Morgunblaðið - 08.04.1937, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ
7
Fimtudagur 8. apríl 1937.
XlL.--------------------—
Dómurinn i Landsbankamálinu.
FRAMH. AF ÞRIÐJU SÍÐU.
þeir báðir J. H. og’ Yilhjálmur
Bríem.
Kii lykiliim að skúffumii, sem
í rar geymdur lykillinn að kassa-
geymsiunni, geymdi J. H. í ólæstri
skjiffu í skrifborði sínu. Þessa
geymslu taldi dómarinn AÚtaverða
vaiirækslu hjá J. H. og refsiverða.
Eins það, að J. H. fól stundum
gjaldkerunum að læsa kassana
riiðri í skápnum, sem ekki hefir
anuað ;að geyma en læsta kassa
gjaldkeranna.
' 3. Loks sakfellir domarinn J.
H. fyrir vanrækslu, að hann
skyldi ekki hafa talið í seðlabúnt-
inu, sem revndist vanta í 1000
kr., þar sem J. II. varð þess var
að búntið var losaralegt.
Þetta búnt var frá Klappar-
stígsútibúinu, og nærfelt ársgam-
alt þegar talið var í því. Búntið
hafði síðast komið til Landsbank-
an>s ifrá Útvegsbankanum, og tók
þáverandi gjaldkeri Sig. Sigurðs-
soti við því.
Sama daginn sem S. S. tók við
búntinu frá Útvegsbankanum af-
henti hann það J. H., sem þá strax
hafði orð á því að biintið væri
lósaralegt. J. H. kom þó ekki til
hugar að nokkuð vantaði í búntið,
þar sem engin verksummerki sá-
ust á því og menn töldu um-
búnað búntanna öruggann og
traustari. Enda gengu búnt með
slíkutn umbíumði milli banka og
stofnana án þess að í þeim væri
talifi. Eínnig höfðu gjaldkerar
bankans veitt því eftirtekt, að
búnt Klapparstígs-útibúsins voru
stundum losaralegri en búnt aðal-
bankans.
Þess ber einnig að geta í þessu
sambandi, að auk S. S. og J. II.
höfðu gjaldkerarnir Þorvarður
Þorvarðsson og Jón Leós báðir
þetta sama búnt undir höndum og
höfðu orð á, því að það væri los-
araiegt. en kom ekki til hugar að
í það vantaði.
Þetta sýnir að umbúnaði búnt-
arma var fullkomíega treyst. En
dómarinn sakfeliir J. H. fyrir að
hafa treyst umbúnaðinum, og tel-
■ ur að hann liafi með þessu sýut
refsiverða vanrækslu í starfi sínu!
Hvað hefir
unnist?
Hver er þá niðurstaðan í þessu
svokallaða bankamáli. sem svo
mjög hefir verið um taiað síðustu
árirti
fli' in er sú, að Jón Halldórsson,
Dagbok.
sem gegnt hefir ábyrgðarmestu
stöðu í bankanum, maður, sem
notið hefir óskoraðs trausts allra,
innan bankans og utan og verð-
skuldað það í ríkum mæli, hann
er dæmdur fyrir vanrækslu.
Hins vegar stendur rjettvísin
enn nákvæmlega í sömu sporum og
í upphafi að því er snertir þá tíðu
þjófnaði, sem orðið hafa í bank-
anum.
Þessi lausn á bankamálinu er
ekki aðeins vítaverð, heldur er
hún fullkomið hneyksli.
Morgunblaðið mun ekki á þessu
stigi málsins gera rannsóknina
sjálfa að umtalsefni, ekki heldur
þann þátt rannsóknariunar, sem
hinn enski svokallaði leynilög-
reglumaður framkvæmdi. Það
verður að bíða síðari tíma.
En þar sem J. H. hefir nú verið
dæmdur fyrir vanrækslu í embætt-
isrekstri, þykir rjett að geta að
lokum þessa:
Áður en J. H. tók við starfi
aðalfjehirðis hafði stjórn bankans,
í samráði við þáverandi aðalfje-
hirðir, unnið að því að koma góðu
lagi á h.já gjaldkerum bankans og
fjárgeymsluna.
Þetta „góða lag“ var þó ekki
betra en það, að lyklarnir að köss-
um Þorvarðar Þorvarðssonar og
Jóns Leós voru nákvætnlega eins,
og með lagi mátti opna kassa A.
J. Johnsons með lykli Sveins Þórð-
arsonar.
Það virðist því harla liart að-
göngu, að dæma Jon Halldórsson
fyrir vanrækslu, þar sem ekki var
betur búið í hendur hans en raun
ber vitni um.
IV/Y
Heimdallur, fjelag ungra Sjálf-
stæðismanna, heldur framhaldsað-
alfund í Varðarhúsinu kl. 8ann-
að kvöld. Auk venjulegra aðal-
fundarstarfa verða teknir inn
margir nýir fjelagar, sem hafa
sótt um inntöku í fjelagið. Þeir
ungir menn og konur, sem vilja
vinna að frelsi og framförum,
gegn ofbeldi og ófrelsi marxism-
ans ganga í Heimdall.
Háskólafyrirlestrar. Mr. G. Tur-
viIle-Petre flytur í kvöld kl. 8
fyrirlestur í liáskólanum. Efni:
..The King’s Englisii to-day“. At-
hygli i skal vakin á prentvillu í
biaðinu í gær um næsta háskóla-
fyrirlestur sænska sendikennar-
ans, að hann verður fluttur á
miðvikudaginn kemur, en ekki í
kvöld.
Til fólksins á Vesturgötu 64,
frá Atla og Álfi kr. 100.00.
]X| Helgafell 5937487
— 2.
I.O.O.F. 5= 118488l/2 = 9- 0.
Veðrið (miðvikudagskv. kl. 5) :
Fyrir sunnan land er allstór lægð,
en hæð yfir N-Grænlandi. A- og
NA-átt um alt land, veðurhæð alt
að 6—8 vindst. vestanlands. Norð-
an til á Vestfjörðum er snjókoma
með 2—4 st. frosti. Á N- og A-
landi er þoka og 1—4 st. hiti og
5—-6 st. hiti sunnanlands með dá-
lítilli rigningu.
Veðurútlit í Rvík í dag: All-
hvass NA. Úrkomulaust að mestu.
300 krónum stolið. í fyrradag
var lögreglunni tilkynt að hvorfið
hefðu 300 krónur í peningum úr
herbergi á Laufásveg 19. Pening-
arnir voru geymdir í veski, sem
aftur var geymt í dragkistu. Lyk-
illinn að herjjerginu var geymdur
í yfirhafnarvasa í anddyrinu eða
jafnvel í skránni sjálfri. Er hjer
sem oftar hirðuleysi um að kenna
að þjóf er gefið tækifæri til að
stela.
Ný neðanmálssaga, „Svarta
slangan", eftir Lindsay Hamilton,
byrjar í Morgunblaðinu í dag.
Sagan hefst með því, að dulbúnir
menn ræna ungri hefðarstúlku,
sem er að flýja á brott með elsk-
huga sínum. Hvernig það æfintýri
— og mörg önnur, sem fljettast
inn í söguna — endar, skal ósagt
látið. En það er víst, að lesendur
munu fylgja sögupersónum með
eftirvæntingu uns yfir lýkur.
Gyllir kom af Veiðum í gær-
morgun tneð 120 föt lifrar eftir
12 daga útivist.
Hjónaband. Gefin verða saman
í hjónaband í dag ungfrú Krist-
rún Þorsteinsdóttir og Gunnar
Cortez eand. med.
Skíðakappganga K. R. Á sunnu-
daginn, ef veður leyfir, fer fram
18 km. skíðakapþganga K. R. um
bikar þann er Skátafjelagið Ein-
herjar á ísafirði gaf K. R. um
daginn. Einnig verða veitt 1. 2. og
3. verðlaun. Þátttakendur verða
um 40. Kappgangan liefst frá
Svanastöðum og endar þar einnig.
Fjölment mun verða hjá Svana-
stöðum á sunnudaginn.
Eimskip. Gullfoss er á leið til
Vestmannaeyja frá Leith. Goða-
foss kom frá útlöndum í nótt kl. 2.
Brúarfoss fer til útlanda í kvöld.
Dettifoss er á leið tii Hull frá
Vestmannaeyjum. Lagarfoss er á
leið til Leitli frá Kaupmannahöfn.
Selfoss er í Reykjavík.
Surprise kom af veiðum til
Hafnárfjatðar í gærmorgun með
106 tunnur lifrar. !(FTT.).
Útvarpið:
Fimtudagur 8. apríl.
19.20 Þingfrjettir.
20.00 Útvarp frá Alþingi.
Morgunblaðið með morgunkaffinu
SYKUR.
5ig. Þ. 5kjalðberg.
Happdrætti
Háskóla Islands.
Aðeins 2 sðludagar eftir fyrir 2. drátt.
Alhugið, að i 2. tfti ÍO. flokfel eri*
vinnlngac samtals ineftra en 1 mil)ón
króna.
(HEILDS ALAN).
, . /) aaA*
X^ft^V
Jarðarför ekkjunnar
Guðbjargar Sigurðardóttur,
frá Hjeðinsvík, Suður-Þingeyjarsýslu, fer fram frá dómkirkj-
unni föstudaginn 9. apríl, og hefst með bæn á heimili hennar,
Garðastræti 45, kl. 10y2 f- ú.
Jarðað verður í Fossvogi.
Aðstandendui’.
Það tilkynnist vinum og vandamönnum að móðir okkar,
Kristín Stefánsdóttir,
frá Núpstúni, andaðist 7. þ. m.
Kristín Andrjesdóttir. Katrín Andrjesdóttir.
.I\v>
Maðurinn minn, faðir okkar, afi og tengdafaðir,
Valdimar Jónsson,
verkstjóri, andaðist að Sjúkrahúsi Hvítabandsins að morgni
hins 7. þ. mán.
Magdalena Jósefsdóttir, börn, tengdabörn og baraabörn.
S'ílí)
Elsku litli drengurinn okkar,
Árni Jón,
sem andaðist á Sjúkrahúsi Hvítabandsins 30. mars, verður
jarðsunginn frá fríkirkjunni föstudaginn 9. apríl kí. 11 f. h.
Hallfríður Jónsdóttur, Helgi Árnason frá Hurðarbald.
Jarðarför mannsins míns, föður ,og tengdaföður,
Einars Þórða^sonar,
fer fram frá heimili hans Norður-Reykjum, laugardaginn 10.
þ. mán. kl. 11 f. h.
Jarðað verður að Lágafelli.
Ingibjörg Eyjólfsdóttir, börn og tengdaböm.
........ ............... ■ ■ ■■ ■
Jarðarför konu minnar,
Helgu Benediktsdóttur Gröndal,
fer fram föstudaginn 9. þ. m. kl. 4 síðd. frá þjóðkirkjunni í
Hafnarfirði.
Þórður Edilonsson.
Jarðarför konu minnar, móður og dóttur okkar,
Kristínar Jónsdóttur,
fer fram frá fríkirkjunni mánudaginn 12. þ. m. og hefst með
húskveðju á heimili Símonar Jónssonar, Laugaveg' 33, kl. iy2. j
Guðmundur Kr. Guðjónsson og börn.
SigTÍður Guðjónsdóttir.
Jón Símonarson. >;J
" ' -- - - I
Lík
Ingibjargar Önnu Pálsdóttur,
sem andaðist á Vífilsstöðum 31. mars, verður flutt til Vest-
mannaeyja með Brúarfossi í dag. Kveðjuathöfn fer fram að
heimili hennar, Grettisgötu 37, kl. 8.
Vandamenn.
«•'»wi -’awMMH ■■ m
ÖBruui /
Innilegt þakklæti fyrir auðsýnda samúð við andlát og .
jarðarför sonar okkar, .K(;
Odds.
Bergljót Björnsdóttir. Jón Oddssokí'f^'-T ■ i
l ’ ■J