Morgunblaðið - 13.03.1937, Page 4
MORGUJNBLAÐIÐ
Laugardag 13. mars 1937.
——— í D R O T T I R —=
Enska kfiatt^|»yrt:iiUepiiiii.
NÝTT FJELAG VINNUR STÚRSIGRA.
„Arsenal “ og „Charlton"
eru hæst.
<r> jaldan eSa aldrei hefir baráftan nm forystusætið í enskn
Q knattspyrnukepninni (I. Division) verið jafn hörð og nú
í ár. Eldri og frægari f jelögin hafa orðið að víkja fyrir ungu og áður
lítt þektu fjelagi — „Charlton“.
Ef ferill þessa fjelags er athugaður í fáum dráttum, þá er hann
mjög athyglisverður og glæsilegur.
Franski bærinn Chamonix er einn frægasti vetraríþróttabær álf-
unnar og þangað flykkist fólk úr öllum löndum á hverjum vetri til
að iðka skíða- og skautaíþróttir. Nýlega fór þar fram heimsmeistara-
kepni í skíðaíþróttum. — Myndin er tekin við Chamonix í vetur.
BADMINTON:
Ný vinsæl íþrótt hjer í bæ
Yngsta íþróttin, sem iðkuð er hjer á landi að nokkru verulegu
leyti, er án efa knattleikur, sem nefnist Badminton.
Iþrótt þessi fluttist hingað til lands fyrir þremur árum, með
tveimur af áhugasamari íþróttamönnum okkar Reykvíkinga, þeim
Jóni Kaldal og Jóni Jóhannessyni. Höfðu þeir báðir numið þessa
íþrótt í Danmörku, er þeir dvöldu þar samtímis. Aðallega hefir
Badminton breiðst út meðal tennisiðkenda hjer í bæ. Eru þetta líkar
íþróttir og sjerstaklega heppilegt fyrir tennisleikara að æfa Bad-
minton að vetrinum til, á meðan ekki er hægt að leika tennis.
Árið 1935 sigrar Charlton kepn-
ina i III. flokki, og í II. flokki
sigra þeir 1936, en nú eru þeir
nr. 2 í I. flokki, og óhætt mun
vera að fullyrða, að slíkir sigrar
eiga tæpast sinn líka í enskri
knattspyrnukepni.
Arsenal, sem nú skipar forystu-
sætið í I. fl. og verið talið svo
til ósigrandi á heimavelli hefir
ekki verið jafn traust og áður.
Af 16 heimaleikjum hafa þeir
unnið aðeins 8, gert 17 jafntefli,
og tapað 1., en í „útileikjunum“
hefir þeim tiltölulega gengið bet-
ur. Hafa þeir í þeim unnið 7, gert
4 jafntefli og tapað 5.
Skráin hjer að neðan sýnir þá
Iangsamlega glæsilegustu marka-
tölu hjá Arsenal meisturunum frá
árinu í fyrra. Sunderland hefir
heldur hrakað. Á heimavelli eru
þeir að vísu mjög traustir, og
jafnvel traustari en áður, en í
„útileikjunum“ gengur þeim mjög
miður, og vinna sára fáa leiki.
Hinn frægi „klúbbur“ „Aston
Villa“, sem hrapaði í fyrra niður
í II. fl. tekst sennilega ekki að
vinna sig upp í 1. flokk á þessu
ári. Þeir eru nii 5. í röðinni, en
eiga eftir 10 stig. leiki, og hafa 37
Taflan sýnir stöðuna eins og
hún er I. fl. 11. mars:
Mörk Leikir Stig
1. Arsenal 68:40 32 41
2. Charlton 44:37 32 41
3. Brentford 67:54 31 38
4. Middlesb 62:55 32 38
5. Man. City 67:48 30 36
6. Sunderland 68:58 31 36
7. Portsm. 50:46 31 36
8. Derby C. 71:73 32 36
9. Everton 71:72 32 33
10. Chelsea 43:48 32 32
11. 'Wolves 60:47 29 31
12. Huddersf. 52:50 32 30
13. Grimsby 62:65 32 30
14. Stoke 53:45 31 29
15. Birm. 48 :49 32 29
16. P. N. E. 46:58 32 29
17. Liverp. 50:62 32 26
18. Sheff. W. 42:44 30 25
19. W. B. A. 58:77 30 25
20. Leeds 45:61 31 24
21. Bolton 34:58 32 23
22. Man. Utd. 44:64 32 21
Skíðaferð Ármanns á morgun.
Lagt verður af stað frá íþrótta-
húsinu kl. 8Y2 í fyrramálið, og far
ið að Kolviðarhóli. Farseðlar
verða seldir á skrifstofunni í
kvöld kl. 5—9;
Heimsmet í 18 km.
skiðagdngu.
Til fréðleiks og skemtunar skal
hjer getið um besta tíma,
sem skíðamenn Norðurlanda náðu
í 18 kílómetra kappgöngu á skíð-
um á heimsmeistaramótinu í
Chamonix í vetur. Norðurlanda-
þjóðirnar, Norðmenn, Svíar og
Finnar hafa verið taldir ósigrandi
í þessari íþróttagrein.
I dag verður einmitt kept í
18 kílómetra kappgöngu á skíðum
á íslandsmóti skíðamanna, við
skíðaskálann.
Heimsmeistari er Bergendahl,
Noregi á 1 klst. 11 mín. 21
sek. Næstur honum varð Jál-
kanen, Finnlandi á 1 klst. 12
mín. 35 sek. Fjórði í röðinni
varð Hansson frá Svíþjóð á
1 klst. 14 mín. og 8 sek.
Vitanlega er ekki hægt að bera
okkar skíðamenn saman við þessa
menn, það dettur engum í hug, en
gaman verður að sjá hve mun-
urinn verður mikill.
Um samanburð í stökki við aðr-
ar þjóðir, er ekki að ræða, til þess
eru aðstæður hjer, æfing og kunn-
átta of ólíkar.
. Graakall-skíðamótið
hófst I gær.
30 km. ganga
og §fökk.
Osló 12. mars.
ið svokallaða Graakall-
skíðamót byrjaði í gær
með 30 kílómetra skíðagöngu.
Fyrsti maður í A-flokki varð
Heggen á 1 klst. 59 mín. og
23 sek. — I B-flokki Olav Od-
den á 2 klst. 1 mín. og 7 sek.
Skíðastökksmót með þátttöku
skíðamanna úr öllum landshlut-
um fór fram í gærkvöldi í Rjuk-
an og var skíðamótsstaðurinn
lýstur upp með rafmagnsljós-
um. Reidar Andersen hljóp
lengst eða 55 metra og hlaut
fyrstu verðlaun í A-flokki. — 1
B-flokki varð fremstur Asbjörn
Ruud. (NRP—FB).
Sá er hinsvegar kosturinn við
Badminton, að hann er hægt að
leikaíþremur íþróttahúsum bæjar-
ins: Í.R.-húsinu, fimleikasal Menta
skólans og húsi Jóns Þorsteinss.
Morgunblaðið hefir leitað upplýs-
inga um Badminton hjá aðalfor-
göngumanni þessarar íþróttar hjer
á landi, Jóni Jóhannessyni.
— Badminton er knattleikur, og
svipar mjög til tennisleiks. Knett-
irnir eru þó talsvert frábrugðnir
að því leyti, að á þeim et fjaðra-
dúskur. Knötturinn er sleginn með
strengdum spaða, áþekkum tennis-
spaða.
Badminton má leika jafnt úti
sem inni, en hjer á landi hefir
hann eingöngu verið leikinn inn í
húsi. Badmintonvöllurinn á að
vera 13,40x6,10 metrar að um-
máli, en síðan er vellinum skift
niður í reiti. Á miðjum vellinum
er net og er leikurinn fólginn í
því að leika knettinum á milli sín
yfir netið eftir þar til gerðum
reglum.
Badminton er tiltölulega ung í-
þrótt. Fyrstu sögur af þessum leik
FRAMH. Á SJÖUNDU SIÐU.
Landsmót
skiDamanna
i dag.
Fyrsta landsmót í skíðaíþrótt-
um hefst í dag við Skíða-
skálann í Hveradölum. Mót J)etta
markar tímamót í sögu skíða-
íþróttarinnar hjer á landi og er
án efa merkasti viðburður í þeirri
íþrótt síðan L. UI. Míiller kaup-
maður gekk á skíðum suður
Sprengisand og vakti þar með
þjóðarathygli á skíðaíþróttinni.
1 dag mæta keppendur frá
þremur bæjum á íslandi til að
reyna með sjer hverjir skari fram
úr í hinni hollu og fögru vetrar-
íþrótt -—- skíðaiðkun.
Að þessu sinni verður aðeins
kept í tveimur greinum skíða-
íþróttarinnar, 18 kílómetra göngú
og stökki. Yæntanlega verður
annað landsmót haldið að vetri
og verður þá án efa kept í fleirí
greinum.
Skíðaiðkun, sem íþrótt, er ung
bjer á landi og við íslendingar
stöndum þar eins og, í svo mörgu
öðru að baki erlendum þjóðum.
En íslendingar hafa oft áður
sýnt, að þeir geta staðið öðrum
þjóðum á sporði, í þeim málefn-
um, sem þeir hafa áhuga á.
Áhugi fyrir skíðaíþróttinni er
vaknaður. Fáar íþróttir hafa átt
eins miklum vinsældum að fagna
og engin íþrótt hefir orðið svo al-
menn önnur en sundið. Alt bend-
ir til þess að með tímanum geti
skíðamenn vorir mælt sig á al-
þjóðamælikvarða. Norski skíða-
ltennarinn Lingsom, sem nú dvel-
ur hjer á vegum Skíðafjelagsins
hefir látið svo ummælt að líkam-
legt atgervi íslendinga væri svo
að vjer ættum hægt með að verða
góðir skíðamenn, með rjettri
kenslu og rjettri æfingu. Lingsom
veit livað hann er að segja, Hann
hefir dvalið í Mið-Evrópu. „ís-
lensku piltarnir eru ólíkt harðger-
ari en jafnaldrar þeirra þar“,
sagði Lingsom í samtali við Morg-
unblaðið nýlega.
1 íslendingar eru lítil þjóð, á
engu sviði geturhúngert sjer vonir
um að standa jafnt öðrum þjóð-
um eins og á sviði íþróttanna.
Enn hefir okkur ekki tekist þetta
en með hverju ári sem líður, fær-
umst við nær markinu. Ef til vill
verður skíðaíþróttin til að lyfta
okkur upp í heiðurssess meðal
skíðamenn vorir að taka skíða-
íþróttina rjett frá byrjun.
Vjer Reykvíkingar bjóðum
hina ísfirsku og siglfirsku skíða-
menn velkomna til leiks og gleðj-
umst af heilum hug yfir komu
þeirra.
Megi þetta skíðamót, sem nú
hefst, verða upphaf að mörgum
og glæsilegum landsmótum skíða-
manna í framtíðinni, þar sem
keppendur úr öllum bæjum og
sýslum á landinu þreyta kapp í
sönnum karlmensku og íþrótta-
anda. Yivax.