreiðsla í Reykjavík Bifreiðastöð íslands. Sími 1540. BflfreiðastöÐ Akureyrav. e Morgunblaðsins. Allir Reykvíkingar lesa auglýsingar FAXGIM FRA XOBOLSK. 20. Valeria Petrovna var köld og róleg fyrir þessu. Þegar fulltrúinn kom í þessar óboðnu heimsóknir, stríddi hún honum á hinni hljómþýðu, rússnesku tungu, og Simon brosti þá gjarna út í annað munn- vikið, eins og honum var títt, er hann sá hvernig hún hafði vald yfir þessum áhrifamikla manni, sem var án efa óvitlaus. Þetta var sjöundi dagurinn, af þeim sæluríku dögum, sem þau Simon og Valeria Petrovna nutu saman. En um kvöldið varð Simon þess var að hún var venju fremur fáskiftin og hnuggin. Hann tók báðar hendur hennar í sínar og spurði hana blíðlega, hvað amaði að henni. „Ó, mon ami“, sagði hún hrygg. „Jeg held, að mjer þyki alt of vænt um þig“. „Yndið mitt“, hvíslaði Simon, og kysti varlega ljósrauða lófa hennar. „Já, jeg er hrygg — því að nú er jeg búin að fá að vita, hvar vinur þinn er“. Simon leit snögglega upp. „Hann er — hann er þó ekki dáinn?“, spurði hann óttasleginn. „Nei. En það er eins og þú óttaðist, hann er í einu af ríkisfangelsunum“. „Það er strax betra, — en segðu mjer bara, hvar hann er“. „Ekki nú — seinna“ — andvarpaði hún. „Enn er skamt liðið á kvöldið — jeg segi þjer það áður en þú ferð“. „Já, en elskan mín. Hví ertu þá svo hrygg. Ef með nokkru móti er hægt að fá Rex sýknaðan, get um við það áreiðanlega. Og þó að jeg verði að fara til Londoii, þá kem jeg aftur — kannske í næsta mánuði. Hamingjan góða, maður er ekki nema tvo daga að fara frá London til Moskva í flugvjel". „En Simon, jeg varð að borga fyrir þessar upp- lýsingar um vin þinn“. „Hvernig á jeg að skilja það?“, spurði Simon með áhyggjusvip. Hún ypti sínum fögru öxlum. „Það var Leshkin, sem sagði mjer það sem jeg vildi fá að vita. Jeg hefi verið að dekstra hann síðustu tvo daga“. „Mig grunaði ekki, að þú hefðir minst á þetta við hann“. „Nei, hvernig átti þig að gruna það, elsku vinur minn. En jeg var búin að lofa að hjálpa vini þín- um — og það tókst mjer líka“. „En — eh — hvað heimtaði Leshkin í staðinn?“ Hún brosti til hans gegnum tárin. „Jeg varð að lofa honum, að þú færir frá Moskva á morgun, fyrir fult og alt“. Um stund sátu þau þögul. Bæði vissu þau, að Simon gat ekki verið í Moskva til lengdar, en þau höfðu hrundið þeirri hugsun frá sjer. En nú þegar þau urðu að horfast í augu við veruleikann, voru þau alveg óviðbúin, heilluð í hinni fyrstu ástar- vímu. / „Þú getur komið til mín til Lundúna“, sagði hann loks og glaðnaði yfir honum við tilhugsunina. „Það verður langt þangað til. Jeg er nýbúin að vera þar. Og Rússland vill ekki að listamenn þess sjeu altaf að fara til annara landa. Jeg hefi mínar skyldur gagnvart fólkinu, list mín tilheyrir því — ekki mjer sjálfri“. „Jeg gæti komið á móti þjer í Berlín“. „Hver veit, við sjáum nú til. Segðu mjer nú hvað þú ætlar að gera, til þess að bjarga vini þínum?“ „Jeg ætla gegnum sendiherraskrifstofuna að fara fram á, að hann verið látinn laus, eða opin- bera rannsókn á máli hans“, svaraði Simon, án þess að hafa mikla trú á uppástungu sinni. „Þetta stoðar ekkert. Stjórnarvöldin eru viss með að neita því að vita, að hann sje yfirleitt til. Hann fanst á landareign, þar sem ókunnum er stranglega bannaður aðgangur. Það er mjög al- varleg sök. Og ef til vill situr hann nú inni með i meiri þekkingu en stjórnarvöldin kæra sig um að berist út úr landinu“. „Þú lofaðir honum ekki, að jeg færi úr Rúss- landi? Bara Moskva, er ekki svo?“ „Jú, bara Moskva“, brosti hún. „En jeg get getið mjer til hvað þú hefir nú í huga — þú ætlar að fara til hins forboðna landflæmis og leita vin þinn uppi?“ Simon hló dálítið vandræðalegur. „Er annað hægt að gera?“ Hún stóð á fætur og gekk að gömlum skáp í Empire stíl, dró út skúffu og tók fram lítið fer- hyrnt men, skreytt ótal perlum. Hún skoðaði lengi hina litlu mynd í meninu af Maríu mey með barn- ið, áður en hún kom til hans með það. „Taktu þetta með þjer, batuslika, og berðu það ávalt á þjer. Það mun vernda þig frá öllu illu“. „Ó, yndið mitt — hví ertu svona góð við mig?“ Simon tók við hihni helgu mynd. „Jeg vissi ekki að þú væri svo trúuð, — jeg hjelt að trúarhneigð þektist ekki lengur í Rússlandi“. „Þar skjátlast þjer, vinur minn“, sagði hún ró- lega. „Það er að vísu satt, að margir prestar í Rússlandi hafa verið reknir úr stöðum sínum, en það er aðeins gott og rjettmætt, því að þeir voru slæmir menn, sem drukku, og voru lítt færir til þess að þjóna guði. En nú getur maður haft hvaða trúarbrögð sem maður vill, og Rússland, — hið gamla heilaga Rússland — er óbreytt undir yfir- borðinu. Og að undanteknum fáeinum, ber sjer- hver Rússi guð í hjarta sínu“. Simon kinkaði kolli. „Jeg held, að jeg skilji, við hvað þú átt, — að minsta kosti ætla jeg ávalt að bera þetta á mjer“. „Ef þú kemst í vandræði, skaltu senda mjer menið. Sjáðu nú“, hún þrýsti á litla leynifjöður, „hjerna getur þá falið brjef og sent mjer það í meninu — enginn getur fundið það — en allir í Rússlandi þekkja Valeríu Petrovna og jeg fæ það* hvar sem jeg verð“.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.