Morgunblaðið - 13.04.1937, Síða 7
Þriðjudagur 13. apríl 1937.
MORGUNBLAÐIÐ
7
Dagboft.
0 „Helgafell“ 59374157 —
lY./y. — 2.
Veðrið í gær (mánud. kl. 17) :
Djúp lægð er nú um 800 km. suð-
yestúi- af Reykjanesi og' muu
|hreyfast ANA-eftir. Hún veldur
(SA-hvassviðri og rigningu með 5—
7 st. hita á SV-landi. Norðan
jlands og austan er hæg S-átt, úr-
komulaust og hiti 0—6 stig.
Veðurútlit í Reykjavík í dag:
Hvass A. Rigning öðru hvoru.
í refabúi Sigurðar Arnalds í
QKrossamýri gaut silfurrefalæða 8
yrðlingum nýlega, og lifa allir
jyrðlingarnir. Er það mjög fátítt
'að silfurrefa læður eigi svo marga
ýrðlinga, og ef til vill eins dæmi
hjer á landi. En svo virðist vera
með silfurrefi sem önnur dýr, að
mikil frjósemi sje ættgeng. Móð-
ir læðu þessarar, sem á 8 yrðling-
ana, hefir á þrem árum eignast 19
yrðlinga og hafa þeir allir lifað.
í dánarfregn ekkjunnar Guð-
rúnar Guðmundsdóttur, sem birt
var s.l. laugardag, misprentaðist,
að Valdimar Stefánsson, sonur
hennar væri stýrimaður á Sel-
fossi; hann er stýrimaður á m.s.
Daxfossi.
í dag kl. 16 (4) eftir íslenskum
tíma syngur Stefán Guðmundsson
söngvari íslensk og ítölsk lög í út
varpið í Hamborg. (FÚ).
Eiinskip. Gullfoss fór frá ísa-
fírði kl. 5 e.h. í gær. Goðafoss fór
vestur og norður í gærkvöldi kl.
11. Brúarfoss fór frá Leith kl. 2
e. h. í gær áleiðis til Gautaborg-
ar. Dettifoss er í Hamborg. Lag-
arfoss er á leið til Austfjarða frá
Leith. Selfoss fer snemma í dag
til Keflavíkur, Vestmannaeyja og
þaðan til Antwerpen og\ London.
Sextugsafnvæli á í dag Guðm.
Guðmundsson óðalsbóndi, Nesjum
á Miðnesi.
Silfurbrúðkaup eiga í dag frú
Guðmundína Pálsdóttir og Sæ-
mundur Magnússon, Bergþóru-
götu 8.
Happdrættið. f frásögn af öðr-
um drætti happdr. ' isins í blað,-
ínu á sunnudaginn misprentuðust
tvö númer. Númer 24477 fjekk
100 kr. vinning, en nr. 10733
fjekk ekki vinning. 1000 króna
vinningur misprentaðist 12457, en
átti að vera 12459.
f aflafrjettum frá Hafnarfirði
í sunnudagsblaðinu misprentaðist
lifrarmagn togarans Venusar.
Hann fjekk 144 tunnur lifrar.
Um mannrækt og kynbætur
heitir fyrirlestur, sem Pjetur Sig-
urðssou flytur í Varðarhúsinu í
kvöld. Fjallar hann um afskifti
menningarinnar af mannfjölgun.
Háskólafyrirlestur á þýsku Dr.
\V. Iwan flytur.í kvöld kl. 8 fyr-
i rlestui' með skuggamyndum í
háskólauum. Efni: „Eine Wissen-
schaft erobert die Tecknik: Die
chemiscbe Industrie".
Ckíð&fjelag Reykjavíkur hætti
við fyrirhugaða Kjölferð um síð-
nstu helgi vegna þess hve illa leit
út með veður á láugardagskvöld.
í þess stað fór fjelagið upp á
Hellisheiði, og var veður þar hið
ákjósfinlegasta, en færi heldur
lmrl. Mikill snjór er ennþá á
Hellishéiði, í Bláfjöllum og víðar.
Útvarpsumræður fóru fram í
gær frá Alþingi um vinnulöggjöf-
ina. Al’ hálfu Sjálfstæðisflokksins
töluðu þeir Tlior Thors og Garð-
.ar Þorsteinsson. — Það stóð til,
að útvarpsunu'æður færu einnig
fram í kvöld. um sjávarútvegs-
málin, en þeim er frestað til föstu
dagskvölds. samkvæmt ósk sósíal-
ista.
Kvennadeild Slysavarnafjelags-
ins í Hafnarfirði heldur fund í
kvöld í Hótel Hafnarfjörður.
Útvarpið:
Þriðjudagur 13. apríl.
8.00 Moi'gunleikfimi.
8.15 Enskukensla.
8.40 Dönskukensla.
10.00 Veðurfregnir.
12.00 Hádegisútvarp.
15.00 Veðurfregnir.
19.10 Veðurfregnir.
19.20 Hljómplötur: Ljett lög.
19.30 Þingfrjettir.
20.00 Frjettir.
20.30 Erindi: Um Brahms (Þórð-
ur Kristleifsson söngvari).
21.05 Symföníu-tónleikar: Tón-
verk eftir Brahms (til kl. 22.30)
LEYNIMAKK STJ0RN-
ARFLOKK ANN A.
FRAMH. AF SJÖTTU SÍÐU
En fari svo, að Haraldur sitji
og hin stærri ágreiningsmál
innan þings verði leyst með
fullu samkomulagi, hversvegna
er þá ekki ihætt við þingrofið?
Það sýnist svo sem grundvöll-
urinn fyrir þingrofinu sje þá
fallinn burtu.
Hvað sem þessu líður mun
þingrofið ákveðið. Það er ekki
ágreiningurinn innan þings sem
þessu veldur. Ekki heldur
Kveldúlfsmálið, enda þótt það
mál hafi í byrjun verið sett á|
oddinn af sósíalistum. Þeir eru;
fyrir löngu hættir að minnast
á Kveldúlfsmálið.
Þingrofið var ákveðið strax
í haust, og var þá þegar skýrt
frá því hjer í blaðinu.
Það er hin m.egna og almenna
óánægja kjósenda beggja
stjórnarflokkanna, sem er raun-
veruleg orsök þingrofsins.
Kjósendurnir hafa staðið
stjómarflokkana að svikum
við fyrri kosningaloforð. Þess
vegna eru þeir óánægðir.
Og nú hugsa stjórnarflokk
arnir sjer að blekkja kjósend-
ur enn á ný, með nýjum loforð-
um, sem auðvitað verða svikin
eins og hin fyrri.
En stjórnarflokkarnir byggja
alla sína sigurvon á kommún-
istum. Þetta er í raun og veru
sama og fullkomin uppgjöf, þvú
að þjóðin vill engin mök eiga
við ofbeldis- og byltingalýð
kommúnista.
„Sitt er hvort, gæfa eða gervi-
leikur", sagði Jökull, móðurbróðir
Grettis, þegar Grettir sagði hon-
um, að hann væri ráðinn í að
fara til Þórhallsstaða og fást við
Glám.
Það tilkynnist vinum og ættingjum, að kónan mín, móðir,
tengdamóðir og amma,
Sophia Holm,
andaðist að morgni 12. þ. mán., að heimili sínu, Laugaveg 20 a.
Sophus Holm.
María Buch. Marinus Buch.
Adolf Holm. Pálína Guðmundsdóttir.
Gunnlaugur Holm. Jóhanna Holm.
Jörgen Holm. Sigurbjörg Holm.
Georg Holm. Viktoría Kristjánsdóttir.
Vilhelm Holm. Hreiðar Holm.
Jarðarför móður okkar og tengdamóður,
Kristbjargar Einarsdóttur,
fer fram frá dómkirkjunni miðvikudaginn 14. þ. m„ og hefst
kl. 1 e. h. með húskveðju á heimili hinnar látnu, Framnesveg
62 (litla Skipholti).
Fyrir hönd fjarstaddra systkina og vandamanna,
Bergljót Helgadóttir. Þorsteinn Ingvarsson.
Jón Helgason. Maria Majasdóttir.
Victor Helgason. Eygló Gísladóttir.
Innilegar þakkir.fyrir auðsýnda hluttekningu við andlát
og jarðarför
Einars Þórðarsonar,
bónda á Norður-Reykjum.
Ingibjörg Eyjólfsdóttir, börn og tengdaböm.
Þökkum innilega auðsýnda samúð og hluttekningu við
andlát og jarðarför elsku litlu dóttur okk&r,
Bergþóru Sigurlaugar.
Sólveig Pjetursdóttir. Erlendur Þorbergsson.
Innileg þökk ykkur öllum, fjær og nær, sem hafið sýnt
mjer samúð við fráfall
Þuríðar Sigurjónsdóttur.
Guðný Þ. Guðjónsdóttir.
Það tilkynnist vimun og vandamönnum, að
Laufey Þórðardóttir
andaðist í gær að heimili sínu, Garðastræti 45.
Reykjavík 13. apríl 1937.
Aðstandendur.
Það tilkynnist, að sonur okkar,
Haraldur Hafsteinn,
sem druknaði í Þorlákshöfn 4. þ. mán., verður jarðsunginn frá
heimili sínu, Hverfisgötu 21 B, Hafnarfirði, miðvikudaginn 14,
apríl klukkan iy2.
Guðný Guðmttndsdóttir. Jón Brandsson.
Elsku litla dóttir okkar,
Guðný,
sem andaðist laugardaginn 10. þ. mán., verður jarðsungin
fimtudaginn 15. apríl kl. 1 frá dómkirkjunni. Jarðað verður
í Fossvogskirkjugarði.
Ragnhildur Pálsdóttir. Jón Sigtryggsson.
Konan rnín,
Sigríðar Þorleifsdóttur frá Háeyri,
er andaðist 3. þ. mán., verður jarðsungin frá fríkirkjunni mið-
vikudaginn 14. apríl.
Húskveðja hefst frá Elliheimilinu kl. 1 e. hád. Jarðað
verður í Fossvogi.
Guðmundur ísleifsson.
Jarðarför
Kristínar Stefánsdóttur
frá Núpstúni
fer fram að Hrepphólum fimtudaginn 15. apríl kl. 1 e. hád.
Kveðjuathöfn verður að Framnesveg 5 miðvikudaginn 14.
apríl kl. IOV2 I- hád.
Aðstandendur.
Jarðarför móður okkar,
Dagbjartar Magnúsdóttur
fer fram frá dómkirkjunni fimtudaginn 15. þ. mán. kl. ll' f. h.
Magna Einarsdóttir. Baldvin Einarsson.
Jarðarför
Margrjetar Símonardóttur
frá Melshúsum, Leiru, er andaðist 3. þ. mán. að heimili sínu,
Grund við Reykjanesbraut, fer fram frá fríkirkjunni 14. apríl
klukkan 10y2 f. hád.
Fyrir hönd vandamanna,
Viggó Sámonarson.
........................... ■ ■■ .........................
Innilegar þakkir fyrir samúð og hluttekningu við andlát
og jarðarför konu minnar, móður okkar og tengdamóður.
Þ. Edilonsson.
Ben. Gröndal. Gunnar Þórðarson. Dóra Gröndal.
Innilegt þakklæti fyrir auðsýnda samúð við andlát og
jarðarför
Magnúsar Guðmundssonar.
Ágúst Thejll.
Þökkum hjartanlega sýndan vinarhug við fráfall og jarð-
arför hjartkæru dóttur okkar, systur,mágkonu og móðursystur,
Jóhönnu Samúelsdóttur.
Sjerstaklega viljum við þakka Alþýðublaðinu, ásamt starfs-
)
fólki þess og prentsmiðjunnar.
Ingibjörg Danivalsdóttir. Samúel Guðmundsson.
Emma Samúelsdóttir. Sig ður Möller.
Maja Ammendrup og Povl Ammendrup.
Jóhann G. Möller. Tage Ammendrup og María Danivalsdóttir.