Morgunblaðið - 29.08.1936, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 29.08.1936, Qupperneq 4
4 MORGTJNBLAÐIÐ Laugardagur 29. ágúst 1936. Finsk „síldarborg“ norðan við ísland. Friðrik og Iogiriður koma til hallar sinnar á Suður Jótlandi 7 veiðiskip og eitt 7 þús. smálesta. Læknir, kaupmaður og fangelsi ■ 270 verkamenn. Eítir Arthur Wieland. FINNLENDINGAR auka síldveiðar sínar ár frá ári og keppa að því að framleiða alla síld, sem þeir nota sjálfir. Af tilviljun fjekk jeg tækifæri til að kynna mjer veiðiaðferðir Finnanna hjer við land, á meðan síldveiðin stóð sem hæst í sumar, um borð í finska síld- veiðiskípinu „Petsamo“. „Petsamo“, sem er eign Finlands Fiskeri A.B., er 7000 smálestir að stærð, en auk þess voru í síldveiðiflota Finna hjer við land 7 önnur smærri skip. AIls höfðu þau veitt 44,000 tunnur í byrjun ágúst- mánaðar. Mun framkvæmdastjóri fjelagsins vera ánægð- ur með þennan árangur, þó hann hafi verið svo bjartsýnn 1 vor að gera ráð fyrir 70 þúsund tunnum, en þeirri met- veiði verða Finnar að fresta til betri tíma. Jeg várð afar hrifinn af þess- ari fjjótancli síldarverkunarstöð, e.s. „Petsamo“. Verlcafólkið er 270 að tölu. Plotinn veiðir með 11 herpinótum, og þar af eru þrjár frá „Petsamo“. Um kverja nót eru 14—J5 manns. Um borð í „Petsamo“ er síldin krydduð og' söltuð, og hægt er að taka á móti alt að 1Q00 tunnum í einu. 80 stúlkur vinna við kverkun og söltun og kammerráð Elfving, framkvæmdarstjóri útgerðarfje- lagsins, er vel ánægður með vinnubrögðin. Nýtísku veiðiaðferðir. Strax í byrjun júlí kom finski síJdveiðiflotinn upp að Norður- Jandinu og ráðgert er, að hann dvelji þar tii í byrjun september. Að mörgu leyti er gaman að kynna sjer veiðibrögðin. Radio ng sími er óspart notað til þess að halda sambandi miJJi skip- anna. Verði eitt skipið vart síld- ar, tilkynnir það þegar í gegnum loftskeyti eða firðsímann Iiinum skipunum, hvar það sje statt, og síðan er farið í bátana. í venju- legu kasti fengust 3—400 tunnur,. «n stundum kom fyrir, að 1000 tunnur fengust í einu kasti, og þá voru hendur látnar standa fram úr ermum. Einnig kom það fyrir, að næturnar rifnuðu und- an stórri torfu, og Pinnunum sárnar að sjá þannig þúsundir króna fara veg allrar veraldar. Dögum og jafnvel vikum sam- an kemur það fyrir, að skipin sigla fram og aftur án þess að síld sjáist. Þá legst drungi yfir skipverja og verkafólkið, — mönnum finst eins og þeir sigli með vofuskipi, sem reikar um höfin án ákveðinnar stefnu. Spil- in eru dregin fram úr pokahorn- inu, en þó virðist tilveran tóm og tilbreytingarlaus. Fullkomin lækningastofa — og fangelsi. En þegar varðmaðurinn loks tilkynnir, að hann sjái síld, kemst hreyfing á alt. Bátarnir fara af stað og vjelarnar eru sett ar í gang á ný. Sjaldan kemur fyrir, að slys hendi um borð, en komi það hins- vegar fyrir, er alt til reiðu. Lækn irinn hefir velútbúna lyfjabúð og tæki til að gerá uppskurð, ef með þarf. En sjaldan eða, aldrei kem- ur fyrir, að hann þurfi á lækn- ingaáhöldum sínum að halda. Karlmennirnir leita ráða hjá lækninum við meltingarkvillum eða þessháttar. Mjer var þó sagt, að komið hefði fyrir, að læknir- inn á „Petsamo“ hafi skorið upp við botnlangabólgu og að skurð- urinn hafi hepnast vel. Jeg kynt- ist lækninum betur sem skák- manni heldur en lækni þenna tíma, sem jeg dvaldi um borð. Hjelt skipstjóri liefir ábyrgð- armikla stöðu, en hann er líka stöðunni vaxinn. Skipstjórnin sjálf er þó ekki eins erfið og stjórn verkafólksins. Um borð í „Petsamo“ er fang- elsi — „bukta“, eins og Finnam- ir kalla það. Ekki ósjaldan þarf á því að halda. En Hjelt skipstjóri er vinsæll maður og hann getur verið bæði blíður og harður í horn að taka, ef því er að skifta. Uppreisn eða Mannfjöldi fagnar ríkiserfingjahjónunum, Friðrik og Ingiríði, er þau koma í fyrsta skifti í hinn nýja sumarbústað sinn, Graastenshöll. Finnar ætla að nota flug vjelar við síldveiðarnar. alvarlega óánægju er ekki að ótt- ast um borð. Hjá fulltrúanum, Kosti Paster- nack, sem alment er kallaður „kaupmaðurinn“, geta menn keypt allskonar varning, alt frá fullkomnustu sjóklæðum, verka- mannasloppum, gúmmístígvjelum, skyrtum, nærfötum og sokkum niður í pakka af sígarettum. Alt er selt með verksmiðjuverði, nema tóbaksvörurnar. Fleiri framleiðsluhættir. — Þrátt fyrir að veiðiaðferðir okkar eru samkvæmt nútíma- kröfum, verðum við að breyta til næsta sumar, segir kammei’ráð Elfving, er jeg tala við hann um síldveiðar Pinnlendinga. Við er- um líka ánægðir með þær viðtök- ur, sem síldin fær hjá viðskifta- vinum okkar, og gerum okkar ítr- asta til að fullnægja eftirspurn- inni og bæta vöruna. 1 sumar höfum við gert tilraunir með nið- ursuðu á reyktri síld í tómatsósu og næsta ár býst jeg við að sú framleiðsla verði aukin til mik- i 11 a mnna. Við höfixm einnig fleiri járn í eldinúm hvað viðvíkur verkunar- aðferðum, en að svo stöddu segj- Lifur, hfðrtu og svið. Nýslátrað dilkakjöt og alls- konar grænmeti. Jóhannes Jóhannsson, Grundarstíg 2. Sími 4131. um við ekkert um þær, segir hr. Elfving. Oll líkindi eru til þess, að þeg- ar á næsta ári verði notuð flug- vjel við síldveiðarnar hjer við land. Vitað er, að flugvjelar geta verið til afar mikilsverðrar að- stoðar veiðiskipunum til að leita uppi síldartorfur og tilkynna flotanum. Flugvjelar hafa verið reyndar við síldveiðar áður og gefist vel. Næsta sumar munum við því hafa með okkur eina eða jafnvel tvær flugvjelar. Finnar selja nú þegar töluvert af síld til Svíþjóðar og Rúss- lands og gera sjer vonir um aukna wiarkaði er stundir líða fram og veiði þeirra eykst. Arthur Wieland. Nýslátrað Nýtt nautakjöt, af ungu. Blómkál. Hvítkál. Gulrófur. Gulrætur. ísl. kartöflur. Rabarbari. Verslunln Kjðt & Fiskur. Símar: 3828 og 4764. t Iþrótlamót í KollafflrOl. íþróttamót hjeldu U. M. P. „Afturelding" og „Drengur“ á Kollafjarðareyrum sunnudaginn 23. þ. m. Pór þar fram íþrótta- kepni milli fjelaganna og urðu úr- slit þessi: 100 metra hlaup: 1. Guðmund- ur Jónsson (D.) 12.2 sek. 2. Gísli Andrjesson (D.) 13 sek. 3. Karl Jónsson (A.) 13.3 sek. Langstökk: 1. Guðmundur Jóns- son (I).) 5.65 m. 2. Karl Jónsson (A.) 5.51 m. 3. Aðalbjörji Aðal- björnsson (A.) 5.31 m. . Hástökk: 1. Sigurjón Guð- mundsson (D.) 1.45 m. 2. Grímur Norðdahl (A.) 1.43 m. 3. Guð- mundur Sigux'jónsson (A.) 1.40 m. Spjótkast: 1. Pjetur Sigurjóns- son (A.) 37.50 m. 2. Guðmundur Jónssoxx (D.) 31.80 m. 3. Ólafur tAndrjesson (D.) 31.50 m. Víðavangshlaup ca. 4 km.: 1. Magnús Einarsson (A.) 12 míu. 43 sek. 2. Evert Kr. Magnússon (A.) 12 mín. 45 sek. 3. Gunnar Jóhann- esson (A.) 12 mín. 50 sek. 50 metra sund (frjáls aðferð): 1. Pjetur Sigurjónsson (A.) 34 sek. 2. Jón Ólafsson (A.) 34.8 sek. 3. Guðmundur Sigui’jónsson (A.) 44 sek. ísl. glíma (flokkaglíma milli f je- laganna): 1. Halldór Guðmunds- son (A.) 2+2 vinninga. 2. Hjalti Þórðarson (A.) 2+1 vinning. 3. Grímur Noi’ðdahl (A.) 2 vinninga. „Afturelding“ vann mótið með 28 stigum, „Drengur" hlaut 14 stig. Leikstjóri mótsins var Ólafur Þórðarson, en leikdómari frá I. S. I. Ingimar Jónsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.