Morgunblaðið - 10.02.1937, Page 2
2
MORGuNBLAÐXÐ
Útaref.: H.f. Árrakur, Reykjavík.
Rltitjörar: Jön KJartansson og
Valtýr Stefáneson —
ábyrgCarmaöur.
Rltstjörn og afgrelCsla:
Austurstrœtl 8. — Slml 1800.
Helmastmar:
Jön KJartansson, nr. 8748
Valtýr Stefánsson, nr. 4220.
Árnl Óla, nr. 8045.
Áskrlftagjald: kr. 8.00 á mánuBl.
I lausasölu: 16 aura elntaklB.
25 aura ateð Lesbök.
„Staðreyndirnar".
Fyrir nokkrum árum síðan,
komu fram í Alþýðublaðinu
mjög raunaleg ummæli um
það, að hallast tæki undan
fæti fyrir sósíalistum og sósíal-
ismanum þegar fara ætti að
framkvæma hinar umræddu
þjóðfjelagsumbætur, þegar ekki
væri lengur hægt að ala sósíal-
ismann með fögrum loforðum,
þegar „bölvaðar staðreyndirn-
ar“ kæmu til sögunnar.
Þessi harmakvein Alþýðu-
blaðsins rifjast nú svo að segja
daglega upp fyrir þeim sem
blöðin lesa. „Staðreyndirnar"
úr ríki Finns Jónssonar á ísa-
firði eru orðnar þjóðkunnar.
Þær hafa lýst sjer í atvinnu-
leysi og vandræðum sjómanna
og verkamanna. Bátar Finns
lágu um 5 mánaða skéið bundn-
ir í höfn. Fjelagið gat ekki
greitt nema 5% af óveðtrygð-
um skuldum er í Kreppulána-
sjóðinn kom. Og þó hafa hinir
duglegu, ísfirsku sjómenn orð-
ið að gefa fjelaginu undanfarið
eftir hluta af kaupi sínu. I sam-
bandi við þessa raunasögu tek-
ur ,,staðreyndin“, Finnur Jóns-
son sig bærilega út, sem há-
launaður forstjóri, sem hirðir
laun sín, hvort sem nokkuð eða
ekkert veiðist.
Þá hefir Emil Jónssön í
Hafnarfirði verið drjúgur við
að afla þjóðinni þeirra „stað-
reynda“, sem verða mönnum
minnisstæðar, með bæjarútgerð
sem á 40% upp í skuldir. Sjálf-
ur ætlar hann sýnilega að
gleyma útgerðinni og Hafnar-
firði, er hann nú, í óþökk
flestra treður sjer í vitamála-
stjóraembættið, flýr frá sínum
eigin gerðum.
En sama sagan 'áhdurtekur
sig á öllum landshornum. Því
ekki er útkoman burðugri á
Norðfirði. Þar hefir Jónas Guð-
mundsson ráðið ríkjum, en er
nú að flosna þaðan að sögn, og
leita að stjórnarjotunni í höf-
uðstaðnum. Hann þefir haft
.togara að leika sjer með í
* 10 mánuði. Þá þoldi hann ekki
lengur mátið og fór. En bæjar-
fjelagið er látið ganga í ábyrgð
fyrir fúlgunni, sem þegar er
töpuð, á þessu sósíalista fyrir-
tæki.
Samtímis sem þessir menn
verða hver eftir annan að við-
urkenna óstjórn sína og am-
lóðahátt, ganga þeir um eins
og grenjandi ljón og reyna að
gera alt sem í þeirra valdi
stendur til þess að kippa fótum
undan öllum atvinnurekstri
einstakra manna, er veitt getur
fólkinu atvinnu í landinu.
Miðjvikudagur 10. febr. 1937,
EFTIR SIGURIMN Vlf> MALAGA.
Franco lokar veginum
Madrid—Valencia.
Aðeins einn
Malagabúar fagna
Franco og brauð-
vögnum hans.
5000 Malagabúar teknir
af lífi síðan í júlí.
FRÁ FRJETTARITARA VORUM:
KAUPMAIiNAHÖFN 1 GÆR.
Eftir hinn mikla sigur við Malaga, er bú-
ist við að uppreisnarmenn hefji úr-
slitasókn við Madrid. Þeir gera sjer
vonir um að sigurinn við Malaga beri þann á-
rangur, að Madrid verði auðsóttari.
Hersveitir undir stjórn Varela hershöfðingja
hafa þegar tekið hluta af veginum frá Valencia
til Madrid. Hafa þær með því gert varnar-
ráðinu í Madrid erfitt um aðdrætti. Er nú aðeins
ein leið opin frá Madrid og er það vegurinn, sem
liggur í norðaustur til Guadaljara, og þaðan í
suðaustur, til strandarinnar.
í Malaga komu uppreisnarmenn að fátækri borg, þar
sem fólkið svalt heilu hungri. Þótt tekið hafi verið á
móti hersveituro Francos með óhemju fagnaðarlátum,
þá vakti það þó ennþá meiri fögnuð, er vagnar, hlaðnir
brauði og matvælum óku inn í borgina.
Fregnir frá uppreisnarmönnum og Valenciastjórninni
greinir á um það, hvort stjórnarliðið hafi farið á skipulegum
eða óskipulegum flótta frá Malaga. En áreiðanlegar fregnir
herma, að stjórnarliðið hafi orðið að skilja eftir mikið af mik-
ilsverðum hergögnum, þ. á m. fjölda margar fallbyssur, sem
aldrei hafa verið notaðar, vegna skotfæraskorts.
Stjómarliðið skildi einnig eftir sig spor alveg
ægilegrar grimdar. Það er talið að fimm þúsund
íbúar borgarinnar hafi verið teknir af lífi síðan
borgarastyrjöldin braust út fyrir rúml. hálfu ári.
Lík liggja ennþá á götunum.
Þegar sýnt þótti að borg-
in fengi ekki Iengur varist
hinni stórfeldu sókn upp-
reisnarmanna, rjeðist
fólkið í borginni inn í búð-
ir og íbúðir auðmannanna
og rændu og rupluðu öllu
því, sem fyrir hendi var.
5000 af stjórnar-
liðum.
London í gær F.Ú.
1 frjett frá Gibraltar er á-
ætlað að mannfall í liði upp-
reisnarmanna er Malaga var
tekin, hafi verið 350, en 5000 í
liði stjórnarinnar. í sömu fregn
segir að stjórnarherinn hafi
haft á brott með sjer allmörg
gisl, er hann flúði frá Malaga.
De L lano h'ershöfðingi hefir
sagt, að hersveitirnar, sem
fyrstar gengu inn í borgina,
hafi mætt lítilsháttar mótstöðu,
frá hennönnum stjórnarinnar,
sem falið höfðu sig í húsum, og
skutu þaðan út á göturnar.
Klukkan 5, segir hann, hafi
uppreisnarmenn verið búnir að
koma sjer fyrir í stjórnarbygg-
ingunum og draga fána nation-
alista að hún.
í bardaganum í sjálfri borg-
inni segir hann að 200 menn af
liði stjórnarínnar hafi látið Ííf-
ið, en allmargir hafi verið tekn-
ir til fanga.
Ennfremur hafi uppreisn-
armenn tekið talsvert her-
fang, herskipin hafi tekið
tvö fallbyssuskip stjórn-
arinnar og nokkur flutn-
ingaskip sem voru í höfn
í M.alaga, og látið lausa
300 fanga sem biðu líf-
láts.
FRAMH. Á SJÖTTU SfÐU.
vegur opinn frá Madrid.
Vegir frá Madrid.
Til norðausturs frá Madrid sjest vegurinn sem liggur um
Guadaljara.
,— Tabouis —
skemtir Þjóðverjum.
FRÁ FRJETTARITARA
VORUM.
KHÖFN í GÆR.
rjú hundruð þúsund á-
horfendur þ. á m.
fjöldi útlendinga, horfðu á
eftirlíkingu af Madame Ta-
bouis, með hóp af öndum í
kringum sig í skrúðgöngu,
sem haldin var í tilefni kjöt-
kveðjuhátíðarinnar í Köln í
gær. Madame Tabouis var
látin halda á spjaldi, sem á
var letrað:
„Kjaftasögur hvaðanæva
úr heiminum“.
Þetta mun vera í fyrsta
sinn, sem Madame Tabouis
— þótt ekki sje nema óbein-
línis —, hefir vakið skemtun
í Þýskalandi.
Nýtt Hauptmannsmál.
Morðingi Charlesar
Mattsons fundinn?
FRÁ FRJETTARITARA
VORUM.
KHÖFN I GÆR.
Talið er að nýtt Haupt-
manns-mál sje á ferðinni
í Bandaríkjunum.
Lögreglan þykist háfa
fundið manninn, sem rændi
10 ára drengnum Charles
Mattson frá Tacoma og
myrti hann. Maðurinn
Heitir Poracki og hefir
verið sjómaður.
Lögreglan segist vera
sannfærð um að Poracki
sje sekur, en Poracki neit-
ar harðlega að hann sje
við barnsránið riðinn.
FÆREYJAFISKUR TIL
ÍTALÍU FYRIR ÞRJÁR
MILJÓNIR KRÓNA.
FRÁ FRJETTARITARA VORUM
KBH. I GÆR.
anir gera sjer vonir um að
geta selt Itölum 10 þúsund
smálestir af Færeyjafiski fyrir
þrjár miljónir króna. „Politiken“
skýrir frá því í dag að ákvörðun
um fiskútflutning Dana til Ítaliíi
muni verða ákveðinn innan skams.
Segir blaðið að Gismondi sje
væntanlegur frá Genua til Khafn-
ar til þess að ræða um fiskikaup.
Verslunarsamninguri nn sem
Danir gerðu við ítali 1. nóv. var
útrunninn 1. jan. og hafa Danir
reynt síðan að gera samning fyrir
I alt árið.