Morgunblaðið - 10.01.1936, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 10.01.1936, Blaðsíða 2
MORGUNBLAÐIÐ Föstudaginn 10. jan. 1936. Útrof.: H.f. Ar/akur. ReykJaT'’*. Rltatjðrar: Jön Kjartanaaon, Valtýr Stef&naaon. Rltatjðrn og afgrreiSala: Auetnratrætl S. — Stmi 1S0S. Aeirlýalng .ntjðrl: E. Hafberc. AugrlýBlncaakrifatofa: Au turatræti 17. — Slml S70S. Helmaatmar: Jðn Kjartanaaon, nr. 874Í. Valtýr St fAnaaon, nr. 4229. Árnl 6l% nr. S045. B. Hafberg, nr. 2770. Áakriftag.ald: kr. t.Ou á. m&nuOL í lauaaaðlu: 10 aura alntaklS. 20 aura maO Leabök. i Til beggja handa. ÞaS er eins og rauðu flokk- ana sje eitthvað farið að óra fyrir því, að nú sje að því kom- ið að ríkisstjórnin geti ekki lif- að einvörðungu á rógi og níði um Sjálfstæðisflokkinn, heldur verði að gera einhverja grein fyrir því, hvernig fje ríkisins sje varið og hvernig búið sje að atvinnuvegum landsmanna. StjórnarblÖðin hafa skift með sjer verkum. Alþýðifblaðið hef- ir tekið að sjer að verja fjár- málasukkið og teflir fyrir sig einum af frambærilegri mönn- um flokks síns, Jónasi Guð- mundssyni alþm. — Dagblaði Tímamanna hefir hinsvegar verið úthlutað það fáránlega hlutverk, að sýna fram á að þeir menn, sem alla tíð hafa verið fjandsamlegastir sjávar- útveginum, hafi verið eina stoð hans og stytta. Eins og menn vita er held- ur fátt með stjórnarblöðunum þessa dagana og það er engu líkara en Alþýðublaðið hafi verið að hefna sín á Tímagimbl- inum með því að fela honum að leika forystusauð á sviði sjáv- arútvegsmálanna. Fjármálaafbrot ríkisstjórnar- innar eru því miður alvarlegri og meiri en svo, að á þeim verði ráðin hin allra minsta bót með einní blaðagrein. Þar verður engri málsvörn viðkomið ann- ari en iðrun og yfirbót, og standast hugleiðingar Jónasar Guðmundssonar enga gagnrýni. Allir, sem eitthvað þekkja til þingsögunnar, kannast við hin- ar síendurteknu fullyrðingar um það, að nú og nú fyrst sjeu fjárlögin rjett áætluð, og þeir, sem í þeim efnum eru hreinir hvítvoðungar og ekkert þekkja annað en frægðarsögu undra- barnsins, sem nú fer með fjár- málin, vita þó að minsta kosti það, að einnig Eysteinn Jónsson var með þessar sömu afsakanir í fyrra fyrir því, að hann hækk- aði fjárlögin þá, enda þótt allir viti nú, að áætlun hans var rammskökk. Ásakanir Jónasar Guðmunds- sonar um fölsk fjárlög bitna auðvitað á Framsóknarflokkn- um, sem undanfarin 9 ár hefir átt fjármálaráðherrann. En hitt talar skýrustu máli, að á rúmu ári hafa stjórnarflokkarnir lagt 5 miljón króna nýjan skatt á þjóðina, og gegn þeirri byrði verða allarheimspekilegar hug- leiðingar ljettar á metunum. 250 BRESK OG FRONSK HER SKIP í MIÐJARÐARHAFI! Nslson og Rotfney fara til Miljatíariwlsiiis, Á myndixmi sjest Nelson, sem er 30 þús. tonn. Nelson er systurskip Rodney, en þessi skip eru talin bestu skipin í flota Breta. SPRENGJA JAPANIR FLOTAMALARABSTEFNUNA? Nagano og Anthony Eden á úrslitafundi. KAUPMANNAHÖFN f GÆR. EINKASKEYTI TIL MORGUNBLAÐSINS. IDÚIST er við að flotamálaráðstefnan í London ^ fari út um þúfur á morgun! Japanar hafa neitað að gefa upplýsingar um fyrirætlanir sínar um herskipabyggingar, en aðr- ir þátttakendur í ráðstefnunni hafa fallist á til- lögu þess efnis, að skiftst verði á upplýsingum um fyrirhugaðar herskipabyggingar. Bretar telja því þýðingarlaust að haldið verði áfram ráðstefnunni með þátttöku Japana. Hinsvegar er búist við, að hin flotaveldin fjögur, Bretar, Bandaríkin, Frakkar og ítalir sitji áfram á ráðstefnu, eða kalli saman nýja. Páll. Ákvörðun tekin í gærkvöldi? LRP 9. jan. FÚ. Á fundí í utanríkismálaráðu- neytinu breska í kvöld, verður gert út um örlög flotamálaráð- stefnunnar í London. Anthony Eden, utanríkis- málaráðh,. Monseil flota- málaráðherra, og Nagano aðalfulltrúi Japana, sitja fundinn. • • Orðugleikar Hitlers aukast. Oslo 9. janúar. Frá Buenos Ayres og öðrum bæjum í Brazilíu berast fregn- ir um blóðugar verkfallsóeirðir. Fjölda margir hafa særst í viið- ureignunum. — Lögreglan hef- ir nú betur hvarvetna, að sögn. (NRP—FB). Stóríeld at- vinnuleysis- aukning. London 9. janúar. Fregnir frá Berlín í dag herma, að samkvæmt seinustu atvinnuleysisskýrslum hafi at- vinnuleysii aukist mikið í Þýska landi. Samkvæmt þeim hefir tala atvinnuleysingja aukist frá því í desembermánuði um 522.354 í 2.506.806. (UP—FB) Varúðarráðstafanir fyrir Þjóðabanda- | lagsfundinn. Bretar hafa her- í Frakkar senda 96 hersbip á flotaæfingar. s skipaskifti í Mið-1 jarðarhafi. ! Þjóðverjar óánægðir nieð bandalag Breta og Frakka. KAUPMANNAHÖFN í GÆR. EINKASKEYTI TIL MORGUNBLAÐSINS. AMEÐAN olíurefsiaðgerðirnar verða ræddar á þingi Þjóðabandalagsins í Genf þann 20. þessa mánaðar, verður öflugri herskipafloti í Miðjarðarhafi en nokkru sinni fyr, síðan heims- styrjöldinni lauk. Bretar eru taldir hafa 150 herskip í Miðjarð- arhafi. Frakkar hafa nú ákveðið að senda fyrstu deild frakkneska flotans, eða 46 skip, til æfinga við strendur Korsíku og undan Provenceströnd- inni við Miðjarðarhaf. Önnur deild frakkneska flotans, skipuð 50 herskipum, fer til æfinga við vestur strönd Afríku, undan Casa Blanca. Fjögur skip úr breska flotanum í Miðjarðarhafi verða kölluð heim. Skip þessi eru Hood (stærsta herskip heims- ins), Ramilles, Oreon og Neptune. Skip þessi voru kölluð heim aðeins til þess að veita sjóliðsmönnunum stutt heimfaraleyfi. I stað þessara skipa verða fjögur stórskip af heima- flot^num send til Miðjarðarhafsins. Þessi skip eru Rodney og Nelson, næst stærstu herskip heimsins, og tvö önnur skip. Herskipaskifti þessi fara fram þann 13. þessa mán. Miðjarðarhafs- deilan flutt til Rínarbakka. OERNAÐARSAMNINGAR t 1 Breta og Frakka hafa vak- ið mikla athygli í Þýskalandi. Er fullyrt að einn þáttur í samningunum fjalli um stuðning breska hersins við her Frakka á landamærum Frakklands og Þýskalands Gætir talsverðrar óánægju út af þessu í Þýskalandi og þýsk blöð eru bitur í garð Breta Blöðin segja, að sjersamn- ingar Breta og Frakka í þessu efni sje brot á Locarnosáttmál- anum. Þátttakendur í Locarnosátt- málanum hafi allir sem einn gengist undir að vernda þá landamæraskipun, sem nú er milli Frakklands og Þýskalands Þýsk blöð láta svo um mælt að með sjersamni: um þessum hafi Bretar Frakkar flutt deiluna Miðjarðarhafi norður Rínarhakka. Páll. Frankinn rjettir við. Forvaxtalækkún frá því í desember úr 6°/o í 4%. London 9. janúar^ . Frá París er símað, að Frakk- landsbanki hafi gefið út til- kynningu um forvaxtalækkun. Verða forvextir nú lækkaðir um 1% í 4%. (UP. FB.).

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.