Morgunblaðið - 14.06.1936, Page 3
Sunnudaginn 14. júní 1936.
MiRGUNBLAÐIÐ
Ætlar ríkisstjórnin að útrýma
kaupmannastjettinni?
Neytendafjelögum er fvilnað
á kostnað kaupmanna.
Thor Thors
■ y?, r-.
segir frá norræna
þingmannamótimi.
Þungar ádeilur á gjaldeyris-
og innflutningsnefnd.
Frá fundi Verslunarþingsins í gær.
A
endafjelögum innflutning eftir
tölu fjelagsmanna og heim-
ilismanna þeirra, þ. e. heim-
ilt er að veita þeim aukinn inn-
flutning, ef fjelagatalan vex.
Heildarinnflutningurinn er á-
kveðinn fyrirfram.
Af því leiðir, að fái neytenda
f jelögin meiri innflutning,
fá kaupmenn minni. Og eftir
því sem neytendaf jelögin
auka tölu fjelagsmanna
sinna og jafnframt innflutn-
ing sinn, eftir því minkar
hlutur kaupmanna.
S. í. S. segist hafa þriðjung
landsmanna á sínu framfæri.
FRAMHALD Á SJÖTTU SfÐU
Verslunarþingi í gær komu fram þung-
ar rökstuddar ádeilur á starfsemi
gjaldeyris- og innflutningsnefndar, og í því sam-
bandi á bankana. Til umræðu voru gjaldeyris-
og innflutningsmál.
Var fyrst og fremst bent á hættuna, sem
kaupmannastjettinni stafaði af 3. gr. reglug.
gjaldeyris- og innflutningsnefndarinnar, sem
heimilar nefndinni að úthluta neytendafjelögum
innflutning eftir tölu fjelagsmanna og heimilis-
manna þeirra. ____________________________
. Þessi grein reglugerð-
arinnar gerir kaupmenn
í raun og veru rjett-
lausa.
Hallgrímur Benediktsson
hóf máls ojr skýrði frá afskift-
nm Verslunarráðs Islands af
innflutnings- og gjaldeyrismál-
um. Verður síðar sagt frá þess-
ari skýrslu.
Oddur Guðjónsson flutti
snjalla framsöguræðu og
skýrði afstöðu verslunarstjett-
arinnar til innflutnings- og
gjaldeyrishaftanna. Verslunar-
menn viðurkenna, að innflutn-
inginn verði að samræma við
greiðslugetu þjóðarinnar.
Oddur rökstuddi tillög-
ur þær, sem lagðar voru fyrir
Verslunarþingið (og samþyktar
í einu hljóði). Tillögur þessar
eru birtar á öðrum stað í blað-
inu.
Þá vjek Oddur að sam-
komulagi V. í. og S. í. S. í
▼etur. Náðist samkomulag
við S. í. S., um að innflutn-
ingur fjelagsins skyldi miðað-
ur við innflutning fyrri ára
fyrstu fjóra mánuði þessa árs.
Útdráttur úr þessari ræðu
Odds, sem vakti mikla at-
hygli, bíður næsta blaðs.
Bjöm Ólafsson vjek að
rjettleysi því, sem kaupmenn
eru beittir. Innflutnings-
og gjaldeyrisnefnd gerir áætl-
on um heildarinnflutning fyr-
ir næsta ár um hver áramót. 1
ár var heildarinnflutningurinn
áætlaður á 37. milj. króna.
Þvínæst er ákveðið
1. hvernig þessari heildarupp-
hæð skuli skift milli vöru-
flokka,
2. hvernig henni skuli skift
milli innflytjenda.
Samkv. 3. gr
innar er heimilt að veita neyt
Frá Kína: Hsttan
á borgarastyrjöld
minni?
KHÖFN og LONDON í gær.
Ibardaga sló milli
framvarða Suður- og
Norður-herja Kínverja í
Honan-hjeraðinu í gær.
En alvarlegar skærur
hafa ekki orðið ennþá.
önnur fylking Suðurhersins,
Kwantung-herinn, er farinn á
burt úr Honan, en Kwangshi-
herinn er þar kyr. En talið er,
að hættan á borgarastyrjöld
sje nú minni vegna þess, að
hermennirnir í báðum liðunum
veigra sjer við að vega að
landsmönnum sínum.
Útlendingum hefir verið ráð-
lagt að fara burtu úr Honan-
hjeraðinu. Liðsdráttur er all-
reglugerðar-j mikill á báða bóga.
,Kyrrir I rerksm£ðj«intin&<
>■ , í í . á’< *.»
% ,/
'i’- * '• 'Æ
Skattaálögur
þyngstar
á íslandi.
Það, sem einkennir verkföllin í Frakklandi öðru fremur er að verk-
fallsmenn eru kyrrir í verksmiðjunum, sem þeir vinna í. Myndin sýnir
verkfallsmenn vera aS taka á móti mat, sem aðstandendur þeirra
flytja þeim á verksmiðjuvegginn.
60 daga
fangelsi fyrlr
að taka svari
svartfuglsias!
Cextíu daga fangelsi var
^ maður einn dæmdur í í
gærmorgun vegna bess að
hann tók að sjer að verja
málstað svartfuglsins inni á
Reykjavíkur Bar.
Nýlega var maður þessi staddur
í Barnum, sem oftar. Heyrði hann
á tal tveggja manna, sem voru að
tala um að fara og skjóta svart-
fugl.
Hann vjek sjer að mönnun-
um og sagðist ætla að taka
svari svartfuglsins. Rjeðist
síðan að öðrum „veiðimanna"
og slóg hann í andlitið, þannig
að annað augað „sökk“, og
kjálkabeinið laskaðist.
Allir voru menn þessir undir
áhrifum áfengis.
Þessi „dýravemdunarstarf semi“
var kærð fyrir lögreglunni og
dómur fell í gær.
Maður þessi er annálaður slags-
málamaður og hefir verið dæmdur
28 sinnum fyrir slagsmál, ölvun á
almannafæri og óspektir.
Sir Edward Britten,
skipstjóri á „Queen Mary“.
íslandsmólið.
Víkingur gengur
úr íslandsmótinu.
Elsa Sigfúss, söngkona, kom með
Gullfossi í fyrrakvöld, og býst við
að ver&a hjer rúmlega mánaðar-
tíma. Hjeðan fer hún til Oslo,
því þar á hún að syngja í útvarp
í byrjun ágúst. Áður en hún fer
hjeðan heldur hún hjer hljómleika.
En ekki er það ákveðið enn, hve
nær það verður.
Knattspyrnufjelagið Víkingur
hefir sagt sig \ir leik og
keppir því ekki við K. R. í diag
eins og til stóð. Nej’ðist fjelagið
til að gera þetta vegna þess hve
margir kappliðsmenn (8) eru for-
fallaðir, m. a. vegna meiðsla.
Er því aðeins eftir einn lrapp-
leikur, milH Vals og Fram, sem fer
fram annað kvöld kl. 8Í/2- Verður
það úrslitakappleikur mótsins,
nema fjelögin geri jafntefli, þá
þurfa þrjú fjelög að keppia. upp
að nýju, K. R., Valur og Fram.
Haraldwr Guðmunds-
son fór ekki til
Spánar.
Haraldur GuSmundsson ráð
herra fer í dag heimleiSis
til íslands, en hann hefir und-
anfariS veriS á ferS um Eng-
land, Noreg og Danmörku. FÚ.
EINS og skýrt hefir
verið frá bjer í blað
inu, var norrænt þing-
mannamót haidið í
Kaupmannahöfn dag-
ana 22. og 23. maí síð-
astliðinn.
Þingmannamót þetta sátu 4
fulltrúar frá Alþingi, þeir Thor
Thors, Jón BaldVinsson, Þorst.
Briem og Bjárni Bjarnason;
ennfremur skrifstofustjóri Al-
þingis, Jón Sigurðsson.
Thor Thors alþm. kom heim
með Gullfossi í fyrrinótt.
Morgunblaðið hitti hapn að
máli í gær og fekk hjá honum
eftirfarandi upplýsingar um
þingmannamótið.
Forsætisráðherra Dana stjóm
aði mótinu, en þipgmenn frá
öllum Norðurlöndum sóttu mót-
ið, þ. á, m. þrír fyrverandi for-
sætisráðherrar frá Noregi, þeir
Mowinckel, Lykke og Hund-
seid.
Þjóðabandalagið.
Á þessu móti var rætt um
Þjóðabandalagið og friðarráð-
stafanir þess.
Hafði P. Munch, utanrlki^-
málaráðherra Dana, þar fram-
sögu.
Þar sem ísland er ekki þátt-
takandi í Þjóðabandalaginu, á-
litu okkar fulltrúar ekki rjett
að taka þátt í þessum umræð-
um.
Það var alment álit fundar-
manna, að Norðurlandaþjóð-
irnar yrðu í lengstu lög að
stuðla að samheldni Þjóða-
bandalagsins og byggja vonir
sínar á myndugleika þess.
Mowinckel hafði þó orð á
því, að Norðurlandaþjóðimar
ættu að athuga,. hyort ekki
væri rjett, að þær sameiginlega
trygðu sig gegn þeirri hættu,
sem þeim e. t. v. gæti stafað af
refsiaðgerðum Þjóðabandalags-
ins.
Island hefir metið
í skattaálögu.
Þá var rætt um skattamál
og hafði prófessor Bergman
frá Svíþjóð framsogu. Síðan töl
uðu fulltrúar annara Norður-
landa, Moseid þingförseti fyrir
Noreg, H. P. Hansen fjár-
málaráðherra fyrir Danmörk,
Furuhjelm fyrv. fjármálaráðh.
fyrir Finnland og Thor Thors
alþm. fyrir Island.
Það kom greinilega fram
við þessar umræður, að skatta-
álögur eru hvergi á Norður-
löndum nálægt því eins háar
og hjer á landi, og vakti það
almenna undrun fundarmanna,
FRAMHALD Á SJÖTTU SÍÐU.