Morgunblaðið - 13.03.1937, Síða 6
6
MOROUNBLAÐIB
Laugardag 13. mars 1937.
Brýn nauðsyn að vernda
'r - 'f' V 0 ' * - j i -I - " /.*
uppeldissvæði þorsksins.
Opið brjef til Alþingis frá Guð-
mundi Þórðarsyni I Gerðum.
Þar sem jeg veit, að sumir alþingismennirnir ætla sjer
nú á þessu þingi, eins og svo mörgum undanförn-
um, að gera herferð á þorskstofninn hjer við land,
með því að Ieyfa dragnótaveiðar í landhelgi, vil jeg vegna
f jölda áskorana senda hinu háttvirta Alþingi línur þessar, ef
ske kynni, að þaer gætu orðið til þess, að þingmenn hugsuðu
sig betur um, áður en þeir greiddu atkvæði um mál þetta-
1 Alþingistíðindunum sje jeg, að sumir alþingismenn eru ótrú-
lega ókunnugir málum þessum. Jeg verð því að lýsa sem ítar-
legast hættunni af veiðum þessum í landhelgi.
Það er öllum nú vitanlegt, að
þorskurinn kemur hjer upp að
suðvesturströnd landsins til að
hrygna. Hann hrygnir hjer
djúpt og grunt um allan Faxa-
flóa. Jeg hefi dregið úr sjó
hrygnandi þorsk inn á Vogavík
og inn í Hvalfirði. Einnig
hrygnir hann fyrir allri suð-
vesturströnd landsins. — Að
hrygningu lokinni berast hrogn-
in fróvguð með Golfstraumnum
alt í kring um landið og inn á
alla firði.
Pað er álit mitt, og jeg held
það sje vísindanna líka,
að seiði þau, sem koma úr
hrognunum, en leita til botns á
nokkuð miklu dýpi, farist. Mjer
finst það líklegt, að þær veiku
verur þoli ekki þrýstinginn. Það
eru því þau hrogn, sem berast
á, eða* * eru á grunninu, sem geta
vaxið upp til að halda við þorsk-
stofninum.
Þá er nauðsynlegt að finna
út hvar skilyrðin eru best fyr-
ir uppeldi fiskanna. Jeg vil því
segja ykkur álit mitt um það.
Suðurströnd landsins er ekki
góð vegna hafrótsins þar og
sandfoks sumstaðar. Enda
blandast sjórinn þar mikið
vegna hinna mörgu og stóru
jökuivatna, sem bera óhrein-
indi til sjávar, og blanda sjó-
inn vatni um of. Á Austfjörðum
er jeg ekki kunnugur. Jeg býst
við að í suma firðina renni of
mikið af vatni. Enn fremur sje
þar víða harður straumur, og
að likindum -vantar það, sem
jeg álít nauðsynlegt, hraunbotn
á grunnu með landinu. En vel
má vera aðkþar sje sumstaðar
góð uppeldissvæði fyrir fiskinn,
sjerstaídega þegar hann fer að
verða nokkuð stálpaður, eins árs
og eldri. Sama má segja um
Norðurland og Vestfirði. Breiða
fjörður mun vera góður staður
fyrir stálpaðan fisk, en fyrir
yngstu seiðin er hann ekki góð-
ur, vegna harðra strauma innan
til og vatnsfalla, sem blanda
sjóinn um of. Um alt Ve tur-,
Norður- óg Austi ^d er r ijer
ekki kunnugt Ui;.. að fiskur
gangi á gruimmið til að hrygna.
Friðun Faxaflóa
lífsnauðsyn.
Faxaflói. Það er ekki tótr til-
▼iljqn, heldur eðhsávís-.
| un fisksins, að hann kemur hjer
alla leið upp í landsteina til að
hrygna. Norðanverður flóinn er
ekki heppilegur vegna hafróts
og vatnsfalla. Hvalfjörður að
mörgu leyti góður, en nokkuð
mikill straumur og vatnsburður,
og að jeg held, enginn hraun-
botn. Sama má segja um Kolla-
fjörð. Hinsvegar er landhelgin
frá Álftanesi til Garðskaga hinn
tilvaldasti staður til uppeldis
nytjafiskanna. Sjórót er þar
lítið, hraunbrún breið með öllu
landinu frá Hafnarfirði til
Keflavíkur og víðar og engin
vatnsföll falla til sjávar. Lífs-
skilyrði fiska eru hjer svo góð,
að fiskur, sem gengur hjer í
Garðsjóinn horaður að vorinu,
ej- orðinn svo feitur í ágústmán-
uði, að lítt mögulegt er að flytja
hann, án þess að hann springi.
öllum sjómönnum, erlendum
sem innlendum, ber saman um
það, að hvergi fái þeir eins góð-
an fisk eins og hjer í sunnan-
verðum Faxaflóæ. Það er því lífs
spursmál að friða landhelgina
hjer við sunnanverðan flóann
fyrir allri veiði með botnvörpu.
Hún gruggar upp sjóinn og í
grugginu ferst ungviðið. Enn-
fremur að friða alla þá staði,
sem finnast kunna nothæfir til
uppeldis fiskinum.
Jeg gæti vel trúað því, að það
sje að þakka, að til þessa hefir
fiskur gengið hjer í flóann, að
við fengum hjer friðað fyrir
allskonar botnvörpu til 1981.
En nú lítur út fyrir að brátt
minki þorskstofninn, sem er
eðlilegt, því alt klak hefir verið
eyðilagt hjer með dragnótaveið-
um síðan.
*
Pað lítur út fyrir, að þjer
sjeuð farnir að finna til
fækkunar fisksins hjer við land-
ið, þar sem þjer á síðasta þingi
samþyktuð að veita stórfje til
að gera út varðskipið Þór, til að
’eita um öll höf alt í kring um
landið, að fiskimiðum, sem
„enskurinn“ á að hafa fundið
en tínt.
Það gekk nú nvona sæmilega.
Hann var stadúur um mitt sum-
ar vestur í Grænlandshafi en
^arð að ’.kiljí þar við lóðar-
pottann og flýja til lands. I
Hugsið yður afleiðingarnur, þeg !
ar þjer hafið eyðilagt alla afla-
Nýjustu
hernaðarflugvjelar
Breta.
Deild úr flugher Breta á æfingu.
von hjer við landið og sjómenn-
imir, sem aldrei brestur áræðið,
verða að fara að leita þangað á
illa viðhöldnum* fiskiflota um
hávetur. Það myndi fleira verða
eftir en lóðarspottinn. Það er
alla reiðu nóg áhætta, að nú
verðum við að senda sjómenn
okkar 40—50 mílur beint á haf
út, í stað þess að áður fiskaðist
hjer oft vel í 1—3 mílu fjar-
lægð.
Þegar þorskurinn var
í heiðri hafður.
Jeg vil nú áður en jeg skil við
brjef þetta, minnast ofur
lítið á þingsögu landhelgisvarn-
anna fyr og nú á þeim tíma,
sem jeg man eftir.
Á síðasta fjórðung 19. aldar
voru engir skólar, og mentun
almennings engin. En þá tókst
þjóðinni að velja til þings sína
vitrustu og bestu menn. Þingið
fór þá að gera ýmsar ráðstafan-
ir til að verjast botnvörpuveið-
unum í landhelgi. Á þeim fjórð-
ungi voru sívaxandi framfarír,
bæði þjóðarinnar í heild og ein-
staklinga. Þá sáu M þin'gmenn
hvað þorskurinn gerði, og höfðu
þeir hann til m’nnis og prýðis
utan á þinghúsinu. Þeir skyldu
að það var hann, sem veitti all-
ar framfarirnar.
Á fyrsta fjórðungi 20. aldar
hjelt svipað áfram nema enn
meiri og harðari framfarir, vel-
líðan þegnanna og auðsöfnun
þjóðarinnar enn meiri. Allir sáu
að alt var það þorskinum að
þakka. Það var því kostað upp
á að kaupa 3 varðskip, og safn-
áð miljóna sjóði til landvarr'
og verndunar ungviðinu. Þá
voru bygðir fyrir aurana, sem
þorskurinn gaf, fjöldi skóla,
æðri sem lægri um alt land.
Allir urðu meira og minna
mentaðir til munns, handa e"
fóta líka.
þessari öld. Þó kjósa hinir síldin hætt að ganga hjer alla
mentuðu kjósendur þingmenn, leið inn á Keflavík til hrygn-
sem búa þannig að þorskinum, ingar eins og hún gerði á
að botnvörpuveiðar eru leyfðar hverju einasta sumri til 1931,
í allri landhelgi. Öll viðkoma að dragnótaveiðarnar byrjuðu
nytjafiskanna eyðilögð. Enda erlhjer. Ef hún er þannig alstaðar
nú búið að eyða á stuttum tíma!flæmd frá landgrunnino, getur
öllu, sem aflaðist á hálfri öld-jþað haft slæmar afleiðingar
inni á undan, og líklega meiru.jfyrir viðhaldi hennar.
Yður er nú nokkur vorkun, og i Kolaveiðarnar hafa reynst
hafið yður til málsbóta, að hin-Jþannig, að einstaka bátar hafa
ir svokölluðu fiskifræðingar Sfengið sæmilegan afla, en állur
segja, að veiðar þessar skemmi Ifjöldinn stórtapaði á þeim veið-
N
ú er aðeins liðínn 1/3 n t-j
ur annars f jórðwngs af j
ekkert. En þjer ættuð að spyrja
þá að, hvað af því, sem þeir
segja yður væri sannað vísinda-
lega, svo að þjer þyrftuð ekki
að fara eftir fullyrðingum
þeirra eins og þjer gerðuð, þeg-
ar þjer trúðuð því, að síldin
væri hjer hrygnandi á sama
tíma, og sama stað, og þorsk-
urinn hrygnir. Til dæmis gætuð
þjer spurt þá, hvort ekkert
gerði til, þó sjórinn sje grugg-
aður upp á bestu klakstöðvun-
um, og þá líka hvernig standi á
því, sem allir sjómenn vita, að
fiskur fer strax burtu af þeim
slóðum, sem sandur eða ein-
hver óhreinindi koma í sjóinn.
Þorskveiðin er happa-
drýgst.
Að endingu vil jeg alvarlega
skora á yður að friða land-
helgina hjer í Faxaflóa strax,
og ennfremur að gera alvarleg-
ar tilraunir til að fá allan fló-
ann friðaðan fyrir hverskonar
botnvörpuveiði.
Þjer gerið yður von um arð af
nýjum veiðum, sem er vonandi
að rætist. En af karfanum þarf
p rki að búast við góðum arði til
lengdar, því að viðkoma hans
er alt of lítil, til að hann end-
ist lengi, til að bæta upp þorsk-
inn.
Síldin endist vonandi lengi.
En oft hefir hún reyngt dutl-
ungafull og kvikul. Mjer finst
líka það spá illu, að síðan að
dragnótaveiðar voru leyfðar
hjer í Faxaflóa að sumrinu, er
J
um. Þetta væri nú sannað full-
komlega, ef þjer hefðuð látið
Fiskifjelagið gera skyldu sína,
að birta aflaskýrslur af veiðum
þessum, yður til fróðleiks og
leiðbeiningar.
Það er vonandi að rækju-
veiðarnar gefi nokkurn arð, en
þurfi þær að kosta kr. 2.00 pr.
kíló, verður ekki mikill mark-
aður fyrir þær hjer innanlands,
og seint það mikill ytra, að þær
komi á móti miljónunum, sem
fengist hafa fyrir þorskinn.
*
eg hefi nú í 16 ár gert ítrek-
aðar tilraunir til að fá Al-
þingi til að friða landhelglna
fyrir botnvörpu. Það bar góðan
árangur fyrst. Við eigufti nú
því að þakka, að besta klak-
stöð heimsins, hjer í sunnan-
verðum Faxaflóa, fjekst friðuð
til 1931, að til þessa hefir afl-
ast sæmilega hjer við Suðvest-
urland:
Reynist það rjett, sem jeg
held fram, og aliar líkur benda
til, að þorskstofninn sje að
hverfa, þá öfunda jeg yður ekki
af eftirmælum þeim, sem þjer
fáið hjá þjóðinni. Jeg vorkjnni
yður, að standa frammi fyrir
henni, sveltandi, sem verður ó-
hjákvæmileg afleiðing af því,
að þorskurinn hættir að brauð-
fæða hana.
Gerðum, 20. febrúar 1937.
Guðm. Þírðarson.
70 ára verður á morgun ekkju-
frú Margrjet .Jónsdóttir, Fram-
nesveg 25.